Alþýðublaðið - 07.03.1991, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR
7. AAARS 1991
AUKAÞING UM ÁL OG EVRÓPU? Rætt hefur verið
um það meðal þingmanna að haida beri aukaþing í sumar
að loknum kosningum. Verði á því tekin fyrir tvö stórmál
sem nú eru í deiglunni, álmálið og samningar fslands á
vettvangi Fríverslunarbandalagsins og Evrópubandalags-
ins. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra nefndi
þetta sem möguleika er hann kynnti stöðu samninga ís-
lands við Evrópuríki.
NÝR BÚVÖRUSAMNINGUR: Búist er við að land-
búnaðarráðherra leiti eftir samþykki til undirritunar á nýj-
um búvörusamningi á næsta ríkisstjórnarfundi sem haldin
verður á föstudag. Samkomulag hefur tekist um meginat-
riði á milli ráðuneytisins og Stéttarsambands bænda. Lík-
legt er, ef af undirritun á nýjum samningi verður, að hann
taki fyrst og fremst til sauðfjárframleiðslu. Um mjólkur-
framleiðsluna er talið að aðeins verði um rammasamning
að ræða. Jón Baldvin Hannibalsson segir að í tillögum sjö-
mannanefndarinnar sé aðeins um lítinn þátt þessa máls að
ræða og óeðlilegt sé að binda hendur næstu ríkisstjórnar
með því að fastbinda samning um hluta málsins núna.
BÆJARSTJÓRA SAGT UPP: Bæjarstjóranum á Egils-
stöðum hefur verið sagt upp störfum. Astæðan fyrir upp-
sögn hans er sögð vera málefnaágreiningur. Við síðustu
kosningar kom upp andstaða hjá meirihlutanum við það
að endurráða bæjarstjórann, og í málefnasamningi var
sett ákvæði um að skipta mætti um bæjarstjóra hvenær
sem væri á kjörtímabilinu ef ástæða þætti til. Sami bæjar-
stjórinn hefur verið á Egilsstöðum um langt árabil.
VERKTAKAR ÁHYGGUFULLIR: Verktakar hafa
áhyggjur vegna frestunar á byggingu á nýju álveri. Verk-
takar segja það þjóðhagslega mjög hagkvæmt að flýta
ýmsum framkvæmdum oghafa lagtframtillögur þarað
lútandi. Forsætisráðherra segir að ýmsar hugmyndir séu til
skoðunar og vonir standi tii að einhverjar tillögur verði til-
búnar fyrir afgreiðslu lánsfjárlaga. Verktakar leggja m.a. til
að ríkið taki að láni 1,5 milljarða og Reykjavíkurborg 1
milljarð, bein framlög frá ríkinu verði 1 milljarður, og hálf-
ur frá borginni. í>á er í tillögum þeirra gert ráð fyrir að hálf-
ur milljarður fáist lækki bensínverð í kjölfar þess að Persa-
flóastríðinu er lokið.
ASÍ 75 ÁRA í NÆSTU VIKU: Alþýðusamband íslands
verður 75 ára þann 12. mars næstkomandi. Af því tilefni
verða skrifstofur ASÍ opnar almenningi á sunnudaginn kl.
14—18. í listasafninu verður boðið upp á kaffi og afmælis-
tertu og fólki gefinn kostur á að taka þátt í léttum leik.
Þarna verður hægt að kynna sér sögu ASÍ og starfsemi
verkalýðshreyfingarinnar í landinu í bæklingum og skýr-
ingamyndum.
„FLÉTTA" VALDIMARS TILSÝNIS: í dag, hönnun-
ardeginum 1991, verða í fyrsta sinn til sýnis í Pennanum,
Hallarmúla, ný skrifstofuhúsgöng sem Valdimar Harðar-
son arkitekt hefur hannað. Nýju húsgögnin sem nefnast
„Flétta" eru framleidd úr mahóní, beyki og sprautulökkuð-
um plötum í lit. Valdimar er einn af kunnustu húsgagna-
hönnuðum landsins. Hann hannaði t.d. stólinn og borðið
„Sóley" og „Kontra‘‘-skrifstofuhúsgögnin.
LEIDARINN í DAO
Leiðari Alþýðublaðsins fjallar um landsfund Sjálf-
stæðisflokksins sem hefst í dag. „Formannseinvígið
hefur opinberað alla veikleika Sjálfstæðisflokksins.
Hinn stóri flokkur er reyndar ekkert annað en kosn-
ingabandalag sérhagsmunahópa. Þeir hópar |coma
nú glögglega fram, þótt tekist sé á um menn en ekki
málefni. Ósættið og mannhatrið blasir við í orðum
þeirra manna sem fjalla opinberlega um flokksbræð-
ur sína sem gegna tveimur æðstu stöðum
Sjálfstæðisflokksins," segir m.a. í leiðara Alþýðu-
blaðsins.
Fullar hillur af
pappír
Breytingar sem forsætisráð-
herra boðar á Byggðastofnun
kallar Karl Steinar Guðnason
loft. Hann segir að hillur stofn-
unarinnar svigni undan pappír
um ekki neitt.
Borgin bruðlar
Reykjavíkurborg með
gnægð fjár í höndum bruðlar
óhugnanlega með peninga.
Þegar almenningur þarfnast
sárlega þjónustu, byggir borg-
in ráðhús, kúlur og bílastæði
sem lítil eða engin þörf er fyrir.
Ólína Þorvarðardóttir skrifar
um bruðlið.
Líf er lagt í rúst
Við segjum frá merkilegu
starfi Stígamóta, samtaka
sem vinna gott starf. Oft hafa
nauðganir, sifjaspell og kyn-
ferðislegt áreiti lagt líf fólks í
rúst.'
*
Sedlabanki Islands spáir versnandi ástandi ríkisfjármála
Halli mun
aukast um 50%
Fjármálarábherra vísar spánni á bug
Sedlabanki spáir því
að halli á ríkissjóði verði
2—3 milljörðum hærri
en reiknað er með í fjár-
lögum fyrir 1991. Það er
um 50% hækkun. Þá
stefni í að innlent láns-
fjármagn aukist um
þriðjung, eða um 8,7
milljarða. Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráð-
herra vísar þessum
spám Seðlabanka á bug
og segir að í fyrra hafi
bankinn spáð því sama
og haft rangt fyrir sér.
„Nú eru komnir nýir tím-
ar og menn verða að venja
sig við það að spár stand-
ist,“ segir fjármáíaráðherra
um álit Hagfræðideildar
Seðlabankans. „Þetta var
það sama og menn sögðu í
fyrra og stóðst ekki þá.“
Seðlabanki segir að hið
opinbera muni þurfa 8,7
milljörðum meira lánsfé á
innlendum markaði á árinu
1991 en reiknað hafi verið
með. Sú aukning „sé ófær
með öllu og að auki mjög
óæskileg með tilliti til
væntanlegrar aukningar
orkuframkvæmda til að
mæta stóriðju" Þá verði
halli ríkissjóðs á árinu 1991
6—7 milljarðar og vaxi um
2—3 milljarða frá fjárlög-
um.
Nauðsynlegt sé að draga
úr lánsfjárþörf um nokkra
milljarða og koma í veg fyr-
ir raunvaxtalækkun miðað
við núverandi ástand.
Vaxtalækkun myndi skapa
þenslu.
Það er álit hagfræðideild-
arinnar að mikii þörf ríkis-
ins og húsnæðiskerfisins á
lánsfé hafi átt drýgstan þátt
í því að halda uppi „tiltölu-
lega háum raunvöxtum,
þrátt fyrir að sparnaður
hafi aukist um 36 milljarða
króna og eftirspurn at-
vinnufyrirtækja hafi verið
takmörkuð. I fyrra voru
raunvextir af óverðtryggð-
um lánum innlánsstofn-
anna 9,1% að meðaltali.
Seðlabanki telur mikilvægt
að komast sem fyrst út úr
vandanum með því að loka
húsnæðiskerfinu frá 1986
og hækka vexti af húsnæð-
islánum til samræmis við
húsbréfakerfið. Slíkt myndi
slá á vexti.
Það var Þorsteinn Páls-
son, sem óskaði greinar-
gerðar um lánskjör og
vexti. Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra lagði skýrsl-
una fram á Alþingi í gær.
RITSTJÓRN © 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR 0 625566