Alþýðublaðið - 07.03.1991, Blaðsíða 8
GEVAUA
Það er kaffið 687510
________
• ••• •••• • •••••••••• ••••
• •• •••• ••
• ••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• ••
• • •••• ••• • •••• • •
STJORNARLIÐAR MEÐ YFIRHÖNDINA: Stjórnar-
hermenn hafa nú betur í bardögum við uppreisnarmenn í
Basra, næststærstu borg íraks. Þeir hafa nú náð mestallri
borginni á sitt vald eftir 5 daga blóðuga bardaga á strætum
úti þar sem hundruð féllu.
FRÆNDI SADDAMS: Saddam Hussein hefur ráðið
frænda sinn í stöðu innanríkisráðherra til þess að bæla nið-
ur uppreisnir í suðurhluta Iraks.
HERT EFTIRLIT í BAGHDAD: írakar hafa komið fyrir
skyndiárásarsveitum á stræti Baghdadborgar og sett upp
eftirlitsstöðvar fyrir utan borgina. Þetta þykir benda til ótta
við að uppreisnin kunni að breiðast til borgarinnar.
FARSÖTTIR í ÍRAKÁ NÆSTUNNI?: Farsóttir á borð
við kóleru gætu drepið tugi þúsunda í írak um leið og veð-
ur fer að hlýna á næstu vikum, að sögn talsmanna Samein-
uðu Þjóðanna.
GYÐINGUM SKUU FJÖLGAÐ Á HERNUMDU
SVÆÐUNUM: ísraelsk stjórnvöld hafa í hyggju að tvö-
falda fjölda gyðinga á hernumdu svæðunum á Vestur
bakkanum og Gaza svæðinu þrátt fyrir mótmæli Banda-
ríkjanna, að sögn talsmanns stjórnarandstöðunnar í ísrael.
S Wf defia»rt; títe MnmMas
RÉTTARHÖLDIN YFIR
MANDELA: Lykilvitni í
réttarhöldunum yfir
Winnie Mandela sagði að
frúin hefði barið og hýtt
hann og þrjá aðra. Vitnis-
burðurinn þykir veikja
stöðu Mandeia-hjónanna.
FRÉTTAMANNA SAKNAÐ: Leiðtogi í liöi uppreisnar-
manna í írak sem hefur höfuðstöðvar sínar í Tehran, höf-
uðborg frans, sagði að þeir erlendu fréttamenn sem sakn-
að er í Suður-írak, væru í haldi íraskra hermanna.
PÁFIVILL BIÐJA í JERÚSALEM: Jóhannes Páll páfi
sagði að hann vildi fara til Jerúsalem til að biðja fyrir friði
í Mið-Austurlöndum milli gyðinga og múslima.
AHRIF STRIÐSINS: Bankastjóri bandaríska seðla-
bankans sagði að skjótur endir Persaflóastríðsins myndi
örva traust á efnahag Bandaríkjanna en varaði við að mikl-
ar skuldir þjóðarinnar yrðu áfram helsta vandamálið.
VIÐSKIPTABANNI AFLÉTT?: Suður-Afríka nálgast
nú óðum þau skilyrði er þingi landsins voru sett til að hægt
væri að aflétta viðskiptabanninu sem það hefur mátt þola
undanfarin ár. Líklegt er að öllum skilyrðum verði endan-
iega fullnægt snemma í sumar, að sögn embættismanna
landsins.
VERKFÖLL í SOVÉTRÍKJUNUM: Þúsundir náma-
verkamanna virtu að vettugi málamiðlanir Sovétstjórnar-
innar og gengu tii liðs við þúsundir annaarra sem verið
hafa í verkfalli til að krefjast hærri launa og afsagnar æðstu
leiðtoga landsins.
KOSNINGAR Á NÆSTA LEITI í INDLANDI: Mjög
líklegt þykir að kosningar verði haldnar bráðlega í Ind-
landi í kjölfar afsagnar forsætisráðherrans, Chandra Shek-
hars, og yfirlýsinga Congressflokksins um að kosningar
væru vænlegur kostur.
VESTRÆNIR STRÍÐS-
FANGAR LAUSIR: Þrjá-
tíu og fimm stríðsfangar úr
fjölþjóðahernum fengu
frelsi í fyrradag og í gær
komu þeir til Saúdí-Arabíu,
að vonum frelsinu fegnir.
Stjórnarkreppa á Indlandi
Forsætisráðherr-
ann segir af sér
Forsætisrádherra Ind-
lands, C'handra Shekhar,
sagði af sér í gær eftir fjög-
urra mánaða valdasetu og
lagði til að efnt yrði til
kosninga í landinu. Shek-
har sagði blaðamönnum
ad Ramaswamy Venkat-
araman forseti myndi
ákveða innan sólarhrings
hvað gera skyldi í stöð-
unni.
Aðdragandinn að afsögn
Shekhars var útganga með-
lima Congressflokksins undir
forustu Ghandis úr þingsöl-
um á þriðjudag. Shekhar var
ómyrkur í máli í ræðu sem
hann hélt á þinginu skömmu
fyrir afsögn sína. Hann sagði
að ríkisstjórn sín væri ekki
strengjabrúða í höndum Con-
gressflokksins, sem hefur
haldið honum við völd og
auðmýkti hann á þriðjudag-
irm.
„Við verðum að beygja
okkur undir hinn pólitíska
veruleika og stærðfræði er
hluti af þessum veruleika,"
sagði Shekhar. Stjórn hans
hefur aðeins 54 þingmenn af
515 sem sitja í neðri deild
þingsins.
Congressflokkur Gandhis,
sem hefur stærsta þingflokk-
inn, veitti Shekhar stuðning
til forsætis í nóvember sl., en
á slíkum skilmálum að lif rík-
isstjórnarinnar er í hans
höndum.
Congressflokkurinn hefur
krafist þess að Shekhar upp-
lýsi þingheim um nafn þess
manns sem skipaði tveimur
lögreglumönnum frá Hary-
ana-fylki að fylgjast með húsi
Rajivs Gandhis í Nýju Delhí.
Lögreglumennirnir voru
handteknir á laugardaginn.
Stjórnmálamenn telja vara-
forsætisráðherrann, Devi Lal,
vera viðriðinn málið, en hann
hefur mikil völd i Haryana og
hefur verið gagnrýndur fyrir
pólitíska spillingu.
Stjórnmálaspekúlantar
voru hissa á aðgerðum Con-
gressflokksins og voru ekki á
eitt sáttir á hvað flokkurinn
hygðist græða á þessari uppá-
komu á þinginu. Þeir telja
ólíklegt að Gandhi hafi viljað
fella Shekhar og hella sér út í
kosningar þar sem flokkur
hans virðist hafa lítið fylgi
samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum.
Nýr innanrikisráðherra
Saddam Hussein íraks-
forseti hefur rekid innan-
ríkisráðherra sinn og til-
nefnt frænda sinn til starf-
ans, sem hefur orð á sér
fyrir að kveða niður allar
uppreisnir á grimmdar-
legan hátt. Frændinn heit-
Albanía
ir Ali Hassan al-Majid og
hans hlutverk er að koma
aftur á reglu í írak eftir
ósigurinn í stríðinu við
bandamenn.
Majid varð þekktur fyrir að
berja villimannslega á upp-
reisnarmönnum eftir stríð Ir-
aka og írana árið 1988, en þá
beitti hann efnavopnum til að
bæla niður uppreisn Kúrda í
bænum Halabja í norður-
hluta íraks.
Einn leiðtoga uppreisnar-
liðsins í írak sagði í gær að er-
lendir fréttamenn, sem sakn-
að er í írak, væru í haldi
íraskra hermanna. Hann
sagði að þeir hefðu athugað
málið og komist að þeirri nið-
urstöðu að franskir, ítalskir
og fréttamenn frá öðrum
löndum væru í höndum lýð-
veldisvarðarins suður af
Basra.
Aukinn fólksflótti
Albanskir landamæra-
verðir skutu aðvörunar-
skotum til þess að reyna
að stöðva á annað þúsund
manns af serbnesku og
svartfjalla-þjóðerni við
landamærin er þeir
reyndu að flýja yfir til
Júgóslavíu í gær, að sögn
Tanjug fréttastofunnar.
Fréttin var ekki staðfest en
þar sagði að flóttamennirnir
hefðu reynt að komast til
Svartfjallalands, sem er lýð-
veldi í Júgóslavíu. Heimildir
herma að flóttamöennunum
hafi tekist að sleppa fram hjá
nokkrum albönskum her-
sveitum áður en þeir komu
að landamærunum. Embætt-
ismaður í Svartfjallalandi
sagði að hugsanlegt væri að
það tækist að semja við al-
bönsk stjórnvöld um að
flóttamennirnir fengju að
fara yfir landamærin í dag.
Hann sagðist gera ráð fyrir að
um 25 þúsund Serbar og
Svartfjallabúar myndu reyna
að komast yfir landamærin
til Júgóslavíu og að yfirvöld í
Svartfjallalandi væru tilbúin
til að taka við þeim.
Meira en 10 þúsund manns
reyndu að flýja sjóleiðina frá
Vlore til ítaliu fyrr í gærdag.
Heimildir úr albönsku höfuð-
borginni, Tirana, herma að
lögreglan hafi skotið viðvör-
unarskotum að hundruðum
manna sem reyndu að fá inn-
göngu í erlend sendiráð í
borginni.
Meira en 450 manns flúðu
frá Albaníu til Júgóslavíu í
janúar sl. eftir að Albaníu-
stjórn tók upp vægari stefnu
gagnvart fólki sem reyndi að
flýja.