Alþýðublaðið - 07.03.1991, Side 6
6
Fimmtudagur 7. mars 1991
Þekktum farsóttum nœr útrýmt:
Ungir læknar hafa
aldrei séð mislinga
„Það eru margir ungir iæknar
sem aldrei hafa séð mislingatil-
felli enda er þessi farsótt að
deyja út,“ sagði Matthías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir í
samtali við Alþýðublaðið.
Hér áður fyrr þótti nauðsynlegt
að öll börn fengju farsóttir eins og
mislinga, hettusótt og kíghósta þar
sem þessar sóttir gátu reynst lífs-
hættulegar öldruðu fólki. Sömuleið-
is þótti nauðsynlegt að telpur fengju
rauða hunda áður en þær yrðu kyn-
þroska því ef þær tækju sóttina van-
færar var hætta á að barnið fæddist
heyrnarlaust.
Nú hefur allengi tíðkast að bólu-
setja börn við tveggja ára aldur
gegn helstu farsóttum og flestir full-
orðnir ónæmir gegn þeim. Stúlkur
hafa verið bólusettar 12 ára gegn
rauðum hundum. Frá ársbyrjun
1989 hefur verið notað nýtt bóluefni
á smábörn, MMR, og nýtist það
gegn mislingum, rauðum hundum
og hettusótt. Nú hefur mislingum og
rauðum hundum nánast verið út-
rýmt og kíghósti er á hröðu undan-
haldi.
Matthías Halldórsson sagði þetta
gott dæmi um forvarnarstarf sem
skilaði góðum árangri en væri sjald-
an getið.
Nýr smifs[úkdómur
ú siúkrahusum?
„Sessat-veikin hefur farið um
sjúkrahúsin eins og eldur í sinu
á síðustu mánuðum. Ekki er vit-
að hvort um er að ræða smitsjúk-
dóm þar sem ekki hefur tekist að
einangra neinn sýkil,“ segir í
pistli eftir Jóhann Heiðar Jó-
hannsson í nýjasta hefti Lækna-
blaðsins, og gerir þar góðlátlegt
grín að framburði heilbrigðis-
stéttanna á íslensku máli. Þar
segir ennfremur:
„Umhverfismengun kemur til
greina en vísbendingar um slíkt eru
næsta fáar. Klínisk greining sjúk-
dómsins er hins vegar auðveld því
að veikin kemur þannig fram, að
orðin sessat, semsatt sensatt eða í
verstu tilfellum orðið sest skjóta upp
kolli í hröðum umræðum og erind-
um manna, hvenær sem hikað er
eða hlé verður á orðaflóði. Lítið er
enn um fræðilegar rannsóknir á fyr-
irbærinu, en þó hefur komið í ljós að
svipuð veiki hefur stungið sér niður
hjá ungu fólki. Hún lýsir sér þannig
að orðin þúst, þúúst eða þúvst
koma í ljós þegar hikað er í frásögn.
Eiöur Gudnason um nœstu orkufyrirtæki:
Ríkið eignist
meirihluta
Eiður Guðnason þingmaður
segir ástæðulaust að Reykjavík-
urborg eigi jafnstóran hlut í
orkuveri á Austurlandi eins og
borgin á nú í Landsvirkjun. Eið-
ur telur það ókost að ríkið eigi
ekki meirihluta í Landsvirkjun
og hafi þar af leiðandi ekki ráð-
andi áhrif á raforkuverð.
Eiður kveður ekki sjálfgefið að
ríkjandi fyrirkomulag haldist
óbreytt þegar ráðist verði í stórvirkj-
anir á næstunni. Eignaraðild
Reykjavíkurborgar að Landsvirkjun
eigi sér sögulegar forsendur. Engin
rök hnígi að því að borgin verði jafn-
stór eignaraðili í stórvirkjun austur
á Héraði eins og hún er nú í Lands-
virkjun. Jöfnun orkuverðs og sam-
eining orkufyrirtækja sé stór þáttur
í byggðastefnu, en talsvert hafi mið-
að í jöfnunarátt á undanförnum ár-
um — einkum er varðaði orkuverð
til húshitunar. Stefna beri að aukn-
um jöfnuð: og til þess að árangur ná-
ist þurfi hvorki að stíga mörg né stór
skref.
Vextir af lánum lœgri en verdbólgan 1968—1986:
Peningarnir f uðruðu upp
A ámniim IQfífi tíl IQfift Iiocn ....Jiv.
Á árunum 1968 til 1985 voru
vextir af óverðtryggðum lánum
lægri en verðbólga. Það þýðir að
útláússtofnanir hafi gefið pen-
inga með hverri krónu sem lán-
uð var. Mestar urðu „gjafirnar“
á árunum 1973—1975.
Á árinu 1975 var verðbólga skráð
54,1%, en vextir af 60 daga víxillán-
um voru þá 14,1%. Á tímabilinu
1968 til 1985 voru vextir nær und-
antekningalaust „neikvæðir," þ.e.
þeir voru undir verðbólgustiginu.
Óverðtryggð skuldabréf voru að-
eins árin 1971 og 1984 á vöxtum
sem voru yfir verðbólgu.
Segja má að allan sjöunda áratug-
inn hafi peningarnir fuðrað upp. Eft-
ir að verðtryggingu var komið á
snerist dæmið við. Raunvextir (vext-
ir umfram verðbólgu) af óverð-
tryggðum skuldabréfum voru t.d.
9,1% í fyrra.
Auglýsing frá
Menntamálaráði íslands
um styrkveitingar árið 1991
Styrkir til listamanna
Menntamálaráð veitir nokkra styrki úr Menningar-
sjóði til listamanna sem hyggja á dvöl erlendis til að
vinna að listgrein sinni. Til úthlutunar eru alls kr.
1.500.000,-
Umsóknum skulu fylgja nákvæmar upplýsingar um
fyrirhugaða dvöl.
Þeir sem ekki hafa hlotið sams konar styrk frá
Menntamálaráði síðastliðin fimm ár ganga að öðru
jöfnu fyrir við úthlutun.
Styrkir til fræðimanna
Menntamálaráð úthlutar nokkrum styrkjum til
fræðimanna samkvæmt sérstakri fjárveitingu á
fjárlögum, sem nú nemur samtals 310.000,-
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um þau fræði-
verkefni sem unnið er að.
Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa bor-
ist Menntamálaráði Islands, Skálholtsstíg 7, 101
Reykjavík, fyrir 8. apríl 1991. Nauðsynlegt er að
kennitala umsækjanda fylgi umsókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
Menningarsjóðs á Skálholtsstíg 7, Reykjavík.
Menntamálaráð íslands.
The Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation
Auglýsing um styrki
íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Found-
ation mun á árinu 1991 verja um 3 milljónum króna
til að styrkja tengsl íslands og Japans á sviði vís-
inda, viðskipta og menningar. Styrki þessa má bæði
veita stofnunum og einstaklingum vegna verkefna
í Japan eða samstarfs við japanska aðila.
Ekki verða veittir venjulegir námsstyrkir, en bæði
ferðastyrkir og styrkir vegna skammtímadvalar í
Japan koma til greina, auk verkefnastyrkja tengd-
um Japan.
í umsókn, sem verður að vera á ensku, sænsku,
norsku eða dönsku, skal gefa stutta en greinargóða
lýsingu á fyrirhuguðu verkefni ásamt fjárhagsáætl-
un og nöfnum umsagnaraðila eða meðmælenda.
Umsóknir skal senda fyrir 15. apríl nk. til Vísinda-
ráðs, Bárugötu 3, 101 Reykjavík.
Til sölu fasteign á Egilsstöðum
Kauptilboð óskast í Laufás 8, Egilsstöðum, stærð
hússins 578 m3 brunabótamat kr. 8.561.000,- Húsið
verður til sýnis í samráði við Sigurð Símonarson
bæjarstjóra, skrifstofu Egilsstaðahrepps sími 97-
11166.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum
aðilum og á skrifstofu vorri. Tilboðum sé skilað til
skrifstofu vorrar að Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl.
11.00, þann 14. mars 1991.
INNKAUPASTOFNUIU RIKISINS
BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
Vesturland
Frambjóðendur Alþýðuflokksins halda almennan
stjórnmálafund í Dalabúð, Búðardal,fimmtudaginn
7. mars kl. 20.30.
Guðrún Konný Pálmadóttir, Sveinn Þór Elínbergs-
son, Gísli S. Einarsson og Eiður Guðnason flytja
stutt ávörp.
Umræður og fyrirspurnir.
ÍSLAND í A-FLOKK!
Kjördæmisráð Alþýuflokksins
í Vesturlandskjördæmi.
Grundarfjörður - Stykkishólmur
Frambjóðendur Alþýðuflokksins í Vesturlandskjör-
dæmi í komandi kosningum halda almenna kynn-
ingarfundi sem hér segir:
Sunnudaginn 10. mars, kl. 16.00 í Ásakaffi íGrundar-
firði.
Sunnudaginn 10. mars kl. 20.30 í Hótel Stykkis-
hólmi.
Stutt ávörp flytja:
Jón Þór Sturluson, Sveinn Þ. Elínbergsson, Gísli S.
Einarsson og Eiður Guðnason.
Umræður og fyrirspurnir.
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins
í Vesturlandskjördæmi.
Fjörukvöld í Fjörukránni
þriðjudaginn 12. mars kl. 20.
Gestur kvöldsins er Guðmundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri.
26. mars verður Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra gestur kvöldsins.
9. mars verður Karl Steinar Guðnason þingmaður
gestur kvöldsins.
Þríréttuð máltíð eftir eigin vali á aðeins 790,- kr. öll
kvöldin.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar.
Látum bíla ekki
ganga að óþörfu!
Útbástur bitnar verst
á börnum...
UUMFERÐAR
RÁÐ