Alþýðublaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. mars 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
KYSSTU MIG KATA: Akureyringar og gestir þeirra
eiga eftir að njóta þess að skoða söngleikinn „Kysstu mig
Kata" á næstunni. Frumsýning er í kvöld. Leikritið er vel
þekkt og ekki síður þau góðu dægurlög sem sungin eru í
sýningunni. Fjöldi fólks hefur unnið hörðum höndum við
að koma sýningunni á laggirnar. Uppselt er á fyrstu sýn-
ingar og óhætt að spá góðri aðsókn, enda þörf fyrir íétt
gamanverk sem þetta á leikhúsfjölunum. Myndin er úr
leiknum þeirra fyrir norðan. — Ljósmynd Páll.
BÍLALEIGA FLUGLEIÐA - HERTZ-LEIGA: Bíia-
leiga Flugleiða hefur gert samning við alþjóðlega bíla-
leigu, Hertz. Framvegis mun leigan verða stöðluð sam-
kvæmt kröfum þessa risafyrirtækis. Björn Theódórsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs Flugleiða, segir að búið
sé að endurnýja allan bílaflotann. ,,Við bjóðum yngsta bíla-
leiguflota á íslandi," segir hann. Gengið var frá samningum
við Toyota um endurnýjunina, keyptir 218 bílar fyrir um
200 milljónir króna. Munu það stærstu bílakaup sem gerð
hafa verið hér á landi.
OPIÐ HÚS í HÁSKÓLA: Háskóli íslands verður með
opin hús á sunnudaginn í byggingum skólans austan Suð-
urgötu og í Háskólabíói. Kynningardagur skólans er tví-
þættur, annars vegar að kynna almenningi starfsemina,
hins vegar að bjóða framhaldsskólanemum og aðstand-
endum þeirra að skoða hvað skólinn býður upp á.
5 ÞÚSUIMD MANNS í BIÐRÖÐ: verði frumvarp um
að loka húsnæðiskerfinu frá 1986 ekki samþykkt fyrir
þinglok, munu 5 þúsund manns verða að biða áfram í bið-
röð eftir afgreiðslu. Frumvarp félagsmálaráðherra gerði
ráð fyrir að umsóknir þessa hóps yrðu afgreiddar.
BÓK TIL AÐ VARNA SLYSUM: Mikil vandræði hafa
hlotist af sívaxandi flugi lítilla flugvéla yfir Atlantshaf á síð-
ustu árum. Nú hefur Samstarfsnefndin um skipulagningu
flugs yfir Norður-Atlantshaf gefið út bækling, eða hand-
bók, fyrir þá sem hyggjast fljúga yfir úthafið. Þessi litla bók
á að koma í veg fyrir gáleysislegt og illa skipulagt flug á
hættulegri leið. Flugmálastjórn selur þessa bók á vægu
verði.
ÞYRLUNA STRAX! Fjölmörg félög og samtök hvetja
þingmenn til að bregðast skjótt við og láta kaupa björgun-
arþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna hið fyrsta. Hreppsnefnd
Gerðahrepps hefur send ríkisstjórninni áskorun um „tafar-
laus kaup á björgunarþyrlu". Báturinn Steindór sem
strandaði við Krýsuvíkurbjarg í síðasta mánuði er einmitt
úr Garðinum. Þar sannaðist hversu öflug björgunartæki
þyrlur eru.
SÁÁ KAUPIR SPILDU ÚR SALTVÍK; sáá hefur fest
sér 14 hektara spildu í Saltvík á Kjalarnesi. Þar verður reist
sjúkrastöð SÁÁ í stað stöðvarinnar sem lögð verður niður
að Sogni. Reykjavíkurborg er eigandi Saltvíkur. Sigurjón
Pétursson og fleiri gerðu athugasemdir við kaupin á
fundi borgarráðs á þriðjudaginn. Sigurjón sagði að hann
teldi landið óþarflega stórt fyrir sjúkrastöðina.
SVARAÐ I SIMA: íslendingar þekkja flestir til ónota-
legrar þjónustu á símaborðum ýmissa stofnana og fyrir-
tækja. Þó hefur verið sagt að símsvari fyrirtækis sé andlit
þess út á við. Stjórnunarfélagið ætlar að ráða bót á þessu
fyrir þá sem áhuga hafa. Símanámskeið verður haldið dag-
ana 3.-5. apríl næstkomandi og þar verður lögð áhersla
á að kenna gæðasímsvörun og áhersla lögð á bætta þjón-
ustulund. Leiðbeinendur: Helgi Hallsson, Þorsteinn
Óskarsson og Fanný Jónmundsdóttir.
STUÐNINGUR VIÐ BÆJARSTJÓRANN: 453 íbúar
á Egilsstöðum hafa skorað á bæjaryfirvöld að draga til
baka uppsögn bæjarstjórans, Sigurðar Simonarsonar.
Þetta eru um 70% þeirra sem greiddu atkvæði við síðustu
bæjarstjórnarkosningar. Að sögn þeirra sem afhentu und-
irskriftalistann eru undirskriftirnar ekki bundnar við
stuðningsmenn minnihlutans. Forsvarsmenn bæjarins
segjast ekkert meira hafa um þetta mál að segja.
Um 32% Reyknesinga
treysta Jóni Sigurðs-
syni best
Um 32% Reyknesinga
treysta Steingrími Her-
mannssyni best
Um 24% Reyknesinga
treysta Ólafi G. Einars-
syni best
Um 8% Reyknesinga
treysta Ólafi R. Grims-
syni best
Um 1,5% Reyknesinga
treysta Júliusi Sólnes
best
Jón Sigurðsson
og Steingrimur
njóta mests trausts
Jón Sigurðsson, iðnað-
ar- og viðskiptaráð-
herra, virðist njóta jafn-
mikils trausts meðal
kjósenda í Reykjanes-
kjördæmi og Steingrím-
ur Hermannsson forsæt-
isráðherra. Rétt um 32%
svarenda í könnun Fé-
lagsvísindastofnunar
treystu hvorum um sig
best efstu manna á list-
um kjördæmisins. 24%
treystu Ólafi G. Einars-
syni best og aðeins 8%
Ólafi Ragnari Gríms-
syni.
Eftirfarandi spurning
mun hafa verið lögð fyrir
íbúa í Reykjaneskjördæmi:
„Hverjum af eftirtöldum
efstu frambjóðendum
flokkanna treystir þú best:
Steingrími Hermannssyni,
Jóni Sigurðssyni, Ólafi G.
Einarssyni, Olafi Ragnari
Grímssyni eða Júlíusi Sól-
nes?" Hátt í 300 Reyknes-
ingar munu hafa svarað
spurningunni.
Mesta athygli vekur að
Jón Sigurðsson nýtur jafn-
mikils trausts og Steingrím-
ur Hermannsson, sem hef-
ur verið langefstur í slíkum
vinsældakönnunum á
landsvísu. Þá er einnig eft-
irtektarvert að oddviti
langstærsta flokksins sam-
kvæmt könnunum, Ólafur
G. Einarsson, er nokkuð
langt fyrir neðan þá tvo. Ól-
afur Ragnar mældist svo
með 8% traust, eða öllu
meira en Júlíus Sólnes, sem
fékk traustsyfirlýsingu
1,5% Reyknesinga.
Fiskmarkaöir hérlendis sœkja á
Aukningiit mest
í Hafnarfirði
Umtalsverð aukning hef-
ur orðið á fiski sem er
seldur á fiskmörkuðum
hér á landi fyrstu mánuði
ársins miðað við sama
tíma í fyrra. Verðmæti
þess afla sem seldur er á
fiskmörkuðunum hefur
aukist hlutfallslega mun
meira. Mest hefur aukn-
ingin veriö á Fiskmarkað-
inum í Hafnarfirði.
Séu bornar saman magn-
tölur á seldum fiski á fisk-
mörkuðum í febrúar sl. og í
fyrra kemur i eftirfarandi í
ljós:
Aukning á fiskmagni seldu
á Fiskmarkaðinum í Hafnar-
firði er úr 1285 tonnum í feb.
í fyrra í 1970 tonn sama mán-
uð þessa árs, eða 53,3%
aukning. Verðmæti aflans
hefur hins vegar aukist á
sama tíma úr 90 milljónum í
170 milljónir eða um 90%.
Magnaukning hjá Faxa-
markaði i Reykjavík sömu
mánuði er úr 1895 tonnum í
2409 tonn eða 27%. Verð-
mætaaukningin er hins vegar
76,6%, úr 118,3 milljónum í
209 milljónir.
Sambærilegar tölur hjá
Fiskmarkaði Suðurnesja eru í
magni 2.380 tonn i fyrra í
2.927 tonn, eða 23% aukn-
ing. Verðmæti aflans sem fer
í gegnum markaðinn hækk-
aði hins vegar úr 167,6 millj-
ónum kr. í 226,9 milljónir, eða
35,4%.
Svo virðist sem talsvert hafi
dregið úr gámaútflutningi á
fiski enda hefur fiskverð á
mörkuðum verið heldur lágt
það sem af er þessu ári. Auk
þess kemur til kvótaskerðing-
ar hjá þeim aðilum sem flytja
fiskinn óunninn út. Það er
sjálfsagt hluti af skýringunni
á auknum sölum á fiskmörk-
uðum hér á landi.
Þá fæst almennt mun betra
verð fyrir afla á fiskmörkuð-
um en annars gengur og ger-
ist. T.d. hefur meðalverð á
Yfirvöld umferðarmála
hafa vaxandi áhyggjur af
því hversu margir öku-
menn virðast aka á móti
rauðu ljósi á ljósastýrðum
gatnamótum. Samkvæmt
könnun sem umferdarráð
hefur gert mun þetta vera
mun algengara en ætlað
var.
Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri umferðarráðs,
segir að á næstunni muni lög-
reglan verða með sérstakt
átak í þessum efnum. Óli seg-
ir að lögreglan muni beita
þeim aðferðum sem heppi-
legastar eru taldar, eins og
t.d. að vera á ómerktum bíl-
um við eftirlitsstörf. Sekt
vegna aksturs gegn rauðu
ljósi er nú 7 þúsund krónur.
Líkti Óli þessari aðgerð við
baráttu gegn „rauðum hund-
um“, sem ökumenn af þessu
tagi vissulega eru.
Umferðarráð og lögregla
könnuðu í lok febrúar notkun
bílbelta, ljósa, og hvernig
ástand hjólbarða væri. Fram
slægðum þorski seldum í á
fiskmörkuðum hækkað í um
100 kr. fyrir kílóið að meðal-
tali á fyrstu mánuðum þessa
árs úr u.þ.b. 80 kr. sömu mán-
uði í fyrra.
Það aflamagn sem selt hefur
verið á fiskmörkuðum hér á
landi, hefur aukist umtals-
vert fyrstu mánuði þessa árs,
í samanburði við fyrstu
mánuði síðasta árs.
kom í könnuninni að notkun
bílbelta hefur dregist saman
og í úrtakinu voru 79% öku-
manna með bílbeltin spennt.
Af þeim bifreiðum sem
stöðvaðar voru í könnunni
reyndust tæplega 95% bif-
reiðanna hafa ljósin kveikt.
Langflestir bílanna voru
með neglda hjólbarða, eða
68%, 23% voru með ónegld
vetrardekk, og 4,9% bílanna
voru á sumardekkjum.
Barátta gegn
rauðum hundum
— segir Oli H Pórðarson hjá Umferðarráði