Alþýðublaðið - 15.03.1991, Side 7
Kúveit
e e e e • • •
e • • • • • • •
e e e • • • • • • • • • • • • • • •
e • • • • • • •
e • • • • • • • • • • • • • •
FRIÐARSYN BAKERS ! James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði friðarhorfur góðar i Mið-Austurlöndum eftir hann lauk för
sinni til ríkja í þessum heimshluta. Utanríkisráðherra Líbanons, Fares
Bouez, sagði eftir viðræður við Baker að hann sæi að Bandaríkja-
mönnum væri alvara með því að þrýsta á ísraela að hörfa á brott frá
Suður-Líbanon.
KREFJAST AFSÖKUNAR PLO:
Bandarikjamenn krefjast þess af PLO
að samtökin biðjist opinberlega afsök-
unar á því að hafa stutt íraka í Persaflóa-
stríðinu og setja þeir þetta sem skilyrði
fyrir því að samtökin verði höfð með í
ráðum í friðarviðræðum við ísrael.
Emirinn snýr aftur
Emírinn af Kúveit sneri aftur
til föðurlandsins í gær og við
heimkomuna rétti hann hendur
til himins í þakklætisskyni.
Tvær vikur eru liðnar frá því að
Persaflóastríðinu lauk og Irakar
voru hraktir frá Kúveit.
Emírinn, Jaber al-Ahmed al-
Sabah, hefur verið í útlegð í
Saúdí-Arabíu frá því að innrás Iraka
í Kúveit hófst 2. ágúst sl. Mikil við-
höfn var á flugvellinum við komu
emírsins og starfsmenn flugvallar-
ins hrópuðu: ,,Nú hefur sigur okkar
verið fullkomnaður, yðar hágöfgi."
Á sama tíma geisa en bardagar
milli uppreisnarmanna í írak og
fylgismanna Saddams Husseins for-
seta. Uppreisnarmenn segjast hafa
betur í stríðinu og hafa tilkynnt að
þeir hafi náð borginni Hilla, helstu
borginni í Babýlon-héraði, á sitt
vald. Talsmenn Hizbollah-samtak-
anna í Líbanon segja að margir her-
menn úr lýðveldisverði Saddams
hafi svikist undan merkjum og
gengið í lið með uppreisnarmönn-
um. Stjórnvöld í írak viðurkenndu í
fyrsta sinn opinberlega í vikunni að
uppreisnarástand ríkti í landinu.
Einnig berast fréttir um að upp-
reisn Kúrda í Norður-írak gangi
þeim í hag. Útvarpið í Tehran til-
kynnti að uppreisnarmenn hefðu
yfirbugað stjórnarherlið í bænum
Ranya og drepið leiðtoga Ba’ath
flokksins á staðnum og 18 aðra
embættismenn.
Iraskir flóttamenn sem komist
hafa til Iran segja að upplausnar-
ástand ríki í borginni Basra í suður-
hluta Iraks, og að íraskir hermenn
fari um götur og drepi óbreytta
borgara. Utlægir stjórnmálaleiðtog-
ar frá írak sem dveljast í Beirút sam-
þykktu í gær að koma á samsteypu-
stjórn í írak um leið og Saddam hafi
verið bolað frá völdum.
Þýsk dómsyfirvöld grípa í tómt
BAKERIMOSKVU : Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, James Bak-
er, kom til Moskvu í gær til að eiga viðræður við sovéska valdamenn.
Utanríkisráðherra Sovétríkjanna, Alexander Bessmertnykh, sagði að
eftirleikur Persaflóastríðsins og friðarumleitanir í Mið-Áusturlöndum
yrðu aðalmál á dagskrá viðræðnanna.
MÓTMÆLIN í JÚGÓSLAVÍU: Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Serbíu, Vuk Draskovic, sagði að mötmælendur myndu fjölmenna á
strætunum aftur ef kommúnistastjórnin segir ekki af sér.
VERÐBRÉF HÆKKA í LONDON: Gríðarlegt kaupæði olli því að
verðbréf í London hafa nú aldrei verið hærri í verði og sömu sögu er
að segja annars staðar í Evrópu. Þetta ýtir undir von manna að efna-
hagurinn sé nú á réttri leið.
KOSNINGARIPAKISTAN: Forsætisráðherrann, Nawaz Sharif, og
bandamenn hans unnu flest sæti í eftir deild þingsins þrátt fyrir ásak-
anir um hryðjuverk.
BANDARÍSKIR STRÍÐSFANGAR BARÐIR: Fyrrverandi banda-
rískir stríðsfangar íraka í Persaflóastríðinu sögðust hafa verið barðir af
íröskum hermönnum og neyddir til að koma fram á myndbandi og for-
dæma stríðið.
BÆTT SAMSKIPTI ÍRANS OG
BRETLANDS: Yfirvöld í íran segja að
tengsl þeirra við Breta muni batna í
kjölfar þess að breskur réttur felldi nið-
ur kærur gegn írönskum nema sem
ákærður hafði verið fyrir að hafa kom-
ið fyrir sprengju í bókabúð sem hafði
bók Rusdies, Söngva Satans, í hillum
sínum.
RÚSSAR HALDI ÁFRAM UMBÓTUM: Sovétríkin verða að
halda áfram efnahagsumbótum í átt til markaðsbúskapar ef þeir vilja
fá aðstoð frá hinum nýja Evrópubanka endurbyggingar og þróunar, að
sögn forseta bankans, Jacques Attali.
SEXIRAR SYKNAÐIR : Breskur áfrýjunardómstóll frelsaði sex íra
sem dæmdir voru í fangelsi fyrir 16 árum sakaðir um að hafa komið
fyrir sprengjum í Birmingham sem ollu dauða 21 manns.
Honecker fluttur
til Sovétrikjanna
Sex írar frjálsir eftir 16 ár í fangelsi
Dómshneyksli
Fyrrverandi leiðtogi Kommún-
istaflokks A-Þýskalands, Erich
Honecker, hefur verið fluttur til
Sovétríkjanna vegna slæmrar
heilsu, að því er lögfræðingur
hans sagði í gær.
Honecker, sem á yfir höfði sér
kærur fyrir manndráp vegna stefnu
þeirrar kommúnistaríkisins fyrrver-
andi að skjóta til bana menn sem
reyndu að flýja yfir Berlínarmúrinn,
dvaldist áður árlangt á sovésku
sjúkrahúsi austarlega í hinu samein-
aða Þýskalandi.
Honecker hafði yfirumsjón með
byggingu Berlínarmúrsins árið 1961
og er sakaður um að vera persónu-
lega ábyrgur fyrir dauða þeirra fjöl-
mörgu sem reyndu að flýja yfir múr-
inn. Hann hefur neitað sakargiftum.
Lögfræðingur Honeckers sagði
hann óhæfan til að mæta fyrir rétti
af heilsufarsástæðum, en réttaryfir-
völd hafa hafnað rökum þeirra og
dómsyfirvöld í Berlín leggja nú mik-
ið upp úr því að handtaka Honecker.
Þýsk dómsyfirvöld hafa ítrekað
beðið yfirvöld í Sovétríkjunum um
að framselja Honecker en hingað til
hefur verið fátt um svör. Þrátt fyrir
að sjúkrahús það sem Honecker
dvaldi á hafi ekki notið friðhelgi
reyndu þýskri saksóknarar ekki að
koma höndum yfir hann þar. Ástæð-
an fyrir því mun vera sú að þýskum
yfirvöldum var í mun um að halda
Sovétmönnum góðum til að samein-
ing þýsku ríkjanna gæti farið sóma-
samlega fram.
Breskur yfirréttur freisaði í
gær sex Ira úr haldi sem dæmdir
voru í fangelsi fyrir 16 árum,
ákærðir fyrir ad sprengja í loft
upp nokkur veitingahús í Birm-
ingham, sem olii dauða 21
manns. Dómurinn var umdeild-
ur á sínum tíma og hefur nú vak-
ið upp spurningar um bresku
lögregluna og dómskerfið al-
mennt.
Ástæða þess að mál írana var tek-
ið upp að nýju var að ný sönnunar-
gögn fundust í málinu. Þrír dómarar
ógiltu morðákæruna á hendur
mönnunum, sem kallaðir hafa verið
„Birmingham-sexmenningarnir".
Skömmu eftir sprengingarnar í
Birmingham lýsti írski lýðveldisher-
inn, IRA, yfir ábyrgð á verknaðin-
um, sem olli miklum óhug meðal al-
mennings á sínum tíma.
Dómarinn í máli sexmenning-
anna sagði þeim að í ljósi nýrra
sönnunargagna sem komið hafi í
ljós við yfirheyrslur skyldu menn-
irnir fara frjálsir ferða sinna. Úr-
skurðinum var fagnað með miklu
lófataki stuðningsmanna íranna og
fagnaðarlætin breiddust fljótt út á
göturnar í nágrenni við Old Bailey
réttinn í London.
Dómur yfir mönnunum á sínum
tíma var einkum byggður á vísinda-
legum sönnunargögnum sem nú
teljast óáreiðanleg og að sögn verj-
andans í málinu var vitnisburður
lögreglunnar í meira lagi ósann-
gjarn.
Dómarinn sagði í gær að réttur-
inn myndi rökstyðja dóm sinn í smá-
atriðum innan tíðar.
dagskráin
Sjónvarpið
17.50 Litli víkingurinn 18.20 Brúðu-
óperan 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Tiðarandinn 19.20 Betty og börnin
hennar 19.50 Hökki hundur 20.00
Fréttir og veður 20.50 Gettu betur
21.50 Bergerac 22.45 HM í skauta-
dansi 23.45 Leiðin yfir Dóná
(Chodnik cez Dunaj) 01.15 Útvarps-
fréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Með Afa og
Beggu til Flórida 17.40 Lafði Lokka-
prúð 17.55 Trýni og Gosi 18.05 Á
dagskrá 18.20 ítalski boltinn 18.40
Bylmingur 19.19 19.19 20.10 Hagg-
ard 20.40 MacGyver 21.30 Reykur
og bófi (Smokey and the Bandit)
23.05 Blóðspor (Tatort: Blutspur)
00.35 Hús sólarupprásarinnar
(House of the Rising Sun) 02.05 Dag-
skrárlok.
Rás 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur Rásar 1 08.00
Fréttir 08.10 Veðurfregnir 08.32
Segðu mér sögu 09.00 Fréttir 09.03
Ég man þá tíð 10.00 Fréttir 10.03
Morgunleikfimi 10.10 Veðurfregnir
11.00 Fréttir 11.03 Tónmál 11.53
Dagbókin 12.00 Fréttayfirlit á hádegi
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veður-
fregnir 12.48 Auðlindin 12.55 Dánar-
fregnir 13.05 í dagsins önn 13.30
Hornsófinn 14.00 Fréttir 14.03 Út-
varpssagan: Vefarinn mikli frá Kas-
mír 14.30 Miðdegistónlist 15.00
Fréttir 15.03 Meðal annarra orða
16.00 Fréttir 16.05 Völuskrín 16.15
Veðurfregnir 16.20 Á förnum vegi
16.40 Hvunndagsrispa 17.00 Fréttir
17.03 Vita skaltu 17.30 Tónlist á sið-
degi 18.00 Fréttir 18.03 Þingmál
18.18 Að utan 1&30 Auglýsingar
18.45 Veðurfregnir 19.00 Kvöldfréttir
19.35 Kviksjá 20.00 í tónleikasal
21.30 Söngvaþing 22.00 Fréttir 22.07
Að utan 22.15 Veðurfregnir 22.20
Lestur Passíusálma 22.30 Úr síðdeg-
isútvarpi liðinnar viku 23.00 Kvöld-
gestir 24.00 Fréttir 00.10 Miðnætur-
tónar 01.00 Veðurfregnir 01.10 Næt-
urútvarp á báðum rásum til morg-
uns.
Rás 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Níu fjögur 12.00
Fréttayfirlit og veður 12.20 Hádegis-
fréttir 12.45 Niu fjögur 16.03 Dagskrá
18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir
19.32 Gullskífan 20.00 Nýjasta nýtt
22.07 Nætursól 01.00 Næturútvarp á
báðum rásum til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir
09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís
Gunnarsdóttir 14.00 Snorri Sturlu-
son 17.00 ísland í dag 18.30 Kvöld-
stemmning á ByIgjunni 22.00 Á næt-
urvaktinni 03.00 Heimir Jónasson.
Sljarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeildin —
Stofa 10212.00 Sigurður Helgi Hlöð-
versson 14.00 Sigurður Ragnarsspn
17.00 Björn Sigurðsson 20.00 ís-
lenski danslistinn 22.00 Ólöf Marin
Úlfarsdóttir 03.00 Freymóður Sig-
urðsson.
Aðalstöðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Fram að hádegi 09.15 Heiðar,
heilsan og hamingjan 09.30 Heimil-
ispakkinn 10.00 Hver er þetta? 10.30
Morgungestur 11.00 Margt er sér til
gamans gert 11.30 Á ferð og flugi
12.00 Hádegisspjall 13.00 Strætin úti
að aka 13.30 Gluggað í síðdegisblað-
ið 14.00 Brugðið á leik í dagsins önn
14.30 Saga dagsins 15.00 Topparnir
takast á 16.15 Heiðar, heilsan og
hamingjan 16.30 Alkalínan 18.30
Tónaflóð Aðalstöðvarinnar 20.00
Gullöldin 22.00 Grétar Miller 00.00
Næturtónar Aðalstöðvarinnar.