Alþýðublaðið - 26.03.1991, Qupperneq 7
Þriðjudagur 26. mars 1991
7
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Kristján Benediktsson
rafvirkjameistari,
Háaleitisbraut 24
lést í Landspítalanum 21. mars.
Ólöf Kr. ísfeld
Rafn Kristjánsson Hrafnhildur Þorgrímsdóttir
Margrét Kristjánsdóttir John Duncombe
og barnabörn
Vinnuskóli Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbeinend-
um til starfa við Vinnuskólann í sumar. Starfstími
skólans er frá 1. júní til 31. júlí.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verk-
stjórn og þekkingu á gróðurumhirðu og öðrum
verklegum störfum.
Reynsla í starfi með unglingum er líka æskileg.
Ennfremur er sérstaklega auglýst eftir leiðbeinend-
um fyrir hóp fatlaðra ungmenna sem þurfa mikinn
stuðning í starfi.
Umsóknareyðublöð eru afhent í Ráðningarstofu
Reykjavíkur, Borgartúni 3, sími 622648. Þar eru
einnig gefnar upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl nk.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
Heilsugæslustöð á Blönduósi
Lóðarlögun
Tilboð óskast í jarðvinnu og ræsagerð við Heilsu-
gæslustöð á Blönduósi. Verkið felst m.a. í um 2500
m3 jarðvegsskiptun og lagningu um 370 m af frá-
rennslislögnum.
Verktími er til 15. júní 1991.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík til og með þriðjudags 2. apríl gegn
10.000,- skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgartúni 7,
fimmtudaginn 4. apríl 1991 kl. 11.00.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISINS
________BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK_
Fjörukvöld í Fjörukránni
í kvöld kl. 20.00.
Gestir kvöldsins eru Karl Steinar Guðnason og
Rannveig Guðmundsdóttir.
Þríréttuð máltíð eftir eigin vali á aðeins 790,-
Mætum öll í páskaskapi.
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar.
^ísland i A-flokk!
Reykjavík:
I fararbroddi framfara
Fundur með iðnaðarráðherra
Verkalýðs- og stjórnmálanefnd S.U.J. og Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
boða til opins fundar miðvikudaginn 27. mars nk. kl. 20.15 í Félagsmiðstöð
jafnaðarmanna í Reykjavík (Rósinni).
Gestur fundarins og framsögumaður verður Jón Sigurðsson ráðherra og
efsti maður á lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi.
Fundarstjóri verður Jón Baldur Lorange, form. Verkalýðs- og
stjórnmálanefndar S.U.J.
Aliir jafnaðarmenn velkomnir.
Vestfirðir:
Fundur með
iðnaðarráðherra
Alþýðuflokkurinn efnir til almenns fundar í Kvenfélagshúsinu á Hólmavík í
dag þriðjudag kl. 17.00.
Aðalræðumaður verður Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
Auk þess koma á fundinn
Sighvatur Björgvinsson,
alþm., Pétur Sigurðsson,
forseti Alþýðusambands
Vestfjarða og Björn Ingi
Bjarnason fiskverkandi.
Fundarstjóri:
Björn Árnason sjómaður.
Að framsögu lokinni
verða almennar umræður
og fyrirspurnir.
Allir eru velkomnir á
fundinn. Notið þetta
tækifæri og kynnist
sjónarmiðum
Alþýðuflokksins.
A-listinn á Vestfjörðum.
Suðurnes:
Fundur með
utanríkisráðherra
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra biður þig að gera sér þann
heiður að koma á opinn fund, sem haldinn verður í Stapa,
miðvikudagskvöldið 3. apríl kl. 20.30.
Á fundinum mun Jón
Baldvin ræða nýjustu
atburði á vettvangi
stjórnmálanna og málefni
Keflavíkurflugvallar.
Fundarstjóri:
Guðfinnur Sigurvinsson
bæjarfulltrúi.
Alþýðuflokksfélögin.
Allir eru velkomnir
Notið þetta
tækifæri og kynnist
sjónarmiðum
Alþýðuflokksins.