Alþýðublaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 18
18
Þriðjudagur 9. apríl 1991
Framkvæmda-
sjóður fatlaðra
úthlutar 236
milljónum
Framlög Framkvæmdasjóðs fatlað-
ara á árinu 1991 skiptast í 51 stað.
Þau nema alls 236 milljónum króna
en þar að auki hefur verið ákveðið
að falla frá 35 milljón króna skerð-
ingu við afgreiðslu lánsfjárlaga.
Framkvæmdasjóður fatlaðra var
stofnaður með lögum nr. 41 árið
1983 um málefni fatlaðra. Sjóðurinn
tók við Framkvæmdasjóði öryrkja
og þroskaheftra svo og skuldbind-
ingum hans. Þótt lög hafi verið í
gildi um sjóðinn frá ársbyrjun 1984
var fyrst gefin út reglugerð um verk-
efni sjóðsins og starfshætti í janúar
síðastliðnum.
Ný reglugerð
um félagslegar
íbúðir
Félagsmálaráðherra hefur gefið út
reglugerð um félagslegar íbúðir og
Jóhanna skipar nefnd um múlefni
barna og unglinga á höfuð-
borgarsvæðinu
Byggingarsjóð verkamanna. Reglu-
gerðin kemur í stað eldri reglugerð-
ar um Byggingarsjóð verkamanna
pg reglugerðir um kaupleiguíbúðir.
í reglugerðinni er kveðið á um
ábyrgð og verksvið sveitarstjórna
og húsnæðisnefnda, um lán til fé-
lagslegra íbúða, um byggingu eða
kaup á félagslegum íbúðum, um rétt
einstaklinga til félagslegra íbúða og
réttarstöðu íbúðareigenda og leigj-
enda, um innlausn og endursölu á
félagslegum íbúðum.
Jafnréttislög
breyta hlut-
verki jafnréttis-
ráðs
Alþingi samþykkti á síðustu dögum
sínum á yfirstandandi kjörtímabili
ný lög um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla. Með lögum þess-
um er hlutverki Jafnréttisráðs breytt
verulega. Öll kærumál eru flutt frá
ráðinu til sérstakrar kærunefndar. I
kærunefnd sitja þrír lögfræðingar,
tveir tilnefndir af Hæstarétti og einn
af félagsmálaráðherra. Verkefni
kærunefndar er að taka við ábend-
ingum um brot á jafnréttislögum og
rannsaka mál af því tilefni. 1 lögun-
um er rík áhersla lögð á að hvers
kyns mismunun gagnvart starfsfólki
á grundvelli kynferðis sé óheimil.
4 ára fram-
kvæmdaáætlun
um jafnrétfti
kynjanna
Félagsmálaráðherra hefur lagt fyrir
ríkisstjórn íslands og Alþingi fram-
kvæmdaáætlun til 4 ára um aðgerð-
ir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Við samningu framkvæmdaáætlun-
arinnar er lögð megináhersla á eftir-
farandi þætti: 1. Aðgerðir til að jafna
stöðu kynjanna á öllum skólastig-
um. 2. Launamál karla og kvenna.
3. Aðgerðir til að bæta stöðu
kvenna á vinnumarkaði. 4. Aðgerð-
ir til að bæta stöðu kvenna í dreif-
býli. 5. Ýmis félagsleg réttindi.
Tvær alþjóða-
samþykktir full-
giltar
A síðasta ári voru samþykktar tvær
þingsályktunartillögur á Alþingi
sem félagsmálaráðherra lagði fram
um heimild fyrir ríkisstjórnina til að
fullgilda tvær alþjóðasamþykktir
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar,
ILO. Markmið stofnunarinnar er að
efla félagslegt réttlæti í öllum lönd-
um heims. Félagsmálaráðuneytið
hefur farið með samskipti íslands
við stofnunina frá upphafi. Sam-
þykktirnar sem um ræðir voru nr.
122 frá 1964 um stefnu i atvinnu-
málum og nr. 159 frá 1983 um starfs-
endurhæfingu og atvinnumál fatl-
aðra. Kjartan Jóhannsson, sendi-
herra íslands í Genf, afhenti for-
stjóra Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar í Genf fullgildingarskjöl ís-
lands þegar 77. Alþjóðavinnumála-
þingið stóð yfir í júní á síðasta ári.
Þetta eru fyrstu fullgildingar íslands
á álþjóðasamþykktum sem þing Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar
hafa afgreitt í rúman áratug.
Framkvæmda-
áætlun i hús-
næðismálum
aldraðra: 500
ibúðir á ári
Félagsmálaráðherra hefur í sam-
vinnu við Húsnæðisstofnun ríkisins
látið gera 5 ára bygginga- og fram-
kvæmdaáætlun í húsnæðismálum
aldraða. Nefnd, sem falið var að
undirbúa framkvæmdaáætlunina
og skilaði niðurstöðum 12. mars sl.,
leggur til að byggðar verði rúmlega
2400 íbúðir fyrir aldraða á 5 árum,
eða tæplega 500 íbúðir á ári. Gert er
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra hefur skipað samstarfs-
nefnd um málefni barna og ung-
linga á höfuðborgarsvæðinu. Mark-
mið samstarafsnefndarinnar verða
að hafa yfirsýn yfir málefni barna
og ungmenna á höfuðborgarsvæð-
inu, safna upplýsingum, miðla upp-
ráð fyrir að byggðar verði á landinu
öllu um 370 eignaríbúðir og um 120
kaupleiguíbúðir að jafnaði næstu 5
árin.
4 milljónir til
námskeida fyrir
atvinnulausa
Félagsmálaráðherra hefur í samráði
lýsingum og styðja rannsóknar-
verkefni sem varða málefni þessa
þjóðfélagshóps, stuðla að sam-
ræmdri stefnumörkun í málefnum
bar na og ungmenna og fylgjast með
þróun hliðstæðra mála í nágranna-
löndunum.
við vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins ákveðið að veita 4
milljónir króna til námskeiðahalds
fyrir atvinnulausa. Leitað var til
Menningar- og fræðslusambands al-
þýðu um slíkt námskeiðahald og var
það samþykkt einróma af stjórn
sambandsins. Styrknum verður var-
ið til undirbúnings farandnámskeiðs
fyrir atvinnulausa um allt land.
FJÖLBRAUTASKÓU 5UÐURU\NDS
ÍTSS | FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
lisai |á akureyri
Fjölbrautaskóli Suðuriands á Selfossi lýsir eftir
kennurum til starfa á komandi haustönn í þessum
greinum:
íslensku, dönsku (hlutastarf), þýsku, stærðfræði,
efnafræði (hlutastarf), félagsfræði, sálfræði, við-
skiptagreinum (hlutastarf), tréiðnagreinum
(hlutastarf), sérkennslu.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari (sími 98-
22111). Umsóknir berist honum fyrir 30. apríl n.k.
Háskólamenntaðir
ríkisstarfsmenn
Þetta eru ráðherrarnir sem settu bráðabirgðalögin.
Ólafur Ragnar Grímsson Alþýðubandalagi, Stein-
grímur J. Sigfússon Alþýðubandalagi, Svavar
Gestsson Alþýðubandalagi.
Jóhanna Sigurðardóttir Alþýðuflokki, Jón Baldvin
Hannibalsson Alþýðuflokki, Jón Sigurðsson Al-
þýðuflokki.
Júlíus Sólnes Borgaraflokki, Óli Þ. Guðbjartsson
Borgaraflokki.
Guðmundur Bjarnason Framsóknarflokki, Halldór
Ásgrímsson Framsóknarflokki, Steingrímur Her-
mannsson Framsóknarflokki.
Gefið þeim ekki annað tækifæri.
Félag íslenskra náttúrufræðinga.
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða hjúkrunarfræðing á bæklunardeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sem fyrst eða
eftir samkomulagi.
Deildin er 13—15 rúma, sinnir almennum bæklun-
arlækningum, þ.m.t. gerviliðaaðgerðum auk mót-
töku bráðatilfella frá Norður- og Austurlandi.
Upplýsingar gefa Guðmunda Óskarsdóttir deildar-
stjóri og Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 96-22100 kl. 13—14 virka daga.
Notaðu
endurskins
merki -og
komdu heil/l heim.
UMFERÐAR Fararhe*/\
ráð
Alþýðublaðið og PRESSAN
óska eftir blaðberum í eftirtalin hverfi:
Bústaðahverfi
Kleppsholt
Teiga
Vesturbæ
Breiðholt
Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 625566 Alþýðu-
blaðið og 621313 PRESSAN.
Einnig vantar lausasölubörn um allan bæ.
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
Almennur fundur verður haldinn að Goðatúni 2,
miðvikudaginn 10. apríl nk. kl. 20.30.
Efni fundarins:
Alþingiskosningar. "
Önnur mál.
Mætum oll.
Stjórnin.