Alþýðublaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 13
/
Þriðjudagur 9. apríl 1991
Ranitsóknar-
verkelni til að
lækka
bygginga-
kostnað
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið
að koma af stað sérstöku rannsókn-
arverkefni, með aðild Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðarins,
sem hefur það verkefni að greina
heistu þætti byggingarkostnaðar og
athuga þróun þessara mála. Nefnd-
in gerir einnig tillögur um hvernig
stuðla megi að hagkvæmum bygg-
ingarháttum og lækkun byggingar-
kostnaðar.
Lánakerfinu frá
1986 lokað
Hætt verður að taka við umsóknum
um lán úr lánakerfinu frá 1986.
Þetta var annað meginatriða í frum-
varpi félagsmálaráðherra um hús-
næðislánakerfi sem samþykkt var á
Alþingi þ. 19. mars sl. Felld hafa ver-
ið brott ákvæði í lögum um Hús-
næðisstofnun sem veita öllum rétt
til iáns úr Byggingasjóði ríkisins
sem greitt hafa í lífeyrissjóð að því
tilskildu að viðkomandi lífeyrissjóð-
ur hafi gert samning við Húsnæðis-
stofnun um skuldabréfakaup.
Ákvæði kerfisins munu þó halda.
gildi sínu fram til 1. mars 1994 gagn-
vart þeim umsækjendum sem þegar
hafa fengið lánsloforð frá Húsnæðis-
stofnun. Og einnig þeim umsækj-
endum sem eigi hafa fengið lánslof-
orð en fengið svar almenns eðlis frá
Húsnæðisstofnun um að þeir eigi
rétt á láni.
Úrbóta að
vænta í hús-
næðismálum
geðveikra
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra hefur skipað starfshóp
sem hefur það hlutverk að gera til-
lógur um úrbætur í húsnæðisog fé-
lagsmálum alvarlega geðsjúkra sem
eru útskrifaðir og búa við óviðun-
andi aðstæður. Um er að ræða 35-
40 manns, alls staðar af landinu en
aðallega úr Reykjavík. Ákveðið hef-
ur verið þegar að tvö sambýli fyrir
geðsjúka verði tekin í notkun á
þessu ári.
13
Við bjóðum þér að kynnast nýjum útgáfum af Axei-bókhaldS'
kerfinu fyrir ríkisstofnanir, fyrirtæki og sveitarfélög.
Axel-bókhaldskerfið er heildarlausn þar sem allir þættír
fjárhagsbókhaldsins érg samtengdir.
Sýning verður hajdin að Háaleitisbraut 1 (í Valhöll)
í húsakynnum Axél-hugbúnaðar á 3. hæð, eftirtalda daga:
6/lánudaginn 8. apríl frá kl. 10.00 tiM7.00 og
þriðjudaginn 9. april frá kl. 10.00 tií 17.00.
Auk þess býðst þér að hringja í okkur og fá sérstakan
kynningartíma þegar þér þentár.
Verið velkomin.
fölvölur hf. • Háaleitisbraut 1
Sími 679410 • Myndriti 679430