Alþýðublaðið - 10.04.1991, Side 1
MIÐVIKUDAGUR
10. APRÍL 1991
Rafael Lopex Palanco, yfirverkfræðingur Expo 92, sýnir hér
Vigdísi Bjarnadóttur, deildarstjóra á skrifstofu forsetaemb-
ættisins, líkan að brúargerð á heimssýningarsvæðinu. Líkur
eru nú á að ísland verði meðal annarra þjóða á því svæði. —
A-mynd GTK.
90 MILLJÓNIR í ÍSLANDSSÝNINGU: Norskur
skipakóngur hefur lýsi því yfir að hann sé tilbúin að leggja
fram 90 milljónir í verkefni íslendinga við heimssýninguna
á Spáni, EXPO 92, á næsta ári. Þetta er háð því að íslend-
ingar séu tilbúnir að leggja fram 150 milljónir á móti. Á
fundi sem skipakóngurinn átti með íslenskum aðilum, þar
á meðal sendiherrunum Haraldi Kröyer og Einari Bene-
diktssyni, var samþykkt að legpja til að íslandsskálinn yrði
fundarstaður um umhverfismal.
FLUGMENN AÐ NÁ SAMNINGUM? Flugmenn og
viðsemjendur þeirra hafa setið á stanslausum fundum og
reyna að ganga frá nýjum reglum um vinnutíma flug-
manna. Vonir standa til um að takast megi að leggja fram
frágengnar tillögur á sáttafundi sem haldin verður í dag.
GRASKÖGGLAVERKSMIÐJUM BJARGAÐ: Rík-
isstjórnin hefur samþykkt tillögur frá landbúnaðarráð-
herra um aðstoð við graskögglaverksmiðjur. Fjórar verk-
smiðjur eru nú starfandi í landinu og fá þær tíu milljónir
til að skipta á milli sín. Aðstoðin er komin til vegna þess
hve illa hefur gengið að selja framleiðslu síðasta árs. Helsta
ástæða er sögð vera sú að kjarnfóðurgjald var lækkað og
við það hafi salan dregist verulega saman.
SORPA OPNAR NÝJA STÖÐ í GUFUNESI: Þann
26. þessa mánaðar mun Sorpa, sem er stytting á Sorpeyð-
ing höfuðborgarsvæðisins bs., opna nýja móttöku- og
flokkunarstöð í Gufunesi. Stöðin er sniðin að íslenskum að-
stæðum og er einstök í sinni röð. Þá mun Sorpa einnig yfir-
taka rekstur gámastöðva á höfuðborgarsvæðinu og verður
endurskipulagningu þeirra lokið fyrir mitt sumar. í tengsl-
um við gámastöðvarnar verður sú nýlunda tekin upp að
taka á móti prentpappír til endurvinnslu frá heimilum og
atvinnurekstri. Áætlað er að á höfuðborgarsvæðinu falli
árlega til um 115 þúsund tonn að sorpi, eða 800 kíló á
hvern íbúa. Áætlað er að 30 manns starfi hjá Sorpu. Fram-
kvæmdastjóri er Ögmundur Einarsson en stöðvarstjóri Ás-
mundur Reykdal.
LEIDARINN í DAG
Leiðari Alþýðublaðsins í dag fjallar um þann
hræðsluáróður Steingríms Hermannssonar forsæt-
isráðherra að alþingiskosningarnar séu þjóðarat-
kvæði um aðild Islands að Evrópubandalaginu. Al-
þýðublaðið bendir á, að þarna ruglar forsætisráð-
herra saman tveirjiur óskyldum hlutum: Annars
vegar viðræðum Islands undanfarin tvö ár sem
EFTA-ríkis við EB um sameiginlegt evrópskt efna-
hagssvæði og hins vegar aðild íslands að EB, sem
aldrei hefur verið á dagskrá.
Við erum nísk
Styður fiskverka-
fólk
Jón Baldvin í
Múlakaffi
IVið íslendingar leggjum
mun minna til þróunaraöstoð-
aren nágrannaþjóðirnar. Skoð-
anakönnun sýnir að meirihluta
landsmanna finnst óþarfi að
gera betur í þessum efnum.
IFramkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins lýsir yfir
stuðningi við kröfur fiskverka-
fólks um bætt kjör í kjölfar ný-
gerðra samninga við sjómenn.
IÁ dögunum boðaði Jón
Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, til op-
ins fundar í Múlakaffi. Fjöl-
menni var á fundinum og
margir vörpuðu fram spurn-
ingum til formannsins.
Samkvœmt könnun Félagsvísindastofnunar meðal kjósenda í
Reykjaneskjördœm i
ER BESTA
IFRAMBOÐIÐ
Reyknesingar telja Al-
þýðuflokkinn með bestu
frambjóðendurna í kjör-
dæminu, samkvæmt nið-
urstöðum úr þjóðmála-
könnun sem Félagsvís-
indastofnun gerði í
marslok. 37,7% þeirra
Reyknesinga sem af-
stöðu tóku sögðu Al-
þýðuflokkinn með bestu
frambjóðendurna en
35,2% Sjálfstæðisflokk-
inn.
Það sem vekur mesta at-
hygli við þessar niðurstöð-
ur er hversu lítil fylgni er
milli stuðningi fólks við
flokka og þess hvaða lista
það telur vera með bestu
frambjóðendurna. í um-
ræddri skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar
mældist fylgi Sjálfstæðis-
flokksins 55,9% í Reykja-
neskjördæmi þrátt fyrir að
rúmlega 20% færri teldu
þar vera bestu frambjóð-
endur á ferð. Fylgi Alþýðu-
flokksins mældist hins veg-
ar lítið á Reykjanesi í könn-
uninni, eða 15,6%, þrátt
fyrir að 37,7% svarenda í
sömu könnun teldu Al-
þýðuflokkinn vera með
bestu frambjóðendurna.
Spurningin þar sem spurt
var um fylgi flokkanna
hljóðaði svo: „Hvaða fram-
boðslisti í Reykjaneskjör-
dæmi finnst þér vera með
bestu frambjóðendurna,
óháð því hvaða flokk þú
ætlar að kjósa?" Hér birtast
niðurstöðurnar í töflu að
viðbættum niðurstöðum
könnunarinnar.
Það var Alþýðuflokkur-
inn á Reykjanesi sem fékk
Félagsvísindastofnun til að
spyrja umræddrar spurn-
ingar í þjóðmálakönnun
sinni. Vert er að geta þess
að skekkjumörk geta verið
talsverð en breyta þó ekki
höfuðdráttum niðurstaðna.
Hvaða frambodslisti í Reykjaneskjördæmi
finnst þér vera med bestu frambjóðendurna,
óháð því hvaða flokk þú ætlar að kjósa?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall, þeir sem svara, % Fylgi stjórn- málaflokka
Alþýðuflokkur 46 18,4 37,7 15,6
Framsóknarflokkur 22 8,8 18,0 11,8
Sjálfstæðisflokkur 43 17,2 35,2 55,9
Alþýðubandalag 7 2,8 5,7 7,5
Kvennalisti 3 1,2 2,5 8,1
Annað 1 0,4 0,8 1,1
Neitar/veit ekki 128 51,2 - -
Alls 250 100% 100% 100%
Kosningabaráttan í Reykjaneskjördœmi
SÍálfstæðismenn forðast
frambjóðendur A-listans
Sjálfstæðisflokkurinn á
Reykjanesi víkst undan
því að halda sameiginlega
opna fundi með Alþýðu-
flokknum í kjördæminu.
„Ég harma það að þið haf-
ið ekki séð ykkur fært að
mæta okkur á fundum í
stóru bæjunum þremur í
kjördæminu," segir Jón
Sigurðsson, oddviti A-list-
ans, í svarbréfi sínu til
Sjálfstæðisflokksins og
leggur tii að kosninga-
stjórar flokkanna finni
tíma sem geti hentað báð-
um flokkunum.
Rannveig Guðmundsdóttir
alþingismaður, sem skipar
3ja sæti lista Alþýðuflokksins
í kjördæminu, sagði við Al-
þýðublaðið að kjósendum í
kjördæminu hefði örugglega
þótt fróðlegt að hlusta á þessa
tvo flokka takast á um mál-
efni kjördæmisins og þjóðar-
innar allrar. Frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins væru
greinilega að koma sér hjá
því að mæta frambjóðendum
Alþýðuflokksins frammi fyrir
kjósendum.
Ólafur G. Einarsson, fyrir
hönd Sjálfstæðisfiokksins,
segir í svarbréfi til Alþýðu-
flokksins hins vegar að flokk-
urinn sé tilbúinn að mæta á
sameiginlegum fundi tveim-
ur dögum fyrir kosningar
með ríkisstjórnarflokkunum
þremur „sem líklegt er að
eigi áfram fufitrúa á Al-
þingi. ..“ Með þessu móti eru
Sjálfstæðisflokkurinn í reynd
að skorast undan því að
mæta frambjóðendum Al-
þýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi.
Ólafur G. ber við í bréfi sínu
að af skiplagsástæðum geti
Sjálfstæðisflokkurinn ekki
mætt frambjóðendum Al-
þýðuflokksins. Hann veit hins
vegar að með því að flækja
malið og fá fleiri flokka inn í
myndina verður nánast
ómögulegt að halda slíkan
fund. Engu að síður vill Al-
þýðuflokkurinn í Reykjanesi
reyna til þrautar að fá sameig-
inlegan fund með höfuðand-
stæðingi sínum í kjördæm-
inu, Sjálfstæðisflokknum.
Vera kann að niðurstöður um
gæði framboðslista í frétt hér
að ofan kunni að valda
nokkru um það að íhalds-
menn forðast návígi við fram-
bjóðendur Alþýðuflokksins.
Þora sjálfstæðismenn ekki að ræða álmálið við Jón Sigurðsson
á opnum fundi i Reykjaneskjördæmi?
ísland / A-flokk I