Alþýðublaðið - 10.04.1991, Qupperneq 3
Miðvikudagur 10. apríl 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
OPINN STJÓRNMÁLAFUNDUR: Fulltrúar stjórn-
málaflokka þeirra sem bjóða fram á landsvísu, koma fram
á fundi í Háskólabíói í dag milli 12.15 og 14. Það er félagið
Mágus, félag viðskiptafræðinema, sem gengst fyrir fundin-
um. Fyrir hönd Alþýðuflokksins kemur þar fram Ossur
Skarphédinsson. Meðal annarra frummælenda eru
Svavar Gestsson, Finnur Ingólfsson, Geir Haarde og
Pétur Guðjónsson.
GÆTIÐ HÓFS í EYÐSLUI: Starfsmenn álversins í
Straumsvík hafa borið undirskriftir með mótmælum gegn
hækkunum fasteignagjalda og annarra þjónustugjalda til
ýmissa bæjarstjórna í og við þéttbýliskjarna höfuðborgar-
svæðisins. „ítrekað hefur launþegahreyfingin farið fram á
það að þessar hækkanir verði dregnar til baka, en þið ekki
orðið við því,” segja starfsmenn álfélagsins í mótmælabréfi
sínu. Brýna þeir fyrir bæjarstjórnunum að gæta hófs í
eyðslu og íþyngja ekki heimilunum meira en orðið er.
VORFARGJÖLD FLUGLEIÐA: Flugfargjöld má fá á
góðu verði í seinni tíð. Nú bjóða Flugleiðir til dæmis vorfar-
gjöld til þriggja borga, Kaupmannahafnar, London og
Amsterdam, fyrir rétt rúmar 26 þúsund krónur. Þessi far-
gjöld gilda frá öllum áfangastöðum félagsins innanlands
og landsmönnum því ekki mismunað eftir búsetu. Vorið er
komið í Evrópu o§ því tilvalinn tími til að skoða sig um og
njóta menningarlifs, verslana og veitingahúsa í einhverri
áðurnefndra borga.
FERÐAMÁLAMAÐUR ÁRSINS: Birgir Þórhalls-
son, forstjóri og eigandi Sólarfilmu, var í gær kjörinn
ferðamálamaður ársins. Birgir sést hér með Fjölmiðlabik-
arinn, sem hann fær í viðurkenningarskyni. Birgir rekur
víðtæka þjónustu við ferðafólk, en a árum áður var hann
forstjóri millilandaflugs Flugfélags íslands hf.
OFSÓKNIR GEGN KURDUM FORDÆMDAR: ut-
anríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, hefur for-
dæmt harðlega grimmilegar ofsóknir stjórnvalda í írak á
hendur Kúrdum, sem leitt hafa til þess að milljónir manna
flýja nú heimaland sitt. „Nauðsynlegt er að málefni Kúrda
í Irak verði tekin upp á alþjóðavettvangi og leitað leiða til
að finna á þeim varanjega lausn,” segir Jón Baldvin. Þá
fagnar hann ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
sem gerir mögulegt að koma á formlegu vopnahléi á
Persaf lóasvæðinu.
GOTT LOFT Á HVALEYRINNI: Ekki er að sjá að ái:
verið í Straumsvík geri íbúum á Hvaleyrarholti neitt illt. í
skýrslu um loftgæðarannsóknir á holtinu í fyrra kemur
fram að afstaða álversins til byggðarinnar er heppileg með
tilliti til dreifingar mengunar. Vindáttir sem standa að
byggðinni eru sjaldgæfar og loftblöndun virðist oftast góð
í slíkum vindáttum. Heilsufar fólks og gróður bíður því
engan skaða af nágrenninu við álið. Sú litla mengun sem
hægt er að finna á þessu svæði er talin að langmestu leyti
frá umferð á höfuðborgarsvæðinu og þá væntanlega ættuð
frá Reykjavík að mestu.
SAMSTAÐAN
AÐ ROFNA
— segir Snœr Karlsson, formaöur deildar fiskvinnslufólks innan
Verkamannasambands íslands, um samstööu sjómanna og
fiskverkafólks.
Framkvæmdastjórn
Verkamannasambands Is-
lands hefur sent frá sér
ályktun þar sem lýst er yf-
ir stuðningi við kröfur
fiskverkafólks. Fiskverk-
unarfólk hefur sett fram
kröfur um bætt kjör eftir
nýgerðra samninga við
sjomenn. Samstaðan sem
ríkt hefur á milli sjómanna
og fiskvinnslufólks í kjara-
baráttunni er ekki lengur
til staðar segir fisk-
vinnslufólk.
Snær Karlsson, formaður
deildar fiskvinnslufólks, inn-
an Verkamannasambandsins
og starfsmaður þess segir „að
þær skoðanir hafi komið
fram hjá fiskverkunarfólki að
því beri að fá samskonar
hækkanir á sínum launum
eins og ganga til sjómanna.”
Snær segir að ekki það sé
ekki á færi Verkamannasam-
bandsins aðsegja til um hvort
þjóðarsáttin hafi verið rofin
með þeim samningum sem
gerðir hafa verið við nokkra
hálaunahópa á síðustu vik-
um.
^En mér þykir eðlilegt að
fiskverkafólk um allt land
skoði málin í sínum hópi og
óski eftir viðræðum við sína
vinnuveitendur um þessi
mál. Ég teldi ekkert óeðlilegt
að ýmsir aðrir hópar verka-
fólks færu líka að huga að sín-
um málum. Það er alveg ljóst
að ýmsir hópar í þjóðfélaginu
hafa talið að hin svokallaða
þjóðarsátt væri eitthvað sem
snerti þá ekki. Þessir hópar
hafa notað sér aðstöðu sína til
að ganga á svig við þau
markmið sem menn settu sér
við þessa samningsgerð."
Enginn þyrfti að vera feim-
inn við að kannast við það að
hér er átt við flugmenn,
lækna og sjómenn.
Snær sagði að ýmis fyrir-
tæki hafa líka hækkað þjón-
ustugjöld sín langt umfram
það sem eðlilegt getur talist.
í lok ályktunar Verka-
mannasambandsins segir:
„Það liggur í augum uppi að
hópar sem hafa tvöföld og
þreföld dagvinnulaun al-
menns launafólks geta greitt
hærri skatta en venjulegur
launamaður. Hingað til hefur
andstaða við aukna skatt-
byrði hærri tekjuhópa eink-
um komið úr þeirra röðum.
Gjalda ber varhug við fullyrð-
ingum um að auknir skattar á
hærri tekjur geti ekki skilað
umtalsverðum árangri til
þeirrar viðleitni að jafna lífs-
kjör fólks.”
Um það hvort vænta mætti
sérstakra aðgerða af hálfu
verkamannasambandsins
sagði Snær: „Við getum nú
ekki gripið til mikilla aðgerða
á meðan samningar eru í
gildi, en við munum styðja
fiskverkafólk í þeirri viðleitni
þess að fá kjör sín bætt.“
Endurskoöandi bœjarreikninga í 26 ár látinn hœtta, — aödróttanir í
hans garö í blaöi sjálfstœöismanna í Kópavogi
„Íhuga málaferli"
— segir Gunnar R. Magnússon
Endurskoðanda bæjar-
reikninga í Kópavogi,
Gunnari Reyni Magnús-
syni, hefur verið sagt upp
störfum eftir 26 ára störf.
Astæðan er sú, að sögn
Voga, blaðs sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, að hann
hafi hagrætt niðurstöðu-
tölum bæjarreikninganna
fyrri meirihluta í bænum í
hag. Staða bæjarins hafi
verið sýnd í of björtu ljósi.
Gunnar Reynir sagði i sam-
tali við Alþýðublaðið að í
blaðinu kæmu fram hreinar
aðdróttanir í sinn garð og
hann gerður tortryggilegur
sem endurskoðandi.
„Ég er að hugsa málið og
íhuga málaferli vegna þess
atvinnurógs sem ég hef orðið
fyrir," sagði Gunnar Reynir.
Hann sagði að trúlega kæmi
til málaferla vegna þeirra
ásakana sem fram hafa kom-
ið í Vogum.
Þeir sem til þekkja telja að
raunveruleg ástæða kross-
ferðar sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn gegn Gunnari
Reyni sé sú að hann er
tengdafaðir Valþórs Hlöð-
verssonar, bæjarfulltrúa Al-
þýðubandalagsiris. Til þessa
hafa skoðunarmenn bæiar-
reikninga úr hópi sjálfstæðis-
manna undirritað endur-
skoðaða reikninga Gunnars
Reynis athugasemdalaust.
Frambjóöendur Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördaemi hafa sótt heim fjölda vinnustaða á síðustu dögum. Hér eru þau Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra og Rannveig Guðmundsdóttir í heimsókn hjá AXIS húsgagnaframleiðslunni í Kópavogi. Starfs-
mönnum þótti greinilega tilbreyting í að fá góða gesti í heimsokn og höfðu sitt fram aö leggja í kosningabaráttuna.