Alþýðublaðið - 10.04.1991, Page 14
14
Miðvikudagur 10. apríl 1991
Aðalfundur
Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík verður
haldinn íkirkjunni sunnudaginn 14. apríl kl. 15.00 (að
aflokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 14.00).
Dagskrá samkvæmt lögum safnaðarins.
Stjórnin.
Félagsráðgjafi
Fangelsismálastofnun óskar eftir að ráða félagsráð-
gjafa til starfa.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist Fangelsismálastofnun, Borgar-
túni 7, Reykjavík, fyrir 1. maí nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins, 3. apríl 1991.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
ÁAKUREYRI
Laus ertil umsóknarein staða röntgentæknis frá 1.
júní nk.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Upplýsingar veitir Jónína Þorsteinsdóttir yfirrönt-
gentæknir.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100.
Frá Borgarskipulagi
Hverfaskipulag borgarhluta 2
Sýning á kortum hverfaskipulags borgarhluta 2,
Vesturbæjar, ásamt öðrum gögnum stendur yfir í
anddyri Háskólabíós og Sundlaug Vesturbæjar
dagana 9. til 19. apríl 1991.
Ferðastyrkur til rithöfundar
Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns samstarfs
í fjárlögum 1991 verði varið 90 þús. kr. til að styrkja
rithöfund til dvalar á Norðurlöndum.
Umsókn um styrk þennan skal hafa borist mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 1. maí nk.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig um-
sækjandi hyggst verja styrknum.
Menntamálaráðuneytið, & apríl 1991.
Það er þetta með ^
bilið milii bíla...
Jóhanna
Slgorðardóttlr
Rannvelg
Goðmundsdóttlr
Vafgarður
Gomraradóttfr
Patrfna
Baldursdóttir
Ragnhelður
Davfðsdóttlr
REYKJAVIK:
Miðvikudaginn 10. apríl kl. 20.30 á Holiday Inn
Fundarstjóri: Ólína Þorvarðardóttir.
KÓPAVOGUR:
Fimmtudaginn 11. aprfl kl. 20.30 í Félagsheimili Kópavogs
Fundarstjóri: Jóna Ósk Guðjónsdóttir.
í.
' •• •
ólína
Porvarðardóttir
Jóna Ósk
Guðjónsdóttir
- "
' /\
iíixi-iiíS
'Aonur
fararúrocuti stjórnmátanna/
j
xasS
Málið
hefur
skroppið
verulega
saman
— segir Jón
Magnússon,
lögmaður í
Hafskipsmálinu
Málflutningur fyrir Hæstarétti
er nú hafin í Hafskipsmálinu.
Næstu tíu daga, að minnsta
kosti, munu ræðuhöldin standa
yfir. Gert er rád fyrir ad ræda
Páls Arnórs Pálsson, sérstaks
saksóknara í málinu muni
standa yfir í þrjá daga. Eftir að
hann hefur lokið sóknarræðu
sinni munu verjendur þeirra
Björgóifs Guðmundssonar,
Ragnars Kjartanssonar, Páls
Braga Kristjónssonar og Helga
Magnússonar taka við hver af
öðrum.
Jón Magnússon lögmaður, verj-
andi í Hafskipsmálinu, sagði í sam-
tali við Alþýðublaðið að upphaflega
hefðu ákærurnar snúist um hundr-
uð milljóna en nú snerust ákærur
um upphæð sem væri innan við
hundrað milljónir. Þeim Jóni Magn-
ússyni og Jóni Steinari Gunnlaugs-
syni, sem báðir eru verjendur í mál-
inu, bar saman um að eðlilegt hefði
verið að málinu iyki með dómi
Sakadóms Reykjavíkur. Jón Steinar
orðaði það svo að þar „hefði verið
fjölskipaður vandaður og virðuleg-
ur dómur, og tími til komin að
hremmingum þessara manna sem
staðið hafa í meira en fimm ár lyki".
Sakadómur Reykjavikur kvað upp
dóm í málinu á síðasta sumri og
voru fjórmenningarnir sýknaðir að
mestu. Dómi þrettán annarra sem
upphaflega voru ákærðir í Hafskips-
málinu var ekki áfrýjað. Meðal
þeirra sem þar með voru lausir úr
þessum malaferlum voru banka-
stjórar og bankaráðsmenn Útvegs-
bankans sáluga.
Saksóknari hefur fellt niður hluta
af þeim málum sem ákært var í fyrir
Sakadómi Reykjavíkur.
Það sem nú er fjallað um er fyrst
og fremst ákæra vegna milliupp-
gjörs fyrstu átta mánuði ársins 1984,
og ársreikning þess árs.