Alþýðublaðið - 11.04.1991, Side 1
FIMMTUDAGUR
1 1. APRÍL 1991
SKOÐANAKÖNNUN GALLUPS: Stuöningsmenn
Alþýðuflokks eiga verk að vinna á Norðurlandi vestra
fram til kosninga. Samkvæmt Gallup-könnun í gær hefur
fylgið fallið eilítið, úr 10,2% í 9,3. Framsókn tapar líka, fer
úr 35,2 í 32,5%. Sjálfstæðisflokkurinn fær til baka fylgi
Borgaraflokks, fær 30,8% en 21,2 í síðustu kosningum. Al-
þýðubandalag tapar, fær 13,7% en 15,7% í kosningum
1987. Þjóðarflokkur missir ennfremur fylgi, sem var þó
ekki mikið fyrir, smáflokkar fá nánast ekkert samkvæmt
Gallup.
LANDSSPÁ FRÁ SKÁÍS: Skáís gerði könnun um jand
allt á stöðu flokkanna. Alþýðuflokkur er að rétta úr klítn-
um, var með 11,3% í könnu Skáíss í mars, er nú mfeð 13,p%.
Greinilega er flokkurinn á hraðri uppleið. Framsóknar-
flokkur bætir ennfremur við sig, úr 15,7 í mars í 18,0%.
Sjálfstæðisflokkur er á leið niður í sitt gamla fylgi, færi nú
45,4% en var með 53,8% í mars. Alþýðubandalag fær nú
11,6% en hafði í mars 9,7%. Kvennalistinn eykur eilítið við
fylgi og er með 8,2%. /
STÖRFUM FARMANNA FÆKKAR: í þessari viku
hafa tuttugu og fjórir farmenn skráð sig hjá Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur vegna þess að þeir hafa ekki störf á kaup-
skipum. Hiti er í mönnum vegna þess að mörg íslensk far-
skip eru mönnuð útlendingum. Sjómannafélag Reykjavík-
ur segir að ekki sé óalgengt að mönnum sé sagt upp og út-
lendingar ráðnir samstundis. Sjómenn ætla að krefjast
þess að öll skip sem sigla til Islands og séu sannarlega í
eigu íslenskra skipafélaga verði mönnuð íslenskum far-
mönnum. Á síðustu árum hafa íslenskir farmenn misst
300—400 stööugildi vegna þess að erlendir sjómenn eru
ráðnir í stað íslenskra.
SAMGÖNGURÁÐHERRA UNDRANDI: Steingrím-
ur .1. Sigfússon segist undrast ef ummæli Steingríms Her-
mannssonar í hádegisfréttum um úthlutun á hundrað millj-
ónum til nokkurra sjávarplássa þýði stuðning við vafasöm
vinnubrögð fjárveitinganefndar. Samgönguráðherra hefur
óskað eftir lögfræðilegu áliti um málið. Samgönguráð-
herra segist undrast vinnubrögðin í þessu máli og segir þaö
undur ef formaður fjárveitinganefndar ætli að láta málin
ganga eftir eins og nú bendi allt til.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ K0M ÞEIM Á SP0RIÐ: Útvarps-
ráð samþykkti ályktun á fundi sínum í gær að vísa allri
ábyrgð á framkvæmd skoðanakannana um fylgi flokk-
anna og birtingu niðurstaðna á hendur útvarpsstjóra. í
ályktuninni segir að það sé skoðun útvarpsráðs að óeðli-
legt sé að stofnunin standi fyrir gerð skoðanakannana um
fylgi stjórnmálaflokka i einstökum kjördæmum fáum dög-
um fyrir kosningar. Þá segir í ályktuninni að alllangt sé síð-
an að tilhögun sjónvarpsdagskrár vegna þingkosninganna
hafi verið samþykkt í útvarpsráði í fullu samráði við emb-
ættismenn Ríkisútvarpsins. Gerð skoðanakannana á veg-
um Ríkisútvarpsins hafi aldrei verið nefnd. Það hafi veriö
frétt í dagblaði sem hafi vakið athygli útvarpsráðsmanna
hvað í vændum væri og hafi sú frétt komið mjög á óvart.
Hér á ráðið greinilega við frétt sem Alþýðublaðið birti fyrst
fljölmiöla um málið.
LEIDARINN Í DAG
Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur
synjað boði Jóns Baldvins Hannibalssonar for-
manns Alþýðuflokksins um opinn fund þar sem rætt
yrði um stefnu flokkanna tveggja í veigamiklum
málaflokkum. í leiðara Alþýðublaðsins í dag segir, að
brotthlaup Davíðs af hólmgönguvellinum sýni og
sanni að hann þori ekki að reifa stefnuleysi flokksins
af ótta við kjósendur.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: DAVÍÐ HLEYPUR FRÁ GOL-
ÍAT.
Næsta ríkisstjórn
IGóðar heimildir segja að Al-
þýðubandalag og Sjálfstæðis-
flokkur hyggi á ríkisstjórn sam-
an að loknum kosningum, Nær
hálf öld er liðin síðan stjórn
þessara flokka stjórnaði, og nú
er tilhugalífið byrjað.
Er Grýla
sprelllifandi?
IGuðlaugur Gauti Jónsson
skrifar um það merka plagg,
Stjórnmálayfirlýsingu Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem fram
kemur að flokkurinn er á móti
kommúnisma, sósíalisma, og
vill selja Rás 2.
Horft áratugi fram
í tímann
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra lítur ekki aðeins fram á
næsta dag þegar hann skoðar
nýtingu orkulinda okkar. Þar er
horft þrjá til fjóra áratugi fram í
tímann.
DAVÍÐ
ÞORIR EKKI
Davíð Oddsson formaður Sjólfstæðis-
flokksins vill ekki mæta Jóni Baldvin
Hannibalssyni formanni Alþýðuflokksins
ó opnum fundi og ræða stefnu flokkanna i
veigamiklum málaflokkum. Davið ber.
fyrir sig i svarbréfi til Jóns Baldvins i gær-
dag, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi skipu-
lagt kosningastarfið út i hörgul á næstu 9
degum og að hann liti á áskorunina eins og
hvern annan vandræðagang.
Jón Baldvin segir við Alþýðublaðið, að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið ófáan-
legur að koma úr felum fyrir þessar kosn-
ingar. „Ef Davið er svo þaulskipulagður í
sinum fundahöldum fyrir kosningar að
hann getur ekki mætt mér i málefnalegum
umræðum um stefnumál flokkanna þá
spyr ég: Er einhver annar forystumaður
Sjálfstæðisflokksins á lausu til að hlaupa i
skarðið fyrir formanninn?"
.lón Baldvin Hannibals-
son skoraði á Davíð Odds-
son formann Sjálfstæðis-
flokksins meö bréfi í gær.
Jafnframt birtust auglýs-
ingar í Morgunblaðinu og
Alþýöublaðinu um áskorun
formanns Alþýöuflokksins.
í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaösins um síðustu helgi
voru þeir frambjóðendur
gagnrýndir sem skjóta sér
undan því að reifa stærstu
mál kosninganna, af ótta
við kjósendur.
Jón Baldvin vitnar í
Reykjavíkurbréfið í bréfi
sínu til Davíös og segir það
frýjunarorð til þeirra sem
leiða kosningabaráttu
flokkanna og leggur til að
þeir Davíð taki ritstjóra
Morgunblaðsins á orðinu.
1 svarbréfi Davíðs til Jóns
Baldvins segir að Sjálfstæð-
isflokkurinn taki ekki til sín
umrædda setningu úr
Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins. Davíð segir í bréf-
inu til Jóns Baldvins að
hann líti á áskorunina sem
hvern annan vandræða-
gang í kosningabaráttu Al-
þýðuflokksins og ,,geti því
miður ekki aðstoðaö þig
við að leysa úr þeim vand-
ræöunV'. Þar að auki segir
Davíö í bréfinu, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi
skipulagt út í hörgul kosn-
ingastarfið á næstu 9 dög-
um og á fjölsóttum fundum
sínum um landið hafi hann
haft gott tækifæri til þess
að ræöa ítarlega um mark-
miö Sjálfstæðisflokksins og
að „hanaats- og upphróp-
unarfundir" heyri sögunni
til.
Jón Baldvin segir í viðtali
við Alþýöublaöið aö svar-
bréf Davíðs sé „tilfyndið
bréf en veiti því miður ekki
svör viö því sem um var
spurt “.
„Við vitum af dágóðri að-
sókn að fundum formanns
Sjálfstæöisflokksins. Vand-
inn er sá, að fundarmenn
þeir sem hafa sótt fundina
hafa fariö út engu nær.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
veriö ófáanlegur að koma
úr felum á þessum fundum.
I bréfi minu til Davíðs
vitnaði ég í ritstjóra Morg-
unblaðsins sem sögðu í
postulabréfi, að það væri
óviðunandi með öllu aö
flokksforysta forðaðist að
Jón Baldvin: „Sjálfstæöisflokkurinn vill leggja niöur kvóta-
kerfiö og fá sjávarútvegsráðuneytiö. En til hvers? Þaö er
milljón dollara spurning en ekkert svar fæst."
reifa kosningamál næsta
kjörtímabils af ótta viö
kjósendur. Það er misskiln-
ingur að Alþýðuflokkurinn
hafi tekið þessa ádrepu rit-
stjóra Morgunblaðsins til
sín, enda ástæðulaust. Al-
þýðuflokkurinn hefur ekki
verið í felum.
Eg var ekki aö bjóða Dav-
íð upp á hanaat, mönnum
til skemmtunar. Eg var að
bjóða honum upp á mál-
efnalega fundi þar sem
okkur gæfist tilefni til að
skýra stefnu1 flokka okkar i
málefnum sem efst eru á
baugi," segir Jón Baldvin.
Jón Baldvin bendir einn-
ig á að Alþýöuflokkurinn
hafi sett afdráttarlausa
stefnu meðan Sjálfstæöis-
flokkurinn hafi skilað auðu
i öllum helstu málaflokk-
um. „Við gekum tekiö sjáv-
arútvegsstefnuna sem
dæmi. I stefnuyfirlýsing-
unni á landsfundi Sjálfstæö-
isfrokksins er sagt að móta
þurfi nýja stefnu í sjávarút-
vegi sem taki bæði til veiða
og vinnslu. Þetta verður
ekki skilið á annan veg en
þann, að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé á móti kvótakerf-
inu. Jafnframt setur Sjálf-
stæðisflokkurinn fram þá
kröfu að hann fái sjávarút-
vegsráðuneytið í næstu rík-
isstjórn. Til hvers? Verður
ekki útgerðin og fiskvinnsl-
an að fá að vita hvað komi
i stað kvótakerfisins?
Þetta er virkilega milljón
dollara spurning en ekkert
svar.
Ef formaður Sjálfstæðis-
flokksins er svo þaulskipu-
lagður í sínum fundahöld-
um að hann hafi ekki tíma
til að eiga orðastað við mig,
þá segi ég: Er ekki einhver
annar forystumaður Sjálf-
stæðisflokksins á lausu til
aö hlaupa í skarðið fyrir
formanninn?" segir Jón
Baldvin Hannibalsson við
Alþýöublaöiö.
s Island i A-flokk !
JÉ Q -J c