Alþýðublaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 11. apríl 1991
Leynilegar viörœöur formanna Siálfstœöisflokksins og Alþýöubandalags
MYNDA ÍHALD OG
KOMMAR STJORN?
Aiþýðublaðið hefur öruggar heimildir fyrir því að
formenn Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks hafa
átt i viðræðum um þann möguleika að mynda stjórn
þessara tveggja flokka að afloknum kosningum. Það
þykir tiðindum sæta þvi lengst af hafa þessir tveir
flokkar nánast hafnað alfarið fyrir alþingiskosningar
að vinna hvor með öðrum.
TRYGGVI HARÐARSON SKRIFAR
Þessir tveir flokkar hafa ekki tek-
iö höndum saman nema einu sinni í
landstjórninni frá því aö núverandi
flokkakerfi tók að myndast á fyrri
hluta aldarinnar. Það var þegar svo-
kölluð „Nýsköpunarstjórn" var
mynduð undir forsæti Olafs Thors
árið 1944 en að henni áttu aðild
Sjálfstæðisflokkur, Sósíalistafiokk-
urinn (forveri Alþýðubandalagsins)
og Alþýðuflokkurinn. Frá þeim tíma
hafa Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
bandalag (Sósíalistaflokkur) nánast
útilokað samvinnu sín á milli.
Uppáhaldsóvinir_______________
halda öllu opnu_______________
Að sjálfsögðu bera formenn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags á
móti þvi að nokkrar viðræður
þeirra á milli um hugsanlegt stjórn-
arsamstarf hafi átt sér stað. Slíkt
væri einungis til þess fallið að fæla
frá þessum flokkum kjósendur því
margur sjálfstæðismaöurinn ætti
erfitt með að kyngja samstarfi við
kommana og fjöldi Alþýðubanda-
lagsmanna sér andskotann þar sem
íhaldið fer. Formennirnir geta með
vissum sanni sagt að engar viðræð-
ur hafi átt sér stað því viðræður sem
þessar eru óformlegar og „einka-
samræður" milli manna verða vart
túlkaðar sem samningaviðræður
rnilli stjórnmálaflokka.
Hins vegar þykja ýmsir sem
grannt fylgjast með stjórnmálum sjá
ýmis teikn þess að Sjálfstæðisflokk-
ur og Alþýðubandalag séu i tilhuga-
lífinu. Auk þess séu formenn þess-
ara flokka til alls líklegir, séu tilbúnir
að vaða yfir öll tilfinningaleg sjónar-
mið sinna flokksmanna og spila
djarft á vettvangi stjórnmálanna.
Það kemur þó ekki í veg fyrir að
menn og flokkar eiga sína uppá-
halds óvini. Þannig er Sjálfstæðis-
flokkurinn uppáhalds óvinur Al-
þýðubandalagsins og öfugt. Jafn
klókir stjórnmálamenn og Davíð
Oddsson og Olafur Ragnar Gríms-
son átta sig vel á slíkum staðreynd-
um. Þeir munu því hamast hvor á
öðrum, innan velsæmismarka þó, í
von um aukið fylgi hvor fyrir sig
sem muni gera þeim kleift að
mynda stjórn saman. Hins vegar
hafa þeir passað sig á að halda öll-
um dyrum galopnum varðandi
hugsanlegt samstarf.
Ölafur Ragnar hlifir_________
fjölskyldunum Ijórfán
Davíð Oddsson hefur sýnt það að
hann skirrist einskis við að gera
pólitískt bandalag við Alþýðu-
bandalagsmenn ef svo ber undir.
Það sýndi hann í stjórn Landsvirkj-
unar þegar þessir flokkar voru farn-
ir að óttast að Jóni Sigurðssyni tæk-
ist að ganga frá endanlegum samn-
ingum um nýtt álver fyrir kosningar.
Þá var embættismönnum Lands-
virkjunar kastað til hliöar og pólitík-
usarnir í stjórn Landsvirkjunar tóku
samningagerðina við Atlantsál um
raforkusöluna í sínar hendur.
Ýmsum finnst sem Ólafur Ragnar
hafi verið heldur vægur við Sjálf-
stæðisflokkinn það sem af er kosn-
ingabaráttunnar en lagt þess í stað
meira upp úr að berja á krötum.
Hann valdi sér það hlutskipti að láta
umræðuna í fermingarveislunum i
kringum páskana snúast um baráttu
sína við læknastéttina. Hann hefur
hins vegar forðast eins og heitan
eldinn að ráðast á eitt helgasta vé
Sjálfstæðisflokksins sem sumir
nefna „Einokunarfélag Islands". Ör-
fáar fjölskyldur hafa verið að sölsa
undir sig flest stærstu fyrirtæki þjóð-
arinnar og skapa sér einokunarað-
stöðu á ýmsum sviðum. Þessi
eignasöfnunarstétt hefur stundum
gengið undir heitinu „fjölskyldurn-
ar fjórtán". Nægir þar að nefna
að eignaveldið í Eimskip hf. sem
ræður nú einnig Flugleiðum, á stór-
an hlut í Eignarhaldsfélagi Verzlun-
arbankans sem nú á formann stjórn-
ar íslandsbanka sem er forstjóri Sjó-
vá-Almennra og svo mætti lengi
telja. Davíð Oddsson, fundarstjóri á
aðalfundum Eimskips, er orðinn
innsti koppur í búri hjá hinni fá-
mennu eignastétt landsins. Frægur
er stuðningur stjórnarformanns ís-
lands, Halldórs H. Jónssonar, við
Davíð til formanns í Sjálfstæðis-
flokknum.
Stóratvinnurekendur
viljq kommana________________
Eftir að umræðan um hvort her-
inn eigi að fara á burt eða vera um
kjurt dó er sá ágreiningur ekki til
staðar milli Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks. Ef einhver skyldi
halda að ágreiningur en Evrópu-
málin sé einhver flöskuháls milli
þessara tveggja flokka þá er það
mesti misskilningur. Þegar orða-
gjálfrinu sleppir munu þessir flokk-
ar verða sammála um að reynt skuli
til þrautar að ná samkomulagi um
þátttöku Islendinga í Evrópska efna-
hagssvæðinu. Alþýðubandalagið
fengi það að sjálfsögðu inn í stjórn-
arsáttmála að innganga i EB væri
ekki á dagskrá enda er það ekki á
dagskrá. Ólafur Ragnar gæti þá
sagt; við komum í veg fyrir að Island
gengi í EB, og Davíð myndi segja;
mér tókst að koma á samningum
við Evrópuþjóðir um frjáls viðskipti.
Báðir færu formennirnir með sigur
af hólmi.
Það hlýtur að vera draumastaðan
fyrir stóratvinnurekendaliðið í
kringum Davíð að fá Alþýðubanda-
lagið í stjórn með Sjálfstæðisflokkn-
um. Alþýðubandalagið hefur sýnt
að það hefur sterk tök á verklýðs-
hreyfingunni og getu tii að halda
launþegum í skefjum. Hverjum ætti
íhaldið að treysta betur í samninga-
málum við launþega en Ólafi Ragn-
ari Grímssyni? Hann er maður með
reynslu.
Framsóknqrstjórn_____________
án framsóknar________________
Hér er ekki verið að spá um
stjórnarmyndun að afloknum kosn-
ingum, heldur að gera grein fyrir
raunhæfum möguleika sem ekki
hefur verið til staðar áður um langt
skeið. Urslit kosninganna munu að
sjálfsögðu hafa mikið að segja um
það hvers konar stjórn tekur við að
þeim afloknum. Ýmsir sjá t.d. Við-
reisnarstjórn Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks í spilunum.
Einn náinn samverkamaður Dav-
íðs segir hann vilji helst starfa með
Alþýðubandalagi eða Alþýðuflokki
og meti það að jöfnu. Hann sé hins
vegar lítt spenntur fyrir Framsókn-
arflokknum. Viðmælendur Alþýðu-
blaðsins eru þó margir á þeirri skoð-
un, að Davíð vilji heldur í stjórn með
kommum en krötum, einfaldlega
vegna þess að hann treystir sér bet-
ur að stjórna ráðherraefnum komm-
anna en ráðherrum kratanna. Dav-
íð sé einnig vanari úr borgarstjórn
að tjónka við kommana og hafa þá
í vasanum en óvanur að eiga við Al-
þýðuflokkinn.
Aðrir hafa bent á að svipað stjórn-
armynstur eins og verið hefur sé allt
eins líklegt að vera áfram. Bjartsýn-
ir sjálfstæðismenn sjá jafnvel hilla
undir hreinan meirihluta Sjálfstæð-
isflokksins á Alþingi.
Stjórnmálafræðingur hefur bent á
að það sé kjörið fyrir Alþýðubanda-
lagið og Sjálfstæðisflokkinn að
mynda saman „framsóknarstjórn"
án þátttöku Framsóknarflokks.
Bendir hann á að afstaða flokkanna
til landbúnaðar sé mjög svipuð auk
þess sem flokkarnir séu að ná sam-
an um sameiginlega sjávarútvegs-
stefnu. Hún birtist í sameiginlegum
bræðingi Guðjóns A. Kristinsson í 3.
sæti D-listans á Vestfjörðum og Jó-
hanns Ársælssonar í 1. sæti Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi. En
hvernig næsta ríkisstjórn lítur út
mun væntanlega koma í ljós ekki
löngu eftir kosningar.
NÆSTA RÍKISSTJÓRN?
Frq Alþýóubandqlagi
Davið Oddsson forsætisráðherra.
Björn Bjarnason utanrikisráðherra.
Þorsteinn Pálsson, iðnaðar- og við
skiptaráðherra.
Ólafur Ragnar Grímsson f jármálaráð-
herra.
Svavar Gestsson menntamalarað
herra.
Friðrik Sophusson, dóms- og kirkju-
málaráðherra og umhverfisráðherra.
Lára Margrét Ragnarsdóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráöherra.
Ólafur G. Einarsson sjávarútvegsráð
herra.
Steingrímur J. Sigfússon, landbun-
aðar- og samgönguráðherra.
Margrét Frímannsdóttir félagsmála-
ráðherra.
) Ýmsir telja að Þorsteinn Pálsson muni ekki vilja taka sæti i stjórn Daviðs Oddssonar og væri Pálmi Jónsson líklegastur til að koma í hans stað.