Alþýðublaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 11. apríl 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTiR
Í HNOTSKURN
SÖNGVASEIÐUR FRUMSÝNDUR: Þjóðleikhúsið
frumsýnir stórt og mikið verk á föstudagskvöld, Söngva-
seið eða Sound of Music sem þeir féiagar Rodgers &
Hammerstein sömdu um árið. Söngleikurinn hefur náð
gríðarlegum vinsældum um allan heim. Söguna ætti að
vera óþarft að rekja, hún fjallar um baráttu barnfóstrunnar
Maríu við sjö krakka og stirðan, einstæðan föður þeirra.
Flosi Ólafsson þýddi verkið, hljómsveitarstjóri er Agnes
Löve og leikstjóri er Benedikt Árnason.
HÖGGMYNDAGARÐUR í HAFNARFIRÐI: Bæjar-
ráð Hafnarfjarðar hefur fallist á hugmyndir um að komið
verði upp höggmyndagarði í bænum, trúlega mun hann
risa á Víðistaðasvæðinu, sem þykir henta vel til þess konar
starfsemi. Höggmyndagarðurinn yrði sá fyrsti sinnar teg-
undar hér á landi. Skipulagsnefnd Hafnarfjarðar hefur
þetta skemmtilega mál til nánari útfærslu.
íslenskir ostagerðarmeistarar — þeir unnu 12 gullverðlaun
og 11 silfurverðlaun á danskri ostasýningu i fyrra. Mjólkur-
búin okkar hafa metnað og geta greinilega gert vel.
A-mynd E. Ól.
FÆKKUN MJÓLKURBÚA: Nefnd sem unnið hefur að
álitsgerð um hagræðingu og breytingu á skipulagi í mjólk-
uriðnaði kemst að þeirri niðurstöðu að lækka má fastan
kostnað greinarinnar með fækkun mjólkurbúa í landinu.
Reiknar nefndin með að spara megi 165—220 milljónir
króna árlega fækki búunum um 3—5. í álitinu er ekki tekin
afstaða til hvaða mjólkurbú það eru sem leggja skal niður.
Ennfremur segir að mjólkuriðnaðurinn hafi sterka stöðu
um þessar mundir, en umhverfi hans mótist af lögum og
reglugerðum ríkisvaldsins. Ástæða sé til að óttast að þetta
umhverfi rekstrarins geti versnað á komandi árum með
minnkandi stuðningi almennings við framleiðsluna — og
auknum innflutningi á unnum mjólkurafurðum. Þá leggur
nefndin til samruna allra mjólkurbúa landsins í eitt fyrir-
tæki, en gerir sér grein fyrir að sú sameining verður mikil
þrautaganga.
RARIK KAUPIR RAFVEITU SIGLUFJARÐAR: um
síðustu helgi voru undirritaðir samningar bæjaryfirvalda á
Siglufirði og Rafmagnsveitna ríkisins. RARIK keypti Raf-
veitu og Hitaveitu Siglufjarðar fyrir 450 milljónir ícróna og
tekur yfir reksturinn á kosningadaginn, þann 20. apríl.
Ástæða þess að Siglfirðingar selja orkufyrirtæki sitt er sú
að bæjarstjórn vill lækka skuldir bæjarfélagsins. Allt sölu-
verðið verður notað til skuldalækkunar og ætti skulda-
staða bæjarins nú að verða mjög góð að sögn Kristjáns
L. Möller, forseta bæjarstjórnar, sem var formaður samn-
inganefndar bæjarins í þessu máli.
/
Stjórnarróðshúsið fyrr á þessari öld. Þar var fyrsta fangelsi
landsins á árunum 1771 til 1813. Þar sat oft fólk fyrir litlar
sakir að okkar mati í dag.
REFSINGAR 0G ÍSLENSKT SAMFÉLAG: Dr.
Gísli Ágúst Gunnlaugsson, lektor í sagnfræði við Há-
skóla íslands, hefur sent frá sér merka bók, Rlt um afbrot.
Refsingar og íslenskt samfélag á sídari hiuta 19. ald-
ar. Dr. Gísli fjallar hér um félagssögulegar rannsóknir á af-
brotum og refsingum hér á landi og erlendis í lok síðustu
aldar. Við lestur bókarinnar kemur venjulegu nútímafólki
á óvart hversu mikil dómharkan hefur verið í þjóðfélagi
okkar, og hvernig réttarvitund fólks hefur verið fyrir örfá-
um áratugum. Bók sem margir munu lesa sér til mikils
fróðleiks. Útgefandi er Sögufélagið.
Tekur forsætisráð-
herra sig alvarlega?
spurdi Jón Baldvin Hannibalsson vegna hugmynda Steingríms um ad
kosningarnar séu í raun þjóðaratkvœdagreidsla um Evrópubandalagið
Framsóknarflokkur-
inn hefur óvænt fundið
baráttumál til að setja á
oddinn í kosningabarátt-
unni. Steingrímur Her-
mannsson formaður
Framsóknarflokksins
hefur búiö til slagorð
sem gæti komið til um-
ræðu eftir svo sem tíu ár.
Nú stillir hann málunum
þannig upp að íslenskir
stjórnmálamenn að und-
anskildum framsóknar-
mönnum vilji framselja
vald í hendur erlendra
aðila án þess að lands-
menn hafi nokkuð um
málin að segja.
EFTIR BJÖRN E. HAFBERG
Þeir sem fylgst hafa með
stjórnmálum síðustu ára-
tugi láta sér sennilega ekki
koma á óvart þó Steingrím-
ur Hermannsson bregði á
það ráð að höfða til kjós-
enda með því að rífa hlut-
ina úr samhengi og vera
bæði með og á móti. Hver
man ekki eftir umræðum
Steingríms um vaxtamál
fyrir nokkrum vikum.
Nýjasta trompið hans
Steingríms er það að kosn-
ingarnar snúist um samn-
ingana og eða inngöngu í
Efnahagsbandalag Evrópu.
Jón Baldvin Hannibals-
son sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hann hefði
vart trúað sínum eigin eyr-
um þegar hann heyrði um-
mæli Steingríms á fundi á
Akureyri þegar hann ræddi
um Evrópumálin.
Jón Baldvin sagði ,,að
forsætisráðherra hefði við-
haft þau orð að Alþýðu-
flokkurinn væri eins og úlf-
ur í sauðargæru í þessu
máli. Staðreyndir mála eru
þær að ég hef gegnt starfi
utanríkisviðskiptaráðherra
í ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar. í því felst að
ég hef haft að skylduverk-
um að hafa frumkvæöi að
stefnumótun og reyndar
verkstjórn í samningum
sem ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar á í fyrir
hönd íslensku þjóðarinnar
við Evrópubandalagið.
Milli okkar forsætisráð-
herra hefur verið gott sam-
starf í þessari ríkisstjórn og
sérstaklega um þessi mál.
Enginn ágreiningur hefur
verið okkar á milli um
hvernig á þessum málum
skuli halda."
Jón Baldvin sagði að
stefna stjórnarinnar hafi
verið ótvíræð á þann veg
að hafna aðild að Evrópu-
bandalaginu sem valkosti.
„I staðinn höfum við kosið
að leita eftir samningum
með hinum EFTA ríkjunum
við Evrópubandalagið um
það að stofna svokallað
Evrópskt efnahagssvæði.
Aðalatriðin eru þau að í
þessum samningum erum
við að tryggja brýnusju við-
skiptahagsmuni Islend-
inga.
Evrópa er mikilvægasti
markaður okkar útflutn-
ingsafurða og meginatriði
er að tryggja íslenskum
sjávarafurðum tollfrjálsan
aðgang að mörkuðum Evr-
ópubandalagsins. Ávinn-
ingur af þessu, ef samning-
ar takast í sumar, er geysi-
lega mikill og varðar alla ís-
lensku þjóðina Það er
ekki aðalatriði að við mun-
um spara okkur tolla sem
við nú greiðum, allt að
20—25 milljarða á þessum
áratug. Heldur hitt að með
því að fá tolla afnumda á
unnar fiskafurðir þá ger-
breytum við vaxtarskilyrð-
um innlendrar fiskvinnslu.
Þá skapast skilyrði til
þess að hætta útflutningi á
óunnu hráefni í hendurnar
á keppinautum okkar. í
staðinn gætum við fullunn-
ið þessar afurðir, við gæt-
um framleitt hágæða vöru í
íslenskum pakkningum, og
við gætum stóraukið
vinnsluvirði íslenskrar fisk-
vinnslu, við gætum flutt at-
vinnu heirn."
Jón Baldvin sagði að eng-
inn ágreiningur hefði verið
um þessi mál. Eins tók
hann skýrt fram að það er
reginmunur á Evrópska
efnahagssvæðinu og Evr-
ópubandalaginu. Þetta mál
hefur verið útskýrt ræki-
lega. „Núna er sérstaklega
ástæða til að benda á það
gagnvart þeim sem koma
fram með hræðsluáróður
varðandi þessa samninga,
að í þessum samningum er
ekki um neitt framsal valds
að ræða frá löggjafarvaldi
íslendinga, Alþingi, né rík-
isstjórn í hendur yfirþjóð-
legu valdi."
Jón Baldvin sagði að
bæði hann og forsætisráð-
herra hafi rækilega útskýrt
að þessir samningar um
Evropskt efnahagssvæði
næðu ekki tii nýtingar á
auðlindum landsins eins og
t.d. fiskimiðunum.
„Það sem mér finnst al-
varlegt í málflutningi for-
sætisráðherra er kannski
fyrst og fremst tvennt. Og
er þá látið liggja á milli
hluta hversu drengilegt
þetta er gagnvart sam-
starfsaðilum. Það sem ég
óttast er að ummæli af
þessu tagi verði til þess að
vekja upp tortryggni gagn-
vart þessum samningum.
Þetta getur orðið til þess að
sundra samstöðu þjóðar-
innar í þessu mikilvæga
hagsmunamáli. Þessi um-
mæli gefa það í skyn að
verið sé að blekkja þjóðina
og ætlunin sé að læðast
bakdyramegin inn í Evr-
ópubandalagið."
Jón Baldvin sagði að hitt
málið snerist m.a. um að
það væri fráleitt að um inn-
göngu í EB væri kosið. Eng-
inn flokkur hefur lýst yfir
áhuga á að sækja um inn-
göngu. Enda tekur það
a.m.k. fimm til tíu ár að
ganga frá slíkum samning-
um og kosningar um málið
fara að sjálfsögðu ekki fram
fyrr en samningar við
bandalagið hafa verið und-
irritaðir. Málið verður því
tæplega komið á dagskrá
svo heitið geti fyrr en í lok
þessa áratugar.
Formaður Alþýðuflokks-
ins spurði hvort það gæti
hugsast að forsætisráð-
herra tæki sjáifan sig alvar-
lega þegar hann segði að
kosningarnar 20. apríl
snerust um Evrópubanda-
lagið. Og hvort það væri
ekki dálítið undarlegt að
eins og fyrir tilviljun væri
þessu varpað fram aðeins
ellefu dögum fyrir kosning-
ar.
BÖNIIS SKILAR
ÁRANGRI
— segir forseti ASI um verðbólguna sem er nú í 4,1%
„Þad er ljóst að Bónuser
að skila árangri," segir Ás-
mundur Stefánsson forseti
ASÍ um það hvaö matvöru-
verð hefur lækkað að und-
anförnu. Vísitala fram-
færslukostnaðar mældi
lækkun á matvörunni í
aprílvísitölunni. Og verð-
bólgan mælist nú aðeins
4,1%.
Kauplagsnefnd hefur reikn-
að vísitölu framfærslukostn-
aðar miöaö viö verðlag í apr-
ílbyrjun. Hafði verðlag hækk-
aö um 0,6% frá því í byrjun
mars. Síðastliðna tólf mánuöi
hefur visitalan mælt 5,5%
verðbólgu og miðaö við síð-
ustu þrjá mánuði jafngiida
verðhækkanir 4,1% verð-
bólgu á heilu ári.
Matvara lækkaði um 0,1% í
vísitölu framfærslukostnaðar
og er augljóst að verðstrið
markaðanna á höfuðborgar-
svæðinu skilar sér beint sem
verðlækkun á matvöru. For-
seti ASI segir Ijóst að stór-
markaðirnir hafi orðið að
fylgja verði í Bónus verslun-
um. Asmundur Stefánsson
segir að með aukinni sam-
keppni hafi verðlag lækkað á
Reykjavíkursvæðinu og æv-
inlega hafi samkeppnin skil-
að sér seinna meir í lægra
verði á landsbyggðinni.
Hvort þessi mikla samkeppni
skili sér beint til neytenda ut-
an höfuöborgarsvæðisins eigi
eftir að koma i Ijós. Það sé
jafnvel hugsanlegt að verð-
lækkunin gangi til baka, en
það sé þó Ijóst að Bónus sé aö
skila árangri.