Alþýðublaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1991 ÓPRÚTTNIR SÖLUMENN Á FERÐ: Neytendasam- tökunum hefur borist fjöldi kvartana frá neytendum víða um land vegna viðskipta við farandsölumenn. Sölumenn þessir bjóða vöru sína við húsdyr en þess eru dæmi að þeir fari með ósannindi og bjóði í raun lakari kjör en fást í versl- unum. Nokkur dæmi eru um að bændur hafa keypt ryk- sugur, vídeómyndavélar og annað þess háttar í þeirri trú aö þeim beri að fá virðisaukaskatt af þessum vörum endur- greiddan. Annað kemur í ljós þegar bændur ræða við skattyfirvöld. Þaö er því vissara að fara að öllu með gát þegar farandsölumenn eru annars vegar. UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ í LEIFSSTÖÐ: Utanríkis- ráðuneytið hefur ákveðið að styrkja Ferðamálasamtök Suðurnesja til að setja upp upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn í Leifsstöð, að því er segir í Suðurnesjatíðindum. Þetta er gamalt baráttumál Ferðamálasamtakanna og hafa þau leitað til margra aöila um stuðning í þessu sambandi. JÓHANNA SKIPTIR FÉ MILLI KVENNA: Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráöherra hefur ákveðið, að fjár- veitingu á fjárlögum yfirstandandi árs að fjárhæð 15 millj- ónir króna sem verja skal til atvinnumála kvenna á lands- byggðinni, veröi skipt milli þeirra atvinnusvæða á landinu þar sem atvinnuleysi kvenna hefur veriö vaxandi og var- anlegt að undanffirnu. Þetta á við um öll atvinnusvæði ut- an höfuöborgarsvæðisins. í hlut hvers atvinnusvæðis komu 2—2,5 milljónir eftir nánari ákvörðun ráðherra. Þá hefur félagsmálaráöherra farið þess á leit við stjórnir hlut- aðeigandi landshlutasamtaka að þær geri tillögu til Vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins um þróunarverk- efni sem vert er aö styrkja og séu líkleg til að fjölga at- vinnutækifærum kvenna. FRIÐRIK ÞORÐI EKKI HELDUR: Jón Baldvin Hanni- balsson, formaður Alþýðuflokksins, skoraöi á Friðrik Sophusson, varaformann Sjálfstæðisflokksins, í kappræð- ur á opnum fundi á Hóte! Sögu í gærkvöldi. Friðrik kom ekki til fundarins en senai skeyti þess efnis að hann vildi ekki gera nýkjörnum formanni sínum það að koma til fundarins. Tveim ræðupúltum hafði verið stillt upp og Jón Baldvin benti á autt púlt Friðriks og sagði að það hefði ein- hvern tímann þótt saga til næsta bæjar að hvorki formaður né varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefðu þorað aö mæta formanni Alþýðuflokksins í kappræðum fyrir kosn- ingar. LEIOARINN í DAG „Kjósendur ættu einnig að varast hræðsluáróður Framsóknarflokks og Alþýðubandalags um að verið sé að kjósa um aðild að Evrópubandalaginu. Það er heimskulegur áróður og er settur fram í trausti þess, að Islendingar séu enn of fákunnandi um Evrópu- málin, að þeir falli í gryfjuna," segir m.a. í leiðara Al- þýðublaðsins í dag. SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: HVERS VEGNA ALÞÝÐU- FLOKKINN? Margir í kröggum Þúsundir einstaklinga hafa lent í alvarlegum fjárhags- þrengingum að undanförnu og á síðasta ári leituðu um 1400 einstaklingar til G-samtak- anna. Þetta kemurfram í viðtali við Kristján Einarsson formann samtakanna. Stefnulaus og ráðþrota Aldrei hafa jafn margir kom- ið frá sér jafn litlu, segir Ingi H. Guðjónsson meðal annars í grein sinni og er þá að vísa til samþykkta Landsfundar Sjálf- stæðisflokksins. Ljúga með þögninni EinarÁmason hagfræðingur telur sjónvarpsstöðvarnar ekki hafa sagt frá skattahækkunum Davíðs í Reykjavík og stór- hækkun á byggingarkostnaði ráðhússins. Frelsi og mannúö á Nesinu Mcmnréttmdi eru brotin — segja stjórnir Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Sæbraut 2 á Seltjarnarnesi, þar er heimili einhverfra barna i dag. Bæjarstjórn vill börnin burt. — A-mynd E.Ól. Frelsi og mannúð á Seltjarnarnesi eru harð- Iega átalin af stjórnum Landssamtakanna Þroskahjálpar og Ör- yrkjabandalags íslands. Hér er átt við brottvísun einhverfra einstakiinga úr samfélagi Seltirninga, sem bæjarstjórn Sel- tjarnarness samþykkti nýlega vegna þrýstings frá nokkrum nágrönn- um heimilis einhverfra í Kjarvalshúsi við Sæ- braut. ,,Að eiga heimili eru grundvallar mannréttindi sem allir þegnar þessa lands eiga að njóta, einnig fatlaðir. Ef heimilinu væri gert að flytja er það brot á þessum mannréttindum," segir í ályktun stjórna þess- ara samtaka. Segir þar ennfremur að afstaða bæjarstjórnar Sel- tjarnarness sé með öllu óskiljanleg í Ijósi þess að komið hefur verið að veru- legu leyti til móts við tillög- ur til lausnar málsins. Stjórnir Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags kveðast munu standa vörð um þessi mannréttindi fatlaðra með öllum tiltækum ráðum. Er skorað á bæjarstjórn Sel- tjarnarness að afturkalla áskorun sína til félagsmála- ráðherra um að flytja heim- ili einhverfra frá Seltjarnar- nesi, og þannig í nafni mannúðar að standa vörð um grundvallarmannrétt- indi fatlaðra hér á landi. Eins og fram kom í Al- þýðublaðinu í gær hefur bæjarstjórinn í Hafnarfirði lýst sig reiðubúinn til að ræða við Jóhönnu Sigurð- ardóttur félagsmálaráð- herra um lausn þessa máls. Stillir upp lista — segir JVfagnús Jónsson veöurfrœöingur um útvarpsráö sem banriar Magnúsi að flytja veðurfregnir í sjónvarpi Magnúsi Jónssyni veð- urfræðingi sem skipar 4. sætið á lista Alþýðuflokks- ins í Reykjavík var fyrir nokkru vikið fyrirvara- laust úr starfi sem hann hafði gegnt í sex ár hjá Sjónvarpinu. Magnús hef- ur vísað málinu til um- boðsmanns Alþingis, og segist vilja láta á það reyna hvort þátttaka í prófkjöri gefi útvarps- ' stjóra rétt til að ráðskast með atvinnu manna. í samtali við Alþýðublaðið sagði Magnús að málin hefðu borið að með þvi móti: „Að þann 3. febrúar hefði komið skipun um það frá útvarps- ráði að samkvæmt þeim regl- um sem þeir hafi sett sér sé honum ekki lengur heimilt að koma fram í Sjónvarpi og segja veðurfréttir. Ég taldi og tel enn að með þessari ákvörð- un þá hafi tvennt gerst. Annars vegar það að út- varpsráð hafi verið búið að stilla upp framboðslista eins flokks hér í bænum áður en flokkurinn var sjálfur búinn að gera það. Því þó kosning í sæti í prófkjöri sé bindandi þá hef ég sjálfur heimild til að hafna kosningunni og niður- istöðunni. Ég vil ekki að út- varpsráð segi mér fyrir verk- !um, hvenær og hvort ég tek niðurstöðum úr prófkjöri. í annan stað þá hélt ég að ; þátttaka í stjórnmálum ætti ekki að varða atvinnumissi, því það kostar mig stórfé að hafa verið settur svona skyndilega út úr þessari vinnu. Það er að minnsta kosti Ijóst að þessar reglur voru ekki látnar gilda síðast- liðið vor fyrir bæjar- og sveit- arstjórnakosningarnar. Ég gekk út frá því sem vísu að miðað yrði við framboðs- frest, þegar það lægi fyrir að ég yrði í framboði. Hefði mér þá verið sagt að ég kæmi ekki fram í Sjónvarpi þá hefði ég ekki sagt orð við því.“ Magnús benti á að ef hann hefði t.d. verið í prófkjöri fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn þá hefði honum borið skylda til að hætta að segja veðurfréttir í Sjónvarpi strax í október si. ,,Ég er bara að láta á þetta tvennt reyna, hvort útvarps- ráð þar sem útvarpstjóri tek- ur lokaákvörðun hefur vald til að svipta menn atvinnu fyrirvaralaust vegna þátttöku í stjórnmálum. Og einnig það að þeir séu búnir að ákveða um framboð manna áður en flokkurinn sjálfur hefur tekið endanlega ákvörðun. Þetta mál snýst um stjórnarskrár- bundin réttindi manna um þátttöku i félagsstarfi m.a. stjórnmálum. Og ekki síður um raunverulegt verks- og valdsvið útvarpsráðs. Því þótti mér rétt að láta umboðs- mann Alþingis kveða upp úr- skurð." SJ o J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.