Alþýðublaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 8
OGEFNDIR:
LOFORÐ: JAFNVÆGI
OG STÖÐUGLEIKI í
EFNAHAGSMÁLUM
EFNDIR:
• Lækkun verðbólgu úr
35—40% í 5%.
• Afkomu fyrirtækja breytt úr
skuldasöfnun og hallarekstri
í hagnað.
LOFORÐ: LÆKKUN
VAXTA
EFNDIR:
• Nafnvextir lækkaðir úr yfir
40% í um 15%.
• RaunvextiT lækkaðir úr yfir
10% í 6—8%.
• Lækkun greiðslubyrði
meðalskuldara samsvarar
2—3 mánaðarlaunum.
LOFORD: SKATTA-
KERFINU BEITT TIL
TEKJUÖFL UNA R
EFNDIR:
• Staðgreiðslukerfið stórbætti
hag fjölskyldna, ekki síst
þeirra sem eru með
sveiflukenndar tekjur.
• Hækkaðar bótagreiðslur:
Barnabætur, barnabótaauki
og vaxtabætur.
• Skattkerfisbreytingin 1987/88
lokaði fjölmörgum skatt-
svikaleiðum.
LOFORÐ: ÁTAK í
HÚSNÆÐISMÁLUM
EFNDIR:
• Kaupleigu- og búseturéttar-
íbúðir lögfestar.
• 2500 félagslegar íbúðir
byggðar á kjörtímabilinu.
Það er þriðjungur allra
félagslegra íbúða sem
byggðar hafa verið frá
upphafi.
• Biðtími eftir húsnæðislánum
styttur úr 4—5 árum í gamla
kerfinu í 4—5 vikur í hús-
bréfakerfinu.
• Útborgun kaupanda hefur
lækkað úr 76% í 54%.
• Ný fimm ára áætlun um
þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
LOFORÐ:
VALDDREIFING í
VERKI
EFNDIR:
• Ný lög um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga eftir 20
ára baráttu.
• Aukið sjálfstæði sveitar-
félaga og tekjustofnar þeirra
treystir.
• Sveitarfélögum fækkað um
24.
• Ný lög um félagsþjónustu
sveitarfélaga.
LOFORÐ: ÁTAK í MÁL-
EFNUM FATLAÐRA
EFNDIR:
• 40% raunaukning fjár-
veitinga til málefna fatlaðra.
• Óskert framlög til Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra í
fyrsta sinn.
• Stórauknar framkvæmdir við
byggingu sambýla,
verndaðra vinnustaða, með-
ferðarheimila, sérdeilda í
skólum, endurhæfingastöðva
og sumardvalarheimila
fatlaðra.
• Ný sambýli fyrir geðveika.
LOFORÐ: AFNÁM
HAFTA OG
EINOKUNAR í
ATVINNU- OG VIÐ-
SKIPTALÍFI
EFNCHR:
• Afnám gjaldeyris-
skömmtunar: Forréttindum
fárra breytt í rétt hinna
mörgu.
• Aukið frelsi í útflutning á
frystum fiskafurðum og
saltfiski.
• Einkavæðing í bankakerfinu
með samruna og fækkun
banka.
• Almenningi og fyrirtækjum
tryggður aðgangur að fjár-
magni á heimsmarkaðs-
kjörum.
LOFORÐ: VIRKJUN
VANNÝTTRA
ORKULINDA
EFNDIR:
• Undirbúningur hafinn að
stórvirkjunum á Austur- og
Suðurlandi.
• Samningar við Atlantsáls
fyrirtækin á lokastigi og
staðsetning álvers á
Keilisnesi ákveðin.
• 5000 ársverk tryggð á fram-
kvæmdatímanum við
byggingu álvers.
• Viðræður eru hafnar við EB
um nýtingu orkulinda.
LOFORÐ: SJÁLFSTÆÐI
í UTANRÍKISMÁLUM
EFNDIR:
• Formaður Alþýðuflokksins
hafði á hendi verkstjórn við
undirbúning samninga fyrir
hönd EFTA-ríkjanna um
stofnun Evrópsk efnahags-
svæðis.
• Fastheldni á
grundvallaratriði farsællar
utanríkisstefnu um samstarf
vestrænna lýðræðisríkja í
öryggis- og varnarmálum.
• Sjálfstætt frumkvæði um
alþjóðasamninga um af-
vopnun á höfunum.
• Alþjóðleg forysta um virkan
stuðning vestrænna ríkja við
sjálfstæðisbaráttu Eystra-
saltsþjóða.
X-ALÞÝÐUFLOKKURINN
ÞAÐ SKIPTIR MÁLI HVERJIR STJÓRNA
Aðalverktökum breytt að
meirihluta í ríkisfyrirtæki:
Arðurinn rennur nú til
þjóðarinnar allrar.