Alþýðublaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 17. maí 1991
Veröi Island heilsuparadís kunna bœir aö veröa skíröir upp á nýtt?
„Bað Akureyri"
í Þýskalandi tíðkast það að bæir séu skírðir að
nýju, þegar þeir fó viðurkenningu sem heilsulindir.
Það sama gæti gerst á íslandi. Við verðum kannski
að fara að venja okkur við Bað Akureyri eða Bað
Húsavik. íslendingar hafa mikla möguleika á að
afla gjaldeyris með þvi að bjóða útlendingum upp á
margvislega heilbrigðisþjónustu. En leiðin er brött
og löng sögðu sérfræðingar á blaðamannafundi i
gær er þeir kynntu áfangaskýrslu Útflutningsráðs
Íslands um möguleika á útflutningi á islenskri heil-
brigðisþjónustu. Úttektin var afmælisgjöf til Vigdis-
ar Finnbogadóttur, forseta íslands, er hún varð sex-
tug.
ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR
List um hvítasunnu
Eflaust munu margir leggja leið
sína á listsýningar og aðra list-
viðburði hvítasunnuhelgar. í Ný-
höfn í Hafnarstræti er Kogga
(Kolbrún Björgólfsdóttir) með
sýningu á verkum unnum í stein-
leir, innlögðum postulíni. í Ný-
listasafninu sýna tveir Svisslend-
ingar, Ian Anull og Christoph
Rutimann, framúrstefnumenn í
alþjóðlegu samhengi. Þá er þýsk
kona, Ulrike Arnold, með ný-
stárlega sýningu í Listasafni ASÍ,
jarðmyndir. Býr hún sjálf til
málningu sína úr jarðefnum,
sem hún hefur safnaö víða um
lönd, m.a. á íslandi. Myndin er af
Ulrike að störfum.
Magnús Geirsson
formaður
Rafíðnaðar-
sambands
Á 11. þingi Rafidnadarsam-
bands Islands á dögunum var
Magnús Geirsson kjörinn for-
maður sambandsins. Með hon-
um í stjórn eru Guömundur
Gunnarsson, varaformaður, Þór-
ir Hermannsson, ritari og Sig-
urdur Hallvardsson, gjaldkeri.
Breskt herskip í
heimsókn
Skip úr konunglega breska sjó-
hernum, HMS York, kom í gær í
kurteisisheimsókn til landsins
og verður hér í fjóra daga. Skipið
er 4600 tonna tundurspillir sem
verið hefur undir stjórn Captains
Anthony G. McEwen síðan i
janúar 1990. McEwen er sagður
sérstakur áhugamaður um sil-
ungsveiðar auk þess sem hann
mun vera liðtækur í margskonar
töfrabrögðum. í áhöfn skipsins
eru um 300 menn. Skipið verður
opið fyrir almenning til skoðun-
ar sunnudaginn 19. maí á milli
kl. 14 og 16.
VISA vill
prúðmannlegri
fótbolta
VISA ísland og Knattspyrnusam-
bandið hyggjast í sumar gera
átak saman til að stuðla að
drengilegri keppni en tíðkast
hefur undanfarin sumur. Kallast
átakið „Fair Play-keppnin‘ og er
því liði sem til titilsins vinnur
heitið góðum verðlaunum.
Kannski eigum við von á prúð-
mannlegri fótbolta en verið hef-
ur. Sumum hefur þótt nóg um á
stundum.
Islendingar
„svikja ölið"
Erlend dagblöð hafa að undan-
förnu skrifað um Island og
áfenga ölið. í Arbetet nýlega seg-
ir í fyrirsögn aö Islendingar svíki
öliö. Þeir kaupi nú minna af
áfengu öli en fyrr, en auki á sama
tíma neyslu á sterkum drykkjum
um 5—6%.
í gær var Islenska heilsufélagið
stofnaö sem hlutafélag um „gjald-
eyrisskapandi heilbrigðisþjón-
ustu.“ Mestur hagnaður er talin
vera á sviöi heilsuferða til Islands
en einnig er talið að útlendingar
sækist eftir sérhæföari þjónustu
og endurhæfingu og að verkefna-
útflutningur, t.d. til þróunarlanda,
geti orðið vænlegur.
Flytjum þegar út_______________
íslendingar hafa þegar nokkrar
tekjur af heilbrigðisþjónustu fyrir
útlendinga. Á meðferðarstöðinni
Fitjum á Kjalarnesi eru að jafnaði
40 erlendir sjúklingar í áfengis-
meðferð og beinar gjaldeyristekj-
ur af starfsemi þar hafa verið um
180 milljónir króna á ári.
Þá hefur fyrirtækið Össur fram-
leitt stoðtæki með góðum árangri.
Og íslensk hugbúnaðarfyrirtæki
hafa sérhæft sig í lækningum.
Þannig hefur t.d. verið þróuð
tölvukerfi á Landspítalanum til að
fylgjast meö lækningu krabba-
meinssjúklinga.
Ingjaldur Hannibalsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs,
segir að við útflutning íslenskrar
þjónustu megi búast viö sömu erf-
iðleikum og varðandi annan út-
flutning á þekkingu. Umhverfi á
íslandi í sjávarútvegi og í útflutn-
ingi á þekkingu varðandi jarð-
varma sé ekki sambærilegt viö
þaö sem menn búa við erlendis.
Mikilvægt sé að bæta starfsskil-
yrði hér.
Bað Akureyri___________________
Víða erlendis hafa byggst upp
lieil heilsuhéruð. Borgir og sveitir
í Þýskalandi hafa verið skírð upp
eftir að viðkomandi sveitarstjórnir
höfðu söðlað um og gert héraðið
aö heilsuparadís. Bærinn Griesb-
ach heitir nú Bad Griesbach eftir
aö athafnamaður tók sig til og gróf
eftir heitu vatni árið 1972 með
þeim árangri að þar risu heilsuhót-
el og ferðalangar streyma þangað
í leit að bættri heiisu. Fjárfest hef-
ur verið fyrir einn milljarð marka
eöa um 35 milljarða íslenskra
króna og gistinætur eru orðnar
ein milljón á ári. Viðbótina „Bad“
hlaut bærinn frá þýskum heil-
brigðisyfirvöldum eftir að ströng-
um skilyrðum hafði verið full-
nægt.
Á blaðamannafundinum í gær
nefndu íslensku sérfræðingarnir
þá möguleika sem ísland hefði
upp á að bjóða í þessum efnum.
Staöir eins og Akureyri, Húsavík
og Borgarfjörður þykja meðal
annarra ákjósanlegir. Davíð Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Ríkis-
spítalanna, sagði að vel þvrfti að
vanda til heilsustaða á íslandi.
Hingað kæmu útlendingar til að
komast í tæri við náttúru landsins.
Og því þyrftu íslenskir bæir meöal
annars að vera vel í sveit settir
varðandi nánasta umhverfi.
Hvar er____________________
gróðavonin mest?___________
Talsmenn Útflutningsráðs sögöu
á blaðamannafundinum í gær aö
hér væri verið að hugsa heilbrigð-
isþjónustu út frá fjárhagslegu sjón-
armiði fyrst og fremst. Viö kynn-
um ef til vill ekki að nálgast heil-
brigðið út trá öðru sjónarhorni en
sem hluta samfélagsþjónustunnar
sem allir telja sjálfsagða. Mark-
miðið væri að afla sem mesta
tekna. „Mannauðinn höfum við,“
sagði Einar Stefánsson, prófessor í
augnlækningum, „en þetta tekur
langan tíma.“ Einar sagði það
borna von að menn næðu endan-
legum árangri 1992—1993. Við
værum að tala um 5—10 ára áætl-
un.
Davíð S. Gunnarsson tók undir
það með Einari að þekkingin væri
fyrir hendi, en að markaðurinn
væri mjög misjafn og þó að is-
lenskir læknar væru hámenntaðir
og góðir verkmenn, skorti tilfinn-
anlega hjúkrunarfólk.
Líklegra væri að íslendingar
hefðu meiri tekjur upp úr því að fá
10—20 þúsund útlendinga hingað
út „með heilsuívafi" en að sér-
hæfa sig. í sérhæfingunni ríkti
meiri samkeppni og verð á að-
gerðum væru jafnvel að lækka.
Með tilboð upp á vasann
Það þykir auk þess nokkuð við-
kvæmt að lokka til landsins fólk
sem þarf á sérhæfðari þjónustu að
halda meðan biðraðir eru eftir
sömu þjónustu fyrir íslendinga.
Forstjóri Ríkisspítalanna telur að
Islendingar verði að byrja smátt á
því sviði. Það sé auk þess ákaflega
áhættusamt að byggja dýrar stofn-
anir í þeim tilgangi að sinna fólki
að utan.
Hér gætir ósamræmis. Annars
vegar er skortur á sérhæfðu fólki
á ýmsum sviðum hjúkrunar. Er
um kennt meðal annars lágum
launum. Hins vegar eru sjúklingar
á dýrum heilbrigöisstofnunum
sein ættu heima á öðrum stöðum
í heilbrigðiskerfinu. Davíð S.
Gunnarsson sagði að hann væri
með tilboð um hjartaaðgerðir fyr-
ir útlendinga á íslandi, en ekki
væri hægt að sinna þeim.
Skortur á frægð
Island er ekki miöpunktur heil-
brigðisþjónustu á veraldarvísu.
„Vandinn er að hér eru enginn
heimsfræg nöfn, engir Nóbels-
verölaunahafar." sagði ríkisspít-
alastjóri á blaðamannafundinum í
gær. Einar Stefánsson augnlæknir
kvað erfitt að ná markaði þar sem
sérhæfingin væri mikil. Til þess
skorti okkur m.a. frægðina. Er-
lendir læknar vísuðu sjúklingun-
um til þeirra sem þeir þekktu. Sér-
fræðingar í Háskóla íslands þyrftu
að geta sinnt betur rannsóknum
en nú er gert, þar sem orðsporið
skipti miklu og Háskólinn væri of
veikur. „Hann er bakgarðurinn."
íslendingar eru þekktir meðal
nágrannaþjóða. Hingað leitar
nokkur hópur Grænlendinga á
hverju ári vegna aðgerða, en þeg-
ar kemur út í Evrópu er sam-
keppnin mikil. Ekki er þó talið úti-
lokað að hægt væri að greiða götu
þeirra sem vildu sinna verkefnum
á sviði heilbrigðisþjónustu með
samvinnu við erlenda einkaaðila.
Bandarísk fyrirtæki hafa til dæmis
sóst eftir frekari samvinnu við
Evrópuþjóðir og þar gætu íslend-
ingar orðið gjaldgengir.
Allir að bíða
„Það eru allir að bíða,“ sagði
Gunnar Rafn Birgisson, markaðs-
stjóri Útflutningsráðs. „Það tekur
enginn frumkvæði." Gunnar, sem
unnið hefur skýrsluna um mögu-
leika á sölu heilbrigðisþjónustu,
sagði að hér skorti tilfinnanlega
fyrirtæki sem gæti samræmt hugs-
anlegar aðgerðir þeirra sem vildu
sinna þessum markaði. Markaði
sem við þekktum að vísu fjarska
lítið til og því minna sem við
reyndum að kynnast honum bet-
ur.
Grímur Sæmundsen læknir
kynnti í gær stofnun sérstaks fyrir-
tækis á sviði heilbrigðisþjónustu.
Markmiðið er að afla gjaldeyris
við sölu heilbrigðisþjónustu, en
helstu hluthafar eru Máttur, Sjó-
vá/Almennar og Vífilfell. Hlutafé
er 6—8 milljónir.
Gunnar Rafn sagði að hér á
landi væri innra skipulag bágbor-
ið, en að möguleikar væru góðir.
Það væri hann sannfærður um.
ekki síst eftir ferðir á slóðir heilsu-
staðanna á meginlandinu og á
Norðurlöndum. Á sviði þróunar-
hjálpar væru að auki tækifæri. Al-
þjóðabankinn verði 2800 milljón-
um dala í aðstoð á heilbrigðissviði
á vanþróuðum sviðum. Við ættum
að geta hresst upp á ímynd okkar
í þróunarhjálp. Þá nefndi Gunnar
að Bláa lónið bvggi yfir meiri
möguleikum en þar hefðu veriö
nýttir.