Alþýðublaðið - 17.05.1991, Blaðsíða 3
Föstudagur 17. maí 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
IHNOTSKURN
NÝ KIRKJA í KÓPAVOGI: Fyrsta skóflustungan að
nýrri kirkju og safnaðarheimili Hjallasóknar í Kópavogi,
verður tekin af dr. Sigurbirni Einarssyni biskupi á hvíta-
sunnudag. Athöfnin hefst með hátíðarguðsþjónustu í
messusal Hjallasóknar, en að athöfn lokinni verður gengið
til kirkjulóðarinnar sem er að Álfaheiði 17. Formaður
sóknarnefndar Hjallasóknar er Hilmar Björgvinsson,
lögfræðingur. Sóknarprestur er séra Kristján Einar Þor-
varðarson, organisti er Elías Davíðsson. Myndin sýnir
útlit væntanlegrar kirkju þeirra í Kópavoginum.
ÚTIVIST UM HVÍTASUNNU: Auk lengri ferða Úti-
vistar um hvítasunnuna er boðið upp á styttri ferðir í einn
dag. Póstgangan heldur áfram frá Deildarási um Herdísar-
vík að Vogsósum. Þá verður farið í Svínaskarð og gengin
gömul leið þar, og loks í Haukafjöll, létt fjallganga, komið
niður við Tröllafoss. Upplagt að nýta helgina í léttar göngu-
ferðir.
MINNI MJÓLK, MEIRI RJÓMI: Samkvæmt fram-
leiðslutölum Framleiðsluráðs landbúnaðarins frá í
mars minnkaði mjólkursala til landsmanna um 1,26% á
einu ári — rjómasalan jókst aftur á móti um 6,93% og sala
á Léttu og laggóðu um 8,9%, en viðbiti í heild um nærri
3%.
ÁLFUR GEGN
ÁFENGISBÖLI: sáá
mun selja Áifinn á föstu-
dag og laugardag. Hann
kostar 400 krónur og renn-
ur afrakstur sölunnar til
starfsemi samtakanna.
Undir hatti álfsins eru birki-
og lúpínufræ, þannig að
átakið styður að gróður-
vernd, ekki síður en mann-
vernd. SÁÁ rekur nú tvær
eftirmeðferðarstöðvar og
sjúkrahúsið Vog. Því miður
er allt pláss nýtt að fullu,
1600 einstaklingar leita til
Vogs með vandamál sín á
ári hverju og 800 fara áfram
í eftirmeðferð. Engar horfur eru á því að þörfin fyrir með-
ferð áfengis- og fíkniefnasjúklinga minnki á næstu árum,
er mat sérfróðra manna á þessu sviði.
HRAÐI SKAPAR HÆTTU: Á þingi Rafiðnaðarsam-
bands Islands á dögunum var ályktað um öryggismál. Þar
segir að helstu einkenni þjóðfélags okkar í dag séu hraði
og aukin framleiðni. Þetta þýði um leið meiri hættu fyrir
þann mikla fjölda rafiðnaðarmanna, sem vinnur að við-
haldi hjá fyrirtækjum og stofnunum. ,,Það sem minnkað
getur líkur á vinnuslysum er árvekni og þekking á þeim
búnaði sem í notkun er og á þeim krafti sem í raforkunni
felst," segir í ályktuninni og ennfremur að þar séu fagfélög-
in best til þess fallin að sinna þessu starfi og það verði að
gera enn betur en áður. Rafiðnaðarsambandið samþykkti
á fundi sínum að gefa 500 þúsund krónur til söfnunar
Rauða krossins, Sól úr sorta.
VÍKINGAR BYGGJA í F0SSV0GI: Reykjavíkurborg
mun á næstu fjórum árum reiða fram 175 milljónir króna
til byggingar íþrótta- og vallarhúss Víkings við Stjörnugróf
í Fossvogi. íþróttahús verður formlega tekið í notkun í nóv-
emberbyrjun í ár. Davíð Oddsson, borgarstjóri, tók fyrstu
skóflustunguna að íþróttahúsinu í marsbyrjun og er Hag-
virki nú að Ijúka við að reisa útveggi hússins, sem á að
rúma 1100 manns í sæti. Myndin er af undirritun samninga
borgarinnar og Víkings, sem gerðir voru í síðustu viku, frá
vinstri Eysteinn Helgason, Hallur Hallsson, Davíð
Oddsson og Júlíus Hafstein.
Þórunn Sueinbjörnsdóttir, formadur Sóknar
Erfitt að hifa upp
þá lægst launuðu
„Eitthvað ætti að vera
tii skiptanna miðað við af-
komutölur fyrirtækjanna.
Lægstu laun eru fyrir neð-
an allar hellur og það þarf
átak til að rffa þau upp. Til
þess að það takist þurfa
aðrir iaunþegar að sýna
biðlund en ég sé ekki að
það muni verða,“ sagði
Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
formaður Starfsmannafé-
iagsins Sóknar, í samtali
við blaðið.
Hún var spurð álits á þeim
ummælum Einars Odds
Kristjánssonar, formanns
VSÍ, að tekjuhlutföllum
verði vart breytt og ekki sé
hægt að hækka lægstu laun
sérstaklega því þá komi allir
á eftir og heimti það sama.
Þórunn tók undir það að
erfitt reyndist að hífa þá
verst settu upp í launum.
Hún sagði að það hefði sýnt
sig að fólkið sem hefði það
skárra þyldi ekki samþjöpp-
un launataxta og vildi halda
óbreyttu bili. Ef til vill þyrfti
að stokka þetta kerfi allt
saman upp.
„Það sem er skelfilegast í
stöðunni er það að það er
enginn launajöfnuður uppi f
þjóðfélaginu. BHMR og
fleiri kæra sig ekki um að
gefa neitt eftir til hinna lægst
launuðu, hvað þá þær stéttir
sem skammta sér launin,
ÞÓRUNN — menn vilja ekk-
ert gefa eftir til hinna lægst
launuðu.
eins og tæknifræðingar.
Háskólafólkið vill launa-
hækkanir af því það telur sig
eiga svo og svo mikið inni í
rikinu. Fólkið í Sókn talar
bara um að fá að lifa. Ég sé
ekki hvemig á að vera hægt
að samræma þessi sjónar-
mið. En tilfellið er að allur
þungi launafólks er með 50
til 120 þúsund krónur í mán-
aðarlaun og allt gert til að
halda laununum niðri að því
er virðist. Við höfum fundað
dálítið með okkar fólki að
undanfömu og það er greini-
legt að það vill ekki verð-
bólgusamninga. Kýs frekar
raunhæfar kjarabætur gegn-
um skattakerfið og eftir
fleiri slíkum leiðum,“ sagði
Þómnn Sveinbjömsdóttir.
gangi. Með þeim hætti er
hægt að farga spilliefnum
og/eða endurvinna þau á við-
unandi hátt og minnka þann-
ig skaðleg áhrif á umhverfi og
heilsu manna. Því er það for-
gangsverkefni við flokkun
úrgangs að spilliefni fari rétt-
an farveg.
Með starfsleyfi fyrir spilli-
efnamóttöku hjá Sorpu hefur
nú skapast sá möguleiki á
höfuðborgarsvæðinu. 1 leyf-
inu eru ströng ákvæði um
meðferð spilliefna svo og ör-
yggi og umgengni á athafna-
svæðinu. Jafnframt er kveðið
á um að fyrirtækið skuli
koma upp aðstöðu til reglu-
bundinnar innsöfnunar spilli-
efna hjá fyrirtækjum. Enn-
fremur skal koma upp mót-
tökustöðvum á þjónustu-
svæði fyrirtækisins þar sem
almenningur getur skilað
spilliefnum.
Sorpa fœr nýtt starfsleyfi
Ný móttaka
spilliefna
Eiður Guðnason um-
hverfisráðherra afhendir í
dag starfsleyfi fyrir mót-
töku spilliefna hjá Sorp-
eyðingu höfuöborgar-
svæðisins. Sorpa hefur
rekið spilliefnamóttöku í
Kópavogi síðan í mars í
fyrra og á 12 mánuðum
hafa borist þangað 120
tonn af spilliefnum sem
send hafa verið til endur-
vinnslu og förgunar í Dan-
mörku. Nýja móttakan er
hjá Sorpu í Gufunesi.
Stefnumótun umhverfis-
ráðuneytisins byggist að
miklum hluta á því að um-
hverfisskaðleg efni og efna-
úrgangur blandist ekki
neyslu og framleiðsluúr-