Alþýðublaðið - 17.05.1991, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 17.05.1991, Qupperneq 6
6 Föstudagur 17. maí 1991 Aldís Brynjólfsdóttir Schram Framhald af bls. 5 sem fómaði meðfæddum hæfileik- um og auðsóttum frama fyrir aðra, svo að þeir fengju að njóta sín? Var hún ekki konan, sem varð að hverfa frá menntaskólanámi vegna þess að efnahagur foreldranna leyfði ekki slíkan munað? Satt að segja hefur það aldrei hvarflað að mér að þessi viljasterka kona hefði látið svo lítilfjörlcgt mál sem peningaleysi aftra sér frá því að stunda nám, sem hugur hennar stóð til, ef það hefði verið henni brenn- andi metnaðarmál. Ég held henni haft sjálfri fundist tími til kominn að innritast í lífsins skóla. Slík kona sem hún var skynjaði að fleira gat verið eftirsóknarvert í lífinu en sá fróðleikur, sem numinn verður af skólabókum. Og það er ekki eins og hún haft lagt nám á hilluna þegar hún byrjaði ung í lífsins skóla. Lengi bjó hún að þeim metnaði bræðra sinna að hafa sótt besta bama- og unglingaskóla landsins að Landakoti. Og hún var að læra allt sitt líf. Hún talaði dönsku eins og innfædd. Hún var jafnvíg á ensku og þýsku, las frönsku með Bryndísi til stúd- entsprófs og hélt því áfram síðar, sjálfri sér til ánægju. Ellert sonur hennar segir réttilega að hún hafi tekið landspróf fjórtán sinnum, því að hún Ias undir það próf með helm- ingnum af bömum sínum og bama- bömum. Málanám lá létt fyrir henni. Samt lá gáfnafar hennar fyrst og fremst á öðm sviði. Hún var náttúrlegur stærðfræðingur, hafði yndi af alge- bm og tók upp á því á sjötugsaldri að fara í gegnum stíft stærðfræði- nám í menntaskóla. Hún hafði yndi af því að leysa þrautir þar sem form- festa og rökvísi stærðfræðinnar kom henni að góðu haldi. Hún var af- bragðs briddsspilari. Og spilaði af slíkri keppnishörku og metnaði, að harðjaxlar og atvinnumenn máttu hafa sig alla við, til þess að halda sínum hlut fyrir henni. Stundum spurði ég hana hvort hún, eftir á að hyggja, hefði notið sín betur í lífinu, að eigin mati, ef hún hefði lagt fyrir sig stærðfræði- kennslu, gerst verkfræðingur eða farið að stjóma verðbréfafyrirtæki, svo ég nefni nokkur dæmi um hluti, þar sem allt hefði leikið í höndunum á henni. Hún brosti brosi hinnar lífs- reyndu konu og sagði: Aldrei, ef ég hefði orðið að velja á milli þess og móðurhlutverksins; orðið að taka starfsframa fram yfir kvenleikann, til þess eins að geta keppt við karl- manninn í hans eigin veröld. Við ráðum þessu hvort eð er öllu, bak við tjöldin, við konur. Það var ekki til í henni vottur af biturð eða vanmetakennd, enda ekkert í hennar lífi, sem gaf tilefni til þess. Oft virti ég hana fyrir mér í gestgjafahlutverki, þegar erlenda gesti bar að garði. Iþróttafrömuði, kaupsýslumenn, stjómmálamenn og listamenn. Hún átti orðastað við hvem og einn á hans eigin móð- urmáli og heillaði alla með fegurð sinni, fasmikilli framgöngu og persónutöfrum. Hvers ætti hún svo sem að sakna af ónýttum tækifær- um, sem lífið býður upp á? „Je ne regrette rien...“ syngur Edit Piaff. Ég sá tengdamóður mína í anda taka undir með Edit með kankvísu brosi. Aldís Brynjólfsdóttir fór að dæmi formóður sinnar, Auðar djúpúðgu, og reisti skála sinn við þjóðbraut kvenna. Hennar hús stóð okkur öll- um opið að nóttu sem degi, hvort heldur var í sorg eða gleði. Þar kom stórfjölskyldan saman til mann- fagnaðar og naut gestrisni hinnar örlátu húsfreyju. Þar sviguðu borð undir krásum. Þar var oft glatt á hjalla þegar lífsgleðinni var gefinn laus taumurinn. Þrjár kynslóðir stórfjölskyldunnar stigu þar sín fyrstu spor og lærðu við hennar veisluborð að meta og njóta h'fsins lystisemda. Þar komu saman hraustir menn og fagrar konur, enda þvflíkur kvenblómi ekki samankominn í einni fjölskyldu annars staðar á byggðu bóli. Nú er þessari veislu lokið. Þá er ekki annað eftir en að þakka fyrir sig um leið og við fylgjum okkar örláta gestgjafa til hinstu hvfldar. Og þó. Við eigum öll eftir að koma saman til seinustu kvöldmáltíðar- innar, þar sem gestgjafinn verður í heiðurssæti, þó fjarverandi sé, með- an við flytjum henni þakkaróðinn, fyrir allt sem hún gaf okkur af rausn sinni og ríkidæmi. Jón Baldvin Hannibalsson. Útboð Hálfdan 1991 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu 3,3, km kafla á Bíldudalsvegi um Bíldudal. Helstu magntölur: Bergskering 12.000 m3, fyllingar 39.000 m3 og burð- arlag 14.000 m3. Verki skal lokið 1. nóvember 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 21. þ.m. Skila skal tilboum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 3. júní 1991. Vegamálastjóri. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Siðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500 Forstöðumaður Staða forstöðumanns við lítið heimili fyrir unglinga er laust til umsóknar. Starf forstöðumanns felst m.a. í umsjón með daglegum rekstri heimilisins ásamt ábyrgð á faglegum störfum þess. Forstöðumaður gegnir vaktavinnu. Reynsla og menntun sem félagsráðgjafi eða hliðstæð menntun á sviði sálar- eða uppeldisfræði áskilin. Starfið er laust 1. júlí nk. Umsóknarfrestur er til 28. maí nk. Skrifstofa Alþýðuflokksins er lokuð e.h. í dag vegna jarðarfarar Aldísar Brynj- ólfsdóttur. Skrifstofa Alþýðuflokksins. Setbergsskóli húsvörður Laus er til umsóknar staða húsvarðar við Setbergs- skóla í Hafnarfirði. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi nokkra þekkingu á viðhaldi húsa og geti annast minni háttar viðhald sjálfur. Ráðningartími er frá og með 1. ágúst 1991. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningi milli Hafnar- fjarðarkaupstaðar og starfsmannafélags Hafnar- fjarðar. Nánari upplýsingar veita skólastjóri Setbergsskóla í síma 651011 og skólaskrifstofa Hafnarfjarðar í síma 53444. Umsóiknum skal skilað á skólaskrifstofu Hafnar- fjarðar, Strandgötu 4, eigi síðar en 28. maí nk. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. VÉLSKÓLI ^v> ÍSLANDS Innritun á haustönn 1991 Upplýsingar gefur forstöðumaður Anna Jóhanns- dóttir í síma 681836 og forstöðumaður unglinga- deildar Snjólaug Stefánsdóttir í síma 625500. Þroskaþjálfi — meðferðarfulltrúi Fjölskylduheimili fatlaðra barna, Akurgerði 20, ósk- ar eftir að ráða þroskaþjálfa eða meðferðarfulltrúa. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fötluðum börnum. Vegna kynsamsetningar barnanna óskum við eftir karlmanni í þetta starf. Um er að ræða 70% kvöld- og helgarvinnu. Einnig óskum við eftir að ráða þroskaþjálfa eða meðferðarfulltrúa í 50% starf. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 681311 og 21682. Umsóknarfresturertil 28. maí nk. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu- blöðum sem þar fást. Innritun nýrra nemenda á haustönn 1991 er hafin. Umsóknir, ásamt gögnum um fyrra nám, verða að hafa borist skrifstofu skólans fyrir 5. júní nk., póst- hólf 5134, 125 Reykjavík. Kennsla fer fram eftir áfangakerfi. Nemendur, sem hafa stundað nám við aðra skóla, fá nám sitt metið að svo miklu leyti, sem það fellur að námi í Vélskóla íslands. Inntökuskilyrði: Umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi eða sé 18 ára. Vélavörður Sérstök athygli er vakin á námi vélavarða er tekur eina námsönn og veitir vélavarðaréttindi sam- kvæmt íslenskum lögum. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans í Sjómannaskólahúsinu kl. 8.00—16.00 alla virka daga. Sími 19755. Skólameistari. Dýralæknar Staða héraðsdýralæknis í Hofsósumdæmi er laus til umsóknar, tímabundið í eitt ár, frá 1. september 1991 til 31. ágúst 1992. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir sendist fyrir 10. júní nk. til landúnaðar- ráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík. Landbúnaðarráðuneytið, 14. maí 1991.. RAUTT UÓS RAUTT UÓSf yUMFERÐAR RÁÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.