Alþýðublaðið - 17.05.1991, Page 7
Föstudagur 17. maí 1991
7
íþróttaskrif i
aldarfjórðung
Ekki er nema hálfur fjórði ára-
tugur síðan reglubundnar íþrótta-
fréttir fjölmiðla hófust hér á landi
og þá með stofnun Samtaka
íþróttafréttamanna. Stofnendur
voru aðeins fjórir, Atli Steinarsson,
Mbl.,Frímann Helgason, Þjóðvilj-
anum. Hallur Símonarson, Tíman-
um og Sigurður Sigurðsson, Rikis-
útvarpinu. Skömmu síðar gengu
til liðs við samtökin Örn Eiðsson
og Einar Björnsson, Alþýðublað-
inu og Jón Birgir Pétursson, Vísi.
Á myndinni má sjá alla frum-
herjana að Halli Símonarsyni und-
anskildum, talið frá vinstri: Jón
Birgi Pétursson, Vísi, Einar
Björnsson, Alþbl., Frímann heit-
inn Helgason, Þjóðviijanum, Sig-
urð Sigurðsson, Útvarpinu, Örn
Eiðsson, Alþbl. og Atla Steinars-
son, Mbl.
Myndin var tekin þegar íþrótta-
maður ársins var heiðraður, 1962.
- ÖE.
Afmœliskveðja:
ÞÖRÐUR ÞÖRÐARSON
verkstjóri
Á 90 ára afmæli Þórðar Þórðar-
sonar kemur upp í hugann þegar
hann tók til máls sem nýkjörinn
heiðursfélagi á 60 ára afmæli Al-
þýðuflokksfélags Hafnarfjarðar á
liðnum vetri. Það verður lengi í
minnum haft. Með snjöllum mál-
flutningi og krafti, sem sérhver
maður sextíu árum yngri hefði ver-
ið fullsæmdur af, lýsti Þórður að-
stæðum alþýðufólks í Hafnarfirði
þegar Alþýðuflokksfélagið var
stofnað tii þess að bæta þess hag.
Þórður er þeim málum vel kunn-
ur. Hann fluttist til Hafnarfjarðar
fyrir rúmum 60 árum frá Stokkseyri
og stundaði ýmsa vinnu, auk þess
sem hann gegndi miklum fjölda
trúnaðarstarfa fyrir bæjarfélagið,
verkalýðshreyfinguna og Alþýðu-
flokkinn.
íslenskt þjóðfélag okkar tíma er
árangurinn af starfi þúsundanna,
margra kynslóða. Störf brautryðj-
endanna, feðra okkar og mæðra,
lögðu grunninn að velferðarsamfé-
laginu með baráttunni fyrir almenn-
um mannréttindum, almannatrygg-
ingum og öðru sem til bóta hefur
horft um líf fólksins. Öll þessi mál
hafa verið borin upp sem kröfur Al-
þýðuflokksins.
Þórður er einn þeirra brautryðj-
enda sem barðist fyrir framgangi
þessara mála. Við þökkum þeim
sem komu þessu fram. Við þökkum
verkamanninum og verkakonunni
sem unnu hörðum höndum, við
þökkum sjómanninum sem dró fisk
úr sjó við erfiðar aðstæður, við
þökkum iðnaðarmanninum sem
lagði nótt við dag og bóndanum
sem iét tvö strá vaxa þar sem eitt óx
áður. Þau lögðu grunninn að Islandi
nútímans, að velferðarsamfélagi
okkar tíma.
Fyrir hönd Aiþýðuflokksmanna í
Reykjaneskjördæmi óska ég Þórði
Þórðarsyni til hamingju á níræðisaf-
mælinu og þakka honum ómetan-
leg störf fyrri jafnaðarstefnuna.
Jón Sigurðsson, iönaðar-
og viöskiptaráðherra.
Hafnfirskur heiðursmaður, Þórð-
ur Þórðarson, fyrrum verkstjóri og
framfærslufuiltrúi, Háukinn 4, Hafn-
arfirði, er níræður í dag, föstudag-
inn 17. maí.
Til hans munu nú margir Hafn-
firðingar hugsa á þessum merkis-
degi með hlýhug og þakklæti fyrir
hin margháttuðu störf, sem hann
. hefur leyst af hendi í þágu bæjarbúa
og Hafnarfjarðar á liðnum árum.
Því svo sannarlega má segja að
hann hafi víða komið við í störfum
fyrir bæjarfélagið þau 60 ár sem
hann hefur búið í bænum. En Þórð-
ur er einkar félagslyndur maður,
raungóður, drenglyndur og velvilj-
aður. Hann er afburða hjálpsamur,
ávallt verið reiðubúinn til að styðja
þá sem til hans hafa leitað, einkum
þá sem minni máttar hafa verið og
höllum fæti hafa staðið í lífinu. Á
hann hafa þannig hlaðist margvís-
leg trúnaðarstörf.
Hann sá að frelsið, sem það bjó við
birtist í því einu, að það mátti strita,
fékk skortinn að launum, en hafði
ekkert öryggi og litla hlutdeild í því,
hvernig sveitarfélagi eða þjóðfélagi
var stýrt.
Flestir þeir sem komnir eru á efri
ár, kannast við ofangreinda lýsingu
og við aðbúnað verkafólks á fyrstu
árum verkalýðshreyfingarinnar og
Alþýðuflokksins.
Á þessum merku tímamótum í lífi
Þórðar vil ég og margir aðrir þakka
honum og öðrum sem stóðu í hetju-
baráttu fyrir verkafólk áður fyrr.
Árangurs þeirrar baráttu njóta
Hafnfirðingar og raunar íslendingar
allir í ríkum mæli á svo fjölmörgum
sviðum nú í dag.
En Þórður kom víðar við í félags-
starfi, enda var hann áhugamaður
um öll framfaramál bæjarfélags síns
og ávallt reiðubúinn til að leggja
hönd að verki við að hrinda þeim í
framkvæmd. Til hans er því oft leit-
að til þess að gegna forystustörfum,
þegar um er að ræða málefni sem til
heilla mátti horfa fyrir bæjarfélagið.
Er hverju máli vel borgið í höndum
Þórðar. Fjölmörg trúnaðarstörf,
sem hann hefur verið kvaddur til að
gegna, bera þess vott að Þórður nýt-
ur mikils trausts og vinsælda.
Hann var varaformaður Kaupfé-
lags Hafnfirðinga, er formaður
Dýraverndunarfélags Hafnarfjarð-
ar, var í stjórn Byggingarfélags al-
þýðu, formaður Verkstjórafélags
Hafnarfjarðar, varaforseti Verk-
stjórasambands íslands, í stjórn
Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar.
Hann hefur og tekið virkan þátt í
kirkjustörfum í Hafnarfirði og einn-
ig þar verið kvaddur til forystu-
starfa. Verið í stjórn kirkjugarðanna
og meðhjáipari.
Þórður er glaöur og hress í bragði,
æðrulaus og skemmtilegur, en öfga-
laus og kann ekki vel neinu ábyrgð-
arleysi í opinberum málum.
Þórður kvæntist Arnþrúði Gríms-
dóttur, frá Ný-Borg á Stokkseyri,
mikilli myndarkonu, sem nú er lát-
in. Arnþrúður var stoð og stytta
manns síns í öllu hans starfi. Þau
eignuöust þrjú börn, tvo syni og
eina dóttur. 011 eru börnin nýtir og
dugandi borgarar í Hafnarfirði.
Samstarfsmenn og vinir allir
senda afmælisbarninu bestu heilla-
óskir á þessum merkisdegi.
Ég þakka Þórði mikið og gott
samstarf á liðnum árum og fyrir
óeigingjörn störf í þágu bæjarfélags-
ins. Ég árna honum og fjölskyldu
hans heilla á þessum tímamótum í
lífi hans.
Þórður Þórðarson tekur á móti
gestum á afmælisdeginum í veit-
ingahúsinu Skútunni, milli kl. 4 og
7.'
Stefán Gunnlaugsson.
Hann skipaði sér ungur í raðir AI-
þýðuflokksins og gerðist einn af
traustustu og ötulustu liðsmönnum
flokksins í Hafnarfirði og var þar og
í verkalýðshreyfingunni í fylkingar-
brjósti. Hann var formaður Alþýðu-
flokksfélags Hafnarfjarðar um ára-
bil, fulltrúi á fjölmörgum Alþýðu-
flokksþingum, gegndi mörgum
trúnaðar- og nefndarstörfum fyrir
flokkinn, sat um skeið í bæjarstjórn
og kjörinn af henni í margs konar
trúnaðarstörf, svo sem til að vera
formaður húsnæðisnefndar, í fram-
færslunefnd og hafnarnefnd. Hann
var yfirmaður áhaldahúss Hafnar-
fjarðarbæjar um skeið, en áður
hafði hann verið yfirverkstjóri bæj-
arvinnunnar. Þá var hann í nokkur
ár framfærslu- og húsnæðismála-
fulltrúi.
Þórður var félagi í Verkamannafé-
laginu Hlíf og forystumaður þar og
formaður árin 1935, 1936 og 1938.
Kynni hans af kjörurn verkafólks
hér á landi á hans yngri árum munu
hafa leitt hann til starfa í verkalýðs-
hreyfingunni og til liðs við Alþýðu-
flokkinn. Hann sá örbirgð, fátækt og
réttleysi það, sem var hlutskipti hins
vinnandi manns á þeim árum. Hann
sá að sumt af þessu fólki varð að
sætta sig við að klæðast tötrum, búa
í hreysum og lifa við sult og seyru.
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Sigurrós Sveinsdóttir
fyrrum formaður Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar í Hafnarfirði
sem lést á Sólvangi 13. maí, verður jarösungin frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.30.
Sveinn Magnússon
Kristín Magnúsdóttir
Erna Friöa Berg
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.