Alþýðublaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 6
6
Þriðjudaqur 24. desember1991
Ljúffeng
íslensk landkynning
á borð vina og viðskiptavina erlendis
Vart er hægt að hugsa sér meira spennandi gjöf en fulla körfu af
forvitnilegu góðgæti frá framandi landi. Slík gjöf segir meira en mörg
orð um matarmenningu einnar þjóðar.
Hægt er að velja um ostakörfu með
mismunandi tegundum af íslenskum ostum
sœlgœtiskörfu með gómsætu íslensku sælgæti
s.s. Opali, súkkulaði, brjóstsykri og lakkrís.
Og íslenska matarkörfu með
sérlega ljúffengum smáskömmtum af ýmsu tagi.
ICEMART
íslenskur markaður
- á leið út í heitn.
Leifsstöð Keflavíkurflugvelli - Sími: 92-5 04 53
*
=>
<
A(í/ja/i bœJzuSi
GEGMOFUSl i¥ALDI
BARATTUSAGA
BORÍS
VJEUSINS
Gegn ofurvaldi
Þessi bók geymir sjálfsævisögu
Boris Jeltsíns fram tii síðustu at-
burða. Bókin kom fyrst út í fyrra og
kom þá við kaunin á valdaklíku
kommúnista í Sovétríkjunum. Saga
Jeltsíns er merkileg og fróðlegt að
lesa hana nú, þegar hann er í mið-
punkti mikilla átaka, sem gætu skipt
sköpum fyrir heiminn um langa
framtíð. Veturliði Guðnason þýddi
bókina, en Örn og Örlygur gefa út.
Bankar og peningar á 19. og
20. öld
Höfundurinn, Karl Erich Born, er
prófessor í hag- og samfélagssögu
við Háskólann í Tubingen og félagi
í Vísindaakademíunni í Mainz. í
þessari bók hans er rakin framvinda
peninga- og lánamála síðustu tvær
aldirnar, greint frá uppruna banka
af ýmsum toga, starfsháttum þeirra,
innlendum sem alþjóðlegum. Þá er
í bókinni ágrip af sögu margra
kunnra banka.
27 herbergi
Ljóðabók Rögnu Sigurðardóttur,
sem Mál og menning gefur út, er
talsvert óvenjuleg. Hún hefur að
geyma tugi litljósmynda sem tengj-
ast eiga ljóðunum á ýmsan hátt og
mynda eina heild. Bókin er því eins-
konar ljóðmyndabók, höfundurinn
enda hvort tveggja, myndlistarmað-
ur og skáid. Þetta er önnur bók
Rögnu. Hún er búsett í Hollandi og
starfar þar við myndlist.
AUfin,
Ií^ÓmcÍíaJzgSi
íslensk þjóðlög koma á geisla-
diski í flutningi Eddukórsins.
Menningarsjóður gaf út hljómpiötu
með þessu efni þjóðhátíðarárið
1974 og seldist hún upp á örstuttum
tíma. Þetta eru lög sem allir sannir
íslendingar kannast við, og söngur
kórsins er frábærlega vandaður.
Óðmenn áttu marga dygga aðdá-
endur í eina tíð, ogeiga áreiðanlega
enn. Hér eru þeir aftur á ferðinni
með ýmislegt gamalt og gott á
þeirra fyrsta geisladiski, sem Skífan
hefur gefið út.