Alþýðublaðið - 10.01.1992, Page 1
- segir Össur Skarphéðinsson um kúvendingu Halldórs Ásgrímssonar í afstöðu hans til afgjalds
á veiðiheimildum Hagrœðingasjóðs
„Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi sjávarútvegs-
ráðherra, er búinn að
skipta algjörlega um skoð-
un í málinu. Það sýnir að í
þessu máli láta þingmenn
stjórnarandstöðunnar
hentistefnu ráða. Ég er
hálfsorgmæddur yfir
þessari afstöðu þing-
manns sem ég hef alltaf
virt fyrir málefnalegar
skoðanir og rökfestu og
mér finnst þetta ótrúlegur
hringlandaháttur hjá hon-
um,“ sagði Össur í samtali
við Alþýðublaðið í gær
vegna þeirra ummæla
Halldórs að gjaldtaka Hag-
ræðingarsjóðs fyrir veiði-
heimildir væri auðlinda-
skattur.
Össur Skarphéðinsson og
Halldór Ásgrímsson deildu
hart á þing í gær og í fyrradag
þegar Hagræðingarsjóður
sjávarútvegsins var til um-
ræðu. Deildu þeir um hvort
það væri auðlindaskattur að
taka afgjald fyrir veiðiheim-
ildir sjóðsins sem færi til að
kosta rannsóknir sjávarút-
vegsins.
„Framsóknarflokkurinn
hefur löngum haft tvær skoð-
anir í hverju máli,“ segir Öss-
ur, „verið bæði með og á móti
og stundum er sagt að hann
sé opinn í báða enda. Halldór
Ásgrímsson hefur hins vegar
borið af öðrum framsóknar-
mönnum í því að hann hefur
verið sjálfum sér samkvæm-
ari en þeir upp til hópa. Nú
ber hins vegar svo við að
hann er farinn að stunda pól-
itíska loftfimleika sem felast í
því að hann er, að því er mér
virðist af hentistefnuástæð-
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON, - Halldór er farinn að stunda
pólitiska loftfinileika
um, kominn á allt aðra skoð-
un en áður um það hvort sala
á veiðiheimildum sé auð-
lindaskattur eða ekki."
Össur segir að í maí 1990
hafi Halldór skilgreint auð-
lindaskatt í þingræðu á Al-
þingi með eftirfarandi hætti:
„Auðlindaskattur gengur út á
það að skattleggja greinina
og taka til annarra þarfa sam-
félagsins." „Nú er verið að
ræða um það að taka afgjald
fyrir veiðiheimildir sem fara
til þess eins að kosta rann-
sóknir sjávarútvegsins. Það
er alls ekki það sem þing-
maðurinn kallar „aðrar þarfir
samfélagsins". Því er ekki
hægt að kalla þetta auðlinda-
skatt samkvæmt skilgrein-
ingu Halldórs," sagði Ossur
ennfremur.
Þá benti Össur á að Halldór
hefði sagt orðrétt á þingi
þann 28. nóvember sl.: „Eg
ætla mér ekki að kalla þessa
breytingu sem nú er verið að
fara í auðlindaskatt." Nokkr-
um dögum síðar segir Hall-
dór í nefndaráliti að hér sé
verið að stíga „fyrsta skrefið
til að afla tekna í ríkissjóð af
sölu veiðiheimilda og að
koma á auðlindaskatti".
í þingræðu í fyrradag sagði
Halldór svo orðrétt: „Ég tel
þetta auðlindaskatt, að því
leyti sem hér er um skatt að
ræða sem fer til sameigin-
legra viðfangsefna ríkisins."
Össur segir að með þessu sé
fyrrverandi sjávarútvegsráð-
herra búinn að fara heilan
hring og „lýsir hentistefnu
Framsóknarflokksins í
hnotskurn, sem skiptir um
skoðun eftir því hvernig vind-
ar blása hverju sinni".
Veröld sem var
• •
ONNUR STÆRSTA FERÐA-
SKRIFSTOFAN FALUN
Svavar Egilsson, stærsti
eigandi Ferðamiðstöðvar-
innar Veraldar, gekk í
gærdag á fund Grétu Bald-
ursdóttur borgarfógeta til
að lýsa fyrirtæki sitt gjald-
þrota. Ekki tókst þó betur
til en svo að gera þurfti
forstjórann afturreka með
beiðnina, ýmsum formsat-
riðum hafði ekki verið full-
nægt.
Þar sem Veröld er hlutafé-
iag þarf að fylgja slíkri beiðni
yfirlýsing meirihluta fram-
kvæmdastjórnarinnar um
gjaldþrotsbeiðnina. Gréta
Baldursdóttir tjáði Alþýðu-
blaðinu síðdegis að búast
mætti við fullnægjandi gjald-
Þrír nýir menn hófu störf
við forsætisráðuneytið á hinu
nýja ári. Ólafur Davíðsson,
hagfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Félags ís-
lenskra iðnrekenda, var skip-
aður ráðuneytisstjóri, — en
Albert Jónsson, stjórnmála-
fræðingur og áður fyrr frétta-
maður við Sjónvarpið, og
Guðmundur Jónsson stjórn-
málafræðingur voru skipaðir
deildarstjórar í ráðuneyti
Davíðs.
Ráðningarnar voru stað-
festar á ríkisráðsfundi á
Bessastöðum á gamlársdag.
Á þeim fundi staðfesti forseti
íslands ennfremur ýmis lög,
m.a. fjárlög ársins 1992.
hjá Davíð
Ólafur Davfðsson hagfræð-
ingur
þrotsbeiðni Veraldar síðar
þann dag.
Fulltrúar Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur mættu á
vinnustað félaga sinna í Ver-
öld í gærmorgun til að ræða
þau alvarlegu tíðindi sem hér
áttu sér stað. „Því miður er
okkar fólk orðið allt of vant
kringumstæðum eins og
þessum, gjaldþrotin eru
óhugnanlega tíð,“ sagði Pétur
Maack hjá VR í gær. Hann
sagði að félagið mundi gera
allt sem hægt væri til að
starfsfólk skaðaðist ekki af
gjaldþrotinu. Pétur sagðist
halda að Veröld hefði ekki
verið í vanskilum með laun til
starfsfólks, e.t.v. væri um að
ræða siðustu mánaðarlaunin.
Flugleiðir hf. fengu
skammagusu í DV í gær frá
Svavari Egilssyni sem sakaði
fyrirtækið um að hafa komið
Veröld á kaldan klaka. Einar
Sigurðsson, blaðafulltrúi fé-
lagsins, kvaðst í gær undr-
andi á þessum ummælum.
Þau væru gjörsamlega út í
hött. Þvert á móti hefðu Flug-
leiðir ákveðið að hlaupa und-
ir bagga með Kanaríeyjafar-
þegum Veraldar. í gærmorg-
un fóru þannig utan 78 Ver-
Ein af ágætum starfskröftum Veraldar yfirgefur vinnustað sinn í gærdag, atvinnulaus.
A-mynd E.ÓI.
aldarfarþegar á nýjum far-
miðum sem Flugleiðir gáfu út
þeim til handa.
Veröld var stórtæk í sölu
Kanaríeyjaferða í vetur og
var með um 40% af sæta-
framboði i Flugleiðavélum
þangað. Margir hafa greitt
inn á þessar ferðir, sumir að
öllu leyti. Svavar Egilsson
sagði í bréfi til Alþýðublaðs-
ins í fyrrakvöld að Ferðamið-
stöðin Veröld „væri þakklát
Flugleiðum" fyrir aðstoðina.
En við annan tón kvað í Dag-
blaðinu Vísi í gær.
Svavar Egilsson, sem fyrir
nokkrum árum var umtalað-
ur snillingur í fjármálum,
virðist hafa farið of geyst í
sakirnar í viðskiptum, trú-
lega með lítið annað í hönd-
unum en pappírsgögnin ein.
Hann er nú gjaldþrota, en
ekki er vitað um hversu mik-
ið hann skuldar. Svavar ásak-
ar Flugleiðir, jafnvel Press-
una, sem skrifað hefur um
umsvif hans.
ALÞÝÐÝDUBLADID - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjovik - Simi 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44