Alþýðublaðið - 10.01.1992, Side 3

Alþýðublaðið - 10.01.1992, Side 3
Föstudaqur 10. janúar 1992 3 EIGUM VIÐ VON Á INNRÁS ERLENDS LANDBÚNAÐAR? Hugleiðing um drög að nýju GATT-samkomulagi og stöðu landbúnaðar nœr og fjœr Landbúnaður hér á landi og víða um heim er vandræðagrip- ur. Hann er hvarvetna til ama og vandræða þegar þjóðir ætla sér að fara að semja um eitthvað sem náigast eðlilega viðskiptahætti og milliríkjaverslun. Verðmynd- un landbúnaðarafurða víða um heim er orðin svo brengluð að fæstir hafa minnstu hugmynd um hver framleiðslukostnaður búvara er. Á vegum GATT reyna því þjóðir heims að vinda ofan af þeirri hringavitleysu sem ein- kennir heimsverslunina með landbúnaðarafurðir m.a. íslenskir bændur funda nú víða um land og rísa öndverðir gegn þeim samkomulagsdrögum að nýj- um GATT-samningi sem fram- kvæmdastjóri GATT, Arthur Dunk- el, hefur lagt fram sem málamiðlun- artillögu eftir margra ára þref aðild- arþjóða GATT. Þar er lagt til að dregið verði úr framleiðslustyrkjum til bænda, dregið úr útflutningsbót- um og milliríkjaverslun með land- búnaðarafurðir gerð almennt frjáls- ari. Svo virðist sem það fari kaldur hrollur um alla þá bændur sem byggja hin ríkari lönd heimsins við slíkar tillögur. Allir telja sig vera að missa spón úr aski sínum. Verndarstefna ríku þjóðanna Bændur eru almennt fámenn stétt á Vesturlöndum en samt hefur þeim tekist býsna vel að halda á skamm- tímahagsmunum sínum. Sögulega séð er mjög skammur tími frá því að þjóðfélög á Vesturlöndum breyttust úr landbúnaðarsamfélögum í iðnað- arsamfélög. Kann það að valda nokkru að áhrif bænda virðast um- talsvert meiri en fjöldi þeirra segir til um. Hér á landi er til að mynda ótrúlega stutt frá því bændasamfé- lagið var og hét og tengsl malarbúa enn talsverð við sveitirnar. Hinar ríkari þjóðir heims hafa því verið ansi drjúgar við að verja sinn landbúnað á kostnað hinna fátæk- ari þjóða sem hafa verið tilbúnar að framleiða ýmiss konar matvæli fyrir lægra verð en bændur hinna ríkari samfélaga hafa getað sætt sig við. Því var gripið til þess ráðs að setja upp alls konar viðskiptahömlur og takmarkanir með verslun á land- búnaðarvörum auk beinna og óbeinna styrkja til landbúnaðar. Þetta hefur síðan leitt til innbyrðis togstreitu milli hinna ríkari þjóða þar sem þær hafa hver í kapp við aðra verið að jafna stöðu sína í land- búnaði gagnvart hver annarri. Þannig urðu landbúnaðarskrímslin til, hvort heldur þau eru EB- skrímsli, bandarísk eða íslensk. Þótt nánast allir viðurkenni hringavit- leysu landbúnaðarins er hver sjálf- um sér næstur þegar kemur að því að vinda ofan af henni, eins og til- raunir á vegum GATT stefna að. Útrýmingarótti landbúnaðarins --„ Islenskir bændur og talsmenn þeirra hafa látið í ljósi ótta við að ís- lenskur landbúnaður muni hrynja eins og spilaborg verði af þeim samningum sem standa fyrir dyrum á vegum GATT. í því felst vissulega nokkur viðurkenning á því að land- búnaðurinn hér stendur á brauðfót- um. Hins vegar er vandséð að hann hrynji með nýjum GATT-reglum þótt þær kölluðu á einhverjar breyt- ingar. I fyrsta lagi er gert ráð fyrir að ein- stök ríki geti verið með sérstaka verndartolla til að vega upp verð- mun á innlendum og innfluttum landbúnaðarafurðum. I öðru lagi er gert ráð fyrir að hægt verði að koma í veg fyrir innflutning á matvælum sé hætta á smitsjúkdómum. Eðlilegt er því að íslendingar geri fyrirvara um innflutning á fersku kjöti og lif- andi búpeningi vegna smithættu. í tillögum Dunkels er að vísu gert ráð fyrir að úrskurðarvaldið í þeim efnum verði í höndum sérstakrar úr- skurðarnefndar á vegum GATT. Sé það mat manna að rök fyrir smit- hættu haldi ekki gagnvart slíkri úr- skurðarnefnd er sjálfsagt að setja skýran fyrirvara um þau efni. Þá er erfitt að ímynda sér stór- fellda flutninga með mjólk til lands- ins og þyrfti hún að vera dýr hér til að slíkt borgaði sig. Eins er afar ólík- legt að landsmenn hættu að borða íslenskt lambakjöt þó svo að það kynni að vera eitthvað dýrara en innflutt kjötvara. Spaugstofuumræðan á Alþingi Umræðan um landbúnaðarmálin vill oft verða ansi spaugileg og þrungin tilfinningalegum rökum. Þannig stendur Ragnar Arnalds upp á Alþingi og segir að ef samnings- drögin eins og þau liggja fyrir verði samþykkt muni það opna fyrir sölu landbúnaðarafurða á lágu verði. Skömmu síðar stendur félagi hans úr Norðurlandskjördæmi vestra, Páll Pétursson, upp og segir að ís- lenskir neytendur muni ekki eiga aðgang að góðum og ódýrum bú- vörum verði þeir háðir innflutningi. Jóhannes Geir Sigurgeirsson segir að samkvæmt GATT-drögunum geti þjóðir sem veitt hafa stjarnfræðileg- um upphæðum í útflutningsstyrki haldið því áfram. Hann gleymir að það á ekki síður við um Islendinga en aðrar þjóðir. Vafalaust er vand- fundin sú þjóð sem hefur varið hlut- fallslega meiru í útflutningsstyrki síðustu árin en íslendingar. Að visu hefur tekist bærileg sátt um að hætta útflutningsbótum á landbúnaðarafurðir. Sú ákvörðun var ekki tekin að þeirri kröfu útlend- inga að íslendingar hættu að undir- bjóða heimsmarkaðinn, heldur var hér einfaldlega um að ræða kröfu al- þýðufólks um að hætt yrði að verja skattpeningum þess í glórulausar niðurgreiðslur í vonlausan útflutn- ing. Aðstæður til landbúnaðar al- mennt á íslandi eru með þeim hætti að vonlaust er fyrir hann að keppa á alþjóðamarkaði. Keppikefli bænda ætti því að vera að framleiða góða og ódýra vöru fyrir innlendan markað. Vinda þarf ofan af vitleysunni heima og heiman Það er hins vegar ekki við ein- staka bændur að sakast þótt hér á landi hafi verið rekin kolvitlaus landbúnaðarpólitík til langs tíma. Né er það að kenna íslenskum bændasamtökum hvernig alþjóð- legum viðskiptum og framleiðslu- fyrirkomulagi á landbúnaðarvörum víða um heim er komið. Við höfum hingað til talið okkur hafa fullan rétt til að niðurgreiða búvöru ofan í út- lendinga en teljum það dauðasynd ef þeir eiga að fá að greiða ofan í okkur það sem við borðum. Eðlilegt og sjálfsagt verður að telj- ast að bændum hér á landi séu sköp- uð svipuð skilyrði til framleiðslu og gerist í löndunum í kringum okkur. Það má hins vegar ekki verða til þess að við setjum okkur upp gegn því sem til bóta horfir í landbúnaði, hvort heldur það er innanlands eða meðal þjóða heims. GATT-drögin gera ekki ráð fyrir því að verslun með landbúnaðar- vöru lúti almennum lögum markað- arins eða frjálsum verslunarháttum eins og gildir á öðrum sviðum. Áfram er gert ráð fyrir verndun landbúnaðarframleiðslu í einstök- um aðilarríkjum GATT. Hins vegar fela drögin í sér að þau eru skref í átt að almennum og eðlilegum við- skiptaháttum með landbúnaðarvör- ur. Því ber að fagna. Lifskjör okkar og úreltir atvinnuhættir Breytingar í landbúnaðarfram- leiðslu sem leiða til lægra búvöru- verðs eru einhver mesta kjarabót sem íslensk alþýða getur fengið. ís- lendingar greiða marga miiljarða króna á hverju ári með innlendum landbúnaði um leið og þeir eiga í mestu brösum með að halda úti sómasamlegu heilbrigðis- og menntakerfi. Óbreytt landbúnaðar- stefna þýðir einfaldlega verri lífs- kjör fyrir þjóðina en ella. Enginn efast um að íslendingar eru almennt umburðarlyndir og góðhjartaðir. Þótt þeir vilji mikið á sig leggja fyrir íslenskan landbúnað hlýtur að koma að því að þeir spyrji sig hversu mikið þeir eru tilbúnir að borga fyrir hann og hverju þeir eru tilbúnir að fórna í staðinn. Úrelt og úr sér gengið skipulag í atvinnumálum okkar kallar á ekk- ert annað en aukna fátækt þjóðar- innar. Það á jafnt við í landbúnaði og sjávarútvegi. Þjóðin, þar með taldir bændur, hefur smám saman verið að átta sig á að verulegra breytinga er þörf í þeirri atvinnu- grein. Sægreifarnir sitja hins vegar enn fast við sinn keip og berjast gegn kröfu tímans um breytta sjáv- arútvegsstefnu sem leiði til hag- kvæmari útgerðar og minni til- kostnaðar við að sækja fisk úr sjó. Allt kemur þetta niður á lífskjörum þjóðarinnar.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.