Alþýðublaðið - 24.01.1992, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 24. ianúar 1992
MMUBLMÐ
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi)
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Símar eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn: 625538 - Dreifing: 625539 - Fax: 627019
Tæknideild: 620055
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuöi. Verð í lausasölu kr. 90
Hermangshneykslið
og útgerðareinokun
Það er reginhneyksli að Sameinaðir verktakar skuli geta
greitt hluthöfum sínum út 900 milljónir króna, með því að
færa upp og niður verð hlutabréfa sirvna á einum og sama
fundinum, og borga svo ekki krónu í skatt. Þetta sýnir svo ekki
verður um villst hversu nauðsynlegt það er að skattleggja fjár-
magnstekjur líkt og aðrar tekjur. Alþýðuflokkurinn hefur á
stefnuskrá sinni að fjármagnstekjur verði skattlagðar með
svipuðum hætti og launatekjur. Hann bendir þó á að gæta
þurfi þess að vaxtatekjur af almennum sparnaði hjá launafólki
beri ekki skatt né sé um of dregið úr hvata til sparnaðar. Engu
að síður er það mikið réttlætismál að greiddur verði skattur
af fjármagnstekjum líkt og öðrum tekjum. Um síðustu helgi
áréttaði Samband Alþýðuflokkskvenna þessa afstöðu flokks-
ins og hvetur til þess að þegar á þessu þingi verði lögfestur
skattur á fjármagnstekjur án þess þó að skattleggja vaxtatekj-
ur af almennum sparnaði launafólks.
Hermangið hefur aldrei komið upp á yfirborðið með jafn ber-
sýnilegum hætti og nú. Milljónagróði hefur hrannast upp í
skjóli ríkisverndaðrar einokunar á framkvæmdum fyrir
bandaríska herinn, gróði sem fellur síðan í hlut fárra einstak-
linga og fjölskyldna. Sárast svíður þó þjóðinni að horfa upp á
slíkar upphæðir renna í vasa fárra einstaklinga án þess að
greiddur sé af þeim skattur vegna hundakúnsta sem margir
telja þó í samræmi við lög. Fjármálaráðherra hefur hins vegar
sagt að hann ætli að láta kanna lögmæti slíkra aðgerða, enda
full ástæða til, og breyta þá lögum ef með þarf.
*
A sama tíma og sparnaður og niðurskurður eiga sér stað
hvarvetna í þjóðfélaginu virðast 900 milljónir króna eiga að fá
að fljóta skattfrjálsar í vasa nokkurra einstaklinga. A sama
tíma og verið er að tekjutengja elli- og örorkulífeyri og barna-
bætur og taka upp þjónustugjöld á ýmsum sviðum rennur
hermangsgróðinn skattfrjálst til fárra. Milljónagreiðslur til ein-
staklinga frá Sameinuðum verktökum munu auk þess ekki
skerða rétt þeirra einstaklinga sem njóta lífeyris og fyrir-
greiðslna frá ríkinu. Þetta sýnir hversu óréttlátt það er að miða
aðeins við atvinnutekjur varðandi tekjutengingu og fyrir-
greiðslu ýmiss konar af hendi opinberra aðila. Skattur á fjár-
magnstekjur, líkt og gengur og gerist í löndunum í kringum
okkur, er því mikið og brýnt réttlætismál.
En það er á fleiri stöðum en hjá Sameinuðum verktökum sem
fjármagn flýtur að því er virðist fyrir utan almenn lög og regl-
ur. Kvótakerfið í sjávarútvegi hefur haft í för með sér fjár-
magnsflæði sem skiptir milljörðum króna án þess að eigand-
inn, þjóðin, komi þar nokkurs staðar nærri. Einstaklingum og
útgerðum hafa verið afhent milljarðaverðmæti sem þau
versla með fram og til baka án þess þó að hafa eignarhald á
kvótanum. Stendur stjórnarskráin þá ekki vörð um friðhelgi
eignarréttarins þegar þjóðin á í hlut, líkt og þegar einstakling-
ur á í hlut? Aldagamall réttur þjóðarinnar tii að sækja sjó hefur
nú verið afnuminn og færður í hendur, til þess að gera, fárra
einstaklinga fyrir ekki neitt. Að sjálfsögðu þarf að vernda fisk-
stofnana með því að leyfa aðeins takmarkaða sókn í þá, en
það er ekkert vit í að gefa þeim sem síðastur renndi færi í sjó
eða lagði net þá auðlind sem hefur staðið öllum íslendingum
opin til skamms tíma. Það brýtur í bága við almenna siðgæðis-
vitund þjóðarinnar þegar einstaklingum eða fámennum hóp-
um er úthlutað einokunaraðstöðu til að maka krókinn, hvort
heldur er á sviði fiskveiða eða í hermangi. Svo virðist þó sem
hagsmunir hinna fáu útvöldu séu yfirleitt betur tryggðir en al-
mennings. Því þarf að breyta.
— TH
FÖSTUDAGSGREIN GUÐMUNDAR EINARSSONAR
(Ó)vinír vel£erðar
Nú reyna andstæðingar Alþýðu-
flokksins og ríkisstjórnarinnar að
halda fram þeirri firru að verið sé
að gera grundvallarbreytingar á
velferðarkerfinu og þær breyting-
ar séu í andstöðu og mótsögu við
einhvers konar samkomulag, sem
ríkt hafi meðal landsmanna um
uppbyggingu þess og aðferðir.
Þetta er auðvitað argasta vit-
leysa.
Það er ekki verið að breyta
grundvallarmarkmiðum velferð-
arinnar. Það er hins vegar verið að
taka hana í slipp, yfirfara og öxul-
draga og skrapa hrúðurkarlana af
botninum. Botnhreinsunin mun
auka skriðið á skútunni og bæta
hagkvæmnina. Það var auðvitað í
samræmi við hefðir Alþýðubanda-
lags og Framsóknar að vilja halda
í botnhrúðrið enda mega þeir
flokkar aldrei neitt nýtt sjá.
Það er líka verið að spara á öðr-
um sviðum ríkisrekstrarins til þess
einmitt meðal annars að losa fjár-
muni til að sinna þörfum þess sam-
félags frelsis og jafnréttis sem báð-
ir ríkisstjórnarflokkarnir hafa lýst
yfir að þeir styðji.
Þeir, sem harðast berjast gegn
þessari endurskoðun, hafa reynd-
ar margir reynst velferðarkerfinu
hættulegir. í hvert sinn sem þeim
er hleypt til mannaforráða vinna
þeir skemmdarverk. Þegar Stein-
grímur J. Sigfússon fékk að vera
svolitla stund í landbúnaðarráðu-
neytinu eyddi hann 50 milljónum
í að kaupa gjaldþrota loðdýrabú af
fólki sem hann vorkenndi. Þannig
er hann stórtækur í velferðarmál-
um.
Og Steingrímur Hermannsson
lét eyða stórum fjárhæðum í að
kaupa gjaldþrota fiskeldisstöð af
mönnum sem hann vorkenndi.
Þannig var hans velferðarhug-
sjón. Við höfðum ekki efni á góð-
verkum þessara miklu mannvina.
Fyrir loðdýrahúsnæði Stein-
gríms J. hefði mátt leysa húsnæð-
isvanda 10 fjölskyldna eða manna
heilan barnaskóla í eitt ár. í hvert
skipti sem Alþýðubandalagsmenn
í ríkisstjórn tóku upp tékkheftið
fóru tölvurnar í yfirdráttardeild-
inni í gang og sendu gula miða inn
um bréfalúgur barnanna okkar.
Þeir ætla ævinlega unga fólkinu
og ókomnum kynslóðum að axla
byrðarnar af greiðasemi og at-
kvæðakaupum þeirra.
Þess vegna er falskur hljómur í
hörpunni hjá Ólafi Ragnari þegar
hann situr eins og glóandi engill á
skýi og spilar undir sönginn hjá
„velferðarvinunum" sjálfskipuðu.
Einn daginn brestur harpan og
ljúflingurinn lokkabjarti felíur nið-
ur úr skýjunum og verður metinn
af verkum sínum en ekki vængja-
slætti.
Sameinaðir verktakar og skattfrelsið
Góð ráð fengust frá
ríkisskattanefnd
Sameinaðir verktakar hf. ósk-
uðu eftir úrskurði hjá „þar tii
bærum yfirvöldum“ hver mætti
vera lækkun hlutafjár með út-
greiðslu til eigenda, án þess að
sá hluti eiginfjárins, sem greidd-
ur væri út, skattlegðist aftur hjá
híuthöfum. Frá þessu segir í
fréttatilkynningu sem blaðinu
barst frá Sameinuðum verktök-
um, sem nú eru heitasta um-
ræðuefnið. Ríkisskattanefnd,
æðsta dómsstigið á sínu sviði,
veitti verktökunum góðfúslegar
ráðleggingar. Benti á að til að
komast hjá tvísköttun mætti
greiða 900 milljónir, sem síðan
voru greiddar hluthöfum með
talsvert miklu möndli án þess að
fjármálaráðherra eygði þar
nokkurn vonarpening.
Sameinaðir verktakar hf. segjast
lengi hafa stefnt að því að breyta fé-
laginu í almenningshlutafélag. Á
síðasta ári voru gerðar samþykktir í
þá veru að breyta Sameinuðum
verktökum og íslenskum aðalverk-
tökum sf. í almenningshlutafélög og
fyrrgreinda fyrirtækinu ekki síðar
en á þessu ári.
„Var forráðamönnum Samein-
aðra verktaka ljóst, að áður yrði að
vera hægt að minnka eigið fé félags-
ins, sem myndast hafði á löngum
tíma, en félagið hafði ekki gefið út
jöfnunarhlutabréf til jafns við verð-
bólgu í mörg ár, en kosið heldur að
auka hreina eign félagsins með
hagnaði af rekstri, sem félagið hafði
greitt opinber gjöld af á hverjum
tíma,“ segir í fréttatilkynningunni.
Eigið fé Sameinaðra verktaka
liggur fyrst og fremst í eign þess í ís-
lenskum aðalverktökum sf. og eign-
arhluta í stórbyggingunni Höfða-
bakka 9, sem á árum áður var köll-
uð Watergate meðal gárunganna,
og loks í afrakstri annarrar starf-
semi félagsins gegnum árin.
Peningaflóðið út úr Sameinuðum
verktökum vakti gífurlega sterk við-
brögð um land allt í gærdag. Al-
Lionskiúbburinn Ásbjörn í
Hafnarfirði færði þann 3. janúar
sl. félagsmiðstöðinni Vitanum í
Hafnarfirði farsíma að gjöf. Sím-
inn er ætlaður tii notkunar við
starfsemi Götuvitans (útideild-
ar).
Tæki þetta mun nýtast ákaflega
vel í starfseminni. í athöfn er fór
fram í tengslum við afhendinguna
menningur þekkir tvísköttun á ým-
issi vöru og þjónustu og á litlar varn-
ir í þeim málum. Má nú ætla að með
þessum umsvifum í fjármálum verði
ýtt við störfum sérstakrar nefndar,
sem skipuð var til að gera tillögur
um skattlagningu fjármagnstekna.
Þjóðin bíður spennt.
var Lionsmönnum þökkuð þessi
veglega gjöf og sá hlýhugur er þeir
hafa sýnt starfseminni á umliðnum
árum.
Árni Guðmundsson, æskulýðs- og
tómstundafulltrúi í Hafnarfirði, seg-
ir að Lionsklúbburinn Ásbjörn hafi
ávallt látið sig varða málefni ungs
fólks og stutt æskulýðsstarfsemi
með ráðum og dáð undanfarin ár.
Árnl Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir taka á móti farsímanum úr
hendi Erlings Jóhannssonar formanns Lionsklúbbsins Ásbjarnar
Farsími i Vitann