Alþýðublaðið - 07.07.1992, Qupperneq 8
-
ð. 67 'cíMoj
Allar stærðir sendibíla
SIMAVAKT ALLA DAGA
TIL KL. 23.30
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fréttir í hnoskurn
METÁR HJÁ PJÓÐLEIKHÚSINU: Þjóðleikhúsið fagnaði
góðu gengi í vetur. Alls komu rúmlega 96 þúsund áhorfendur á sýningar
leikhússins. Sýningar urðu 446 og hafa aðeins einu sinni verið fleiri. Ellefu
ný verkefni voru frumsýnd og þar af fimm íslensk. Flestar urðu sýningar á
leikritinu Kæra Jelena, 128 talsins, og hefurekkert verk verið sýnt jafnt oft á
sama leikári. Sýningargestir voru 13.518. Emil í Kattholti laðaði að sér flesta
áhorfendur, 25.799. Á Búkollu komu 11.448 og 7.087 sáu Rómeó og Júlíu.
Nýja leiksviðið, Smíðaverkstæðið, kom vel út enda sló sýningin Ég heiti ís-
björg, ég er ljón, rækilega í gegn.
FASTEIGNAVERÐ STENDUR í STAÐ: Fasteígnaverð
lækkaði nokkuð í Reykjavík á síðasti ári, að því er fram kemur í Markaðs-
fréttum, sem Fasteignamat ríkisins gefa út. Raunverðslækkun á íbúðum í
fjölbýlishúsum í Reykjavík nam í fyrra 1,85%. Nýjar tölur frá fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs benda ekki til mikilla breytinga miðað við fjórða ársfjórðung
síðasta árs. Raunverð virðist hafa hækkað um 0,45% umfram lánskjaravísi-
tölu.
VIÐ EIGUM 140 MILLJÓNIR í GULLI: Samkvæmt nýút-
komnu fréttabréfi Seðlabankans á hann eignir í gulli upp á 139.097.898
krónur. Sú tíð er löngu liðin að krónan sé gulltryggð í orðsins fyllstu merk-
ingu, því til skulda bankans eru taldir seðlar og mynt upp á rétt tæpa fjóra
milljarða. Annars nema heildareignir bankans rétt innan við fimmtíu millj-
arða. Og auðvitað eru skuldimar nákvæmlega jafnmiklar svo engu skeikar.
Ekki krónu, eins og vera ber.
RAUÐAKROSSKONUR GEFA ELDHÚS: Nýlega færði
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar RKÍ iðjuþjálfun Borgarspítalans svokallað
þjálfunareldhús að gjöf. Það er sérhannað með þarfir fatlaðra í huga og búið
mörgum hjálpartækjum. Eldhúsið auðveldar iðjuþjálfum að leggja mat á
getu skjólstæðinga sinna og þar með veita ráðgjöf um hjálpartæki og aðlög-
un á heimili og síðast en ekki síst er nú mögulegt að gera raunhæft mat á
þjónustuþörf. Á meðfylgjandi mynd er Ámi Sigfússon, borgarfulltrúi og
stjómarformaður spítalans, í góðum félagsskap 1 cldhúsinu.
FISKMARKAÐUR Á SKAGASTRÖND: Fyrsta uppboðið
á nýjum fiskmarkaði á Skagaströnd hefur nú farið fram. Frá markaðnum les-
um við í Flóanum, málsvara byggðar við Húnaflóa. Skagstrendingur hf. það
öfluga togarafélag er aðaleigandi fyrirtækisins nýja, en aðrir stofnaðilar eru
á Skagaströnd. Þó stendur til að bjóða fleirum aðilum á Húnaflóðasvæðinu
þátttöku. Stofnfé er aðeins ein milljón króna. Stjómarformaður Fiskmarkað-
arins á Skagaströnd hf. er viðskiptafræðingur hjá Skagstrendingi, Óskar
Þórðarson.
Tónaveisla í kvöld: í kvöld verða tónleikar í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar, sem orðið er eitt helsta menningarvígi höfuðborgarinnar. Þar
koma fram Hlíf Sig-
urjónsdóttir fiðlu-
leikari, Ólafur Spur
Sigurjónsson selló-
leikari og Símon H.
Ivarsson gítarleikari.
Á efnisskránni em
sónata í a-moll fyrir
fiðlu, gítar og selló
eftir Handel ópus I
númer 4, einleikss-
víta fyrir selló eftir
Bach númer 3 í c-
dúr og dúó fyrir og
gítar ópus 25 eftir
Giuliani.
Tónleikamir hefjast
klukkan 20.30 og
standa í um það bil
eina klukkustund.
Kaffistofan verður
opin og í efri sal
safnsins er jafnframt
sýning á æskuverk-
um Sigurjóns Ólafs-
sonar.
Hlíf Sigurjónsdóttir
og Símon H. Ivars-
son: Tónleikar í kvöld
ásamt Ólafi Spur Sig-
urjónssyni.
RUNNAR
Mikill afsláttur af öllum trjám og runnum,
meðan birgðir endast. Góðar plöntur.
I lUMAIBðSTAftlNN
OO OAROINN HIIMA
GÓÐ TILBOD í TILEFNI SUMARS
Gott úrval af fallegum
plöntum.
I em
ÓLSTÓLL
Fallegur, sterkur, stöðugur. Staflast
mjög vel. Verð án sessu.
Aðeins
isyöNi
SUMARVÓNDU
- Brosandi blóm á betra verði -
Rósabúnt, Fresíubúnt,
Blandaðir blómavendir.
Falleg blómabúnt á sumarverði.