Alþýðublaðið - 24.07.1992, Side 5
Föstudagur 24. júlí 1992
5
víking í leit ab veislugestum
Við gamla fjöruborðið í miðbæ
Hafmarfjarðar er að finna
Fjörukránna og Fjörugarðinn.
Það er víkingurinn, Jóhannes Viðar
Bjamason, sem rekur staðin og „kemur
bara úr Reykjavík" eins og hann segir
sjálfur. Mikið orð hefur farið af herleg-
um víkingaveislum í Fjörugarðinum.
Alþýðublaðið innti Jóhannes frekar
eftir þessum víkingaveislum.
„Ég tók við þessum stað fyrir rúm-
unt tveimur ámnt. Ég var staðráðinn í
að gera eitthvað til þess að lyfta staðn-
um. Ég byggði því Fjörugarðinn hér
við hliðina á Fjörukránni og fór að
bjóða upp á sérstakar víkingaveislur
fyrir jafn innlenda gesti og erlenda
ferðamenn. Þessar veislur hafa verið
gífurlega vinsælar.
Ferðaskrifstofur koma mikið hingað
með gesti sína en auk þess panta ein-
stakir hópar hér víkingaveislur. Við
höfum lagt geysilega mikið upp úr því,
að hér sé allt sem iíkast því sem gerðist
til foma þegar víkingar héldu sín blót
eða veislur.“
Fjömgarðurinn er skreyttur með
m.a. uppstoppuðum dýmm, skinnum
og myndunt Hauks Halldórssonar af
Bayeux reflinum sem er 70 m að lengd.
Hann mun vera um 900 ára gamall og
hangir enn uppi í bænum Bayeux í
Frakklandi. Þykir refillinn eða vegg-
myndin einstök lýsing á lífi víkinga og
lifnaðarháttum. Myndimar lýsa því
þegar Vilhjálmur hinn sigursæli heldur
yfir Ermasund og leggur undir sig Eng-
land árið 1066.
- En það er ekki alltaf fyrirhanar-
laust fyrir fjörugoðann að sœkja sína
veislugesti, er ekki svo Jóhannes?
„Það er rétt. Við leggjumst stundum
í víking til að verða okkur úti um gesti.
Hópar hafa verið teknir fanga í Heið-
mörkinni og fluttir ánauðugir til hafnar
í Kópavogi, síðan siglt með þá Hafnar-
fjarðar og lent við bryggju sem byggð
var af þeim Fjömmönnum fyrir vík-
ingaferðir og siglingar. Enn hefur eng-
in kvartað undan þessum strandhögg-
um okkar enda gefum við okkar band-
ingjum ávallt frelsi aftur.
Villst á rútum
Stundum fömm við í styttri víking
eða hér rétt út á Standgötuna og leggj-
umst á rútur fullar af ferðamönnum.
Það hefur alltaf tekst vel utan einu
sinni. Þá áttum við von á rútu og rúta
kom og blikkaði á okkur þar sem við
stóðum úti á götu. Við lögðum því til
atlögu við rútuna í fullum herklæðum
með okkar venjubundnu herópum. Það
kom mikill skelfingarsvipur á bflstjór-
ann og farþega rútunnar, sem vom eldri
konur frá Þýskalandi. Kom þá í ljós að
við höfðum lent á rangri rútu og því
ekki furða að við skytum blessuðum
konunum skelk í bringu sem áttu sér
einskis ills von og voru á leið í Bláa
Iónið.“
Jóhannes skýrði okkur frá því að
Fjaran væri tvískipt hjá þeim. Annars
vegar væri það Fjömkráin sem byði
upp á rólega stemmingu við píanóleik
og franskt eldhús. Hins vegar væri
Fjörugarðurinn sent væri fyrir fjöl-
mennari og fjörmeiri veislur, m.a. vík-
ingaveislumar frægu. Gengilbeinur
færa gestum mat og drykk og syngja
fyrir gesti gömul þjóðlög og kviðlinga.
Éins væri staðurinn ntjög vinsæll fyrir
þorrablót enda væri hann 1.000 árum á
eftir tímanum. Þar er borðað úr trogum
og drukkið úr hornurn. Þá væri staður-
inn orðinn vinsæll fyrir gæsapartí og
hafði Jóhannes grun um að það kæmi
til af því, að verðandi brúðir vildu blóta
e
%J\/einbjörn Beinteinsson
alherjargoði fyrir framan
Fjörugarðinn ásamt
víkingum staðarins
í kvöldsólinni
í Hafnarfirði.
Líkneski Þórs gnæfir fyrir
ofan, haglega útskorið.
fc#óhannes l/idar Björnsson, sjálfur Fjörugodinn,
Viðar víkingur hin ógurlegi, mættur í öllum herklædum í
Hellisgerði að leita fanga.
frjósemisguðinn Frey á laun áður en
gengið væri til hjónabands.
- Ett er ekki guðlast að tigna hina
fornu norrænu guð rétt við kirkjudyr
Hafnarfjarðarkirkju ?
Forn menning og trúarbrögð í
leikbúningi
„Hér er allt starfsfólk kristið þó við
höldum minningu fomar íslenskrar
menningar og trúarbragða uppi með
leikrænum tilburðum og á lifandi hátt.
Það flýr enginn sína fortíð enda á þjóð-
in margt gott að sækja lil heiðinnar
lffspeki. Má þar nefna dygðir eins og
drengskap, orðheldni og vinfestu.
Þá hefur Fjörugoðinn hér á staðnum,
Viðar víkingur, gert fjölda vaikunnra
manna og kvenna að heiðursvíkingum
með tilheyrandi athöfn. Við sækjumst
eftir berserkjum í okkar þjónustu,
mönnum sem þekktir eru af því að bíta
í skjaldarrendumar og öskra á óvinin ef
svo ber undir. Þannig var t.d. Jón Bald-
vin Hannibalsson gerður að heiðurs-
víkingi á síðasta flokksþingi Alþýðu-
ílokksins við afar hátíðlega athöfn.“
En hvemig hefur reksturinn geng-
ið?
„Hann hefur gengið vonum framar.
Við em endalaust að reyna að brydda
upp á einhverju nýju. Maður lætur sig
dreyma um að geta reist hér veglegt
hof eða víkingaskála að fomri fyrir-
mynd, með langeldi og öllu tilheyr-
andi. En umfram allt reynum við að
sinna okkar gestum eins vel og okkur
er mögulega unnt.
Þá hafa bæjaryfirvöld í Hafnarfirði
sýnt okkur ákaflega mikinn skilning og
velvilja við af þróa okkar hugmyndir.
Við höfum m.a. í samvinnu við bæinn
tekið að okkur gamalt víkingaskip í
fóstur frá Arbæjarsafni sem verið hafði
í reiðuleysi og vanhirðu. Við notum
það við víkingaferðir okkar og sjáunt
um viðhald þess. Auk þess bjóðum hér
upp á siglingar um höfnin og sjó-
stangaveiði út á flóanum. Ég er því
bjartsýnn á framtíðina og veit að hing-
að á eftir að koma fjöldi manns í vík-
ingaveislur, til að borða eða fá sér öl-
krús á síðkvöldum", sagði Viðar vík-
ingur hinn ógurlegi að lokum.
Jión Baldvin Hannibalsson
gerður að heiðursvíkingi á
flokksþingi Alþýðuflokksins.
Hér birtum uid lista yfir þá
sem gerdir hafa uerið ao heiðurs-
uíkingum í Fjörugarðinum
Ingvar Viktorsson
Guðjón Ingólfsson
Björg Sigmundsdóttir
Kristján Pétur Guðnason
Benedikt Magnús Ólafsson
Goði Sveinsson
Ingimundur Sigurpálsson
Guðmundur Árni Stefánsson
Sigurður Pálmason
Francois Sheter
Hafdís Hákonardóttir
Einar Rangstad
Lars Ensell
Jenný Magnúsdóttir
Björgólfur Guðmundsson
Albert Sveinsson
Jostein Almervik
Erlendur Hjálmarsson
Seppá Silander
Lena Hotinen
Tma Hynynen
Gunnar Sigurðsson
Andres Pétursson
Gylfi Ingvarsson
Gunnar Jóhannsson
Jón Jakob Jóhannsson
Þorsteinn Jónsson
Sverre Jóstein Bö
Jón Baldvin Hannibalsson
Haukur L. Hauksson
Helgi Bjarnason
Þorsteinn Erlingsson
Grétar Guðmundsson
Þórður Kr. Guðmundsson
Össur Skarphéðinsson
Þorvaldur Nóason
Mr. Watanabe
Halla Hulda Björgvinsdóttir
Rauvola Kaija
Harald Stenzer
Seppo Kettunen
Kristín Þórðardóttir
Jacqueline Mer Rene
Depierraz
Mr. Pfunder
Þorvaldur Jónsson
Derrek Reed
Egill Kolbeínsson
Guðmundur Haraldsson
Atli Hjartarson
Niels Peter Nielson
Helgi Kjartansson
Hildigunnur Sæmundsson