Alþýðublaðið - 24.07.1992, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 24.07.1992, Qupperneq 6
6 Föstudagur 24. júlí 1992 Góð gisting og veitingar í hjarta bœjarins. Kynningartilboð! SÍMI 96-11400 - MYNDSENDIR 96-27795 Auglýsing Stööur framkvæmdastjóra svæöisskrifstofa í málefnum fatlaðra í Reykjavík, Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörö- um, Norðurlandi vestra, Noröurlandi eystra, Austurlandi og Suöurlandi er lausar til umsóknar. Æskilegt er aö umsækjendur hafi menntun og starfs- reynslu á sviöi rekstrar og stjórnunar og þekkingu á málefnum fatlaöra. Laun samkvæmt launakerfi starfs- manna ríkisins. Stööurnar eru veittar frá 1. október n.k. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist félagsmálaráöuneytinu fyrir 20. ágúst n.k. Félagsmálaráöuneytiö, 22. júlí 1992. Ferðist um ísland með Ferðafélaginu, eða hafið að minnsta kosti Árbækur Ferðafélagsins með í för. Árbækurnar eru ein besta íslandslýsing sem völ er á. Árbókin 1992 um óbyggðasvæðið milli Eyjafjarðar og Skjálfanda hefur fengið frábæra umsögn. Þið eignist hana um leið og þið gerist félagar í Ferðafélaginu. Árgjaldið er 3.000 kr. Nánari upplýsingar eru veittar á nýju skrif- stofunni: Mörkinni 6,108 Reykjavík. Sími 91-682533 Gangið í Ferðafélag íslands Hvað er hœgt að gera um VERSLUNAR- MANNAHELGINA? Verslunarmannahelgin er á næsta leyti. Að vanda hugsa sjálfsagt mjög margir sér til hreyfings þótt öðrum kunni að þykja þægilegra að sitja heima í rólegheitum og hálf- auðum bæjunum. Eins og áður verða útihátíðir á helgi verslunarmanna víðs vegar um land. Ekki vilja þó allir í skarkala útihátíðanna en kjósa sér þess í stað rólegri staði til að njóta útivistar. Það þarf ekki að taka það fram að fólk fari varlega um vegi landsins á þessari mestu umferðarhelgi ársins. Við munu hér á síðunni greina frá úti- hátíðum landsins og ýmsum öðrum þeim ferðamöguleikum sem fólki stendur til boða um verslunarmanna- helgina. Það er ekki vonum seinna að fara að ákveða sig hvert skala halda ætli menn á annað borð úr bænum um næstu helgi. Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyingar munu halda sína árvissu þjóðhátíð í Herjólfsdal um verslunarmannahelgina. Hátíðin er haldin á vegum Iþróttafélagsins Þórs. Þar mun hljómsveitimar Sálin hans Jóns míns, Tobmobil ásamt Geira Sæm og Pétri Kristjánssyni og Eyjahljóm- sveitin Presto leika fyrir dansi. Auk þess verða ýmis skemmtiatriði í boði. Dixí bandið, Vinir Ola, Jóhannes Kristjánsson og Lúðrasveit Vest- mannaeyja, harmonikkuleikarinn Örv- ar Kristjánsson, trúbadoramir Richard Scoble og Siggi Kristins, söngavara- keppni, bama dansleikir, hollenskt - ís- lenskt trúðaatriði fyrir böm á öllum aldri, Húkkaraball í Samkomuhúsinu á fimmtudagskvöld, knattspyma, bjarg- sig og glæsileg flugeldasýning verður fólki þar til skemmtunar. Þá mun verða þar varðeldur og brennusöngur undir stjóm Áma Johnsen. BSI mun verða með ferða frá fimmtudegi fram á þriðjudag á milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar og síðan með Herjólfi til Eyja. Slíkur pakki með aðgangseyri að þjóðhátíðinni kostar 9.000 krónur. Böm yngri en 13 ára fá frítt inn á svæðið séu þau í fylgd með fullorðnum. Galtalækur Bindindismótið verður á sínum stað í Galtalækjarskógi. Það er haldið á veg- um íslenskra ungtemplara og Stórstúku Islands. Verðið á hátíðina er hið sama og í fyrra, 5.000 krónur, 4.500 kr. fyrir unglinga en frítt fyrir böm 12 ára og yngri. Það verða Sléttuúflamir sem munu halda uppi ljörinu ásamt 6 unglinga- hljómsveitum, Busunum frá Stykkis- hólmi, Mozart var ýktur, Spaði, Gott, Tess, Blimt og Mind in Motion. Til skemmtunar verður Háðflokkur- inn, Raddbandið, 5 unglingahljóm- sveitir, Ingiríður Á, trúðar, míni golf, flugeldasýning, kvöldvökur, ævintýra- land, ratleikir, gönguferðir og margt fleira. Eldborg '92 Kaldármelum Eldborg '92 verður haldin á Kaldár- melum á Snæfellsnesi, sem er 30 km fyrir vestan Borgames, skammt frá Heydalsvegamótum er haldin á vegum HSH. Þar munu hljómsveitimar Síðan Skein Sól, Ný Dönsk, Júpiters og KK bandið leika auk þess sem 7 unglinga- hljómsveitir munu koma ífam. Ómar Ragnarsson, hæfileikakeppni Hemma Gunn, aflraunasýning, stjömulið Ómars Ragnarssonar gegn Rokklandsliðinu í fótbolta, vítaspymu- keppni allra tíma, leikir, glens og gam- an og óvæntar uppákomur mun verða mótsgestum til afþreyingar. Diskó í Rave risatjaldi með Ajax, Fusane, Mind in Motion, T-World ásamt skíf- uknöpunum Grétari G., Margeiri, Frí- manni, Áma Einari, Himma og Jökli munu einnig skemmta fólki. Verð á Eldborgina er 5.900 kr., 4.900 fyrir unglinga en frítt fyrir böm. Pakkaferð með rútu frá Reykjavík kostar 7.900 krónur og eru þær á veg- um Sérleyfisbíla Helga Péturssonar. Síldaraevintýri á Siglufirði Siglfirðingar em famir að halda reglulega hátíð til að minnsta síldaræv- intýrisins hér á ámm áður. Þar mun fara fram sfldasöltun á Drafnarplani, útiskemmtanir verða á sviði í miðbæ staðarins. Þá verður síldardansleikur, landlegudansleikur og dansað bæði úti og inni. Uppákoma verður í Hvanneyr- arskála og Skarðsvegur opinn. Á Hótel Læk er fyrirhuguð stórkostleg skemmt- un fimmtudags og föstudagskvöld. Myndlistarsýning Halla Haralds verður uppi, knattspymuleikur „Old boys“ milli Siglufjarðar og Sauðár- króks, hestaleiga og Sirkus Arena verða á staðnum. Davfðsdóttir nuddari, Michael H. Willcocks, Heilunarskólinn og séra Rögnvaldur Finnbogason heldur úti- guðsþjónustu. Þá verða kvöldvökur, fjöldasöngur og varðeldur. ÚÍA-útihátíð að Eiðum Eiðahátíð er á sínum stað og að vanda er hún á vegum ÚÍA. Aðgangs- eyrir að hátíðinni er 6.ÍKI0 krónur. Fjölmargar hljómsveitir mun halda uppi fjörinu að Eiðum en þær em: GCD, Stjómin, Jet Black Joe, Undir Tunglinu, Af lífi og sál Ózon, Víkinga- sveitin, Maggi og Graðnaglamir. Eins verður boðið upp á ýmis skemmtiatriði svo sem Eiðajötunn - kraftakeppni, Magnús Ver kraftajöt- unn, blautbolskeppni, Útvarp Eiðar og söngvakeppni þar sem þátttakendur syngja Rútuferð frá Reykja- vík fram og til baka kostar 7.200 krón- ur en vilji menn fara yfir Kjöl kostar ferðin 7.500 krónur og er þá nesti yfir Kjöl innifalið. Vík í Mýrdal Haldin verður fjölskylduhátíð í Vík í Mýrdal um verslunarmannahelgina. Hún er haldin á vegum Björgunarsveit- arinnar Víkverja og Ungmennafélags- ins Drangs. Skemmtiatriði til afþreyingar verða varðeldur, fjöldasöngur og sameigin- legt grill, íþróttakeppni og leikir fyrir bömin, jeppakeppni, knattspyma fé- laga í Vík, söngva- og danskeppni fyr- ir bömin í Leikskálum, sigsýning í klettum, hestaferðir, bátsferðir, útsýn- isflug, vélsleðaferðir og skíðalyfta verður í gangi á Mýrdalsjökli. Ekkert kostar inn á svæðið en leiga fyrir tjald, tjaldvagn eða hjólhýsi er 1.000 krónur fyrir nóttina. Klukku- stundar bátsferð kostar 1.200 krónur, útsýnisflug 4.000 krónur og vélsleða- ferð á Mýrdalsjökul 3.900 krónur. Á ball í Leikskálum mun miðinn kosta 1.440 krónur. Snæfellsás ' 92 Fyrir þá hina andlega sinnuðu er kjörið að halda á Snæfellsnesi og taka þátt í útihátíð þar. Hún er haldin undir yfirskriftinni „Mannrækt undir jökli" á Brekkubæ, Hellnum og er á vegum Nýaldarfólks. Aðgangseyrir á mótið er 4.000 krónur en rútuferð frá Reykjavík og til baka aftur kostar 3.200 krónur. Þeir sem em yngri en 14 ára fá frítt inn á mótssvæðið. Dagskrá Snæfellsáss '92 er með nokkuð öðru sniði en á öðrum útihátíð- um og hljóðar svo: Innlendir og erlend- ir fyrirlesarar s.s. Dr. Molly Scott heil- unartónlistarmeistari, Harold Hamm- ond stjómar svitahofi að hætti Chu- changi indíána. Garðar Björgvinsson og Guðbjörg Sveinsdóttir kynna and- legar leiðbeiningar Michael og Mi- röndu, Úlfar Ragnarsson læknir, Guð- rún Bergmann framkv.stj. Betra lífs, Guðrún Óladóttir reiknimeistari, Öm Jónsson náttúmráðgjafi, Þorsteinn Barðason jarðfræðingur, Rafn Geirdal nuddari, Finnbjöm Gíslason keríJs- fræðingur, Guðlaugur bergmann, Ólöf lag með GCD og Stjóminni. Ferð með rútu frá Reykjavík tekur tvo daga. Sé farið austur um er náttað á Höfn í Homafirði og kosta slík rútuferð 5.770 krónur. Sé farinn norðurleiðin er stoppað á Akureyri og kostar sú ferð 5.900 krónur. Þá verða rútuferðir á úti- hátfðina frá ýmsum stöðum á Aust- fjörðum. ffivintýraferðir Fyrir þá sem kjósa að halda sig utan skarkala útihátíðina um verslunar- mannahelgina em ýmsar ferðir í boð á vegum BSÍ. 1. Ferð frá Reykjavík um Sprengis- and til akureyrar með fullu fæði og leiðsögn. 2. Ferð frá Reykjavík um Fjallabak nyrðra og í Skaftafell þar sem margt er að sjá í tiltölulega stuttri ferð. 3. Ferð frá Reykjavík um Sprengis- and til Mývatns og er þar bæði boðið upp á leiðsögn og fæði. 4. Ferð frá Reykjavík í eina falleg- ustu náttúmperlu Islands, Landmanna- laugar. 5. Ferð frá Reykjavík um Fjallabaks- leið syðri og að Mælifelli en það er leið sem ekki margir Islendingar hafa farið um. 6. Ferð frá Reykjavík í Veiðivötn þar sem fiskur er nógur og margt að sjá. 7. Ferð frá Reykjavík í Þórsmörk sem er nú einn vinsælasti ferða manna- staður íslendinga en ekki er víst að þar verði mjög fámennt og rólegt. 8. Ferð frá Reykjavík á Snæfellsnes og Snæfellsnesjökul í einn til þrjá daga. Boðið er m.a. upp á siglingu um Breiðafjörð ef verkast vill. 9. Fimm daga tjaldferð frá Reykja- vík fyrir þá sem vilja upplifa hálendi Island og fegurstu stað Norðurland. Gist er í tjöldum en matur er innifalinn. Allir þeir sem hugsa sér til hreyf- ings um verslunarmannahelgina ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þá getur fólk farið í styttri ferðir um sína heimabyggð eða í ná- grannabyggðir á eigin vegum því oft leita menn langt yfir skammt.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.