Alþýðublaðið - 03.12.1992, Side 1
Framsókn hafnar erindi Nýs vettvangs um sameiginlegt framboð í Reykjavík:
„Samstarf kemur ekki fil greina!"
„Það getur vel verið að ein-
hver atkvæði glatist en það
verður bara að hafa það. Eg
vil alls ekki leggja Framsókn-
arflokkinn í Reykjavík að
veði. Eg er enn móðguð eftir
síðustu lotu,“ sagði Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins í
Reykjavík í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Fyrir skömmu sendi Nýr
vettvangur hinum minnihluta-
flokkununt í Reykjavík beiðni
um viðræður um sameiginlegt
framboð fyrir næstu borgar-
stjómarkosningar sem fram fara
árið 1994. Á fundi fulltrúaráðs
framsóknarmanna nýverið var
erindi Nýs vettvangs hafnað.
„Það eru allir framsóknar-
menn á móti samkrulli af þessu
tagi,“ sagði Sigrún. „Það snýst
eitthvað við í mér þegar ég
hugsa um hvemig sameiningar-
tilraunimar fóm síðast. Það
kemur bara alls ekki til greina."
Sigrún Magnúsdóttir kvaðst
Hagrœðingarsjóður
Selur kvóta fyrir
rúmar 100 milliónir
Veiðiheimildir Hagræðing-
arsjóðs fóru á mun lægra
verði en gert er ráð fyrir í
fjárlögum en tilboð í þriðjung
af kvóta sjóðsins voru opnuð í
fyrradag. Ekki fengust upp-
lýsingar uin það hjá sjóðnum
hverjir hefðu keypt, hversu
mikið né hvernig tekin tilboð
skiptust á milli tegunda fiski-
skipa cða landshluta.
Þrátt fyrir að tilboð í veiði-
heimildimar hafi verið talsvert
undir því viðmiðunarverði sem
sjávarútvegsráðuneytið setti var
tilboðum tekið í allar veiði-
heimildir sem í boði voru nema
27 tonn af skarkola. Meðalverð
af teknum tilboðum í þorsk-
veiðiheimildir var 33,30 krónur
kílóið, ýsan á 21,46 kr„ ufsi á
12,47 kr„ karfi á 15,33 kr, grá-
lúða á 33,01 kr. og skarkoli á
20,82 krónur kílóið. Hæsta kíló-
verð fyrir þorsk var hins vegar
38,10 krónur.
Skipseigendur einir gátu gert
tilboð í veiðiheimildir Hagræð-
ingarsjóðs. Að þessu sinni var
þriðjungur kvótans boðinn út og
segist Svavar Ármannsson hjá
Hagræðingarsjóði búast við að
næsta sala fari fram í febrúar
eða mars og þá verði seldur
annar þriðjungur veiðiheimilda
sjóðsins og seinasti þriðjungur-
inn ef til vill í maí eða júní. Þeir
aðilar sem buðu i kvótann nú fá
frest fram til 15. desember til að
standa skil á greiðslum til Hag-
ræðingarsjóðs.
Alþingi
Atkvæðagreiðsla um
EES 16. desember?
Flest bendir til þess að
þriðja og síðasta umræða og
jafnframt atkvæðagreiðsla
um EES fari fram á Alþingi
þann 16. desember næstkom-
andi. Fulltrúar stjórnarfr-
lokkanna og stjórnarand-
stöðu funduðu um stöðu og
afgreiðslu þingmála í gær og
voru lagðar línur fyrir störf
þingsins fram að jólahléi.
Búast má við að önnur um-
ræða um EES fari fram í síðari
hluta næstu viku eða helgina þar
á eftir, en áætlað hafði verið að
þær færu fram í byrjun næstu
viku. Því verður hins vegar að
öllum líkindum frestað að ósk
stjómarandstöðunnar. Þriðja og
síðasta umræða ætti svo að geta
farið fram 16. desember, en
stjómarflokkamir leggja mikla
áherslu á að atkvæðagreiðsla
fari fram sama dag.
hafa lagt mikið á sig fyrir borg-
arstjómarkosningamar 1990 til
að sannfæra félaga sína í Fram-
sóknarflokknum í Reykjavík
um að taka þátt í sameiginlegu
framboði flokkanna. Hún hefði
viljað að flokkamir tilnefndu
menn á sameiginlegan lista en
viðræðumar síðan mnnið út í
sandinn. Þá hefði sú leið verið
valin „að búa til Nýjan vett-
vang, sem var bara nýr stjóm-
málaflokkur. Það kemur ekki til
greina að framsóknarmenn taki
þátt í slíku í stærsta kjördæmi
iandsins," sagði Sigrún.
Valdimar K. Jónsson pró-
fessor, formaður fulltrúaráðs
framsóknannanna í Reykjavík,
sagði að erindi Nýs vettvangs
hefði verið þunglega tekið af
öllum fundannönnum. Sam-
vinna um framboð kæmi ekki til
greina.
Framtíðarnefnd Kristnesspítala
Leggur til sameiningu
við Fjórðungssjúkrahúsið
Sameining rekstrar Kristnesspítala og Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar vænlegur kostur
segir nefndin - vinn málið áfram á grundvelli skýrslunnar, segir Sighvatur Björgvinsson
Nefnd sem heilbrigðisráð-
herra skipaði til að gera tillög-
ur um framtíð Kristnesspítala
leggur til að rekstur Kristnes-
spítala og Fjórðungssjúkra-
húss Akureyrar verði samein-
aður frá og með næstu ára-
mótum. „F.g er mjög ánægður
með niðurstöður nefndarinn-
ar og mun taka málið upp og
vinna það áfram á grundvelli
tillagna hennar“, sagði Sig-
hvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
„Þetta þýðir að það nást fram
þau áform sem koma fram í
fjárlagafrumvarpinu og sýnir að
þetta er hægt“, segir Sighvatur
en hann var mjög gagnrýndur
þegar hann lagði fram hug-
myndir sínar um að sameina
spítalana. Hann segir að nú
verði gerður samningur við
Fjórðungssjúkrahúsið um rekst-
ur Kristnessspítala með þeim
fjárveitingum sem eru á fjárlög-
um.
Efnislega er niðurstaða
nefndarinnar sú að hún telur það
mjög vænlegan kost að sameina
rekstur spítalanna en með því
náist spamaður og hagræðing í
stjómun og mönnun auk þess
sem stærstur hluti þeirra sjúk-
linga sent fer til endurhæfmgar
á Kristnesspítala komi frá
Fjórðungssjúkrahúsinu.