Alþýðublaðið - 15.01.1993, Side 1

Alþýðublaðið - 15.01.1993, Side 1
Dómari sýknarfélagsmálaráðherra, neitar kröfum íbáa á Seltjarnarnesi sem vildu hrekja einhverýa unglinga af Sœbraut: - að fatlaðir geti báið í venjulegum íbúabyggðum, segir Jóhanna Sigurðardóttir. Fyrsta málið sinnar tegundar á Norðurlöndum ur kvörtun hafi borist frá ná- grönnum þar. I dómsniðurstöðum Jóns L. Amalds kemur fram að veru- lega hefur dregið úr ónæði ifá heimilinu að Sæbraut 3 síðustu misserin. Meginröksemd hans fyrir sýknudómi eru hinsvegar lagaákvæði um „að fötluðum séu sköpuð skilyrði til að lifa eðlilegu lífí.“ „Hér er urn mikið mannrétt- indamál að ræða,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir. „Málið snýst um þann rétt fatlaðra að eiga heima í venjulegri íbúa- byggð. Þetta er fyrsti dómur- inn sem fellur í svona máli á Norðurlöndum. Ég hef alltaf vitað að lögin voru okkar megin en niðurstaðan er sannarlega fagnaðarefni," sagði ráðherrann. „Ég fagna auðvitað þcssuni dómi. Raunar efaðist ég aldr- ei um að þetta yrði niðurstað- an,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir í samtali við Alþýðu- blaðið síðdegis í gær eftir að hún hafði, sem fclagsmála- ráðherra, verið sýknuð af kröfum hjóna á Seltjarnarnesi um að starfsemi heim- ilis fyrir einhverf börn yrði hætt. Það voru hjónin Guðmundur J. Guðjónsson og Guðrún V. Sverris- dóttir, Sæbraut 3, sem höfðuðu málið á hendur félags- málaráðherra vegna meðferðarheimilis- ins að Sæbraut 2. sig verða fyrir miklu ónæði af völdum einhverfu bamanna, sem „gefi frá sér óp eða vein sem heyrist um nágrennið", „haft tilhneigingu til að svipta sig klæðum hvar sem er.og f allra augsýn, hægja sér og fróa sér kynferðislega.“ Þá saka þau unglingana um árásarhneigð, innbrot og grjót- kast svo fátt eitt sé nefnt. í þessu sam- hengi er athygl- isvert að í Trönuhólum í Breiðholti hefur árum saman ver- ið rekið sam- bærilegt heimili fyrir einhverfa án þess að nokk- Þau báru að eigendur og íbúar allra húsa í nágrenninu stæðu að baki þeim. Starfsemi að Sæbraut 2 hófst á síðustu mánuðum ársins 1989 og var stofnunin ætluð sex ung- lingum á aldrinum 13 til 17 ára. Guðmundur og Guðrún töldu 124 umsóknir í Kvikmyndasjóð. Úthlutað í dag: Mikil gróska __ ______________________U n segir Bryndís Schram framkvœmdastjóri sjóðsins. „Úthlutun verður tilkynnt í dag en ég get því miður ekkert sagt þér, einfaldlega af því ég hcf ekki hugmynd um hverjir fá styrki,“ sagði Bryndís Schram framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs í stuttu spjalli við Alþýðublaðið í gær. Hvorki fleiri né færri en 124 umsóknir bárust til sjóðsins, sem hefur 75 milljónir til ráð- stöfunar að þessu sinni. Margir munu því ganga bónleiðir til búðar. Eigi færri en 17 sóttu um styrk til að framleiða kvik- myndir, 44 umsóknir bárust um handrits- eða undirbúnings- styrki, sótt var um úthlutun vegna 27 heimildamynda og 14 vilja gera stuttmyndir. „Jú, auðvitað ber þetta vott um mikla grósku," sagði Bryn- dís. „Og nefndarmennimir hafa staðfest að nrikið er um mjög forvitnilegt efni. Þetta er erfitt val hjá þeim.“ Nýtt kerfi við atkvœðagreiðslur á Alþingi kostar LITLAR 8 MILUÓNIR! Einhversstaðar í galtómum ríkiskassanum hafa nú lundist átta milljónir til þess að borga fyrir nýtt tölvukerfi sem á að gera þingmönnum kleift að greiða atkvæði einsog þeir raunverulega vilja. Nýja kerfið kostar átta milljónir. Ekki er vitað hvað verður gert við gamla kerfið - sem raunar er svo að segja nýtt. Fulltrúar stjómarandstöðunnar fóm framá að tölvumálin yrðu endurskoðuð eftir að Matthías Gamla kerfið: Eintómir mínusar og plúsar á þessu flókna inælaborði sem svo mjög hcfur vafist fyrir sumum þingmönnum. Bjamason Vestfjarðagoði tók að sér að hafa vit fyrir Ama Johnsen við atkvæðagreiðslur. Þá hafa einstaka þingmenn átt í talsverðum vandræðum með að læra á takkana og kosið vitlaust; nú siðast var frú Salóme þingfor- seti Þorkelsdóttir réttaðsegja búin að fella sjávarútvegssamning fs- lands og EB. Slík mistök er að vísu hægt að leiðrétta en þóttu heldur hvimleið. Nú verður sem- sagt bætt úr því. Nýja kerfið: Já eða nei. Oneitaniega einfaldara. Kannski tekst þingmönnum nú loks að kjósa rétt. Kjarnorkuslys á Hverfisgötu „Líkurnar á slysi sem þessu hér á landi tel ég vera hverf- andi litlar, sem betur fer“, sagði Guðjón Petersen, for- stöðumaður Almannavarna eftir að samæfingu á sviðsettu kjarnorkuslysi fóru fram í gærdag. „Það kom í ljós, sem við viss- um fyrir, að hér á landi skortir á að til séu geislamælar til að mæla geislavirkni í matvælum, í fiski og í jarðvegi", sagði Guð- jón. Sett var á svið slys á kjam- orkuknúnu skipi við Noregs- strendur í samvinnu við al- mannavarnir annarra Norður- landa. Skipstjóri ákvað að sigla skipi sínu til Ameríku, enda skipið lítt laskað, og nálgaðist óðum strendur íslands. Á þeirri siglingu jukust vandræði skip- verja vegna sívaxandi leka á geislavirkum efnum, sem víða láku út, 56 menn með bmna og geislavirk áhrif. Guðjón sagði að á æfingunni hefðu bæði Bandaríkjamenn og Danir lofað búnaði til geislamælinga hér á landi, sem hægt var að senda með litlum fyrirvara. Æfingin tók 8 tíma, en „sag- an“ spannaði yfir 2 sólarhringa. Engu að síður heppnaðist að- gerðin hið besta. Þetta var lær- dómsríkt, sagði Guðjón, allt mjög raunverulegt, jafnvel sí- fellt kvabb í fréttamönnum víðs vegar að, allt leikið að sjálf- sögðu. Blaðamönnum var bannað að koma inn á stöðvar Almanna- varna í Lögreglustöðinni við Hlemm, innandyra unnu menn að sem hagkvæmastri lausn á „kjarnorkuslysi" í samvinnu við almannavarnir hinna Norður- landanna. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík - Simi 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.