Alþýðublaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 1
Ylrœkt - gœti hún skapað fjölmörg ný störf?
BORGIN OG BLÓWVAVAL
KANNA MOGIILEIKANA
hollenskir hlómakaupmenn bíða eftir nákvœmri og vandaðri hagkvæmnisathugun á
stóriðju í hlómarœkt í Reykjavík. Markús Orn Antonsson: Útflutningur kannaður
,,Það er rétt hjá þér, við í
Blómavali höfum í samvinnu
við Reykjavíkurborg, verið
með frumathuganir á mögu-
leikum á nýtingu heita vatns-
ins til ræktunar á blómum til
útflutnings,“ sagði Bjarni
Finnsson, framkvæmdastjóri
í Blómavali hf. í gær, þegar
Alþýðublaðið ræddi við hann.
Sagði Bjami að í sjálfu sér
væri honum illa við að mikið
væri fjallað um málið fyrr en og
ef eitthvað yrði úr því. Nógu
mikið væri af „fréttum" af mál-
um sem aldrei yrðu að veru-
leika.
„Eins og stendur er þetta mál
í biðstöðu og athugun. Við höf-
um kannað málin bæði hér
heima og úti í Hollandi. Við fór-
um þangað ásamt borgarverk-
fræðingi, Þórði Þorbjamarsyni,
sem féll frá langt um aldur fram
í fyrra og hafði unnið gott verk í
þessu máli. Það var í fyrravor,
sem málið var tekið upp að
nýju, en athuganir höfðu verið
gerðar á möguleikum okkar fyr-
ir einum tíu árum“, sagði
Bjami.
Bjami Finnsson sagði að í
Hollandi væru stór fyrirtæki í
blómaverslun sem biðu nú eftir
að gerð yrði vönduð hag-
kvæmnisathugun, sem kostnaði
mikið fé að framkvæma.
Að öðm leyti var Bjami ekki
tilbúinn að ræða þessi áfonn
nánar.
Alþýðublaðið hefur þó fregn-
að að ef af framkvæmdum
verði, sé hér um að ræða „stór-
iðju“ í ylrækt, sem ntuni þurfa
mikils fjölda starfsmanna við.
Jafnframt að fyrstu viðbrögð í
Hollandi hafi verið einkar já-
kvæð og uppörvandi.
Markús Om Antonsson borg-
arstjóri sagði í samtali við Al-
þýðublaðið að bráðlega kærni í
Ijós hvort og hvenær hafist yrði
handa.
„Einkum hefur verið kannað-
ir möguleikar á ræktun blóma
fyrir sértæka markaði með út-
flutning í huga. Það hefur líka
verið talað um að með þróun í
ylrækt verði hægt að rækta
grænmeti í stómm stíl fyrir inn-
anlandsmarkað.“
Vetrarfatnaður löggunnar
Frá Litháen eða
ár Kópavogi?
„Tilboð lægstbjóðanda
getur sparað lögreglunni 14
milljónir króna. Það þýðir í
raun ein 7 eða 8 stöðuígildi í
heilt ár. Eru menn ekki ein-
mitt að kvarta yfir því að
löggæslan sé ekki nægilega
öflug“, sögðu þeir Árni
Árnason og Jóhann
Christiansen hjá Hexa hf. í
gærkvöldi í samtali við Al-
þýðublaðið.
Innkaupastot'nun ríkisins
mun í dag tilkynna hvaða til-
boði verður tekið í vetrarfatn-
að lögreglumanna, - fatnaði
frá Litháen eða frá Sólinni,
fyrirtæki Guðlaugs Berg-
manns f Kópavogi. Talið er
nokkuð ljóst að valið standi
milli þessara tveggja aðila,
sem buðu lægst verðin. Tek-
ist er á um innlendan iðnað og
innflutning.
„Þessi fataframleiðsla þýð-
ir ekki mikið meira en stöðu-
ígildi eins eða tveggja góðra
saumakvenna í eitt ár. Á móti
kemur að fjölga mætti lög-
reglumönnum. Menn hljóta
að sjá muninn, og allir vilja
spara peninga ríkisins“,
sögðu þeir félagar í Hexa.
Þeir sögðu Litháa bjóða upp á
efni frá sömu verksmiðju og
innlendir framleiðendur, það
væri bara vandaðra og 17%
dýrara en það sem notað
hefði verið til þessa.
Ein heimild Alþýðublaðs-
ins taldi að þessum fatainn-
kaupum lögreglunnar yrði
deilt niður, en ekki vitum við
sönnur á því.
Guðlaugur Bergmann iðn-
rekandi í Sólinni sagði í gær-
kvöldi: „Við sem erurn ný-
lega búnir að samþykkja Evr-
ópska efnahagssvæðið, undr-
umst það ef ríkisvaldið ætlar
að taka undirboðum frá Aust-
ur-Evrópu. Staðreyndin er sú
að í fataiðnaði hér getum við
þrátt fyrir allt keppt við Vest-
ur- Evrópu, en alls ekki þjóð-
ir í austrinu sem borga sínu
fólki 1/20 af þeim launum
sem borguð eru hjá mér. Mér
finnst þetta háskaleg stefna ef
hlaupa á eftir svona undir-
boðum, - nema að það eigi að
verða stefnan að laun iðn-
verkafólks hér lækki niður í
það sem gerist í Litháerí'.
Á árinu 1993 býður Amma Lú upp á 3ja rétta kvöldverð
og skemmtiatriði á löstudagskvöldum á kr. 1.993
Krónur
Föstudagsgestir 1993
^ ÚJ'orrétiir
áskisúpa með stórri hörpuskel og gulrótar-linguini.
Manneraður svartfugl „Carpaccio“.
> Reyktur lax í kartöflutertu og graslauksrjóma.
Gnocchi pasta með parmesan-rjómasósu og pesto.
eru meðal annarra
jtfðalréttir
Grillaður nau;
itahiyggsvöðvi hjúpaður villisveppum.
Steiktar grísalundir í netju með rosmarin sveppafyllingu.
Pönnusteiktur silungur með sætri paprikusósu.
Kalkúnabringa „Tiyska".
EGIU ObAFSSON
föstudagana 19. febrúar, 5. mars, 19. mars og 26
BOGOMIk EONT (in person)
föstudagana 5. febrúar, 12. febrúar og 26. febi
Sif Ragnhiúdardóttir
föstudaginn 12. mars.
öftirréitir
Marquise súkkulaðiterrine.
Skoskur vanillubúðingur með hunangskökum
Pönnukaka með brómberjum og vanilluís.
MatreuJjlumeutari,
Haukur VíM.uton
Borðapantanir í síma