Alþýðublaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 9
Föstudagur 5. febrúar 1993
9
Set kf með gœðastýringarkerfi
Við emm í
buttandi
samkeppni
- seyir framkdœnuUistjórinn
Bergsteinn Einarsson - nauðsynfegt
að tjúka keimaóinnunni áður en
kafáið er i útffutning
Bræðurnir Bergsteinn og Örn reka fyrirtækið Set hf. ásamt föður sínum Einari Elíassyni
„Við höfum verið að vinna við að
koma upp gæðakerfi ISO- 9002 á
framleiðslu okkar undanfarin tvö ár
og erum nú komnir á lokastig með
það. Pað er vottað gæðastýringar-
kerfi fyrir framleiðsluna, sölu og
þjónustu“, sagði Bergsteinn Einars-
son hjá fyrirtækinu Set hf. á Selfossi
þegar Alþýðublaðið hafi samband
við hann.
Fyrirtækið Set á Selfossi framleiðir
aðallega hitaveiturör og tengistykki.
Það eru feðgamir' Einar Elíasson og
synir hans, Óm og Bergsteinn, sem
eiga og reka fyrirtækið. Þeir framleiða
einnig ýmiskonar plaströr, frárennslis-
rör og hlífðarrör fyrir ljósleiðarakapla
Pósts og síma, slöngur, rafmagnsrör og
snjóbræðslurör. Fyrirtækið hóf fram-
leiðslu sína árið 1968 og hefur framleitt
hitaveiturör frá árinu 1977.
í samtali við Alþýðublaðið sagði
Bergsteinn að Set væri það fyrirtæki
sem væri með fjölbreyttustu fram-
leiðsluna á þessu sviði hér á landi en
þeir væm í samkeppni við önnur fyrir-
tæki sem framleiddu sambærilega hluti
og þeir. Það væru t.d. tvö eða þrjú önn-
ur fyrirtæki í röraframleiðslu á landinu.
Hins vegar væri eitt annað fyrirtæki
starfandi hér á landi sent framleiddi
einangruð hitaveiturör.
Hjá fyrirtækinu vinna nú 24 manns
og em hitaveiturörin um helmingur
framleiðslunnar. Bergsteinn segir að
nú sé hvað rólegasti tími ársins en það
séu þokkaleg verkefni framundan.
Útflutningur til Svíþjóðar
„Við fluttum út hitaveiturör í fyrsta
skipti í fyrra en þau fóru til Svíþjóðar.
Það verður áfram unnið að útflutnings-
málunum í kjölfar þess en hvað það
kemur til nteð að verða mikið veit
maður ekki ennþá“, segir Bergsteinn.
„Það er alveg nauðsynlegt að vera bú-
inn að vinna heimavinnuna sína áður
Skólakór Fjiilbrautaskóla Suðurlands tckur lagið á æfingu
Kór og leiklist
Nemendur fjölbraulaskólans em að
fara af stað með æfingar á leikriti og
nýbúið að ráða leikstjóra, að sögn Am-
ar. „Þá sendi kórinn okkar, Skólakór
Fjölbrautaskóla Suðurlands, frá sér
geisladisk fyrir jólin. Eins fór kórinn út
sl. vor til Þýskalands í söngför en hann
er undir stjóm Jóns Inga Sigurmunds-
sonar.“
Öm segir að fólk á Selfossi sé sér-
lega spennt fyrir Selfossliðinu í hand-
bolta þessa dagana, enda hafi liðið
staðið sig mjög vel. Það væru margir
innan skólans sem hefðu ntikinn áhuga
á að mæta á leikinn en ýmsir leik-
manna Selfossliðsins hafa stundað nám
við FS eins og t.d. Einar Gunnar og
Gústaf Bjamason. Við báðum Öm að
spá fyrir urn úrslit bikarúrslitaleiksins
þar sem Selfoss og Valur leiða saman
hesta sína.
„Ég spái 23 gegn 22 fyrir Selfoss"
sagði Öm að lokum í stuttu spjalli við
Alþýðublaðið.
en farið er út í útflutning en það er það
sem margir flaska á, það verður að
skipuleggja innri mál fyrirtækisins áð-
ur en haldið er út í hina liörðu sam-
keppni.
Ég held að EES-samningurinn breyti
engu fyrir okkur því við vomm í stífri
samkeppni áður. Það er helst að hann
kæmi okkur til góða vegna frjálsra fjár-
magnsflutninga og við eygjum mögu-
leika á að geta fengið hagstæðara láns-
fé. Við höfum verið í bullandi sam-
keppni í 4-5 ár og útlendingar boðið á
móti okkur í öll stærri verkefni. Eftir
því sem við höfum unnið meira í gæða-
og framleiðnimálum hefur staða okkar
styrkst á markaðnum og teljum okkur
geta mætt nánast hverju sem er.
Stærstu verkefnin fyrir Hita-
veitu Reykjavikur
Okkar stærstu verkefni nú em fyrir
Hitaveitu Reykjavíkur en við höfum
verið með stærsta hlutann í dreifíkerfi
hennar. Hins vegar er enn óljóst hver
staðan er gagnvart framkvæmdum á
ýmsum stöðum á landsbyggðinni en
það kemur í ljós með vorinu. Það virð-
ist hins vegar almennt vera nokkur
samdráttur í þessu eins og öðru.“
Bergsteinn lætur vel af því að reka
slíkt fyrirtæki á Selfossi. Þrátt fyrir að
Selfoss sé langt inni í landi er þar toll-
höfn og bæði Eimskip og Samskip nteð
þjónustu þar. Öll aðföng fyrirtækisins
koma erlendis frá og segir Bergsteinn
að það hafi því skipt miklu að fá toll-
höfn á Selfoss og eitt stærsta skrefið til
að gera aðstæður fyrir fyrirtæki eins og
Set bærilegar. Til framleiðslunnar flyt-
ur fyrirtækið aðallega inn stálrör, ein-
angmnarefni og plastefni sem nemur
um 2.000 tonnum á ári.
Keppum 00 dönsum ótö ttöra skóta
- segir Örn Haratásson, formaður AJemendafétags Fjöíkrautaskófa Suðurnesja
„Þótt það sé ekki umfangsmikil
klúbbastarfsemi hjá okkur í skólan-
um er ýmislegt að gerast í félagslíf-
inu“, segir Örn Haraldsson, formað-
ur Nemendafélags Fjölbrautaskóla
Suðurlands. „Við höfum tekið þátt í
ýmsum íþróttakeppnum, förum í
heimsóknir til annarra skóla og fá-
um aðra skóla í heimsókn til okkar.“
Öm sem kemur úr Gnúpverjahreppi
segir að nemendur skólans hafi farið í
heimsókn til framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum fyrir áramótin og tekið
þar þátt í íþróttakeppni og síðan hafi
verið segið upp sameiginlegu balli.
„Núna eftir áramótin stefnum við á
álíka ferð til Akureyrar þar sem við
reynum með okkur í íþróttum auk þess
að kynnast nemendunum þar og rnann-
lífi og eflaust verður slegið upp balli“,
segir Örn.
Það eru á milli 600 og 700 nemend-
ur í Fjölbrautaskóla Suðurlands fyrir
utan kvöldskólann. Öm segir nemend-
ur koma víða af öllu Suðurlandinu,
Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka Örn Haraldsson, formaður Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands
og úr sveitunum í kring. Það sé dagleg-
ur skólaakstur frá sveitunum í Rangár-
vallasýslu, Landeyjunum og Hvol-
svelli og ofan að Flúðum til að koma
nemendum í skólann.
Höfurn einu sinni unnið spurn-
ingakeppnina
„Við höfum tekið þátt í spuminga-
keppni framhaldsskólanna“, segir Öm,
„en ekki verið með í Morfís- keppn-
inni. 1 spumingakeppninni hefur geng-
ið svona upp og ofan en við náðuin þó
að vinna keppnina einu sinni fyrir all-
nokkmnt árum. Við vorum að keppa
við Iðnskólann í Reykjavík fyrir stuttu
og okkur tókst að vinna hann. Við er-
um því áfram með í keppninni.
Hér fer fram ýmis menningarstarf-
semi sem ýmist er á vegum Nemenda-
félagsins eða skólans sjálfs. Þannig
hefur verið boðið upp á tónlistarvið-
burði og t.d. Diddú komið í heimsókn.
I þeim efnum hefur stundum verið urn
samstarl' að ræða milli okkar og gagn-
fræðaskólans auk þess sem listamenn
sem hingað hafa komið hafa verið með
skemmtanir opnar almenningi. Við
munum væntanlega senda fulltrúa í
söngvakeppni framhaldsskólanna en
undankeppnin hjá okkur hefur enn ekki
farið fram.“