Alþýðublaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 6
Föstudagur 5. febrúar 1993
Frestur til að skila
skattframtali
rennur út 10. febrúar
Síðasti skiladagur skattframtais
vegna tekna og eigna á árinu 1992
nálgast nú óðum. ítarlegur leiðbein-
ingabæklingur hefur verið sendur til
framteljenda sem kemur að góðum
notum við útfyllingu framtalsins.
Fylgiblöð með skattframtali liggja
frammi hjá skattstjórum sem jafn-
framt veita frekari upplýsingar ef
óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varð-
veiti launaseðla áfram eftir að fram-
talinu hefur verið skilað. Ef þörf
krefur eiga launaseðlarnir að sanna
að staðgreiðsla hefur verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skatt-
stjóra í viðkomandi umdæmi.
Forðist álag vegna síðbúinna skila!
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI
i j\.*%>*■ ?|-*«£
i \ ~ * ’
W /X
Sex leikmenn Selfoss hafa spilað
með landsliðinu í handknattleik,
samtals 520 leiki. Einar Þorvarð-
arson og Sigurður Sveinsson eiga auð-
vitað langflesta leiki að baki, Einar
með 222 og Sigurður 206. Einar Gunn-
ar hefur leikið 56 landsleiki þrátt fyrir
ungan aldur. Gísli Felix er með 19,
Gústaf 25 og Sigurjón 2...
Selfyssingar fengu 1500 rniða til
að selja í forsölu fyrir leikinn.
Salan hófst á miðvikudaginn og
miðamir runnu út einsog heitar lumm-
ur. Hvorki fleiri né færri en 750 miðar
fóru þannig fyrsta daginn. Það var tíu
sinnum meiri sala en hjá Valsmönnum
á sama tíma...
Forráðamenn Vals voru talsvert
hræddir á blaðamannafundinum í
gær um að Sunnlendingar myndu
valta fyrir stuðningsmenn Vals á úr-
slitaleiknum. Valsarar gripu til þess
ráðs að kaupa 20 trommur fyrir leikinn.
Það má þannig búast við miklum látum
enda á Selfossliðið bestu stuðnings-
mennina á landinu. Þeir verða varla
kveðnir í kútinn af trumbum Valsara...
Forsala á leikinn er á átta stöðum á
Suðurlandi og menn ættu að tryg-
gja sér miða strax. Aðgangseyrir
er 1.000 krónur fyrir fullorðna og 400
fyrir böm. Miðamir eru til sölu á eftir-
töldum stöðum: Hominu og Amesti á
Selfossi, Hverakaupum á Hveragerði;
Skálanum í Þorlákshöfn; Asnum á Eyr-
arbakka; Shell á Stokkseyri; Hlíðar-
enda á Hvolsvelli; Gmnd á Flúðum og
K.Á. á Laugarvatni. Rútuferðir verða
frá Ámesti klukkan sex á sunnudag-
inn...
Menn ættu að athuga að röng
tímasetning er á aðgöngu-
miðum. Þar er því haldið
fram að leikurinn hefjist klukkan hálfn-
íu. Það er ekki rétt. Leikurinn byrjar
klukkan átta. Á slaginu...
Það hefur verið erfitt með æfingar
uppá síðkastið enda hafa veður-
guðimir verið í miklum ham.
Leikmenn Selfossliðsins sem búa í
Reykjavík hafa oft lent í miklum
hrakningum; setið fastir, ekið útaf eða
orðið veðurtepptir. Það hefur þess-
vegna oft verið ansi fámennt á æfing-
um og þá er gripið til ýmissa ráða. Sök-
um fámennis á æfingum hafa „heima-
leikmennimir“ því oft skipt í tvö lið - í
körfubolta. Á myndinni er stórskyttan
unga, Einar Gunnar Sigurðsson. í
óvenjulegri stellingu. En hann kann að
fara með körfuboltann líka..