Alþýðublaðið - 05.02.1993, Síða 2

Alþýðublaðið - 05.02.1993, Síða 2
2 Föstudagur 5. febrúar 1993 H liHilllittWli HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson Fréttastjóri: Hrafn Jökulsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Leturval Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuöi. Verö í iausasölu kr. 90 Ráðherrann og UA Utgerðarfélag Akureyringa íhugar nú að kaupa meirihluta í næst- stærsta fyrirtæki í sjávarútvegi í Þýskalandi. Hið þýska fyrirtæki ræður yfir átta stórum frystitogurum, sem fullvinna aflann um borð. Á síðasta ári veiddu skipin rösk 20 þúsund tonn; á þessu ári er áætlað, að afli þeirra nái 40 þúsund tonnum. Eigið fé hins nýja fyr- irtækis yrði um 85%, þannig að ljóst er, að fjárhagslega stæði það afar vel að vígi. IVlestur hluti aflans er úthafskarfí, sem veiddur er utan íslensku lögsögunnar. En úthafskarfi er vannýttur stofn, sem Islendingar mega sjálfir veiða utan kvóta. Ein af forsendunum fyrir kaupunum er hins vegar sú, að skip fyrirtækisins geti óhindrað landað afla sín- um á Akureyri, og athafnað sig að öðru leyti í íslenskum höfnum. Forráðamenn ÚA hafa í hyggju að láta skipin leggja afla sinn fryst- an upp á Akureyri, og flytja hann síðan til Þýskalands með skipum innlendra skipafélaga. Engum blandast hugur um, að þetta framtak Akureyringa er í alla staði jákvætt, og vitnar um glæsilega framsýni og kjark. Kaupin sjálf eru bersýnilega góð fjárfesting, en þess utan mun þjónusta við skipin skapa atvinnu og gjaldeyristekjur fyrir landið allt - og Akur- eyringa sérstaklega. Það er áræði af þessu tagi, sem í dag skortir átakanlega hjá íslenskum fyrirtækjum, sem því miður eru svo upp- tekin af glímunni við að lifa til næsta dags, að þau ná ekki að þróa nýjar leiðir inn í framtíðina. Að óreyndu hefðu menn því ætlað, að stjómvöld tækju framtaki Akureyringanna fagnandi. Nú berast hins vegar þau válegu tíðindi, að sjávarútvegsráðuneytið hyggist túlka lög um landanir erlendra skipa svo þröngt, að ÚA sjái sér ekki fært að ráðast í kaupin. Það má aldrei verða! Alþingi samþykkti í fyrra þá meginreglu, að erlendum skipum væri frjálst að landa afla úr stofnum, sem íslendingar eiga ekkert tilkall til. Þá náðist hins vegar ekki samstaða í þinginu um að leyfa óhindraðar landanir úr stofnum, sem em sameiginlegir með öðmm þjóðum, væri ekki búið að semja um nýtingu þeirra. En uppistaða afla hins þýska fyrirtækis er úthafskarfi, sem feliur undir þessa skil- greiningu. Það er hins vegar þýðingarmikið, að lögin gáfu sjávarút- vegsráðherra eigi að síður heimild til að leyfa slíkar landanir, „þeg- ar sérstaklega stendur á“. Urenn rök hníga að því, að um sérstakar aðstæður sé að ræða í þessu tilviki, sem réttlætir að fyrirtækið fái fullt löndunarfrelsi hér á landi: I fyrsta lagi yrði fyrirtækið að meirihluta íslenskt, og því öldungis fráleitt að meðhöndla það einsog hvert annað útlent fyrirtæki. I öðru lagi myndi staifsemi þess skapa dýrmæt störf við umskipun aflans, flutninga innanlands og á markað í Þýskalandi. I þriðja lagi er úthafskarfinn vannýttur stofn, utan kvóta, og um þessar mundir veiddur í miklu minna mæli en þegar mest var sótt í hann af erlendum þjóðum. Ráðuneytið mun ekki finna nokkum fiskifræðing með fullu viti sem heldur því fram, að stofninn sé í hættu. Ráðherrann hefur því ótvíræðar ástæður til að nýta sér heimild laganna og veita hinu þýska fyrirtæki Akureyringa fullt athafna- frelsi í íslenskum höfnum. Það er einfaldlega óviðunandi ef ráða- menn hyggjast beita níðþröngum lagatúlkunum og drepa með því í fæðingu viðleitni íslenskra fyrirtækja til að hasla sér völl í erlend- um sjávarútvegi. B^^TTd I Æk B3* Forsetinn Fáum dylst, að Akkilesarhæll Fram- sóknarflokksins í dag heitir Steingrím- ur Hennannsson. Hann stendur í vegi fyrir hugmyndalegri endumýjun flokksins, og rembist auk þess einsog rjúpa við staur til að koma í veg fyrir endumýjun í forystunni. Enginn veit það betur en Halldór Asgrímsson, en svo virðist sem Steingrímur sé reiðu- búinn til að leggja mikið á sig - og flokkinn - til að koma í veg fyrir að Halldór taki við flokknum. Hlut- skipti Halldórs er vægast sagt að verða óþægi- legt, enda spuming hvað menn geta ver- ið efnilegir í marga áratugi. M i n n k a n d vegur Steingríms kom berlega í ljós við afgreiðslu Alþingis á EES málinu, þegar þjóðin varð vitni að því að ekki nema röskur helmingur þingflokksins studdi afstöðu for- manns flokksins. Hið nöturlega við stöðu Steingríms í þingflokkn- um er sömuleiðis, að íýlgismenn hans em flestir menn gærdagsins; Höllustaðahöldar sem aldrei kom- ust á verðlaunapall, - og gera það ekki héðanaf. Um nokkra hríð hefur því verið forgangsverkefni hjá flokknum að finna leiðir til að losna við for- manninn, og fá annan sem býr við óbrenglaða dómgreind. En eftir að Steingrímur brá sér í gervi vind- hana í umræðunum um EES, og snérist einsog vindurinn blés hvetju sinni, er langtí frá að flokk- urinn telji sig geta treyst dóm- greind hins roskna leiðtoga. Flokkurinn hefur nú reynt fjöl- margar leiðir til að koma formanni sínum í önnur og umsvifaminni embætti, og hið skondna við til- raunir flokksins í þessum eífium er, að flestar hafa leiðimar legið um farvegi Alþýðuflokksins. Að vísu var á því ein undan- tekning: Það var þegar framsókn- armenn fóru á bjartsýnisflipp og héldu sig geta losnað við karlinn með því að gera hann að forseta lýð- veldisins. Því miður; það reyndis ósk- hyggjan eintóm. Eftirörlitlarþreifingar á þjóðinni fundu þeir út, að þjóðar- garmurinn myndi flesta aðra en Stein- grfm kjósa í embætti forseta, einsog óbrjálaðir menn hefðu getað sagt skrif- stofu Framsóknarflokksins strax. Orðrómurinn um væntanlegt fram- boð Steingríms leiddi þó eitt gott af sér; þjóðin skoraði á frú Vigdísi að gefa aft- ur kost á sér, sem hún góðu heilli gerði. as frá Hriflu stofnaði ekki bara Fram- sóknarflokkinn heldur líka Alþýðu- flokkinn, galt sína skuld með rentu. Hann hafði samband við kollega sína, hina utanríkisráðherrana á Norður- löndunum, og kallsaði hvort ekki væri hægt að sameinast um Steingrím sem kandídat norrænna þjóða til aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Sagan hermir, að þeir hafi horft vantrúaðir á Jón Baldvin, fengið sér dágóðan slurk af Gammel Dansk, og þvínæst spurt, hvort Islend- ingnum væri virkilega al- vara? Lyktir aðalritaraefnisins urðu sem- sagt þær, að enda sem lélegur brandari Sendiherraefnið Seðlabankastjóraefnið Aðalritarinn En „vinir“ Steingríms í forystu Framsóknar voru ekki af baki dottnir. Með leynd var haft samband við for- mann Alþýðuflokksins, og Jón Baldvin munstraður til þess af fomvinum sín- um í Framsókn að kanna, hvort ekki væri hægt að gera forsetaefnið fyrrver- andi að aðalritara Sameinuðu Þjóð- anna. Þetta þótti að vísu svo ótrúlegt, að meira að segja Tíminn, sem yfirleitt trúir öllu einsog nýju neti, lagði ekki í að segja ífá þessari tröllasögu. Jón Baldvin, minnugur þess að Jón- innan diplómatíunnar á Norðurlönd- um, gjaman sagður til að undirstrika vanþróað skopskyn íslendinga: „Hermannsson som general- sekretær? Har-har-har-har.“ Sendiherrann Strákamir í Framsókn gáfust samt ekki upp. Enn var haldið á fund Jóns Baldvins, og spurt, hvort verið gæti að einhvers staðar leyndist laust pláss í ut- anríkisþjónustunni? Formaður Al- þýðuflokksins tók þessu ljúfmannlega. Jú, hann taldi sig eiga vistunarpláss fyrir karlinn í sendiráði lýðveldisins í Washington. En strákunum hafði láðst að spyrja formann sinn áður en þeir færðu málið í tal við utanríkisráðherra. Eftir um- þenkingar og kurteisisheimsókn í ráðu- neytið þótti aðalritaraefninu víst lítt spennandi að verða einskonar létta- drengur hjá Alþýðuflokknum í Wash- ington, meðan Butraldi (Bhoutros Gali) sat að embættinu sem hann taldi sjálfum sér hæfa í höfuðstöðvum SÞ. Vom nú góð ráð dýr. Þingflokkurinn í fýlu út í sjálfan sig og alla, Ilalldór og Steingrímur í gagnkvæmri fýlu og hættir að tala saman, og sá síðamefndi hættur að nenna að mæta í þingið. En þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Seðlabankastjórinn Einsog numna af himnum féllu þau tíðindi að innan tíðar losnaði í Seðla- bankanum staða bankastjóra, sem Framsókn telur tilheyra sér og engum öðmm. Innan Framsókn- arflokksins ríkir nú mikill fögnuður, k enda stóll Tóm- lll, ítsar Ámasonar talinn passa vel undir bossann á Denna. En böggull fylgir skamm- rifi; það er við- skiptaráðherra (og þarmeð Al- þýðuflokkurinn) sem veitir stöðuna. Enn þurfa því strákamir að ganga á vit Alþýðuflokks- ins. Nú er það auðvitað svo, að jaírí- aðarmenn em reiðubúnir að gera næstum hvað sem er til að létta píslargöngu Steingríms Her- mannssonar út úr pólitík, og leysa þannig forystukreppu Framsókn- arflokksins. En hitt vita allir að undir stjóm Steingríms hefur landið smám saman orðið með skuldugustu þjóðum heims, og því næsta viðurhlutamikið að setja / skuldakóng lýðveldisins yfir sjóði /i fátækrar þjóðar. En Jón Baldvin er kunnur að gæsku við þá sem eiga bágt, og undir þá kategóríu falla nú bæði Framsóknarflokkurinn og Steingrímur. Sá sem formlega veitir embættið, Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, er líka í hópi þeirra, sem ekki má neitt aumt sjá, - og enginn þarf því að efast um vilja hans til að gera gustukaverk á Steingrími Hemiannssyni. Alþýðuflokkurinn hlær! Það krimtir hins vegar í gervöll- um Alþýðuflokknum við þennan óvænta snúning samtímasögunnar. Það er nefnilega opinbert leyndamtál, að fyrir utan Halldór Ásgrímsson em fáir sem pirra formann Framsóknarflokks- ins meira en viðskiptaráðherra, sem hefur gegnum tíðina haft ærinn starfa af því að leiðrétta vitleysumar í Denna garminum. Og nú bendir semsagt allt til að kaldhæðni sögunnar nái nýjum hæðum, ef það verður hlutskipti Jóns Sigurðssonar að Ijúka píslargöngu Framsóknar með því að koma hinum dæmda formanni í beitarhús á Amar- hóli. Jón Sigurðsson hlýtur að hlakka til þess dags, þegar hann fær að gera Steingrím Hermannsson að húskarli sínum í Seðlabankanum, en það verður án efa eitt skemmtilegasta embættis- verk á samanlögðum ferli ráðherrans. Og eitt er víst, - þann dag mun gervall- ur Alþýðuflokkurinn veltast um af hlátri. Kæri Steingrímur: Gangi þér vel í nýja starfinu, - þú veist að þú getur alltaf leitað ráða hjá viðskiptaráð- herra! Þjóðviljalýgin litir enn Vikublað Alþýðubandalagsins ætlar að reynast verð- ugur arftaki Þjóðviljans í því að hika ekki við að fara með vísvitandi ósannindi, ljúga um pólitíska andstæðinga ef það er talið þjóna málstað flokksins. Á sínum tíma vom slík vinnubrögð uppistaðan í ritstjómarstefnu Prövdu og annarra Sovétmálgagna. En þótt Sovétríkin séu hmnin og kommúnisminn kominn á öskuhauga sögunnar hefur nátttröll hins gamla kerfis dagað uppi á nýju málgagni Al- þýðubandalagsins. Þannig fræðir síðasta tölublað Vikublaðsins lesendur sína á því í gær, að þrír hafi mætt á opnum fundi Alþýðu- flokksins 25. janúar á Akranesi þarsem Eiður Guðnason umhverfisráðherra og Össur Skarphéðinsson formaður þingflokks Alþýðuflokksins höfðu framsögu. Hið rétta er að á fundinn mættu fimmtíu manns og hon- um lauk ekki fyrren hálfri stundu eftir miðnætti. Þar fóm fram málefnalegar umræður og framsögumenn svöruðu fjölda fyrirspuma. Fundinn sótti ekki eingöngu alþýðu- flokksfólk, heldur einnig fólk úr öðrum stjómmálaflokk- um. Það er ótrúlegt að nú á tímum skuli starfa við fjölmiðl- un á Islandi fólk sem umgengst sannleikann og stað- reyndir einsog gert er á ritstjóm málgagns Alþýðubanda- lagsins.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.