Alþýðublaðið - 05.02.1993, Page 7
Föstudagur 5. febrúar 1993
7
MINNING
GÍSU S. GEIRSSON
Fæddur 26. desember 1957 - Dáinn 28. janúar 1993
Það er fundur í gangi um atvinnu-
mál. Fulltrúar bæjaryfirvalda og for-
ystumenn verkalýðshreyfingar í Hafn-
arfirði ræða ýmsa möguleika til að
bregðast við samdrættinum í atvinnu-
málum og meðfylgjandi atvinnuleysi.
Einn fundamianna, Guðríður Elías-
dóttir, formaður Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar hvíslar því að mér, að
„hann Gísli hafi dáið í nótt". Það
þyrmdi yfir mig. Kringumstæðumar
voru og þannig, að þama á þessum
fundi hefði Gísli setið ef allt hefði ver-
ið með felldu. Hann sem fonnaður at-
vinnumálanefndar bæjarins og sífellt
vakandi fyrir nýjum möguleikum til at-
vinnusköpunar í bæjarfélaginu sínu.
Og ekki aðeins maður nýrra og góðra
hugmynda heldur einnig sá er vildi láta
verkin tala - hann lét orð og efndir fara
saman.
Mér fannst hins vegar efni þessa
fundar eiga vel við hugarfar Gísla
Geirssonar, því þama var verið að leita
leiða til úrbóta, verið að mæta vanda-
málum, reynt að snúa vöm í sókn.
Þannig var hans verklag. Þessum fundi
bæjaryfirvalda og verkalýðsforystunn-
ar lauk þannig, að aðilar vom sammála
um að taka saman höndum um ýmis
úrræði í atvinnumálum og einnig stóðu
fundannenn upp og minntust Gísla
Geirssonar.
Gísli Geirsson skilaði drjúgu verki,
þótt tíminn væri stuttur sem til þeirra
gafst; aðeins 35 ár. Margur maðurinn
helmingi eldri gæti litið með stolti yfir
farinn veg. Gísli var ekki maður sem
horfði um öxl. Hann var maður dagsins
í dag og þó fremur morgundagsins.
Hann vildi byggja upp til framtíðar. Sí-
fellt á ferðinni, hraðmæltur, en eyddi
ekki tíma í langar orðaræður; vildi láta
hlutina ganga vel og rösklega fram.
„Það er nóg til að mönnum, sem vilja
ræða um hlutina," sagði hann gjaman
við mig. „Ég vil hins vegar fram-
kvæma þá," bætti hann við. Og þetta
stóð hann við. Hvort heldur var f starfi
hjá fjölskyldufyrirtækinu, Sjávarfiski,
með móður sinni og föður; í starfi fyrir
Lions-hreyfinguna; badmintonmenn í
Firðinum; ellegar með okkur alþýðu-
flokksmönnum í Hafnarfirði, þá bar
allt að sama brunni: Því sem Gísli tók
að sér, smátt sem stórt, lauk hann við
með miklum ágætum. Einhvers staðar
stendur: „Besti dagur ævi þinnar er
dagurinn í dag, ef þú notar hann rétt."
Og það gerði Gísli Geirsson svo sann-
arlega á sinni stuttu ævi héma megin
strandar.
Ég minnist í því sambandi kaupa á
skipi, sem þeir feðgar réðust í fyrir
nokkrum vikum í samstarfi við aðra.
Ég sem bæjarstjóri kom nokkuð nærri
þeim málum og fylgdist með fram-
gangi þeirra. Það var aðdáunarvert að
fylgjast með kraftinum og einurðinni
sem fylgdi þeim feðgum, Gísla og föð-
ur hans, Geir Sigurjónssyni, f því máli
öllu. Þegar ákvörðun var tek-
in, þá var einfaldlega tekin
bein lína fram á við og öllum
hindrunum rutt úr vegi og
málið klárað á mettíma.
Fæstir gerðu sér grein fyrir
því þá, að Gísli var þá þegar
orðinn fársjúkur. Én hann
kvartaði ekki. Það var ekki
hans háttur. Og þannig var
hann. Fjölskylda hans og
vinna höfðu forgang.
Það er svo sannarlega
sjónarsviptir að mönnum á
borð við Gísla Geirsson. Það
fylgdi honum hressilegur
andblær, kraftur og glaðværð
sem hafði áhrif á samferðar-
fólk hans.
Við alþýðuflokksfólk í
Hafnarfirði söknum vinar í
stað. Gísli hefur um árabil
starfað með okkur og meðal
annars gegnt trúnaðarstörf-
um fyrir flokkinn í atvinnu-
málanefnd og hafnarstjóm.
Við höfðum vænst þess að
geta átt í honum sterkan mann til frek-
ari starfa fyrir jafnaðarmenn hér í bæn-
um. En enginn veit sína ævina fyrr en
öll er.
Sámheldin og dugmikil fjölskylda
Gísla S. Geirssonar, sem ég veit að
honum var mjög umhugað um, syrgir
nú góðan dreng. Kona hans, Kristín
Þórey Eðvarðsdóttir, og ung böm
þeirra Gísla, Eðvarð, Þór, Berglind
Sveina og Geir Sigurður, sjá á bak
elskuðum og traustum eiginmanni og
föður. Og foreldrar hans, Geir Sigur-
jónsson og Bergsveina Gísladóttir, eiga
ekki sfður um sárt að binda. Huggunar-
orð og samúðarkveðjur í þeirra garð og
annarra í hópi fjölskyldu og vina em að
sönnu léttvæg nú þegar sorgin svfður
hvað sárast. En minning um góðan
dreng stendur eftir. Hún mun ekki
fölna. Hún verður öllum þeim dýrmæt
er áttu þess kost að kynnast mann-
kostamanninum Gísla Geirssyni í leik
og starfi. Gísli hefur kvatt þessa jarð-
vist en verk hans og ferskur andblær á
umhverfið munu standa eftir í hugskoti
okkar sem átturn hann að vini.
Allt er í heiminum hverfult og eng-
inn má sköpum renna. Mótsagnir hins
daglega lífs em líka vemleiki þess. Það
eitt að þessi duglegi og einarði maður
skuli hrifinn á brott í blóma lífsins er
nægileg undirstrikun þess. En hitt er
jafnraunverulegt, að gleðin er spegill
sorgarinnar. Þú syrgir það sem var
gleði þín. I myrkrinu skín ljósið skær-
ast.
Megi góður Guð græða sár og hugga
þá sem sorgina nístir; eiginkonu, böm,
foreldra og aðra nána ástvini. Hann
gefi dánum ró og þeim líkna sem lifa.
Blessuð sé minning Gísla S. Geirs-
sonar.
Guðmundur Arni Stefánsson
Það er ávallt átakanlegt þegar fólk
fellur frá í blóma lífsins. Það er ekki
langt síðan ég átti spjall við Gísla
Geirsson um atvinnumálin í bænum,
en hann var formaður atvinnumál-
nefndar bæjarins, og var hann þá að
vanda hress og kappsamur um að gera
eitt og annað til að bæta atvinnuástand-
ið í Hafnarfirði. Hann hafði þá nýverið
fengið vitneskju um að hann væri hald-
inn illvígum sjúkdómi en lét þó engan
bilbug á sér finna. Það var svo rétt rúm-
um mánuði síðar að hann var allur.
Gísla kynntist ég fyrst þegar hann í
æsku kom í heimsóknir til alá síns og
ömmu á Hvaleyrarbrautinni en þau
bjuggu í næsta húsi við mig. Þá strax
var hann kappsamur og glaðvær og það
breyttist ekkert með árunum. Okkur
strákunum í götunni þótti ávallt fengur
í þessum heimsóknum Gísla því hann
var alltaf til f tuskið.
Löngu seinna lágu leiðir okkar Gísla
saman aftur. Það var í bæjarmálapólit-
íkinni í Hafnarfirði á vegum Alþýðu-
flokksins. Þar einkenndi hann sami
krafurinn og áhuginn sem ég hafði
kynnst hjá honurn áður. Hann tók sæti
á lista okkar jafnaðarmanna og var
gerður að formanni atvinnumálnefndar
og tók síðar sæti í hafnarstjóm. Þegar
að kreppti í atvinnulífi bæjarins fór
hann á fullt í að kanna leiðir til að úr-
bóta og velta upp hugmyndum um
hvað hægt væri að gera til að bæta þar
um. Hann var óþolinmóður og vildi
drífa hlutina áfram en ekki sitja við
orðin tóm. Hann var maður fram-
kvæmdanna eins og hann átti ætt til.
I hugum okkar sem nutum þess að
kynnast Gísla og starfa með honum
mun minningin um góðan dreng, glað-
væran og kappsaman ávallt fylgja okk-
ur. Fjölskyldu Gísla, eiginkonu, böm-
um, foreldurum og öðmm ástvinum
sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Tryggvi Harðarson
Patreksfirðingar
athugió!
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður verða með
viðtalstíma á skrifstofu Patreksfjarðarhrepps, Aðalstræti
63, mánudaginn 8. febrúarfrá kl. 17.00 til 19.00. Pantið
tíma í síma 1221.
Þau verða síðan á almennum stjórnmálafundi í Félags-
heimilinu um kvöldið kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
Sjúkrahús Siglufjarðar auglýsir eftir
hjúkrunarfræðingum
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa strax eða eftir
nánara samkomulagi.
Á sjúkrhúsinu eru 43 rúm, sem skiptast f sjúkradeild,
fæðingardeild og ellideild. Að auki er starfrækt skurð-
stofa, rannsóknarstofa og sjúkraþjálfun í nýrri aðstöðu.
Hjúkrunin er því afar fjölbreytt og gefandi. Þar að auki er
gert ráð fyrir að hjúkrunarfræðingarnir séu sjálfstæðir í
starfi og taki mikinn þátt í ákvarðanatöku.
Sjúkrahúsið er mjög bjart og rúmgott, góð vinnuaðstaða
og gott og samhent starfsfólk sem þar starfar.
Siðglufjörður er í fallegu umhverfi, samgöngur góðar og
daglegar ferðir til og frá staðnum. Tómstundir eru fjöl-
breyttar og líflegt félagslíf, þar á meðal ýmis klúbba-
starfsemi, nýtt íþróttahús og góð sundlaug. Skíða-
svæðið er með því besta á landinu. Fjölbreyttar göngu-
leiðir. Gott barnaheimili, sem flyst í glænýtt hús á næst-
unni, er á staðnum.
Hafið samband, ef þið hafið spurningar varðandi kaup
og kjör, eða komið í heimsókn og fáið upplýsingar um
það sem við höfum að bjóða.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-71166 og
í hs. 96-71417.