Alþýðublaðið - 17.03.1993, Blaðsíða 5
Miðvikuudagur 17. mars 1993
VETTVANGURINN
5
KONUR Á BARMIJAFNRÉTTIS?
Samstaifshópur kvenna í ungliðahreyfingum stjómmálaflokkanna (SKUS):
Nýjung sem þegar hefur sannað sig sem þverpólitískt afl í jafnréttismálum.
Samstarfshópur kvenna í ungliða-
hreyfingum stjórnmálaflokkanna
(SKUS) hefur nú starfað í eitt ár. Segja
má að markmið hópsins sé að vekja ungt
fólk til umhugsunar um jafnréttismál og
stöðu kvenna í stjórnmálum. Samstarfið
hefur gengið vonum framar og stóð hóp-
urinn til að mynda fyrir ráðstefnunni
„Konur á barmi jafnréttis?“ á haustdög-
um í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ráðstefnan
þótti takast með miklum ágætum og
varð fljótlega Ijóst að framhald yrði á
samstarfmu.
Næsta verkefni hópsins verður að öllum
líkindum þátttaka í stórri jafnréttismálaráð-
stefnu sem haldin verður hér á landi næsta
haust og hyggst SKUS beina sjónum sér-
staklega að konum í stjómmálum.
SKUS starfar í umboði ungliðahreyfinga
allra stjómmálaflokka og föstudagskvöldið,
5. mars, vom framkvæmdastjómir ungliða-
hreyftnganna boðaðar til skrafs og ráða-
gerða í Rósinni, félagsmiðstöð jafnaðar-
manna í Reykjavík, og málin kmftn til
mergjar.
Fjömgar umræður sköpuðust um hinar
ýmsu hliðar jafnréttismála og sitt sýndist
hverjum. Mikið var rætt um ástæður þess
að ungar konur starfi svo lítið í stjómmálum
sem raun ber vitni. Þessi umræða stóð lengi
fram eftir kvöldi og sáu flestir fundarmenn
sig knúna til að tjá sig um þetta viðkvæma
mál. Enda kemur það við kaunin á mörgum
því ljóst er að ungliðahreyfingamar (utan
Kvennalistans) búa við mikinn og bagaleg-
an „kvenskort“.
Málið var rætt fram og aftur og kom
meðal annars fram það sjónarmið að ef til
vill hræddust ungu karlamir þátttöku
kvennanna, þar sem margir héldu að þær
myndu leggja of mikla áherslu á jafnréttis-
baráttuna.
SKUS-konur töldu að líklegast kæmi
hræðsla karlanna við aukna þátttöku
kvenna í stjómmálum til vegna þess að þeir
óttuðust að konumar myndu kannski sækj-
ast eftir valdastólum sem þeir hefðu vermt
hingað til.
Þá vildu sumir meina að ástæðan fyrir
„kvennaskortinum" væri einfaldlega sú að
konur hefðu ekki áhuga og nenntu bara ekki
að standa í stjómmálavafstri. Fæstir tóku
undir þetta sjónarmið og töldu að uppbygg-
ing starfsemi stjómmálaflokkanna væri
einn stærsti þröskuldurinn. Hún hentaði
engan veginn nútímakonum sem hafa mörg
hlutverk með höndum.
Enda þótt fólk væri ekki sammála um or-
sakir þessa skorts á konum í stjómmálum
ríkti einhugur um að nauðsynlegt væri að
leita úrbóta hið fyrsta og var eitt efni fund-
arins einmitt að leita eftir hugmyndum um
úrbætur.
Gott frumkvæði Samstarfshóps ungra
kvenna í stjómmálum hefur sannað að þrátt
fyrir þverpólitískt mynstur hópsins er ekk-
ert því til fyrirstöðu að ungt fólk geti unnið
saman að sameiginlegum hagsmunamálum
sínum.
Mjög athyglisverð tillaga var lögð fram á
fundinum þess efnis að á hausti komanda
gangist ungliðahreyfingar stjómmálaflokk-
anna fyrir sameiginlegu jafnréttisátaki í
framhaldsskólum. Tillagan var samþykkt
samhljóða og mun hver hreyfing skipa full-
trúa í samstarfshóp sem sjá á um fram-
kvæmd átaksins.
SKUS-konur vom mjög ánægðar með
Anna Sigrún Baldurs-
dóttir skrifar:
„Fœstir tóku undirþetta
sjónarmið og að töldu að
uppbygging starfsemi
stjórnmálaflokkanna vœri
einn stærsti þröskuldurinn.
Hún hentaði engan veginn
nútímakonum sem hafa
mörg hlutverk með hönd-
fundinn og töldu sérstaklega ánægjulegt að
í fyrsta sinn sem ungliðahreyfingamar taka
sig saman um eitthvað mál með markviss-
um hætti og samstarf í huga, skuli efnið ein-
mitt vera jafnréttismál.
Höfundur er í Félagi ungra jafnaöarmanna á Vesturiandi
og er einnig annar tveggja fulltrúa Sambands ungra
jafnaðarmanna I Samstarfshóp ungra kvenna I ungliða-
hreyfingum stjórnmálaflokkanna.
k Og enn heillast Ijósmyndar-
inn af kvennalistakonunum
og enginn skyldi lá lionum
það. Hér sitja þær, frá
vinstri til hægri, Þórunn
Svcinbjarnardóttir, Sigríð-
ur I. Ingadóttir, Stcinunn
Valdís Oskarsdóttir,
óþckktur herramaður, hin
óháða Ása Richardsdóttir
og Anna Kristín Ólafsdóttir.
Að baki þeirra eru, frá
vinstri til hægri, Kjartan
Emil Sigurðsson ásamt
heiðurshjónunum Ólínu
Þorvarðardóttur og Sigurði
Pcturssyni og við hlið þeirra
stendur Siv Friðleifsdóttir,
fyrrverandi kollegi Sigurð-
ar sem formaður Sambands
ungra framsóknarmanna.
Fallegt ungt fólk...
Það varforvitnilegur hópur ungs fólks sem kom
saman (Rósinni,félagsmiðstöð jafitaðarmanna
í Reykjavík, föstudagskvöldið 5. mars síðastlið-
inn. Tilefnið var fundur sem Samstarfshópur
ungra kvenna í ungliðahreyfingum stjórnmála-
jlokkanna (SKUS) stóð fyrir gagngert til að
rceða aðgerðir í baráttunni fyrir jafnrétti kynj-
anna.
A hann voru boðaðir til skrafs og ráðagerða
meðlimir íframkvœmdastjórnum ungliðahreyf-
inganna. Um þennan merkilega fund má nánar
lesa hér öðrum stað i blaðinu.
Af myndunum sem teknar voru þetta fostudags-
kvöld má glögglega sjá að þurr og þreytandi
umrœða er ekkert náttúrulögmál ipólitík, alla-
vega ekki pólitík unga fólksins. Galdurinn er
auðvitað að leggja hœfilegt magn af gamni
saman við alvöruna og taka summuna ekki of
hátíðlega.
Samstarfshópur ungra kvenna í ungliðahreyf-
ingum stjórnmálaflokkanna og framkvœmda-
stjórnir þeirra skynjuðu þetta, gripu gott tceki-
fceri traustataki og gerðu sér glaðan dag í kjöl-
far heitra umrœðna uni jafnréttismálin.
Guð einn veit að ef að það eru einliver spak-
mceli sem vel eiga við i pólitik þá eru það orð
írska snillingsins Oscars Wilde um að lífið sé
alltof mikilvœgt til þess að vera tekið alvarlega.
Athugum myndirnar nánar.
Fremst á myndinni sitja
þær sáttar og glaðbeittar,
Kvennalistakonur og hin
óháða Ása Richardsdóttir. f
baksýn til vinstri situr
ónafngreind framsóknar-
kona og standandi eru þeir
kotrosknir á svip Jón Þór
Sturluson og K jartan Emil
Sigurðsson frá Sambandi
ungra Jafnaðarmanna.
Kjartan Emil er nýkomin
frá Norðurlandaþingi æsk-
unnar sem haldið var í Oslo
í Noregi. Jón Þór er rétt
ófarinn til Strasbourg i
Frakklandi þar sem hann
situr nú sveittur á ráðstefnu
um „samevrópska mennta-
stefnu“. Úti í horni til hægri
eru mestmegnis framsókn-
armenn...
SVIPMYNDIR
Vertar hússins þetta föstudagskvöld voru
fimm af þeint ellefu eðalkrötum sem skipa
framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnað-
armanna. Frá vinstri til hægri má sjá hér þá
Kjartan Emil Sigurðsson, Bolla Runólf Val-
garðsson og Sigurð Pétursson, forinann SUJ.
A myndina vantar Jón Þór Sturluson og
myndasmiðinn Magnús Hafsteinsson. Þcim til
dyggrar aðstoðar var sá sem baki að mynda-
vélinni snýr, Akurnesingurinn Kristján Emil
Jónasson. Jafnglæsilegur „samráðshópur
gestgjafa" hefur sennilega ekki fyrr heirðað
Rósina með nærveru sinni.
Hér má sjá meðal annars baksvipinn á þrem-
ur Kvennalistakonum. Formaður Sambands
ungra Sjálfstæðismanna, Davíð Stefánsson,
stendur og spjallar fyrir aftan borgarfulltrú-
ann Ólínu Þorvarðardóttur. Úti í horni fyrir
miðju myndarinnar sitja svo Sigurður Sig-
urðsson, formaður Sambands ungra fram-
sóknarmanna og kumpáni hans ónafngreind-
ur. Stúlkan sem snýr andlitinu að myndavél-
innni er frá Sambandi ungra sjálfstæðis-
manna og hægra megin við hana situr Ása Ri-
chardsdóttir, eini óháði fulltrúinn í samstarfs-
hópnum...
Ungir framsóknarmenn kunna greinilega vel við sig í Alþýðuhúsinu, húsakynnum Jafnaðar-
mannaflokks íslands. Sögur herma að þeir hafi verið fyrstir inn og síðastir út. Frá vinstri til
hægri eru þau Einar Gunnar Einarsson, Sigurður Eyþórsson og Sædís Guðlaugsdóttir ásamt
Sigurði Sigurðssyni, forntanni SUF og Siv Friðleifsdóttur sem gegndi því embætti á undan hon-
um. Ætla mætti af myndinni að Siv og Sigurður formaður væru komin í keppni um breiðasta
brosið, en ef til vill er ástæðuna að finna í guðaveigunum...