Alþýðublaðið - 17.03.1993, Qupperneq 6
6
Miðvikudagur 16. mars 1993
Bréftil blaðsins
HÚS FRAM
TÍÐARINNAR
A undanförnum árum hefur verið
fengist við breytingar á uppbyggingu
húsa beiniínis með það í huga hvort hægt
sé að ná fram verulegri verðlækkun á
byggingakostnaði stórra og smárra
húsa. Til þess hefur verið beitt nýrri
tækni í húsagerð og fram kemur umtals-
verður árangur.
Það er Ijóst hvað það þýðir að fram komi
slíkar lausnir nú á tímum, mitt í atvinnu-
leysi nútímans, sem mun vaxa með hverju
árinu sem líður. I raun eru horfnir mögu-
leikamir á að finna vinnu í staðinn fyrir þá
sem tapast hefur. Þetta sýnisl staðreynd og
hér koma hlutir málinu til stuðnings.
Við höfum enn ekki áttað okkur á þeim
breytingum, sem skollið hafa yfir hinn vest-
ræna heim hin síðari ár. Breytingamar em
svo miklar að við verðum að beygja okkur
fyrir þeim fyrr eða síðar. Náttúran er alltaf
söm við sig og það er tæknin líka, sem
stjómar þessu öllu saman.
Það er tæknin sem stjómar því að við get-
um sent mannlaust skip heimshoma á milli.
Tæknin hefur gert landbúnaðinum kleift að
framleiða svo mikið að bitist er um markað-
inn. Sjávarútvegurinn er líka kominn inn á
slíkar brautir. Þar mun ekki fást meiri vinna
þrátt fyrir að mikið sé reynt. Og nú em
byggingar að komast í sama farið. Það er
óhjákvæmilegt. Við beitingu nýrra tækni-
bragða mun ekki þurfa að nota þau vinnu-
brögð sem við höfum notast við til þessa til
að eignast hús yfir höfuðið.
I framtíðinni verða önnur efni notuð til
húsbygginga en hin viðteknu. Steinsteypa
verður notuð aðeins í litlu magni, og timbur
verður ekki lengur notað, meðal annars fyr-
ir það hvað timbur er þýðingarmikið fyrir
lífið á jörðunni. Húsin verða umhverfis-
væn, bæði í framleiðslu og notkun.
Ástæðan liggur í því hvað við höldum
fast við hinar gömlu byggingaaðferðir, en
auðvitað af skiljanlegum ástæðum. Okkur
er ríkt í huga ástandið í byggingamálum og
það skapar kvíða fyrir framtíðinni.
Því er haldið fram að óþarfi sé að kvíða
fyrir framtíðinni. Það gerir málið erfiðara
en efni standa til. Það er því nauðsynlegt að
skýra frá málinu nánar en það verður ekki
gert hér og nú. Eitt er þó ljóst. Við verðum
að fara að hugsa öðm vísi en hingað til.
Okkur er það lífsspursmál að taka þátt í
uppbyggingu heimsins, sem nú er að verða
brýn. Málið er komið til að vera.
Það hlýtur því að verða okkar hlutverk að
koma upp verksmiðjum til að framleiða hús
eða húshluta úr íslenskum efnum í stórum
stíl. Ef við gerum það ekki, hlýtur hrein vá
að vera fyrir dyrum hjá okkur í náinni fram-
tíð. Við erum ekki fleiri en svo að hægt sé
að líka okkur við eitt hverfi í erlendri stór-
borg. Atvinnuleysið á að vera óþekktur
hlutur í landi okkar.
Hafsteinn Ólafsson
Háskólinn mun leggja aukna áherslu á rannsóknanám í náinni framtíð.
Menntamál rœdd á Alþingi
Rcmnsókncmám
vió Hóskólnnn
Á þessu ári hyggst ríkisstjórnin verja
sérstaklega 37,5 milljónum króna af and-
virði seldra ríkiseigna til að koma á fót
sérstökum sjóði í vörslu Vísindaráðs,
sem meðal annars á að kosta styrkþega-
stöður við Háskóla íslands, þar sem efni-
legir námsmenn sinna rannsóknaverk-
efnum undir leiðsögn kennara. Nám af
þessu tagi er nýjung við Háskólann, en
hefur um skeið verið einna efst á óska-
lista forráðamanna hans.
Þetta kom fram í svari Ólafs G. Einars-
sonar, menntamálaráðherra, þegar Össur
Skarphéðinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, spurði hann um fyrirhugaða
styrki til námsmanna í framhaldsnámi.
Menntamálaráðherra kvað fýrmefhda
styrki einkum eiga að beinast að verkefnum
sem tengdust atvinnulífinu beint, og lagði
áherslu á að þau tengdust öðrum rann-
sóknastofnunum eða fýrirtækjum.
Ráðherrann kvað sérstaka matsnefnd
myndu fjalla um umsóknir og meta gæði
þeirra og mikilvægi verkefnanna fyrir ný-
sköpun í vísindastarfsemi hér á landi. Það
kom hinsvegar fram í máli Ólafs, að braut-
argengi þessarar nýlundu helgaðist af því að
sala ríkisfyrirtækja gengi samkvæmt áætl-
un.
Hefðbundnar húsbyggingar munu hverfa, segir bréfritari.
Kóntríhótíð
í Úlfaldanum
Félagsmiðstöð SÁÁ nefnist Úlfaldinn og
er til húsa að Ánnúla 17a. I kvöld kl. 21 er
þar haldin Kántríhátíð með þátttöku fjöl-
margra þekktra skemmtikrafta. Má þar
nefna til sögunnar þá Hallbjöm Hjartarson
frá Skagaströnd, Önnu Vilhjálms úr Höfn-
um, Hannes Jón og KK-bandið vinsæla.
Sett hefur verið saman sérstakt kántr-
íband kvöldsins, og em í því liði Stefán Ing-
ólfsson á bassa, Tryggvi Húbner á gítar,
Dan Cassidy með fiðlu, Jóhann Hjörleifsson
slær á trommumar og Magnús Einarsson,
leikur á banjó og fleiri hljóðfæri, og Kristján
Guðmundsson sem leikur á píanó. Dans-
hópur úr Fótmenntafélagi SÁA sýnir amer-
ískan hringdans.
Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um:
Aukoaðild
aðVES
Þingmenn stjórnarflokkanna hafa lýst
yfir stuðningi við tillöguna.
Þingflokkar stjórnarflokkanna hafa bentu fulltrúar íslands í viðræðunum um
nú gefið grænt Ijós á þingsályktunartil- aukaaðild.
lögu frá Jóni Baldvin Hannibalssyni
utanríkisráðherra þess efnis að Alþingi
lýsi stuðningi við ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um að Island gerist aukaaðili að
Vestur-Evrópusambandinu (VES). Full-
trúar Islands, Noregs og Tyrklands und-
irrituðu pólitíska yfirlýsingu um aukaað-
ild að VES á fundi aðildarríkja sam-
bandsins í Róm 20. nóvember 1992, en
Eiður Guðnason umhverfisráðherra sat
fundinn fyrir hönd Jóns Baldvins Hanni-
balssonar.
Island, Noregur og Tyrkland era einu
NATO löndin sem ekki era aðilar að VES
og er talið að það komi til með að torvelda
aðlögun NATO að breyttum aðstæðum í
heiminum, sérstaklega í Evrópu, ef þessi
þtjú lönd standa áfram fyrir utan VES. Atl-
antshafsbandalagið hefur ítrekað lýst stuðn-
ingi við að VES fái það verkefni að efla hina
evrópsku stoð bandalagsins og lítur ekki á
það sem hótun við tilvist NATO.
Aukaaðild að VES veitir íslandi rétt til
þátttöku í umfjöllun Evrópuríkja um örygg-
is- og vamarmál og möguleika á að koma
sjónarmiðum sínum, m.a. um mikilvægi
tengslanna yfir Atlantshafið, á ffamfæri.
Þetta þykir mjög þýðingarmikið vegna vax-
andi ábyrgðar Evrópuríkja í öryggis- og
vamarmálum.
Ríki sem hafa aukaaðild geta tekið fullan
þátt í ráði og öllum nefndum VES og hafa
því góða möguleika á að koma skoðunum
sínum og tillögum á framfæri. Aukaaðilar
era ekki skuldbundnir til að taka þátt í að-
gerðum VES og ljóst er að ísland tekur ekki
þátt í hemaðaraðgerðum VES, þar sem
landið hefur ekki eiginn her. Á þetta atriði
Smóbóta-
félag
Rvíkur
-skorar á sjávarútvegsráð-
herra og alþingismenn að
standa vörð um hag smá-
bátaeigenda
Á fundi sínum þann 4. mars síðast-
liðinn samþykkti Smábátafélag Reykja-
víkur ályktun þar sem skorað var á sjáv-
arútvegsráðherra og alþingismenn að
standa vörð um hag smábátaeigenda.
I ályktuninni segir að það verði best
ffamkvæmt með því að gera þeim kleift
að afla sér lífsviðurværis af útgerð sinni.
Smábátafélag Reykjavíkur telur þetta
nauðsynlegt mannréttindamál. Einnig
kemur ffam hjá þeim að ffjálsum króka-
veiðum smábáta verði að viðhalda og
að tvöföldun línuveiði verði áfram leyfð
frá 1. nóvember til 1. mars ár hvert.
Félagið telur áríðandi að smábátar
undir 9,9 tonnum fái leiðréttingu á þeirri
gífurlegu kvótaskerðingu sem útgerð
þeirra hefur mátt þola undanfarin ár.
Að sögn Smábátafélagsins er áskoran
þessi lögð fram til að spoma við þeirri
aðför sem nú er gerð að smábátaútgerð í
landinu.
Forrœðisdeila Halims Al og Sophiu Hansen tekur óvœnta stefnu:
Er Halim Al ekki Tyrki?
Réttað yfir honum á morgun vegna ítrekaðra brota á umgengnisrétti móður
Ekki er lengur Ijóst hvort Halim Al er
tyrkneskur eða íslenskur ríkisborgari.
Samkvæmt tyrkneskum lögum þarf
tyrkneskur ríkisborgari sem sækir um
ríkisborgararétt í öðru landi að sækja
um leyfi til yfirvalda.Ekki eru til neinar
heimildir sem sýna að Halim hafi gert
neitt slíkt áður en honum var veittur
ríkisborgararéttur hérlendis 13. apríl
1987.
Viðurlögin við brotum á þessu ákvæði
era þau að viðkomandi aðili er sviptur rétt-
indum sínum sem tyrkneskur ríkisborgari í
fimm ár. Ef tilfelli Halims A1 er á þessa leið
hefur það þá þýðingu að Halim er nú Is-
lendingur á tyrkneskri grand, með íslensk
böm íslenskrar móður, sem hefur forræði
yfir bömum þeirra samkvæmt úrskurði ís-
íensks dómsvalds. Alþýðublaðið ræddi í
gærkvöldi um málið við Sigurð Pétur Harð-
arson talsmann samtakanna bömin heim og
sagði hann að lögfræðingur Sophiu Hansen
hefði komist að þessu fyrir tilviljun. Það
gerðist með þeim hætti að til hans leitaði
Tyrki með hollenskt vegabréf, sem láðst
hafði að sækja um leyfi til Tyrkneskra
stjómvalda og stóð frammi fyrir því að
þurfa að bíða í fimm ár áður en hann gæti
fengið tyrkneskan ríkisborgararétt að nýju.
Sigurður Pétur sagði að réttað yrði í mál-
um Halims á morgun vegna brota hans á
umgengnisrétti Sophiu Hansen við dætur
hennar.