Alþýðublaðið - 23.03.1993, Síða 1
Gengisfellingakór og tal um launalœkkun
EKKI GRUNDVÖLLUR
TIL SAMNINGSGERDAR
/
-segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands Islands
„Þær aðstæður sem mér sýnast nú
að koma upp með háværum gengis-
fellingakór, skapa ekki þær aðstæð-
ur sem nauðsynlegar eru til samn-
ingagerðar", sagði Benedikt Dav-
íðsson, forseti Alþýðusambands Is-
lands, í samtali við Alþýðublaðið .
„Eg get ekki séð neinn samnings-
grundvöll meðan þannig er talað úr
herbúðum vinnuveitenda og ekkert
formlegt frá þeim að hafa. Formað-
ur þei'rra hefur hátt í þessum efnum,
og meðan svo er verður lítið að-
hafst“, sagði Benedikt.
Hann sagði að ennfremur væri
rætt um launalækkanir í blaðafrétt-
um. Slíkt væri bókstaflega út af
kortinu og ekki til viðræðu af hálfu
. verkalýðshreyfingarinnar í landinu.
„Það er mín reynsla að enda þótt
stjómmálamenn hafni í orði gengis-
fellingum. þá sé vart orði treystandi
í þeim efnum. Annars get ég tekið
undir með Jóni Baldvini, að gengis-
felling er aðgerð sem má líkja við
það að pissa í skóinn sinn. Taktu
bara eftir því að eftir sfðustu gengis-
fellingu er staða sjávarútvegsins
orðin enn lakari en fyrr“.
Benedikt sagði að ein aðalkrafa
verkalýðsins í dag væri að matvöru-
verð lækkaði, en það yrði gert með
þvf að koma á þrepum í virðisauka-
skatti. Skattur á matvöru yrði lækk-
aður í 14%. Með því móti yrði kom-
ið til móts við þá launþega sem
minnst bera úr býtum og eyða til-
tölulega meiru til nauðþurftanna en
þeir sem meiri hafa launin. Sagðist
Benedikt ekki geta eygt neina mein-
Svokölluð sveitafélaganefnd
kemur væntanlega saman til fundar
í dag, þar sem þess verður freistað
að ná samkomulagi um sameiningu
sveitarfélaga í landinu. Inntakið í
tillögum nefndarinnar er að sveitar-
félögin verði færri og stærri t>g geti
þannig tekið fleiri verkefni frá rík-
inu.
Nefndin mun leggja til við félags-
málaráðherra að stofnuð verði sam-
ráðsnefnd sem á að vinna að fram-
gangi málsins til ársloka 1994. Lagt
er til að einnig verði settar á fót um-
dæmisnefndir í öllum landshlutum
sem geri, fyrir 15 september n.k, til-
lögu að nýrri skiptingu landshluta í
sveitarfélög sem greidd verði at-
kvæði um. Búast má við að kosið
bugi á því að koma á þrepum í virð-
isaukaskatti, sú aðgerð væri þekkt í
verði um sameiningu í nóvember
1994, og þar verða atkvæði talin
fyrir hvert og eitt sveitarfélag, sem
þannig fá nokkurskonar neitunar-
vald ef þau fella sameiningu.
Nokkuð breið samstaða virðist
vera innan sveitafélaganefndarinnar
um stofnun reynslusveitarfélaga til
þess að undirbúa frekari samein-
ingu. Lagt er til að þingsályktunar-
tillaga um reynslusveitarfélög verði
afgreidd frá Alþingi í vor og þau
starfi frá byrjun árs 1995 til loka árs
1998.
Gert er ráð fyrir að þau taki í til-
raunaskyni við nýjum verkefnum,
hafi meira frelsi til ákvarðanatöku
og reyni nýtt rekstrarfyrirkomulag
og fjármögnunarform.
öðrum löndum og þætti ekkert til-
tökumál.
Nefndin leggur til að félagsmála-
, menntamála- og fjármálaráðuneyti
og Samband sveitarfélaga undirbúi
tillögur sem geri ráð fyrir að rekstur
grunnskóla flytjist að fullu til sveit-
arfélaga frá og með 1. ágúst 1995.
Til að mæta auknum kostnaði er
lagt til að hlutdeild sveitarfélaga í
staðgreiðslu hækki og greiðslur úr
Jöfnunarsjóði verði auknar.
Samkvæmt upplýsingum AI-
þýðublaðsins þá mun félagsmála-
ráðherra, sem fer með sveitarstjóm-
armál, lítast ágætlega á tillögumar,
enda hefur samráð milli ráðherra og
sveitarstjómarmanna verið mikið í
þessu máli.
Sjá nánar um sameiningarmál
bls. 2.
Nœst samkomulag um sameiningarmál í dag?
Sveitarfélögin reki
skólana ffrá 1995
Kosið um sameiningu í nóvember 1994.
168 rúllur af salernis-
pappír í Engihjallanum!
Það sannast á þessari skondnu mynd hið fornkveðna að þegar harðnar í ári fara
smáfuglar að keppast við að safna í forðabúrið. En öllu má auðvitað ofgera...
Samkvæmt vísindalegri mæiingu Alþýðublaðsins eru þetta 168 rúllur af salern-
ispappír á myndinni. Það hefur verið vænlegt rjóður sem lét í ntinni pokann fyr-
ir erlendum skógarhöggsmönnum í þetta skiptið. Og útkoman? Ekki slæm:
Hreinlegir afturendar á vísitölufjölskyldu í þá tólf mánuði sem tekur að klára
pappírinn. -A-mynd E.Ól.
NÝ EFNALAUG
Bjóðum upp á hreinsun á fatnaði s.s. skyrtum, dúkum,
gluggatjöldum og mottum.
Kona með margra ára reynslu í meðferð á viðkvæmum fatnaði
Afgreiðum gluggatjöld samdægurs.
Erum einnig með alhliða viðgerðarþjónustu.
Bændur vilja
dugleg norræn
ungmenni í vinnu
Hún Ása Hreggviðsdóttir hjá Nordjobb hefur í mörg
hom að líta þessa dagana. Nærri fimm hundruð íslensk
ungmenni hafa óskað eftir að komast í vinnu á Norður-
löndum, en færri fá en vilja. Hingað koma í staðinn nor-
ræn ungmenni, sem leggja hönd á plóg hér á landi í sum-
ar. Bændur hér á landi taka hinum harðduglegu frændum
okkarvel. SJÁ BLS. 3
Ása Hreggviðsdóttir, - hún stjórnar vcrkefninu Nordjobb á
Islandi, sendir um hundrað íslendinga utan og tekur á móti
70- 80 norrænum „frændum“ og „frænkunt“.
Flosna 500-700
bændur upp frú
búum sínum -
eignaliflir?
SJÁ BLS. 3