Alþýðublaðið - 23.03.1993, Page 6
6
Þriðjudagur 23. mars 1993
Með Baldri yfir Breiðafjörð - vinsœl sjóferð með viðkomu í Flatey
SJÓNARHORN
SJÖ AF TÍII HAFA EKKI
KOMIÐ A VESTFIRÐINA
Ferðamálamenn undirbúa sig sein
mest má verða fyrir páskavertíðina í ár.
Ljóst er að eftir þungan vetur vænta
menn veðursælla páska og mikilla ferða-
laga innanlands.
Guðmundur Lárusson, ferðakóngurinn í
Hólminum, sagði í samtali við Alþýðublað-
ið að reiknað væri með miklum mannaferð-
um um Snæfellsnes um páskana nú eins og
endranær. Guðmundur rekur Flóabátinn
Baldur, einskonar þjóðveg yfir ála Breiða-
fjarðarins, vinsæla leið hjá ferðafólki, sem
vill stytta sér leið yfir á Vestfjarðakjálkann
um 200 kílómetra.
„Fólk sem komið hefur á Vestfirðina
verður yfir sig heillað af því sérstæða og
hrífandi landslagi sem þar er að finna.
Flestir sem þangað hafa komið, fara aftur
og aftur“, sagði Guðmundur.
„Það er hinsvegar sérkennilegt að svo
virðist sem 70% af þjóðinni hafi aldrei á
Vestfirðina komið. Það fólk hefur eitthvað
til að hlakka til og ætti að drífa sig sem fyrst
í ferðalag þangað“, sagði Guðmundur.
Baldur er vinsæll ferðamáti, ekki síst
vegna þess að fólki gefst kostur á að verja
dagparti í Flatey. Ferjan er í förum tvisvar á
dag milli Stykkishólms og Brjánslækjar á
Barðaströnd með viðkomu í Flatey á báð-
um leiðum.
í Flatey gefst tími til að skoða sig um og
fara í ógleymanlegar skoðunarferðir í úteyj-
amar. Hægt er að doka við í eynni 2 tíma
hið minnsta, en mest í 6 tíma, nema menn
dvelji þar yfir nóttina.
Ferðin með Baldri yfir Breiðafjörð kost-
ar 1.300 krónur á einstaklinginn, 3.000 fyr-
ir bfiinn. Síðan koma til afslættir fyrir hvem
farþega.
Hreint ekki dýrt ferðalag, en sérlega
skemmtileg sjóferð.
GUÐMUNDUR LÁRUSSON, - sjö af hverjum
tíu íslendingum hefur aldrei séð náttúruundur
Vestfjarðakjálkans.
Þúsundir heimsóttu Háskólann
Talið er að milli 6 og 7 þúsund manns, einkum fólk af yngri kvnslóðinni, hafi lagt leið sína í Há-
skóla íslands og aðra skóla á háskólastigi, sem kynntu starfsemi sína um helgina. Ljóst er að ungt
fólk í dag lætur ekki deigan síga, þrátt fyrir mikið bölmóðstal, sem nú virðist svo mjög í tísku. Það
hugsar fram í tímann og hyggur að framtíðarstarfinu, hvert svo sem það kann að vcrða. Mikill
fjöldi gesta var allan daginn í bvggingum á háskólasvæðinu og þeir sem sátu fyrir svörum hölðu
kappnóg að gera. Myndin var tekin við upphaf kynningarinnar. Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir, fyrrverandi alþingismaður, formaður nefndarinnar sem annaðist um kynninguna, ávarpar
boðsgesti. -A-mynd E. Ól.
Dr. Ingi skipaður prófessor í sagnfrœði:
Umdeildur dösent
fær stöduhækkun!
-Dr. Ingi: séní sem kláraði sagnfræðina á sínum tíma ári á undan öðrum: Lokaður einfari og afkastal-
ítill frœðimaður, kunnugir segja ástœðuna frekar verafeimni og fullkomnunaráráttu en leti
Háskóli Islands hefur verið mikið í
sviðsljósinu undanfarin misseri, ýmissa
hluta vegna. Um síðustu helgi var til að
mynda kynningarátak á vegum skólans
fyrir almenning. En hverskonar kennar-
ar eru við skólann? Alþýðublaðið fór á
stúfana og spurðist fyrir um nýjasta pró-
fessorinn við heimspekideildina, dr. Inga
Sigurðsson.
Heimildarmenn blaðsins sögðu hann
vera ágætan kennara og gæðablóð fram í
fingurgóma en helst til of lokaðan og feim-
inn. Skoðum nokkrar skemmtilegar um-
sagnir: „Doktor Ingi er afar sérstakur ka-
rakter, haldinn fullkómnunaráráttu á háu
stigi, erfeiminn og hefur ríka tilhneigingu
til að fara einförum. “
„Hann er mjög skipulagður og duglegur,
það má sjá Ijós á skrifstofunni hans á helg-
ustu dögum ársins. Helsti gallinn á Inga er
hversu lítið liggur eftir hann áfrœðisviðinu.
Þar er stærsti orsakavaldurínn sennilega
feimnin og óframfœrnin ásamt fullkomnun-
aráráttunni. “
„Hann er maður með undarleg áhuga-
mál. Afhverju skrifar kennari í sagnfrœði á
Islandi lœrða ritgerð um sögu skógrœktar á
Skotlandi?" „Hann á etfitt með að tjá sig
vegna feimni, það háir honum virkilega í
kennslu. “
Látum þetta duga af palladómum og snú-
um okkur að faglegri umfjöllun. Athugum
nánar þennan nýja prófessor við heimspeki-
deildina og störf hans.
Dr. Ingi Sigurðsson er fæddur árið 1946
og er ættaður frá Reykjum í Lundareykja-
dal. Hann varð stúdent frá Laugarvatni og
Wuraði síðan sagnfræðina við Háskóla ís-
lands á tveimur árum í stað hinna hefð-
bundnu þriggja til fjögurra. Dr. Ingi lauk
doktorsprófi frá Edinborgarháskóla árið
1972 og fjallaði doktorsritgerð hans um
sagnaritun Jóns Espólíns og íslenskra sam-
tímamanna hans á tímabilinu frá um 1790
lil um 1830.
Dr. Ingi hefur stundað viðamiklar rann-
sóknir á sviðum hugmyndasögu og menn-
ingarsögu. Sérstaklega hefur hann rannsak-
að sögu sagnfræðinnar og áhrif upplýsing-
arinnar og annarra Ijölþjóðlegra hug-
myndastefna á íslandi. Auk þess hefur liann
unnið að rannsóknum á sögu Skotlands.
Hann starfaði sem bókavörður við Há-
skólabókasafnið á árunum 1972-81. Var
jafnframt stundakennari við Háskólann á
árunum 1975-81. Dr. Ingi varskipaður lekt-
or í sagnfræði við heimspekideild HI árið
1981, dósent árið 1986, settur prófessor
1987-88 og nú prófessor frá og með 1. maí
1992.
í tilefni þess að dr Ingi hefur verið skip-
aður prófessor í sagnfræði við heimspeki-
deild Háskóla íslands flytur hann opinberan
fyrirlestur á vegum deildarinnar . Fyrirlest-
urinn ber hina tilkomumiklu yfirskrift,
„Arfleifð upplýsingarinnar og útgáfa
fræðslurita á íslenzku".
Fyrirlesturinn verður haldinn stofu 101 í
Odda (HI), næstkomandi fimmtudag, 25.
mars, klukkan 17:15.
Hann er öllum opinn á meðan húsrúm
leyfir. Þama gefst almenningi kærkomið
tækifæri til að hlusta á og virða fyrir sér at-
hyglisvert dæmi um íslenskan fræðimann,
eins og þeir gerast dæmigerðastir.
Dr. Ingi Sigurðsson, maður með
„undarleg áhugamál“.
A-mynd E.ÓI.
Mogginn veitir Markúsi Á.
veðurstofustjóraembœttið:
Metnaðargirni
Markúsar
eða - mannleg
Moggamistök
-Innlendar fréttir á
Morgunblaðinu veittu
Markúsi Á. „eftirá-
stöðuhœkkun “ síðastlið-
innföstudag ogfelldu
um leið gengi Magnúsar
Jónssonar. Minntist ein-
hverá „Moggalygi“?
Þau skemmtilegu (?) mistök voru
gerð við vinnslu Innlendra frétta í
Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag
að Markús A. Einarsson var titlaður
veðurstofustjóri af umsjónannönnunt
fréttanna. Þessa lítt dulbúnu „stöðu-
hækkun“ Markúsar A. var að finna í
upphafi viðtals í lítilli frétt á blaðsíðu
20 sem bar fyrirsögnina, „Aðeins veð-
urskeyti frá veðurskipi hefðu nýst“.
Fyrsta línan byrjaði þannig, „Markús
A. Einarsson veðurstofustjóri".
Alþýðublaðið veit betur en það og
þessi nýtilkomna „stöðuhækkun“
Markúsar er sannkallað fyrirfram apr-
figabb þvf umhverfisráðherra er rétt
nýbúinn að skipa Magnús Jónsson í
starf veðurstofustjóra og hið rétta í
málinu er að Markús A. ber stöðuheit-
ið deildarstjóri veðurspádeildar.
Þegar Alþýðublaðið hafði samband
við Magnús Jónsson, hinn eina sanna
veðurstofustjóra, til að grennslast fyrir
um málið þá sagðist Magnús aðspurð-
ur ekki telja þetta einhverja dulda
metnaðargimi í Markúsi heldur væru
þetta einfaldlega mannleg mistök um-
sjónarmanna Innlendra frétta á Morgu-
blaðinu.
Magnús er sem sagt veðustofustjóri
og Markús Á. heldur sinni stöðu áfram
sem deildarstjóri þar á bæ, hvað sem
Mogginn segir. Oafsönnuð er þó get-
gátan um dulda metnaðargirni Mark-
úsar Á. Einarssonar. Sagðist hann vera
veðurstofustjóri, eða hvað? Hvað segir
Mogginn um málið?
Alþýðublaðið hefur enn ekki séð
leiðréttingu á þessum mistökum
Moggamanna, en ef hún hefur birst þá
er það hið besta mál og vonandi hafa
þeir á veðurstofunni þá fyrirgefið
þeim. Væntanlega fylgist Morgun-
blaðið betur með stöðuveitingum hér á
landi í framtíðinni.
Ætli Styrmir Gunnarsson ræki ekki
upp ramakvein ef Alþýðublaðið færi
að titla Sigtrygg Sigtryggsson, frétta-
stjóra, sem ritstjóra Moggans upp úr
þurru?
MARKÚS Á. Einarsson veður-
stofustiérl segir að ekki sé hægt
að spá fyrir um krappa smálægð
eins og gekk yfir landið í fyrra-
dag, svokallaða pólarlægð,
Frétt í Morgunblaöinu, föstudaginn 19.
mars, 1993.
Magnús Jónsson: Nýskipaður veður-
stofustjóri og kominn til að vera, hverju
svo sem Mogginn heldur fram.