Alþýðublaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 1
MMMBIMÐ Flmmtudagur 25. mars 1993 47. TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR BKKHBm Stórsigur Sighvatar Björgvinssonar og heilbrigðisráðuneytisins - Ríkisendurskoðun staðfestir stórfelldan sparnað án þess að þjónusta hafi skerst SPARAR 560 MILUÓNIR Allt síðasta ár mátti hcilbrigð- isráðherra, Sighvatur Björgvins- son, sitja undir þungum ákúrum úr ýmsum áttum fyrir niður- skurð í heilbrigðiskerfinu. Ekki síst átti það við um hagræðing- Verð fyrir sjávarafurðir Kcmnast ekki vid verðfall s - segir Benedikt Sveinsson hjá Islenskum sjávarafurðum Benedikt segir sumar afurðir hefðu verið undir verðþrýstingi en aðrar ekki. Þannig hefði verið þungur markaður í Evrópu fyrir ákveðnar pakkningar. Hann sagði að sölumálin hefðu engu að síður gengið yfirleitt nokkuð vel en fyrir- tækið væri að selja sjávarafurðir á mismunandi markaði um allan heim. „Verðfall á sjávarafurðum könnumst við ekki við en það fer nokkuð eftir mörkuðum hver verðþróunin hefur orðið“ sagði Benedikt Sveinsson, fram- kvæmdasíjóri Islenskra sjávaraf- urða hf. í samtali við Alþýðublað- ið í gær. Hann sagði að almennt hefði útflutningur á vegum fyrir- tækisins gengið nokkuð vel. una sem gerð var í sjúkrahúsmál- um. Ríkisendurskoðun var feng- in til að kanna hvað aðgerðirnar höfðu að segja árið 1992, og nú liggur niðurstaðan fyrir. Niðurskurðurinn hefur sparað ís- lenskum skattborgurum 560 ntillj- ónir króna á einu ári - án þess að það kæmi niður á þeirri þjónustu sem sjúkrahúsin veita. Jafnframt kom í Ijós að biðlistar við hinar ýmsu deildir sjúkrahús- anna hafa ekki lengst, eins og spáð var, þeir hafa styst í fjölmörgum til- vikum. „Það voru margir sem gagnrýndu þessar aðgerðir okkar, að flytja bráðamóttöku sjúklinga frá Landa- koti yfir á Borgarspítala, og sam- einingu fæðingarstofnana. Menn sögðu að kostnaðurinn yrði meiri en áður, en nú hefur annað komið í ljós. Raunar er árangur þessara að- gerða mun meiri og betri en við átt- unt von á“, sagði Sighvatur Björg- vinsson, heilbrigðisráðherra í sam- tali við Alþýðublaðið í gær. Nánar um árangurs- ríkar sparnaðaraó- gerðir á bls. 3 Sameinaðir verktakar á Hótel Sögu í gœr 600 milljóna greiðslur blásnar úl af borðinu Drjúgur hópur athufnamanna mætti síðdegis í gærdag til hlut- hafafundar Sameinaðra verk- taka á Hótel Sögu. Til þessa fund- ar var boðað að ósk svokallaðra „umbótasinna" innan félagsins. Tillögur þess hóps hafa verið þær að greiða út sjóði þessa gamla og óvirka verktakafyrirtækis, sem þénaði vel á varnarliðsfram- kvæmdum á árum áður. Þetta hefði þýtt útborgun á 600 millj- ónum á ári í þrjú ár, alls 1,8 millj- örðum króna. Til fundar mættu umboðsmenn fyrir 91% hlutafjárins, um 30 manns. Umbótasinnar komu fram með áðurgreinda tillögu, sem stjómin með Jón Halldórsson, lög- mann, í fararbroddi, mætti með breytingartillögu. Sú tillaga gengur út á að kosin skyldi nefnd til að vinna að stefnu- mótun í útgreiðslu á arði félagsins, sem og að auka þátttöku í rekstri ís- lenskra aðalverktaka. Nefndin var kosin á fundinum og er skipuð þrem mönnunt, þeim Páli Gústafssyni, framkvæmdastjóra, Jakobi Bjamasyni, fulltrúa Reg- ins/Landsbankans, og Vilberg Vil- bergsson, rafverktaka. Þarf nefndin að vinna hratt og vel, því reiknað er með að aðal- fundur Sameinaðra verktaka verði haldinn í lok aprílmánaðar. Mönn- um sem Alþýðublaðið ræddi við í gær taldist svo til að 600 milljóna útgreiðslur til hluthafa séu hérmeð úr sögunni. 500 atvinnulausir unglingar í Reykjavík Skyndihjálp i stað ofbeldis Margir í svartri vinnu en þiggja bætur og hafa ekki tíma til að sœkja námskeið á vegum borgarinnar Góð reynsla hefur verið af námskeiðum sem íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hef- ur boðið upp á fyrir atvinnulausa Jón Sigurðsson um Seðlabankafmmvarpið Sjálfstæði bankans aukið Honum verði falið að framfylgja stefnu ípeningamálum sem hafi það meginmarkmið að tryggja lága verð- bólgu. Má alls ekki hlaða upp ofmikilli yfirstjórn og vel má rœða tillögu um einn aðalbankastjóra „Við megum alls ekki hlaða þarna upp alltof mikilli yfir- stjórn. Ég tel að kanna eigi vand- lega hvort komast megi af með færri menn í æðstu stjórn bank- ans. Það má vel ræða þá tillögu að hafa einn aðalbankastjóra,“ sagði Jón Sigurðsson banka- málaráðherra þegar frumvarp um breytingar á löguni Seðla- bankans var til uinræðu á Al- þingi í fyrradag. í umræðunni lagði Jón Sigurðs- son áherslu á aukið sjálfstæði Seðlabankans og skýrði hvað hann ætti við með því að segja: „í mínum huga er það fyrst og fremst það að sjálfstæðri stofnun sé falið að móta og framfylgja stefnu í peningamál- um, sem liafi það meginmarkmið að tryggja lága verðbólgu. í þessu skyni verði sjálfstæði bankans auk- ið gagnvart ríkisstjóminni í hinni daglegu stjóm peningamála. Hér er fyrst og fremst um breytta verka- skiptingu að ræða, ekki valdbreyt- ingu, ekki breytingu á valdahlut- fóllum, heldur það eitt að fela einni sjálfstæðri stofnun að gæta sérstak- lega þessa mikilvæga markmiðs í efttahagsmálum.“ Þá lagði bankamálaráðherra mikla áherslu á að ná niður raun- vöxtum en það ætti að vera eitt helsta verkefni Seðlabankans en það væri ekki auðvelt við núver- andi skilyrði. Hann varaði við „að menn dragi víðtækar ályktanir um það hvort frjálsræðið í vaxtamálum muni til lengdar duga betur eða miður út frá reynslu þeirra ára, sem liðin em frá því að vaxtafrelsið var innleitt hér, því það vill svo til að það er einmilt á tíma sem fellur saman við efnahagslægð, eina þá lengstu sem yftr heimsbúskapinn hefur gengið á seinni ámm - og reyndar enn lengri í okkar þjóðar- búskap. Ég vil láta í ljós þá skoðun að þar hafi margt tekist vel þótt sumt megi þó e.t.v. betur fara. Það er einmitt megintilgangur þessa Megintilgangur Seðlabankafmmvarpsins er að finna betri lausnir til að lækka vextina, segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. fmmvarps að ftnna betri lausnir til að lækka vextina." Unt bankaeftirlitið sagði Jón Sigurðsson að nefndin sem samdi seðlabankafmmvarpið hefði verið sammála um það að skynsamlegt væri við aðstæður hér að bankaeft- irlitið væri hluti af Seðlabankanum. Það væri reyndar í samrænii við þá þróun sem væri að verða í löndun- um næst okkur. „Þar var fyrir nokkmm ámm eins konar sjálf- stæðishreyfmg í gangi fyrir banka- eftirlitið en nú em menn komnir að þeirri niðurstöðu að það sé heppi- legast að tengja það við þá stofnun sem hefur yfirumsjón með lána- markaðnum, seðlabanka. Þetta gildir áreiðanlega í okkar fántenni. Því mjög oft er nú kvartað yfir há- timbmðum yfirbyggingum í okkar samfélagi, ekki síst í Seðlabankan- um“, sagði Jón Sigurðsson banka- málaráðherra. Sjá nánar um Seðiabanka- frumvarpið í opnu unglingu í borginni. Um 30 ung- lingar tóku þátt í starfsþjálfun og fræðslu í desember s.l. og fengu í kjölfar þess vinnu við félagsmið- stöðvar, skíðasvæði og sundlaug- ar á vegum borgarinnar. Ráðn- ingartíminn er fjórir mánuðir og sumir hafa staðið sig svo vel að þeir verða ráðnir áfram. „Þörfin fyrir svona námskeið er greinilega mikil því um 200 ung- menni á aldrinum 16-20 em á at- vinnuleysisskrá, en við höfum tölur um að í raun sé þessi hópur mun stærri, eða um 500 manns. Þátttak- an á námskeiðunum hefur einnig verið mikil og nú em um 100 manns á 8 námskeiðum hjá okkur", segir Grétar Þór Eyþórsson at- vinnuráðgjafi hjá íþrótta- og tóm- stundaráði. Hann segir að boðið sé upp á ýmislegt, allt frá leiklist til ljósmyndunar og að námskeið í skyndihjálp geti haft úrslitaáhrif á það hvort unglingur fær vinnu t.d. við gæslu í sundlaug. Það sé því rnjög gott að geta boðið upp á eitt- hvað fyrir þessa einstaklinga og náð þeint af götunni þar sem ofbeldi og afbrot hafi aukist. Skráning atvinnulausra virðist hins vegarekki vera mjög nákvæm. Margir vita ekki um rétt sinn og svo eru aðrir sem spila á kerfið og þiggja bætur, en em santt í svartri vinnu. Það kom í ljós þegar starfs- menn íþrótta- og tómstundaráðs fóm að hringja í atvinnulaus ung- menni sem vom á skrá, að suntir höfðu ekki tíma til að koma á nánt- skeið vegna þess að þau höfðu svo mikið að gera í vinnunni. Sjá viðtal við Grétar Þór og Markús Guðmunds- son á bls. 7. ALÞYÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavílc - Sími 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.