Alþýðublaðið - 25.03.1993, Side 7

Alþýðublaðið - 25.03.1993, Side 7
Fimmtudagur 25. mars 1993 7 Atvinnulausum unglingum hjálpað Af götunni í vinnu Rœtt við Grétar Þór Eyþórsson og Markús Guðmundsson um starfsþjálfun ogfrœðslu fyrir atvinnulaus ungmenni Starfsmenn Iþrótta- og tómstundaráðs, Grétar Þór Eyþórsson og Markús H. Guðmundsson, segja að starfsþjálfun og fræðsla atvinnulausra unglinga hafi þegar skilað árangri. í baksýn má sjá leiðbeinanda og nemendur í skyndihjáip. Atvinnuleysi hefur farið vaxandi í Reykjavík, eins og annarsstaðar á land- inu. Sá hópur sem of lítill gauntur hefur verið gefinn eru atvinnulausir unglingar á aldrinum 16 til 20 ára, en það eru þeir sem hafa flosnað upp frá námi og fá ekki aðgang að vinnumarkaðnum. Áætla má að um 500 ungmenni gangi aðgerðalaus um götur borgarinnar og því er forvitni- legt að vita hvort eitthvað sé í boði fyrir þetta unga fólk sem gæti bætt þeirra stöðu. Við lögðum því Ieið okkar í Hitt Húsið (Gamla Þórscafé) þar sem Reykja- víkurborg rekur miðstöð fyrir unglinga. Þar urðu fyrir svörum Markús H. Guð- mundsson og Grétar Þór Eyþórsson starfsmenn íþrótta og tómstundaráðs. Glæpum fjölgar Markús: Þetta vandamál kom auðvitað inn á okkar borð þegar atvinnuleysið fór að aukast jafn mikið og raun ber vitni og okkur fór auðvitað að gruna að ástandið væri hvað verst hjá því fólki sem hefur minnstu reynsl- una á vinnumarkaðnum, þ.e.a.s. ungmenn- um á aldrinum 16 til 20 ára. Þetta kemur nteðal annars fram í auknum innbrotum og glæpum af ýmsum toga, mikið er 'af líkam- legu ofbeldi og það er verið að ræna gamlar konur. Aukning á slíkum afbrotum segir okkur auðvitað að eitthvað sé að. Þannig kemur þetta mál inn á borð stjómvalda og það var alveg greinilegt þegar við fórum að nefna hugmyndir til lausnar, í desember sfð- astliðnum, að þá tóku borgaryfirvöld mjög fljótt við sér. Um 500 atvinnulausir Grétar: Það er greinilega mikil þörf á að gera eitthvað í málinu því hópurinn er stærri en menn gmnar. Það er að vísu mjög erfitt að fá nákvæmar tölur um fjölda atvinnu- lausra. Bæði er það að gögnin urn þá sem em skráðir eru ekki mjög aðgengileg og svo líka að það er sennilega meirihlutinn sem ekki er á skrá. Ég hef þannig upplýsingar um 200 atvinnulausa á aldrinum 16-20 ára sem eru á skrá hjá borginni, en sé hins veg- ar tekið mið af vinnumarkaðskönnun Hag- stofunnar þá lætur nærri að þetta séu um 500 ungmenni. Þetta segir okkur að u.þ.b. 60- 65% af þessu fólki er án atvinnuleysisbóta. í felum Nú liefði maður haldið að langflestir á þessum aldri vœru í skóla, hvaða hópur er þetta sem þið eruð að fást við? Markús: Þetta em að langmestu leyti unglingar sem hafa flosnað upp frá námi eða hafa hreinlega aldrei ætlað sér lengra í námi. Mjög margir em að vísu búnir með eina eða tvær annir í framhaldsskóla og vita ekki al- mennilega hvað þeir vilja. Maður verður alltof mikið var við að þessir krakkar em hreinlega í felum í heimahúsum, þeir hafa misst allan áhuga á að bjarga sér og jafnvel misst alla von um framtíðina. Mér finnst þessi óvirki hópur mjög skrítinn. Það em unglingar sem virðast bara hanga heima og horfa á vídeó, gera ekki neitt og vilja ekki gera neitt. Skammast sín kannski fyrir að vera hvorki í skóla né að vinna. Grétar: Það má svo auðvitað skjóta því að hér að skólakerfið hentar einfaldlega ekki öllum. Við vitum það meðal annars að hing- að til hefur allt of mikið verið keyrt inn á bóklegt nám og stúdentspróf. Þetta hentar bara ekki öllum og því má spyrja sig að því hvort það sé ekki að koma í ljós núna að skólakerfið sé á rangri braut. Það er öllum beint í bóklega námið og krakkamir halda hópinn inn í framhaldsskólana, og svo detta sumir út eftir kannski eitt ár með nánast ekki neitt í höndunum. 30 unglingum boðið starf Hvaða hjálp hafið þið verið að veita, hvað getið þið gert fyrir atvinnulausa ung- linga? Markús: í desember síðastliðnum ákváðu borgaryfirvöld sérstaka fjárveitingu sem gefur 30 atvinnulausum ungmennum kost á vinnu í fjóra mánuði. Skilyrðið fyrir að fá þessa vinnu var háð því að þeir sæktu starfsþjálfunamámskeið sem tók hálfan mánuð. Við undirbjuggum þetta mjög vel, sendum öllum bréf og hringdum einnig. Unglingamir komu í viðtal til okkar þar sem við fengum upplýsingar um þeirra persónu- legu hagi og áhugamál, og hlustuðum á ósk- ir þeirra um störf. Eftir námskeiðið fóru þau síðan að vinna á félagsmiðstöðvum, skíða- svæðum, sundlaugum og íþróttahúsum á vegum borgarinnar, sem eru undir stjóm fþrótta- og tómstundaráðs. Þau verða í vinnu út aprílmánuð og fá um 50.000 krón- ur í laun á mánuði. Góð reynsla Hvernig hefurþetta reynst? Markús: Það er skemmtilegt að segja frá því að þessir unglingar hafa reynst mjög vel í vinnu og það sem meira er að líklega fá tveir eða þrír fasta ráðningu við félagsmið- stöðvar í borginni. Við erum því mjög ánægðir með árangurinn, en það væri auð- vitað betra ef hægt væri að ráða fleiri í fast starf með því að veita meiri peningum í íþróttageirann til dæmis. Við höfum semsagt fundið þarna mjög hæfa einstaklinga sem sumir hverjir eru að fá sína fyrstu starfsreynslu og fá því gott veganesti fyrir framtíðina. Ungling- arnir fá því reynslu sem gæti hjálpað þeim við að fá störf annarsstaðar og við gefum þeim auðvitað meðmæli ef þess er óskað. En svo eru aðrir sem þurfa félags- lega aðstoð og þurfa að vera áfram í vernduðu umhverfi. Grétar: Það sem er líka mikilvægt er að þessi starfstími hjá borginni veitir þeim einnig rétt á atvinnuleysisbótum eftir á; ef þau fá ekki vinnu í framhaldi af þessu. Það eru bætur sem þau fengju annars ekki. En þetta er sem sagt mjög blandaður hóp- ur, allt frá því að vera nánast beint af göt- unni og upp í ofvemduð mömmuböm. Þau þurfa því mjög mismunandi aðstoð og við getum auðvitað ekki sinnt öllum alveg full- komlega. Við reynum hins vegar að koma þeim inn á réttar brautir og benda þeim á þá aðila sem geta hjálpað. Það er til dæmis mjög áberandi að ungt fólk í dag veit lítið sem ekkert um rétt sinn og hvað þeim yfir- höfuð stendur til boða. Það þarf að koma þessum upplýsingum til þeirra. Þau vita t.d. ekkert um atvinnuleysisbætur eða rétt sinn í verkalýðsfélögum og það er því eitt af verk- efnum atvinnuráðgjafans hér að veita þessa aðstoð. Svört vinna Það hefur mikið verið talað um unglinga ( svartri vinnu og jafnvel fólk sem er að svindla á bótakeifmu, verðið þið varir við þetta? Markús: Því er ekki að neita að við verð- um nokkuð mikið varir við þetta. Ungling- amir em mikið í íhlaupavinnu, svartri vinnu, t.d. á veitingahúsum, skyndibitastöðum og sjoppum. Það kom t.d. í ljós þegar ég var að hafa upp á þessu fólki í desember að sumir höfðu ekki tíma til þess að vera á námskeið- inu vegna þess að það var svo mikið að gera hjá þeim í vinnu út í bæ, en samt var það á atvinnuleysisskrá. Við höfum hins vegar ekkert vald eða eftirlitshlutverk til að taka á þessari misnotkun. Við getum auðvitað bent ráðningarskrifstofunni á þetta, en við getum ekki sett nein skilyrði og sagt, annað hvort tekur þú þessa vinnu eða verður tekinn út af skrá. Það er þvf miður þannig að sumir þiggja bætur án þess að vera atvinnulausir. Lykilinn að vinnu? Hvað er framundan í starfsþjálfun og frœðslu hjá Iþrótta og tómstundaráði? Grétar: Við reynum að taka á þessu á þann þátt að skapa einhvem fastan punkt í tilveruna fyrir unglingana. Við emm því með nokkur námskeið í gangi núna þar sem þeir fá einhverja hagnýta þekkingu og geta jafnframt sinnt áhugamálum sínum. Við auglýstum nokkuð mörg námskeið og sendum bréf til þeirra sem em á atvinnu- leysisskrá. Viðbrögðin voru mjög góð og núna em hjá okkur um 90-100 manns á átta námskeiðum. Valið er mjög fjölbreytt þar sem við bjóðum upp á t.d. skyndihjálp, köf- un, leiklist, myndbandagerð, ljósmyndun oa útvarpsþáttagerð. Þó við eigum kanski ekð’' von á að koma fólki að hjá fjölmiðlunum, þá getur t.d. námskeið í skyndihjálp gert úts- lagið með vinnu við sundlaugarbakka. Oll þekking kemur því að gagni og við verðum að benda unga fólkinu á hvemig sé hægt að nota hana. Það er því ljóst að bæði þörfin og þátttak- an er mikil. Þetta skilar ábyggilega árangri þegar til lengri tíma er litið og kentur ömgg- lega í veg fyrir frekari skemmdir á þessu unga fólki. Við verðum að gera okkur grein fyrir að 16-20 ára gamalt fólk em verðmæti og við megum ekki láta það grotna niður. Atvinnuleysi er nýtt vandamál á Islandi og við verðum að þreifa okkur áfram í því að reyna að leysa það. Margt bendir til þess að við verðum hins vegar að búa við atvinnu- leysi áfram þótt það sé óæskilegt. Það verð- ur því að byggja upp kerfi sem auðveldar okkur að búa við atvinnuleysi, þessi starfs- þjálfun og fræðsla fyrir unglinga er hluti af því. Þafi eru verðmæti í 16-20 ára gömlu fólki og því megum vifi ekki láta það grotna niður, segir m.a. í viðtalinu. Hvítir englar og aðrar Alþýðuflokkskonur! Páskafundur okkar verður haldinn í Litlu Brekku (við hliðina á Kornhlöðunni) miðvikudagskvöldið 31. mars 1993, kl. 19-21. Athugið breyttan fundarstað og fundartíma. Á fundinum verða bæði á dagskrá, mannréttindamál og skemmtiefni: 3J3H9W5Q4Z4S 2E9D2Y4U2C4S 2V7X1Ð2W5Y86K 2K5W6Ð0X2Y2B „Orð án hugsana, ná ekki til himins.” Stjórnin Samband ungra jafnaðarmanna BJÓRKVÖLD í KÓPAVOGI! Dagsetning: Föstudagskvöldið 26. mars, klukkan 21:00 Staður: Hamraborg (félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Kópavogi) Ungir jafnaðarmenn, nú fjölmennum við í Kópavoginn á föstudagskvöldið og skemmtum okkur ærlega saman. Tilefnið er ekkert og þannig á það að vera... Skyldumæting fyrir fólk sem gegnir embættum innan SUJ! Ýmsar óundirbúnar uppákomur & fjöldi leynigesta. Skiljið samkvæmisklæðnaðinn eftir heima. Skemmtinefndin.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.