Alþýðublaðið - 02.04.1993, Page 10

Alþýðublaðið - 02.04.1993, Page 10
10 Föstudagur 2. apríl 1993 RAÐAUGLÝSINGAR Frá Alþingi íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1. september 1993 til 31. ágúst 1994. Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúðinni sem er í St. Paulsgade 70 (skammt frá Jónshúsi). Hún er þriggja herbergja (um 80 ferm.), en auk þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúðinni fylgir allur nauðsynlegasti heimilisbún- aður og er hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúð- inni er að jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir atvikum. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu Alþing- is eigi síðar en 15. maí nk. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Enn fremur hvenær og hve lengi óskað er eftir íbúðinni. Tekið skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn. Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis í Al- þingishúsinu í Reykjavík og í sendiráði íslands í Kaup- mannahöfn. Vegna útfarar Selmu Dóru Þorsteinsdóttur, formanns Fóstrufélags íslands, verður skrif- stofa okkar lokuð frá kl. 14.00 í dag föstudag. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. qy/Æ V Útboð Landgræðsla á Norðurlandi vestra 1993 Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboðum í landgræðslu á Norð- urlandi vestra árið 1993. Helstu magntölur: Nýsáning 53 hektarar og áburðardreifing 22 hektarar. Verki skal lokið 15. júlí 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðár- króki og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 19. apríl 1993. Vegamálastjóri Aðalfundur Islandsdeildar Amnesty International verður haldinn laugardaginn 3. apríl í Kornhlöðunni við Bankastræti. Fundurinn hefst kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið á fundinn. Verkakvennafélagið Framsókn Orlofshús sumarið 1993 Mánudaginn 5. apríl verður byrjað að taka á móti umsókn- um félagsmanna varðandi dvöl í orlofshúsum félagsins. Þeir sem ekki hafa áður dvalið í húsunum hafa forgang til umsókna 5.-7. apríl. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins að Skipholti 50a, frá kl. 9-17 alla dagana. Ath. Ekki er tekið á móti umsóknum í síma. Félagið á 3 hús í Ölfusborgum 1 hús í Flókalundi 2 hús á Húsafelli 1 hús í Svignaskarði og íbúð á Akureyri, einnig fjórar vikur á lllugastöðum og 1 viku á Einarsstöðum. Stjórnin Framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar Miklar framkvæmdir standa nú yfir í miðbæ Hafnarfjarðar. Byggingaframkvæmdir eru hafnar við verslunarmiðstöð og unnið er að gatnagerð. Af þessum sökum er óhjákvæmilegt að röskun verði á umferð. Fyrirhugaðar eru malbikunar- framkvæmdir í vor. í KVÖLD Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík VORSKEMMTUN Dagsetning: Föstudagskvöldiö 2. apríl, 1993. - Staösetning: Brautarholt 26 - Reykjavík. Upphaf: Klukkan 22:00. Endir: Alveg óákveðinn. DAGSKRÁ: 1. Dansiball! Dansiball! Dansiball! 2. Úthugsuð skemmtiatriði... 3. Veitingar á kostnaðarverði 4. Miðnætursnarl „par exellance“ 5. Önnur (vafa)mál... Veislustjóri: Össur Skarphéðinsson ALLIR JAFNAÐARMENN BOÐNIR VELKOMNIR! Miðasala á skrifstofum Alþýðuflokksins. Skemmtinefndin Bæjarverkfræðingur Er einhver að taka til á háaloftinu? Gæti verið að þar leyndust gömul hafnfirsk blöð, tímarit, bæklingar eða annað prentað mál sem amma, afi, mamma eða pabbi söfnuðu hér á árum áður en þið viljið gjarnan losna við í góðar hendur? Ef svo er þá er tækifær- ið komið því skjalasafn og átthagadeild Bókasafns Hafn- arfjarðar vantar tilfinnanlega ýmis blöð, tímarit og bæk- linga sem þið gætuð lumað á og jafnvel haldið að væri best geymt í ruslinu. Okkur þætti vænt um að þið töluðuð fyrst við okkur á bókasafninu eða kæmuð því til okkar að Mjósundi 12 í stað þess að aka því til Sorpu. Bæjarbókasafnið Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði Vettvangsferð Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði fer í vett- vangsferð um bæinn næstkomandi laugardag, 3. apríl, og verður lagt af stað frá Alþýðuhúsinu við Strandgötu kl. 11:00. Að skoðunaferð lokinni verður sest niður yfir kaffi- bolla og kökum í Alþýðuhúsinu. Allt Alþýðuflokksfólk velkomið Bæjarmálaráð

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.