Alþýðublaðið - 27.04.1993, Page 1
fcɣ
Jámsmiðjan gamla verður að leik-
skóla, ásamt byggingunum fyrir
sunnan, en þær eru við Veghúsa-
stíg.
Gamla járn-
smiðjan verður
leikskóli
Bergur Felixson forstöðu-
maður Dagvistar barna í
Reykjavík segir að frétt AI-
þýðublaðsins af húsakaupum
borgarinnar af Film hf., fyrir-
taki Hrafns Gunnlaugssonar,
að Lindargötu 24 og 26 hafi
ekki sagt allan sannleikann um
þær eignir sem þar sé um að
ræða. Þar sé um að ræða þrjú
hús en ekki aðeins húshróin tvö,
sem blaðið birti mynd af á
fimmtudaginn var.
Þriðja húsið er gömul jám-
smiðja, heldur lítið ásjáleg í nú-
verandi ástandi. Það er einmitt
þessi bygging ásamt húsi við
Veghúsastíg, þar sem í fymdinni
var bókaútgáfa Ragnars Jónsson-
ar í Smára, Helgafell, sem gera á
upp sem leikskóla fyrir böm á
miðborgarsvæðinu.
Hjörleifur B. Kvaran, fram-
kvæmdastjóri stjómsýslu og lög-
fræðideildar borgarinnar, segir í
bréfi sínu til borgarráðs 5. apríl
síðastliðinn að ákjósanlegt sé að
kaupa fastcignir þessar og breyta
hluta þeirra í leikskóla.
Viðræður hafi átt sér stað við
eigendur fasteignanna og sam-
komulag tekist við þá um kaup á
eignunum.
Kaupverð eignanna við Lindar-
götu er eins og fram hefur komið
14 milljónir króna, en verð eign-
anna við Veghúsastíg 11 milljónir
króna. Gert er ráð fyrir því að
greiða út helming kaupverðs við
samning, en afganginn á skulda-
bréfi til 3-4 ára. Kaupin eru gerð
með fyrirvara um að heimild fáist
til þess að rífa þau hús sem þurfa
að víkja vegna fyrirhugaðs leik-
skóla og að heimilað verði að
sameina þær lóðir sem að framan
greinir.
Hjörleifur segir í bréfi sínu að
byggingadeild borgarinnar hafi
áætlað að nýr leikskóli af þeirri
stærð sem gert er ráð fyrir á þess-
um stað, kosti um 60 milljónir
króna, en kostnaður við breyting-
ar og brottflutning húsa talinn um
49 milljónir króna. Sé kaupverði
fasteignanna, 25 milljónum
króna, bætt við kosmaðinn við
breytingar, megi gera ráð fyrir að
leikskólinn kosti 74 milljónir, -
eða 14 milljón krónum meira en
nýr leikskóli mundi kosta. Bendir
Hjörleifur á að vert sé að hafa í
huga að kostnaður við lóðir hafi
ekki verið reiknaður með í bygg-
ingarkostnaði nýrra leikskóla til
þessa.
Kaupverð lóðanna telur Hjör-
leifur B. Kvaran ekki óeðlilegt,
reyndar telur hann það afar hag-
stætt. Hann segir að fyrir liggi möt
tveggja fasteignasala, sem metið
hafi eignimar þtjár við Lindar-
götu. Þeir hafa metið eignimar á
17-19 milljónir.
Bergur Felixson sagði í samtali
við Alþýðublaðið að á Skúlagötu-
svæðinu og í gamla miðbænum
væri vaxandi þörf fyrir leikskóla.
Þar á blokkarbyggð eftir að þéttast
til muna. Dagvist bama hafi verið
búin að óska eftir lóð fyrir leik-
skóla á svæðinu.
Jón Baldvin um meðferð sjávarútvegsstefnu á Alþingi:
Sumarþing æskilegt
Ekki þingmeirihluti fyrir tillögum Tvíhöfðanefndar um smábátaútgerð,
segir Össur Skarphéðinsson.
Þetta komfram áflokksstjómarfundiAlþýðuflokksinsáAkranesi um helgina
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, sagði
á flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins um sjávarútvegsmál á
Akranesi á laugardaginn að hann
teldi það æskilegt að þingi yrði
haldið áfram út maímánuð til
þess að afgreiða frumvörp til
breytinga á sjávarútvegsstefn-
unni. Þetta kom fram í svari hans
við spurningu utan úr sal um það
hvort ætlunin væri að keyra til-
lögur Tvíhöfðanefndarínnar í
frumvarpsformi í gegnum Al-
þingi fyrir þinglok.
Fram kom í máli Jóns Baldvins
að ekki hefði verið tekin ákvörðun
um að afgreiða málið á þessu þingi.
Um það væru skiptar skoðanir og
það væm rniklir annmarkar á því að
fresta málinu. Þeir væm m.a. fólgn-
ir í því að í haust væri komið annað
fiskveiðiár og erfitt væri að breyta
lögunum á miðju fiskveiðiári. Hann
sagði að það væri því æskilegra að
frumvarpið komi ffam núna á þessu
vori og þinghaldi verði framhaldið
eitthvað ffam á sumar til þess að
fást við þetta stóra mál.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins mun sjávarútvegsráðherra
kynna tillögur sínar í ríkisstjóm í
dag og í framhaldi að því væntan-
lega leggja ffam tvö eða þijú ffum-
vörp um breytingar á fiskveiðilög-
um í samræmi við niðurstöður tví-
höfðanefndarinnar og samkomu-
lagið um Þróunarsjóðinn. Þá er
einnig líklegt að ráðherrann geri
einhveijar breytingar sem snúa að
smábátaútgerð og línuveiðum, en
þær tillögur hafa fengið hvað mesta
gagnrýni á fundum formanna Tví-
höfðanefndarinnar um landið.
Áætlað hefur verið að ljúka þingi
6. maí n.k. en óvíst er að svo verði
ef sjávarútvegsstefnan verður tekin
fyrir á þessu þingi. Þingflokkur Al-
þýðuflokksins fundaði um þing-
meðferðina í gær, en engin ákvörð-
un var tekin um málið. Þó hefur
blaðið heimildir fyrir því að allir
þingmenn Alþýðuflokksins séu til-
búnir til að sitja út maímánuð til
þess að ljúka þessu mikilvæga máli.
Össur vill breytingar
Á flokksstjómarfúndinum um
sjávanítvegsmál á Akranesi, lýsti
Ossur Skarphéðinsson starfandi
formaður Sjávarútvegsnefndar því
yfir að hann styddi ekki tillögur
Tvihöfðanefndarinnar sem snúa að
smábátaútgerð. Þar fullyrti hann
Jón Baldvin Hannibalsson formaður
Alþýðuflokksins á flokksstjómar-
fundinum á Akranesi.
ennffemur að enginn þingmeiri-
hluti væri fyrir tillögunum á Al-
þingi. Össur telur hins vegar að
hægt sé að ná einhverskonar mála-
miðlun um smábátana og um leið
meirihluta fyrir tillögunum á Al-
þingi.
Sjá nánar
um flokksstjórnarfundinn
á bls. 3 og 4.
Lagt ó
Leggjabrjót
íslenski hesturinn nýtur mik-
illar virðingar, enda sannkölluð
kostaskepna. Stöð 2 hefur gert
þætti um reiðgötur Islands og
sýnir eina slíka í kvöld, ferð yfir
svokallaðan Leggjabrjót, en sú
leið nær frá Botnsdal í Hvalfirði
yfir til Þingvalla. Sigurveig Jóns-
dóttir stýrir þáttunum, en Baldur
Hrafnkell Jónsson kvikmyndaði
þennan þátt. Með í för var Guð-
Iaugur Tryggvi Karísson, annál-
aður hrossakarl, og sagði hann
okkur í gær að myndatakan hefði
tekið tímann sinn, menn voru að
þegar færi gafst í einar sex vikur
að mynda. Ekki að undra þótt ís-
lensk þáttagerð sé dýr! Á þessari
mynd eru menn að leggja í þessa
grýttu og erfiðu reiðleið þar sem
leggjum hættir til að brotna. Með
í för voru 30 til 40 hestar og margt
um mannfólk. Allt gekk bærilega
og engin slys urðu á mönnum eða
fólki. A- mynd GTK.
Greenpeace uppvísir að lygum og rangtúlkunum:
DÆMIGERÐ VINNUBRÖGO GREENPEACE
-segir Magnús Guðmundsson um málið og ennfremur: „íhuga málsókn á hendur Greenpeace .
Á páskadag var sýndur svo-
kallaður „60 Minutes“-þáttur á
TVNZ, nýsjálenskri sjónvarps-
stöð, þar sem fjallað var nokkuð
ítarlega um ásakanir Magnúsar
Guðmundssonar, blaða- og kvik-
myndagerðarmanns, á hendur
Greenpeace.
Tilefni umfjöllunar 60 Minutes
var ræða sem Magnús flutti um
vinnu sína á ársfundi útvegsmanna
í Nýja-Sjálandi skömmu fyrir
páska. Ræða þessi olli miklu fjaðra-
foki hjá nýsjálenskum fjölmiðlum
og fékk Magnús þar mikla og oftast
jákvæða umfjöllun um störf sín. Að
sögn heimildarmanna Alþýðu-
blaðsins beittu Greenpeace-menn
sjónvarpsstöðina miklum þrýstingi
vegna umrædds þáttar og afleiðing
þess varð sú að síðastliðinn sunnu-
dag var flutt loðin yfirlýsing í „60
Minutes" sem stjómendur sjón-
varpsstöðvarinnar sömdu sjálfir.
Yfirlýsing þessi hefur nú verið
túlkuð af Greenpeace sem afsökun-
arbeiðni TVNZ á öllum þættinum. í
fréttatilkynningu sem Greenpeace
hefur sent frá sér vegna þessa máls
kemur meðal annars fram að 60
Minutes hafi nú beðist afsökunar á
þætti sínum þar sem Greenpeace
var sakað um allt frá því að halda til
haga leyniskýrslum, til þess að
falsa kvikmyndatökur til þess að
auka á gróða samtakanna. Einnig
kemur fram í fréttatilkynningu
Greenpeace að Magnús hafi staðið
fyrir vel skipulagðri áróðursherferð
gegn samtökunum og auk þess
yfirlýsingar Green-
peace undir Magnús
Guðmundsson þá
benti hann á að þeir
sjálfir hafi viðurkennt
í „Svar Direkt",
sænskum umræðu-
þætti, að þeir hefðu
falsað og sviðsett
myndatökur. Enn
fremur sé varla hægt
að kalla einn mann
„vel skipulagða áróð-
ursherferð". Allt tal
Greenpeace um að
Magnús Guðmundsson á forsíða PRESSUNNAR [jann standi fyrir
nýlesa' dreifingu falskra upp-
dreift fólskum upplýsingum um lýsinga, og að engin leyniskjöl um
málið til fjölmiðla. sig fyrirfinnist hjá Greenpeace, séu
Þegar Alþýðublaðið bar þessar hreinar og klárar lygar. Yfirlýsing
TVNZ var að sögn heimildarmann-
anna Alþýðublaðsins flutt í óþökk
fféttamanna „60 Minutes" sem
breytir þó í engu að í yfirlýsing-
unni er ekkert dregið til baka
sem fram kom í þættinum og
ekki beðist afsökunar á neinu
sem fram kom í þættinum. Að-
eins var þama um nánari útskýring-
ar að ræða til að tryggja að um eng-
an misskilning yrði að ræða. Heim-
ildarmenn Alþýðublaðsins telja að
þama hafi verið um einhverskonar
baktryggingu að ræða hjá TVNZ
vegna þess að stjómendur hennar
óttist heilagt stnð Greenpeace og
hugsanlega málsókn. Magnús segir
þessi vinnubrögð dæmigerð fyrir
Greenpeace og hann íhugi nú mál-
sókn vegna rógburðar þeirra.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík - Sími 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44
i