Alþýðublaðið - 27.04.1993, Side 7
I
Þriöjudagur 27. apríl 1993
JAFNAÐARMENN I REYKJAVIK
MAI
BARÁTTUHÁTÍÐ í NAUSTENU!
Alþýöuflokksfélag Reykjavíkur
mun standa fyrir mikilli
hátíð í Naustinu í tilefni af
baráttudegi verkalýðsins, 1. maí.
Ávörp: Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Aiþýðufiokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands
Jóhanna Sigurðardóttir
varaformaður Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands
Hátíðin hefst strax að loknum
útifundi verkalýðsfélaganna.
ALLIR JAFNAÐARMENN VELKOMNIR!
Kaffiveitingar - Hljómlist
Stjórnin.
RAÐAUGLÝSINGAR
YBarnaheill
Meðferðarheimili
Barnaheill auglýsir í samráði við félagsmálaráðu-
neytið eftir starfsfólki til að taka að sér rekstur með-
ferðarheimilis fyrir vegalaus börn (6-12 ára).
í undirbúningi er uppbygging eins til tveggja með-
ferðarheimila er taka til starfa í sumar. Verður annað
staðsett í sveit á Suðurlandi, en ekki hefur verið af-
ráðið endanlega hvar hitt heimilið verður staðsett, en
líklega á Norðurlandi.
Viðkomandi starfsmenn þurfa að hafa menntun á
einu eða fleiri eftirtalinna sviða: Uppeldis- og
kennslufræði, sálarfræði, félagsráðgjöf eða aðra
sambærilega menntun.
Viðkomandi þurfa að hafa reynslu af vinnu með
börnum.
Þar sem hér er um nýja starfsemi að ræða, munu
starfsmenn taka þátt í uppbyggingunni og móta
starfsemina ásamt stjórn heimilisins.
Laun og önnur kjör samkvæmt samkomulagi.
Umsóknum ber að skila til skrifstofu Barnaheilla, Sig-
túni 7, Reykjavík, fyrir 30. apríl næstkomandi.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Barna-
heilla, sími 91-680545.
Barnaheill
Félagsmálaráðuneytið
Iþróttahús
Kennaraháskóla íslands
Tilboð óskast í viðgerð á þaki íþróttahúss Kennara-
háskóla íslands. Um er að ræða endurnýjun á þak-
járni, pappa og tilheyrandi.
Verktími ertil 17. ágúst.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Reykjavík til og með þriðjudeginum 11. maí.
Verð útboðsgagnanna er kr. 6.225,- með virðis-
aukaskatti.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar
ríkisins, Borgartúni 7, föstudaginn 14. maí 1993, kl.
11.00.
II\II\JKAUPAST0FI\1UI\I RÍKISIIVIS
Lögreglustöðin á Akureyri
Frágangur innanhúss
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins óskar hér með eftir tilboðum í innan-
hússfrágang í Lögreglustöðinni á Akureyri. Annars
vegar er um að ræða rif og fullnaðarfrágang u.þ.b.
60m2 skrifstofuhúsnæðis, en hins vegar ýmsar lag-
færingar í húsinu, aðallega vegna eldvarna. Fram-
kvæmdum skal vera að fullu lokið 1. september
1993. Útboðsgögn verða seld hjá Innkaupastofnun
ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, frá og með þriðju-
deginum 26. apríl 1993 á kr. 6.225,- m/vsk. Tilboð
verða opnuð á sama stað 12. maí 1993, kl. 11.30 í
viðurvist virtetgddra bjóðenda.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS
fii Mi'.AHrUNI ' ■UV H £ « K A v IK
^ r|i II r|i r|i v? ia rai r|i I i|
IJ 1 IJ 1 1 I* Ifr lll I 1 I 1%
Kristinn Jörundsson, fulltrúi Byggðaverks hf. afhendir Herði Zophaníassyni stjórnarfor-
manni Hafnar, táknrænan lykil að nýja húsinu. - Ljósmynd Lárus Kari.
Glæsilegar þjónustuíbúðir aldraðra
Á sumardaginn fyrsta voni 40 þjónustuíbúðir fyrir aldraða teknar í notkun á vegum
Hafnar, samtaka eldri borgara í Hafnarfirði. Hörður Zophaníasson, formaður
stjórnar samtakanna sagði að bygging íbúðanna hefði staðist aliar áætlanir, en
Byggðaverk hf. hefur annast framkvæmdir. íbúðimar eru í glæsilegu tjölbýlishúsi
við Sólvangsveg, skammt ffá heilsugæslustöðinni og hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Á
Sólvangssvæðinu eiga að nsa 130 íbúðir fyrir aldraða, í íjölbýli og í raðhúsum.
Nokkrum 3 herbergja íbúðum en enn óráðstafað.
700 þúsund tonn af loðnu
Alls bárust á land frá íslenskum veiðiskipum 697.598 tonn af loðnu á vertíðinni
sem nú er nýliðin. Til viðbótar bárust nærri fimm þúsund tonn af erlendum skipum.
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum var hæst einstakra verksmiðja á þessari vertíð
með vinnslu á 52.813 tonnum. Hinsvegar vom verksmiðjur Síldarverksmiðja ríkisins
hæstar alls sem fyrirtæki með 134.545 tonn. Eitthvað var landað af loðnu til lfysting-
ar, en tölur um það liggja ekki íyrir. Aflahæsta skipið á loðnuvertíð var Hilmir SU
með 33.391 tonn.
15 milljónir tonna á 30 árum
Frá því að íslendingar hófú loðnuveiðar í stómm stíl árið 1964, hafa borist á land
um 15 milljónir tonna af þessum litla en mikilvæga ftski. Félag íslenskra fiskmjöls-
framleiðenda hefur tekið saman lista yfir afla á þessum ámm. Þar kemur fram að ver-
tíðin sem nú er nýlokið var góð, en þó skara nokkuð fram úr vertíðamar árin ’78, ’79,
og ’85 þegar aflinn var rétt um milljón tonn. Nokkur ár til viðbótar hafa verið betii en
á vertiðinni nú, en aflinn nú er meira en þokkalegur.
Ögrandi kvenlíkamar í Hafnarborg
Berglind Sigurðardóttir, 27 ára listakona, heldur sýningu á 19 myndum sínum í
kaffistofu Hafnarborgar þessa dagana. Þar em litlar pastelmyndir auk þriggja olíumál-
verka, einkum konuandlit og konulíkamar, sem Berglind sýnir á talsvert ögrandi hátt.
Sýningin hefur gengið vel og helmingur myndanna þegar seldur. Berglind tók nýlega
þátt í samsýningu í Menntamálaráðuneytinu, og hún gerði káputeikningu að bók Vig-
dísar Gnmsdóttur, Ég heiti ísbjörg, ég er ljón..
Landvernd og veiðar á villtum dýrum
„Samband dýravemdarfélaga fslands mótmælir harðlega að haldin skuli ráðstefna
um rétt manna til að veiða einungis út ífá þeim sjónarhomum „hver á“ og „hver má“
en látið hjá líða að taka með þá mikilvægu, siðferðilegu spumingu, hvort veiðar á
villtum dýmm séu réttlætanlegar", segir í fréttatilkynningu Sambands dýraverndar-
félaga Islands. Þeim finnst að á ráðstefnu Landvemdar hafi of mikil áhersla verið
lögð á rétt manna til að stunda veiðar. Á lista „aðstandenda" ráðstefnunnar, sem Land-
vemd hélt, komi þetta greinilega fram. SDÍ segist ekki geta séð að ráðstefha eins og
þessi sé annað en tímaeyðsla þar sem öll sjónarmið fái ekki rúm í ffamsöguerindum.
Miðstöð fólks í atvinnuleit
í dag kl. 15 greinirStefán Ólafsson,prófessor, ffá nýrri rannsókn á högum atvinnu-
lauss fólks, í Miðstöð fólks í atvinnuleit í Lækjargötu 14a. Á föstudaginn er þar
skemmtidagskrá og á laugardaginn, þann 1. maí, er boðið upp á kynningu á starfsem-
inni og kaffiveitingar í Miðbæjarskólanum að loknum útifundi.
Sigríður Dúna og Kvennalistinn
í nýútkominni Veru er fjallað í grein Ragn-
hildar Vigfúsdótturum „goðsöguna um „brott-
rekstur“ Sigríðar Dúnu úr Kvennalistanum. Þar
segir í lokin: Það hlýtur að vera einkamál hverrar
konu hvemig og hve lengi hún leggur kvenna-
hreyftngunni lið. Er það ekki dæmi um andspymu
gegn kvennahreyfingunni hvemig fjölmiðlar
hampa hinum nýja lífsstíl Sigríðar Dúnu með því
að gera svona mikið úr starfi hennar sem ráð-
herraffúar? Það má vel lesa milli línanna hvemig
vissum mönnum fmnst hún hafa séð að sér og
sannað hið fomkveðna að aðlaðandi er konan
ánægð, allt tal um kvenfrelsi hafi verið orðin tóm.
Það hlýtur vægast sagt að vera leiðinlegt fyrir
konu sem hefur átt jafn mikinn þátt í að móta nýju
kvennahreyfinguna eins og Sigríður Dúna, að
lenda í því að vera notuð í baráttunni gegn henni“.
Kærðir fyrir veiðar á
föstudaginn langa
Útgerð rækjuskipsins Náttfara, sem mun gerður út af hlutafélaginu Hamri, hefur
verið kærð fyrir hafa verið að veiðum á fóstudaginn langa. Þann dag eiga öll skip að
vera í höfn. Bæjarpósturinn á Dalvík greinir ffá þessu í síðasta blaði.