Alþýðublaðið - 30.04.1993, Side 12

Alþýðublaðið - 30.04.1993, Side 12
12 Hvaö segir verkalýösforystan? Föstudagur 30. apríl 1993 Hafþór Rósmundsson, formaður Vöku á Siglufirði Förum ekki einir í verkfall „Við erum svolítið sér á parti hér á Siglu- firði, því við vorum ekki með í þessu sam- floti og höfum ekki verið það undanfarin ár. Við ætluðum bara að bíða rólegir þangað til yfir lyki með stóra samninginn og skrifa þá undir það sama og aðrir fá. Þetta vita þeir hjá VSI og við ætlum ekki að vera með neinar sérkröfur, en okkar samningur hefur þó alltaf verið ffábrugðinn öðmm að ein- hverju leyti“, segir Hafþór Rósmundsson formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði. Hann segir að þetta megi rekja til þess að áður hafi félagið alltaf samið sérstaklega við Vinnuveitendafélag Siglufjarðar, en VSI fomstan hefði beitt sér fyrir því að fé- lagið var lagt niður árið 1989. Vaka hefði hins vegar haldið sínum sérsamningi áfram og samið eitt og sér við VSÍ, nokkuð sem fleiri félög munu jafnvel gera, í Ijósi þeirrar stöðu sem upp er komin. „Vinnuveitendur höfðu fengið þau skila- boð frá okkur að við ætluðum ekki að vera með neinar sérkröfur, enda er það ekki hægt við núverandi aðstæður í þjóðfélag- inu. Lítið verkalýðsfélag úti á landi hefur enga aðstöðu til neinna aðgerða og okkur yrði bara látið blæða út ef við fæmm einir og sér í verkfall. Við getum ekki stoppað millilandasiglingar eða flugið eins og Dagsbrún. Okkur finnst staðan mjög erfíð í dag. Við emm eins og aðrir að berjast við að halda atvinnuleysinu í skefjum. Svigrúmið í kjar- abaráttunni er mjög lítið og ég held að fólk geri sér grein fyrir því. Það er hins vegar fjarri því að fólk sé sátt við það hvaða að- ferðum er beitt á þrengingatímum. Matarskattslækkunin, sem vonandi verð- ur, skilar sér auðvitað í því að það verða meiri peningar eftir í buddunni. Það kemur skást út fyrir þá sem minnst hafa og það er kannski í átt til þess sem við höfum verið að halda fram. Það er að gera mest fyrir þá sem minnst hafa og hinir eiga þá að vera sáttir við það sem þeir hafa nú þegar“, sagði Haf- þór. Hann segir að atvinnuástandið sé alveg þokkalegt á Siglufirði, það hafi verið um 40 manns á skrá, sem sumir hafi einhverja hlutavinnu. Það séu mest trillukarlar og vömbílstjórar sem séu oft á atvinnuleysis- skrá á vissum árstímum. Hins vegar hafi verið nokkuð jöfn og mikil vinna í frysti- húsinu og báðum rækjuvinnslunum á staðnum. Siglfirðingar þurfi því ekki að kvarta miðað við það hvemig ástandið sé víða á landinu. Jón Karlsson, formaður Fram á Sauðárkróki Ekki samið á heimavelli „Það er mjög slæmt að það hefur ekki tekist að ljúka þessu núna, því ég held að það hafi verið á vissan hátt grundvöllur til þess. Að mínu viti er þetta síðasta útspil Vinnuveitendasambandsins mjög óvenju- legt og ég minnist þess ekki að þeir hafi áð- ur sett það sem skilyrði að einhver einn að- ili verði með, annars sé allt hmnið. Ég hef verið í þessu mjög lengi og á þeim tíma hafa alltaf einhverjir staðið fyrir utan þetta svokallaða samflot", segir Jón Karlsson. „Það er greinilegt að VSI er að notfæra sér einhverjar veilur sem em augljóslega hjá okkur innbyrðis, án þess að ég fari ná- kvæmlega út í að skýra þær. Ég held að það hafi verið skásti kosturinn að semja á grundvelli þess tilboðs sem komið var frá ríkisstjóminni. Ég hefði reyndar viljað ræða frekar um möguleika á opnunarmöguleik- um í samninginn og á öðmm tímum en þeim sem rætt var um. En hvað sem öllu líður þá er ljóst að það er verið að kasta frá sér ákveðnum hlutum, sem vom á borðinu. Auk þess sem það brennur mjög á að fá endumýjun varðandi atriði eins og orlofs- uppbót og láglaunabætur. Hvað varðar samninga heima í héraði, þá segir aldarfjórðungs reynsla af samninga- málum mér það að allar slíkar viðræður sem fara af stað enda í einum og sama pott- inum suður í Reykjavík. Atvinnurekendur hér, bæði stórir og smáir, vísa bara öllu til heildarsamtakanna - VSI. Ég á því ekki von á að það verði neitt öðmvísi núna. Það verð- ur hins vegar að kanna strax hvaða leiðir em færar, til þess að tryggja þessar bætur til láglaunafólksins. Það er að sjálfsögðu aðalatriðið í dag að halda því sem við höfum þegar fengið. Við finnum að atvinnurekendur eru mjög fastir fyrir núna og þeir em alltaf að koma inn með atriði þar sem er að finna mun harðari túlkanir heldur en við höfum þekkt í fjölda ára, sem miða allar að þvf að ganga á rétt launþeganna. Það má segja að það hafi munað mjög litlu að endar hafi náð saman á miðvikudag- inn, því yfirgnæfandi meirihluti þeirra full- trúa innan ASÍ sem tjáðu sig um málið á fundinum, vildu semja á þeim forsendum sem lágu fyrir. Atvinnurekendur hafa hins vegar lengi vitað um hug Dagsbrúnar- manna og það er ekkert sem var að gerast snögglega, þess vegna er þetta mjög furðu- leg krafa sem fram kom“, sagði Jón Karls- son sem aftur var kominn heim á Sauðár- krók eftir samningaviðræðumar í Reykja- vík. Hervar Gunnarsson, formaður Verkalýðs- félags Akraness Skerðing að vera samningslaus „Við erum komnir í þá sérkennilegu stöðu núna að 95 prósent af félögum í ASÍ voru búnir að ná samkomulagi við VSÍ, þegar vinnuveitendur setja þá kröfu fram að ekki verði samið nema hin 5 prósentin, þ.e.a.s. Dagsbrún, verði líka með. Þetta er mjög einkennileg krafa, því það er þekkt fyrirbæri úr nær öllum samningum sem gerðir hafa verið að ekki hefur verið 100 prósent þátttaka hjá aðildarfélögum ASÍ“, segir Hervar Gunnarsson formaður Verka- iýðsfélags Akraness og annar varaforseti ASÍ. „Við getum ekki tekið þessa kröfu af okkar viðsemjendum og það virðist einnig fullreynt að Dagsbrúnarmenn vilja ekki koma með í pottinn eins og hann lítur út í dag. Það horfir að vísu svolítið sérkenni- lega við mér að Dagsbrúnarmenn em ekki tilbúnir til þess að gera samning til 18 mán- aða með opnunarákvæðum t.d. í haust, en em tilbúnir til að gera skammtímasamning sem hefur minna innihald. Umboðið er nú komið til félaganna og það hlýtur að vera næsta skref að hvert fé- lag eða hvert svæði fyrir sig þreifi á sínum viðsemjendum. Einnig geta landssambönd- in farið í samningaviðræður fyrir hönd sinna aðildarfélaga. En það hefur ekki verið mikið um það að svæðisbundin vinnuveit- endasamtök hafi viljað tala beint við félög- in. Það hlýtur hins vegar að vera öllum ljóst að það er mikilvægt að ljúka þessum samn- ingum sem fyrst. Aðalatriðið er það að loka samningum, fyrst og fremst til að tryggja þau ákvæði sem renna út með gömlu samningunum, þ.e.a.s. orlofsuppbót og láglaunabætur, sem kemur láglaunafólkinu fyrst og fremst til góða. Það er öllum ljóst að ástandið er erfitt í dag og þvf þurfa menn að draga saman. En við getum hins vegar ekki ætlast til þess að fólk sem er með tekjur undir framfærslu- mörkum, eins og t.d. atvinnulausir, taki á sig skerðingu. Þess vegna er það mikilvægt að það sé allavega samið á núllinu, eins og við köllum það, þvf annars er verkafólk samningslaust. Það að vera samningslaus þýðir mesta skerðingu á kjörum þeirra sem minnst hafa, þeirra sem njóta láglauna- bóta“, sagði Hervar Gunnarsson á Akra- nesi. Eiríkur Stefánsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélgs Fáskrúðsfjarðar VSÍ-mafían allsráðandi ,J>að er engin leið fyrir mig að skilja þá menn sem segja við verkafólk í dag að það eigi að standa samningslaust. Það er fárán- legt að vera án samninga þegar okkur bjóð- ast ákveðnir hlutir. Ég er kannski ekki full- komlega sáttur við núverandi tilboð, en það er skárra en það að vera ekki með neitt í höndunum," segir Eiríkur Stefánsson for- maður Verkalýðs- og sjómannafélags Fá- skrúðsfjarðar. Verkalýðsfélög sem ætla að fara gera til- raun til að semja eitt og eitt, eiga eftir að finna að það verður barið á hendumar á þeim. Þau geta farið í verkföll, en það sinn- ir því enginn. Ég tel því alveg bráðnauðsynlegt að ljúka gerð kjarasamninga og reyna að fá skýrari svör frá ríkisstjóminni. Stjómin verður að tala skýrara máli, en ekki segja bara að við stefhum að hinu og þessu. Þeir segjast t.d. stefna að því að lækka vexti, en það hefur oft á tíðum ekki staðist. Ég vil fá einhverjar tölur staðfestar. Ég tel að ef ríkisstjómin hefði komið með fastmótaðri tillögur, þá hefðu samningar náðst“. Aðspurður um stöðu félagsins á Fá- skrúðsfirði, sagði Eiríkur að hann gæti allt- af náð samningum við atvinnurekendur á staðnum og hefði reyndar þegar samið við hreppsfélagið. „Það er hins vegar erfitt að eiga við þetta því VSÍ hefur sett jámklæm- ar á alla atvinnurekendur á landinu, mið- stýringin er allsráðandi. Þó að hér séu ein- hverjir atvinnurekendur sem em tilbúnir til að borga meira þá munu þeir ekki semja þó þeir hafi bolmagn og getu til þess, vegna þess að jámklæmar á vinnuveitendamafí- unni em allsráðandi. Það verður því ekkert samið við einstök félög hér fyrir austan, það er búið að læsa þetta inni í einhverjum alls- herjar samningum. Þessi leið sem nú er farin er ekki til þess að ná samningum, þetta er gert til þess að ná hreyfingunni aftur sameinaðri. Þetta er gert til að ýta við Dagsbrúnarmönnum, en ég spyr bara, hver em rökin fyrir því að vera samningslausir -er það hagkvæmt?“ Eiríkur sagði að atvinnuástand á Fá- skrúðsfirði væri ekki gott, þar væru 55 manns á atvinnuleysisskrá sem svaraði til 15 prósenta atvinnuleysis. Þetta væri m.a. vegna þess að minni afli kæmi nú til vinnslu á staðnum og væri kvótakerfið orsakavald- urinn að hluta til. Sumartíminn hjá okkur er frá átta til fjögur Vorið er komið og sumarið nálgast óðum. Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM og Tjónaskoðunarstöðinni skiptum við yfir í sumarafgreiðslutíma, sem er frá klukkan átta til fjögur. Sumartíminn gildir frá 1. maí til 15. september. Draghálsi 14-16

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.