Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 1
l'óta-.iól-bad Eftir langsvarandi rigingarsudda og sólarleysi í Reykjavík lyftist hcldur betur brúnin á höfuðborgarbúum þegar sólin skein skrært í borginni í gær. Einar Olason, Ijósmyndari Alþýðublaðsins, fór á stúfanna og tók nokkrar myndir í góðviðr- inu. Menn brugðu á ýmis ráð til að njóta sólarinnar eins og sjá má á myndinni. Sjá jalnframt sólarmyndir á bls. 7. Hvalveiðar Kanarnir hafa dregið menn ó asnaeyrunum segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, um bandarísk stjórnvöld sem nú loks hafi komið út úr skápnum og lagst alfarið gegn hvalveiðum „Kanarnir hafa undanfarin ár verið að draga menn á asnaeyr- unum þegar þeir hafa talað um að það vantaði frekari upplýsing- ar um stofnstærð hvalastofnanna og þess vegna mætti ekki veiða hval“, sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., þegar Alþýðublaðið innti hann eftir því sem verið hefur að gerast í hvalveiðimálum. „Svo þegar það er búið að rann- saka þetta niður í kjölinn og finna út veiðiþol stofnanna þá er ekkert mark tekið á þvf og einhverju nýju borið við, veiðiaðferðir eða eitt- hvað annað. Núna hafa bandarísk stjómvöld hins vegar komið út úr skápnum og segjast hreinlega vera á móti öllum hvalveiðum“, segir Kristján. Hann hefur lengi haldið því fram að mótbámr bandarískra aðila og fleiri við hvalveiðum vegna skorts á upplýsingum um stofhstærð væri einungis yftrskyn. Um hótanir bandarískra stjóm- valda komi til þess að íslendingar taki að nýju upp hvalveiðar að nýju segir Kristján. „Ég trúi því ekki að menn láti vaða yfir sig með þessum hætti. Þetta er bara byrjunin og síð- an kemur eitthvað annað og svo koll af kolli. Nú er Kaninn t.d. að banna netaveiðar hjá sér og mun ef- laust krefjast þess að önnur ríki geri hið sama, ella hóti þeir viðskipta- banni. Síðan gæti komið að troll- inu“, segir Kristján. „Þrátt fyrir að menn hafa tapað einhverjum markaði vegna þessara mála veit ég ekki til þess að íslensk- ir fiskseljendur hafi þurft að henda neinum ftski vegna þess að þeir hafi ekki getað selt hann á þokkalegu verði", segir Kristján en hann stundar nú hefðbundna útgerð. Kristján telur að hvalveiðar hefj- ist aftur hér áður en langt um líður. „Það á eftir að koma í ljós hvort þær verða leyfðar í ár. Ég held að Norð- menn séu búnir að fá nóg af Hval- veiðiráðinu og komi þá af krafti inn í starfsemi Norður- Atlantshafs sjávarspendýraráðsins. Það verður fundur í því í byrjun júlí hér í Reykjavík. Það getur síðan úthlutað kvóta í samræmi við alþjóða haf- réttarsáttmálann þótt hann sé reyndar ekki genginn formlega í gildi. Það vantar enn nokkur ríki til að staðfesta hann svo hann öðlist lagalegt gildi. Þar er kveðið á um að ríki skuli hafa samráð um veiðar sem þessar. Um gang mála á fundi Hval- veiðiráðsins í Japan segir Kristján Loftsson: „Mér sýnist að þetta sé sama platan sem verið er að spila nú í Japan og verið hefur á undan- fömum fundum Alþjóða hvalveiði- ráðsins. Menn eru bara á móti hval- veiðum þótt þeir beri við mismun- andi og breytilegum forsendum." Einkavœðingin gengur etfiðlega hjá fjármálaráðherra Lyf og tóbok ófram hjó ríkinu Ekki náðist að samþykkja þrjú frumvörp fjármálaráðherra á Alþingi, sem fela í sér einkavæð- ingu ríkisstofnana. Hér er um að ræða frumvarp um að breyta Lyfjaverslun ríkisins í hlutafélag og frumvörp um afnám einka- sölu ríkisins á tóbaki og um sér- stakt gjald af tóbaksvörum. Það vekur athygli að þessi frum- vörp skuli ekki hafa náð fram að ganga á nýliðnu þingi, þar sem sjálfstæðismenn hafa lagt sérstaka áherslu á að einkavæða sem flest ríkisfyrirtæki og ríkisstofnanir á kjörtímabilinu. Hér er reyndar ekki aðeins um „prinsippmál" að ræða hjá fjármálaráðherra, því einnig er gert ráð fyrir nokkrum tekjum af sölu ríkisfýrirtækja á núverandi fjárlögum. Þá má ennfremur nefna að frum- varp landbúnaðarráðherra um að breyta Aburðarverksmiðju ríkisins í hlutafélag náði heldur ekki fram að ganga á þingi og verður því frestað til hausts. Reyndar eru enn tvö ár eftir af kjörtímabilinu og því ekki ólíklegt að stjómarflokkamir eigi eftir að koma fleiri einkavæðingar- fmmvörpum í gegnum þingið. Reykvíkingar - nú hreinsum vi& til. Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu sjá um að fjarlægja fulla poka sem settir eru út fyrir lóðamörk. Einnig er auðvelt að losna við rusl í gámastöðvar Sorpu sem eru við: Ananaust móts við Mýragötu, Sævarhöfða norðan við Malbikunarstöð, Gylfaflöt austan Strandvegar og Jafn arsel í Breiðholti. Höldum borginni hreinni. Gatnamálastjórinn í Reykjavík hreinsunardeild Tvo næstu laugardaga eru sérstakir hreinsunardagar í Reykjavík fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Ruslapokar fást afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálasfjóra. Vesturbæ við Njarðargötu, Austurbæ við Sigtún, Miðbæ á Miklatúni, Breiðholti við Jafnasel, ■ /. Arbæ, Selási og Grafarvogi við Stórhöfða.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.