Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 13. maí 1993 íslensk kvikmyndagerð blómstrar: „BÍÓDAGAR" FRIÐRIKS ÞÓRS Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður hefur innan skamms tökur á nýrri mynd sinni, BIODAGAR sem kvikmynduð verður hér á landi. Kostnað- aráœtlunin hljóðar upp á litlar 126 milljónir. Á blaðamannafundi síðdegis í gærkynnti Friðrik Þór Friðriksson nýja mynd sfna sem ber það kvikmyndalega nafn, BÍÓDAGAR. Tökur fara fram í sumar og haust, á tímabil- inu 15. júlí til 15. september. Meðal töku- staða eru Gamla Bíó (við hlið Alþýðublaðs- ins) og Flöfði á Höfðaströnd í Skagafirði. Friðrik Þór kom eins og kunnugt er Islandi á kort kvikmyndaáhugamanna um allan Póstur og sími: GAGNA- HÓLFSSEND- INGAR Nú er orðið mögulegt að senda skeyti með gagnaflutningsþjónustunni X.400 til útlanda. Þessi þjónusta hefur hins vegar ver- ið boðin hér innanlands síðan árið 1991. Fyrsta landið sem hægt verður að senda skeyti til með þessari þjónustu er Danmörk en fljótlega munu fleiri lönd bætast í hópinn. Fast gjald er fyrir hvert skeyti og er það 8,10 krónur og fyrir hveija þúsund stafi sem byrj- að er á er gjaldið 11,20 krónur til Evrópu- landa, 13,70 krónur til Bandaríkjanna og 22,40 krónur til annarra landa. Virðisauka- skatturinn er innifalinn í þessum verðum. Þess má geta að lokum að öll gjöldin em til bráðabirgða óg verða endurskoðuð að ári liðnu. heim með mynd sinni, Böm náttúrunnar, sem unnið hefur til fjölda alþjóðlegra verð- launa og hlaut til dæmis Óskars-tilnefningu. BÍÓDAGAR gerist f Reykjavík og Skaga- firði sumarið 1964 og fjallar myndin um líf tíu ára drengs sem er um þær mundir að átta sig á lífinu og tilverunni. Ómeðvitað stfgur hann svo skref sem eiga eftir að móta allt hans líf. EVRÓPSK FJÁRMÖGNUN Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan fjármögnun BÍÓDAGA lauk. Kostnaðar- áætlunin fyrir myndina, sem kvikmynduð verður hér landi, hljóðar upp á litlar 126 milljónir. Fyrirtæki Friðriks Þórs og fleiri aðila, Islenska kvikmyndasamsteypan hf., naut við fjármögnun styrkja, svokallaðra víkjandi lána, frá ýmsum evrópskum sjóð- um. Þessir sjóðir njóta í staðinn til að mynda dreifmgarréttar á myndinni um mestalla Evrópu. HUNDRUÐ AUKALEIKARA Nú stendur yfir undirbúningur fyrir sjálfa kvikmyndatökuna. I undirbúningnum felst meðal annars ráðning leikara, búninga- saumur, leikmyndasmíð og leikmunasöfn- un. Þar sem myndin gerist íyrir tæpum 30 árum síðan eru þessir hlutir erflðir viðfangs og feykilega dýrir. Breyta þarf heilu götun- um, endurskapa heimili í sveit og borg með húsmunum ífá árunum um og eftir 1960. Einnig þarf að klæða hundruð aukaleikara (statista) í klæðnað frá þessum árum. HÆFILEIKAFÓLK Fríður hópur hæfileikafólks mun starfa með Friðriki Þór við gerð myndarinnar. Ari Kristinsson sér um kvikmyndatökuna (Böm náttúrunnar). Tónlistin er á könnu Hilmars Arnar Hilmarssonar (Böm nátt- úrunnar). Leikmyndahönnun og leik- myndasmíð verður í höndum Árna Páls Jóhannssonar sem á að baki um 20 ís- lenskar kvikmyndir og honum til aðstoðar verður Sigríður Sigurjónsdóttir (Vegg- fóður). Umsjón með leikmunum hefur Steingrímur Þorvaldsson. Búninga mun Karl Aspelund sjá um eins og í nokkmm öðrum íslenskum kvikmyndum og honum til aðstoðar verður María Ólafsdóttir (Veggfóður). Aðstoðarmanneskja Friðriks Þórs verður María Sigurðardóttir. Kynn- ingarstjóri BÍÓDAGA er Karl Pétur Jóns- son (Veggfóður). ALÞJÓÐLEG FRÆGÐ Það má geta þess að leitin að drengnum í aðalhlutverkið stendur nú sem hæst. Þeir hjá Islensku kvikmyndasamsteypunni segja að sú leit verði afar erfið. Tíu til tólf ára guttar með leikhæfileika á heimsmæli- kvarða eru víst ekki á hverju strái. Sá piltur sem hreppir aðalhlutverkið mun vafalaust hljóta alþjóðlega frægð eins og vonandi myndin sjálf, því Friðrik Þór er nú talinn með merkari kvikmyndaleikstjómm Evr- ópu. Myndin mun þar af leiðandi verða sýnd á kvikmyndahátíðum um allan heim. BIÐLAÐ TIL ALMENNINGS Þrátt fyrir að fjármögnun sé nú lokið vantar enn uppá og þar vonast þeir Kvik- myndasamsteypumenn að góðvild sam- borgaranna komi inn í dæmið. Þeir falast nefnilega eftir fatnaði, leikföngum, húsbún- aði og bflum frá þessu tímabili til láns eða leigu. Alþýðublaðið skorar á lesendur sína Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri. Áður var hann „enfant terrible" íslenskrar kvik- myndagerðar. Nú er hann orðinn eitt af óskabörnum íslands,sómi þess, sverð og... A- mvnd E.ÓI. að skima nú niður í kistur og handraða og athuga hvort þar leynist ekki eitthvað af munum frá því í kringum 1964. Ekki svo ómerkilegt afspumar að hafa lagt til Raflia- eldavél í mynd sem síðan var sýnd um allan heim. „Mamma, er þetta gamla eldavélin okkar“... / ciói og oumaryL Kyrjað „Hare Krishna“ á Lækjartorgi enda eflaust auðveld- Pað er ljúft að taka léttar leikfimisæfingar í góða veðrinu. ara að komast í samband við æðri máttarvöld undir berum himni. Hjólabrettin eru dregin fram þegar sumar gegnur í garð og ekki er að sjá að þessi drengur hafi dottið úr æfingu yfir veturinn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.