Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 13. maí 1993
II ÞttlUKI trnii
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuöi. Verö í lausasölu kr. 90
Réttarbót fyrir almenning
s
A meðal merkustu lagasetninga á því afkastamikla þingi, sem er nýlokið,
eru án efa ný stjómsýslulög. í þeim eru lögfestar ýmsar meginreglur sem
varða rétt einstaklinga, þegar stjómvald tekur ákvarðanir sem þá varða. Að
sönnu hafa margar þeirra áður verið til sem þræðir í þeim leiðarhnoða sann-
giminnar sem stjómvöld hafa gegnum tíðina reynt að fylgja í samskiptum
sínum við borgarana. Með lögunum er þeim hins vegar gefið nýtt og meira
gildi; enda tvímælalaust árangursríkara að vísa í lög, en réttarreglur, sem til
þessa hafa verið meira eða minna óskráðar. Hin nýju lög treysta því ótvírætt
réttaröryggi borgaranna í viðskiptum sínum við hið opinbera.
Pað sýnir kraftinn í þinginu, sem lauk fyrir skömmu, að fmmvörp til
stjómsýslulaga höfðu áður verið lögð fram undanfarin sex ár, en aldrei
hlotið þinglega afgreiðslu fyrr en nú. En þar með stendur Island jafnfætis
hinum Norðurlöndunum, sem öll höfðu áður fest í lög svipaðar réttarbætur
fyrir alþýðu manna.
Lögin spanna alla stjómsýslu ríkis og sveitarfélaga, og hafa gildi þegar
stjómvald ákvarðar um rétt einstaklinga, eða lögaðila. I þeim er kveðið
skýrt á um almennar reglur, sem byggjast á óskráðum gmndvallarreglum
stjómsýsluréttarins, einkum jafnræðisregluna, sem svo er nefnd. En í krafti
hennar er óheimilt að mismuna einstaklingum á gmndvelli sjónarmiða, sem
byggjast á stjómmálaskoðunum, kynferði, kynþætti, eða trú, svo eitthvað
sé nefnt. í augum íslendingsins, sem alinn er upp við hina ríku réttlætisvit-
und þjóðfélags, sem frá örófi hefur nánast verið stéttlaust, kunna þessi
viðhorf að sýnast svo augljós og sjálfsögð, að óþarft sé að skrá þau sérstak-
lega í lög. En fyrir þá, sem þurfa að eiga glímu við kerfíð til að ná fram rétti
sínum, er þó óneitanlega styrkur að því að geta nú vísað til opinberra laga,
sem byggjast á þessum meginreglum.
Einn þeirra langþráðu þátta, sem hin nýju stjómsýslulög kveða uppúr með,
em ástæður sem geta valdið vanhæfi starfsmanna hins opinbera, sem
ákvarða um rétt einstaklinga. Sem dæmi má nefna, að sé starfsmaður
stjómvalds skyldur einhverjum eða mægður, er hann vanhæfur til að
ákvarða um rétt hans. Hið sama gildir um þá fulltrúa stjómvaldsins, sem
hafa áður tekið þátt í meðferð málsins á lægra stjómsýslustigi, og teljast þá
ekki lengur hlutlaus aðili. í hinu örsmáa þjóðfélagi flókinna vensla hefur
meint vanhæfí fulltrúa opinbers stjómvalds, sem þarf að úrskurða eða
ákveða um réttindi, orðið drjúg uppspretta sárinda og ásakana þeirra, sem
telja sig ekki hafa náð rétti sínum í samskiptum við hið opinbera. Hingað til
hafa ekki verið nein lög, sem kveðið hafa skýrt á um mál af þessu tagi. Það
þarf því ekki að tíunda hvílík hreinsunaraðgerð fyrir stjómsýsluna - Og ein-
staklingana sem undir hana sækja - felst í hinum nýju stjómsýslulögum.
Lögin kveða einnig skýrt á um andmælarétt manna. í honum felst, að
óheimilt er hinu opinbera að taka ákvörðun um réttarstöðu þeirra, nema
viðkomandi hafi áður verið gefinn kostur á að kynna sér málsgögn, máls-
aðstæður, og tjá sig um málið. Þá mæla lögin einnig svo fyrir, að þó stjóm-
valdi sé ekki skylt að rökstyðja ákvörðun sína, þá getur aðilinn, sem í hlut
á, krafist þess að stjómvaldið rökstyðji hana skriflega að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum.
Enginn vafi leikur á því, að frá sjónarhóli réttarríkisins er löngu tímabært
að setja almenn stjómsýslulög. Þau efla mjög réttaröryggi borgaranna sem
sækja undir stjómvöld, og setja jafnframt opinberar leikreglur, sem em
ótvíræð leiðbeining til opinberra starfsmanna í viðskiptum þeirra við borg-
arana. Ekki er síður mikilvægt, að þau treysta mjög stöðu umboðsmanns
Alþingis, en til hans leita borgaramir telji þeir ekki aðra vegi færa til að ná
rétti sínum gagnvart stjómvöldum,. Hin nýju stjómsýslulög gefa honurn
mikilvæga fótfestu í samskiptum sínum við hið opinbera því eðlilega
verður honum árangursríkara að vísa í sett lög, fremur en óskráðar réttar-
reglur.
Alþingi á þökk skilið fyrir að hafa nú loksins gengið frá þessari tímabæru
réttarbót borgaranna í landinu.
HEYRT, SÉÐ & HLERAÐ
MAÐURINN HENNAR
REGÍNU THOR...
„Maðurinn minn, hann Karl Thoraren-
sen, er ekki gefinn fyrir að fara á hótel.
...Ekkert skyggði á gleðina. Eg var stein-
hissa þegar maðurinn minn borðaði forrétt-
inn, rækjurétt, því að öllu jöfnu er hann ekki
gefinn fyrir rækju. ...og maðurinn minn
lofaði viðmót Jóns Ragnarssonar hótel-
stjóra sem kann þá list að láta fólki líða
vel.“
-skrifar DV-djásnið Regína Thorarensen í eínum
af sínum óborganlegu pistlum sem viröast oftast
nær fjalla um lífið, tilveruna, Selfoss, Suðurland
og allt þar á milli. Stundum er maöur ekki viss...
(DV—10.05.1993.)
HALLDÓR BLÖND
í FRAMSÓKN...
„Þessi deila snýst ekki um mig og Jón
Baldvin heldur um hvort menn ætli sér að
reka landbúnaðinn eins og einhverja smá-
sjoppu.“
-sagöi Halldór Blöndal, helsti framsóknarfrömuöur
Sjálfstæöisflokksins, um deilu hans við Jón Bald-
vin, Jón Sigurðsson, Friörik Sophusson - og um
það bil hálfan þingheim þar til viðbótar - vegna
búvörulaganna...
(DV-10.05.1993)
VONBRIGÐI VÍKVERJA...
„Næsta fndag, 1. maí, tók ekki betra við.
Víkverji uggði ekki að sér fyrr en baráttu-
dagur verkalýðsins rann upp og uppgötvaði
að allar bensínstöðvar voru lokaðar."
-skrifar mæðulegur Víkverji sem skilur ekkert í öll-
um þessum frídögum og vill að þeim verði fækk-
að hið snarasta, „venjulegum borgurum" til
heilla...
(Morgunblaðið—06.05.1993)
ÞJÓÐ í HLEKKJUM
BÆNDABANANS...
„Mér blöskrar þetta rövf í bændum sem
þykjast hafa eitthvað meira vit á búnaðar-
háttum á fyrri tíð en ég geri. Langflestir af
þessum stráklingum eru menn sem aldireru
upp f lúxus innan um traktora, landbúnaðar-
vélar og sólarlandaferðir.“
-segir Baldur „bændabani" Hermannsson, sem
sjálfur skeit í flórinn og skeindi sig á töðu í æsku
eins og var víst alsiða þá. Ef til vill fara menn að
tíðka slíkt nú á tímum umhverfisvænlegheita, hver
veit...
(DV—08.05.1993)
STUNDARKORN
SANNLEIKANS...
„Ef við horfumst í augu við sjálf okkur
verðum við auðvitað að viðurkenna, að það
er tími til kominn, að við högnumst ekki á
vamarviðbúnaði á íslandi heldur stöndum
sjálfir undir honum að verulegu leyti.“
-segir í Reykjavíkurbréfi. Væntanlega eru þessi
orð rituð í tilefni af stríðsfréttamennsku Agnesar
Braga úti í Washington, þó er það ekki alveg á
hreinu, kannski vill maðurinn bara vígvæða ís-
lendinga...
(Morgunblaðið-09.05.1993)
AÐ BERJA HAUSNUM
VÐSTEININN...
„Nú, meðan fjallað er um endanlegan
EES-samning, er full ástæða fyrir Afþingi
að athuga betur ráð sitt með því að bera
bækur sínar saman við bækur norsku ríkis-
stjómarinnar í þessu efni.“
-segir hinn óforbetranlegi EES-andstæðingur,
doktor Björn S., í öldungis óskiljanlegri grein sinni
sem ber yfirskriftina „Framsal valds í EES-samn-
ingnum". Sumu fólki er bara ekki viðbjargandi...
(DV—06.05.1993)
Mikill niðurskurður er
íyriihugaður í Keflavík
Ivostiiaóaríaimu- rckshir KeXlaviliurítJxh x fækkuu flug-vifia - Sko&utaágremhigui ítjörukcrfísius- íslenek seiuiiucfml vúnl :>niuutr tatiuu kulla milli Ptnfagon og anlog til Wajdmigton BWjR
ytS
1 ‘ '
SSSfÆH sptlsjM Bosníu-Sei'bar setja skiiyrði
aáaáasagsgjs
iMEfiii
SPÁDÓMSGÁFA
SIGURDÓRS...
„Ljóst er að þinglok verða á morgun,
föstudag."
-skrifar hinn viðkunnanlegi - en seinheppni -
blaðamaður, Sigurdór Sigurdórsson, í upphafi
stuttrar fréttar um afgreiðslu þingmála. Þinginu
þurfti sem kunnugt er að slíta í einum grænum
hvellum síðastliðinn laugardag svo það teygðist
ekkiframtiljóla...
(DV—06.05.1993)
DWIGHT EISENHOWER,
HVAR ERTU NÚ...
„Dwight D. Eisenhower, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, lagði til árið 1954 til að Banda-
ríkjamenn keyptu ársafla Islendinga, til að
koma í veg fyrir að íslenskur fiskur yrði
seldur til Sovétríkjanna."
-segir Karl Blöndal, fréttaritari í Washington. Það
væri kannski reynandi að hóta að selja írökum
eða Serbum þessa fáu þorsktitti sem hafsins há-
launahetjur draga enn úr sjó...
(Morgunblaðið-07.05.1993)
Atburðir dagsins
1830 Lýðveldið Ekvador er stofnað og klýfur sig út úr Kólumbíu.
1835 John Nash, enskur arkitekt er látinn. Georg IV konungur fól
honum það verkefni að endurhanna hluta af Lundúnum, þar á með-
al Regent Street og Trafalgartorg, sent allir ferðalangar kannast
mæta vel við.
1846 Bandaríkin lýsa yfir stríði gegn nágrönnum sínum í suðri,
Mexíkó. Deila þjóðanna stendur fyrst og fremst um Kalifomíu, sem
Bandaríkjamenn vilja kaupa, en Mexíkanar vilja alls ekki selja.
1930 Friðþjófur Nansen látinn. Hann var frægur landkönnuður,
dýrafræðingur og stjómmálamaður. Hann vann til friðarverðlauna
Nóbels 1923.
1958 Hægrisi nnaðir franskir landnemar hertaka stjómarbyggingar f
Alsír með aðstoð hersins, þegar 40 þúsund mótmælendur halda út á
götur borgarinnar og krefjast sjálfstæðis landsins.
1990 Bflsprengja í Bogóta í Kólumbíu verður 26 manns að fjör-
tjóni.
SKOTIÐ Á JÓ-
HANNES PÁL
PÁFA. - Á þess-
um degi fyrir 12
árum gerðist sá
atburður í
Rómaborg að
reynt var að
myrða Jóhannes
Ptil páfa. Tutt-
ugu þúsund
manna hópur var á Péturstorginu í Róm þegar tyrkneskur byssumað-
ur hóf skothríð á páfa þar sem hann ók um torgið á opinni jeppabifreið.
Hleypti hann af 4 skotum, tvö þeirra hæfðu páfann. I’.ftir 5 tíma skurð-
aðgerð var lýst yfir að hann mundi ná sér að fullu.
1971 A 21. afmælisdegi sínum fær ameríski tónlistarmaðurinn
Stevie Wonder eina milljón Bandaríkjadala fyrir tónlistarflutning
sinn á æsku og unglingsárum. í raun hafði hann þó unnið sér inn
meira en 30 milljónir dala.
1989 Breskum fyrrum flugmanni, Jackie Mann, er rænt í Beirút.
Afmœlisdagar
Josephine Butler, 1828 Ensk baráttukona sem barðist dyggilega
fyrir kvenréttindum.
Sir Arthur Sullivan, 1842 Enskt tónskáld, höfundur 16 vinsælla
óperetta, ásamt W.S. Gilbert.
Georges Braque, 1882 Franskur listmálari, talinn höfundur kúbis-
mans ásamt Picasso. Hann var fyrsti listmálarinn sem í lilandi lífi
fékk verk sín sýnd í Louvre-listasafninu.
Dame Daphne du Maurier, 1907 Enskur rithöfundur. Meðal
skáldsagna hennar eru Rebekka og Jamaíkakráin
Joe Louis, 1914 Hann var um árabil heimsmeistari í hnefaleikum í
þyngsta flokki og kallaður Brúni sprengjuvarparinn.
Jack Bruce, 1943 Breskur poppari, einn af þeim sem skipaði
grúppuna Cream.