Alþýðublaðið - 13.05.1993, Side 3

Alþýðublaðið - 13.05.1993, Side 3
Fimmtudagur 13. maí 1993 3 Valur þrefaldur meistari / Islandsmeistaratitill á afmœlisdaginn Hið íslenska þjóðvinafélag er eitt elsta og virðulegasta félag á íslandi, stofnað í ágúst 1871. En Þjóðvinafélagið var í vanda statt, þegar rofið var rúmlega hálfrar aldar samstarf þess og Bókaút- gáfu Menningarsjóðs. Þá skorti félagið húsnæði og aðra aðstöðu til skrifstofu- halds, fé var ekki handbært til neinna stórræða. Augljóst er að ekki er stórkostlegur eld- móður í starfi þessa aldna félags, en á aðal- fundinum sem haldinn var 24. mars, var þó saman komið valinkunnugt lið fólks, ekki síst fólk úr stjómmálum líðandi stundar. Fór fundurinn fram í fundarsal Alþingis. Þegar Bókaútgáfa Menningarsjóðs var öll á síðasta ári vildi Hið íslenska þjóðvina- félag freista þess að halda áfram útgáfu hinna föstu ársrita, Almanaks og tímaritsins Andvara, sem félagið hefur gefið út síðan 1874. Leitað var á náðir forsætisnefndar Al- þingis, sem brást vel við. Urðu lyktir þær að skrifstofa Alþingis tók að sér umsjón með fjárreiðum Þjóðvinafélagsins, að sjálfsögðu aðskildum fjárreiðum Alþingis og án ábyrgðar á fjárskuldbindingum félagsins. Þá tókust samningar við Sögufélagið um söluumboð og afgreiðslu á bókum félags- ins. Á aðalfundinum í fundarsal Alþingis, setti forseti Alþingis, Salome Þorkelsdóttir, fundinn og stjómaði honum. Eiður Guðna- son, umhverfisráðherra, var fundarritari. Jó- hannés Halldórsson, forseti Hins íslenska þjóðvinafélags, flutti skýrslu sína og skýrði reikninga. Stjómarfundur í félaginu, haldinn 28. apríl, ákvað síðan að halda áfram útgáfu Al- manaks og Andvara. Einnig að stefna að fjölgun áskrifenda, en áskriftakerfi félags- ins er í algjörum molum. Mun það meðal annars stafa af afar fomfálegri skrifstofu- mennsku í Bókaútgáfu menningarsjóðs, sem aldrei náði að komast inn á tölvuöldina. 1 Andvara hafa árlega birst ævisögur merkra íslendinga í löngu máli, og er þar oft um að ræða merkar ritsmíðar. Fram kom á fundinum að í næsta Andvara mun Davíð Oddsson skrifa ævisögu Geir heitins Hall- grímssonar, forsætisráðherra. Jóhannes Halldórsson, cand mag., var endurkjörinn forseti Hins íslenska þjóð- vinafélags, varaforseti er dr. Jónas Krist- jánsson, meðstjórendur dr. Guðrún Kvaran, Heimir Þorleifsson og Olfaur Ásgeirsson. Endurskoðendur em þeir Halldór Ásgríms- son og Ólafur Ólafsson, varaskrifstofustjóri Alþingis. Valsmenn fögnuðu sigri á íslandsmótinu í handknattleik á 82 ára afmælisdegi félagsins, þann 11. maí, eftir að þeir höfðu unnið FH í Kaplakrikanum með 23 mörkum gegn 21. Með þessum sigri sínum vann meistaraflokk- ur Vals svokallaða þrennu en Valsmenn höfðu áður sigrað í bikarkeppninni og deildar- keppninni. FH-ingar veittu þó Valsmönnum harða keppni en máttu láta í minni pokann. Það tók Val fjóra leiki að tryggja sér titilinn í viðureign sinni við FH en það þurfti að vinna þrjá leiki í úrslitunum til að ná titlinum í höfn. Á myndinni hér að ofan sést hvar Valsararnir, Geir Sveinsson fyrirliði og Jakob Sigurðsson hornamaður, fagna innilega eftir að hafa fengið bikarinn í hendurnar. A-mynd/E.Ol. Alyktun MALMS - samtaka fyrirtœkja í málm- og skipasmíðaiðnaði: Aldrað og virðulegtfélag, Hið íslenska þjóðvinafélag, var komið í vandræði ALMNGITÓK AD SÉR REKSTURINN SKAM ÞARF 20 ÞÚSUND NÝ STÖRF FYRIR ALDAMÓT -og það verður aðeins gert í iðnaðinum, þar sem starfsumhveifi er óviðunandi Aðalfundur MÁLMS bendir á að á næstu sjö árum þurfi að skapa 20 þúsund ný störf frá því sem nú er. Engin at- vinnugrein, önnur en samkeppnishæfur iðnaður, hafi raunhæfa möguleika til þess arna. Aðalfundur MALMS - samtaka fyrir- tækja í málm- og skipaiönaði, samþykkti ályktun 8. maí síðastliðinn þar sem segir að brýnasta verkefnið í framtíðarupp- byggingu íslensks atvinnulífs sé að treysta stöðu iðnaðarins og skapa þau skilyrði að hann geti dafnað með eðlileg- um hætti við hlið sjávarútvegsins. I þess- ari ályktun er átt við „iðnað“ í víðustu „Hugmyndir krata um stofnun at- vinnumálaráðuneytis virðast vera nokk- uð skynsamlegar. Það er alveg Ijóst að þrískiptingin í atvinnugreinaráðuneytin, sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðar- ráðuneyti, hefur skapað ýmsan vanda. Alþingi og ríkisstjórn hlýtur að hafa það hlutverk öðrum fremur að líta á heildar- hagsmuni þjóðfélagsins hverju sinni og stofnun eins allsherjar atvinnumála- ráðuneytis, ætti að auövelda stjórnvöld- um að framfylgja þeim markmiðum“, segir í leiðara Víkurblaðsins í síðustu viku. Segir ritstjórinn, Jóhannes Sigurjónsson, að ráðuneytin þrjú séu jafnan undir miklum þrýstingi svokallaðra hagsmunaaðila og að teknar séu ákvarðanir sem ef til vill eru já- kvæðar fyrir viðkomandi atvinnugrein en geta komið sér illa fyrir aðrar greinar. merkingu þess orðs; Auk almenns sam- kcppnisiðnaðar er þar átt við fískiðnað, úrvinnslu landbúnaðarafurða og ferða- iðnað. Skoðum efnisatriði þessarar ályktunar nánar. STARFS.U IVj H VERFI MJOG ABOTAVANT Aðalfundur MÁLMS bendir á að á næstu Heildaryfirsýn skorti og hún Hafi ekki verið til staðar í þrískiptingunni, þar sem hver ot- ar sínum tota. „I einu allsheijar atvinnumálaráðuneyti yrðu málin skoðuð í samhengi, ekki einung- is út frá hagsmunum einnar stéttar eða at- vinnugreinar, heldur með heildarhagsmuni atvinnulífs þjóðarinnar að leiðarljósi. Eða að minnsta kosti ætti það að vera þannig í framkvæmd", bendir ritstjórinn á. I lok leiðarans segir að það sé að sjálf- sögðu algjört aukaatriði hvert vægi flokk- ana yrði við sameiningu sem þessa. Núver- andi stjómarflokkar verði ekki til eilífðar- nóns í ríkisstjóm og valdabarátta um stóla í svo mikilvægu hagsmunamáli ætti ekki einu sinni að þurfa að ræða, í það minnsta ekki að standa í vegi fyrir að slík sameining ráðuneyta eigi sér stað. sjö ámm þurfi að skapa 20 þúsund ný störf frá því sem nú er. Engin atvinnugrein, önn- ur en samkeppnishæfur iðnaður, hafi raun- hæfa möguleika til þess ama. Enda búi nú íslenskur iðnaður við svipaðar aðstæður og iðnaður samkeppnisþjóðanna. Að dómi að- alfundarins vantar mikið á að starfsum- hverfi hér á landi taki mið af þörfurn og möguleikum iðnaðarins. í ályktuninni segir óbeint að það sé ekki að furða þar sem meg- inmarkmið stjómvalda sé og hafi verið það eitt að tryggja lágmarksafkomu útgerðar. ÚTFLUTNINGSLAND OUNNINS HRAEFNIS Samkvæmt ályktun þeirra málm- og skipasmíðamanna er afleiðing þessarar stefnu stjóm- valda sú að ísland er fyrst og fremst útflutningsland hráefnis, sem fer til frekari vinnslu og neyslu erlendis. Ennfremur leiði þessi stefna til þess að gengi ís- lensku krónunnar sé einungis skráð með hliðsjón af afkomu útgerðar á hverjum tíma. Ekkert svigrúm sé veitt í þessum efnum til þess að aðrar atvinnugreinar geti þróast á eigin forsendum. Þannig sé í raun tekið veiði- leyfagjald af útgerðinni með því að halda genginu svo hátt skráðu, þegar vel gengur á þeim vettvangi, en lægra þegar á móti blæs - en aldrei svo lágt að út- gerðin hagnist að nokkru marki. MÖRKUN HEILD- STÆÐRAR ATVINNUSTEFNU Fundurinn staðhæfir að með ofangreindri stefnu íslenskra stjómvalda, svo og vegna stór- felldra niðurgreiðslna sam- keppnisþjóða, sé málm- og skipaiðnaðurinn í mun verri að- stöðu til að standast alþjóðlega samkeppni og auka störf í þessu landi en efni standa til. Verði hins vegar mörkuð heildstæð at- vinnustefna, sem tekur tillit til iðnaðarins, þá er aðalfundur MÁLMS fullviss um að unnt sé að fjölga störfum að miklum mun. Verði það ekki gert er lýst yfir fullri ábyrgð á hendur Alþingis og stjómvöldum vegna þess stórfellda atvinnuleysis sem spáð er að ríki næstu árin. Auk ofangreindra atriða sem fram komu í ályktun aðalfundar MÁLMS var samþykkt samhljóða að stuðla að stofnun heildarsamtaka fýrirtækja í iðnaði. Hugmyndir um atvinnumálaráðuneyti VÆNLEGUR KOSTUR -segir í leiðara Víkurblaðsins, sem segir að atvinnugreinaráðuneytin hafi skapað ýmsan vanda, heUdaryfirsýn skorti Jón Baldvin hefur nú skrifað bréf til st jórn- valda í Guatemala þar sem hann lýsir yfir þungum áhyggjum islcnskra stjórnvalda yfir mannréttindabrotum í Guatemala. Myndin er frá Guatemala, fjölskylda á sorgarstundu. Slíkar myndir frá landinu eru allt of algengar og misbjóða siðferðiskennd flestra þjóða. Jón Baldvin skrifar stjórn- völdum í Guatemala Lýsir óhyggj- um yfir illri meðferð götubarna Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra hefur skrifað bréf til utanríkis- ráðherra Guatemala, Gonzalo Menendez Park. I bréfinu lýsir Jón Baldvin yfir þungum áhyggjum íslenskra stjórnvalda yfir mannréttindabrotum í Guatemala. Sérstaklega er þar um að ræða mannrétt- indabrot gagnvart svoköliuðum götu- börnum og einstaklingum sem vinna að hagsmunavernd fyrir þau. I bréfinu skorar Jón Baldvin á stjómvöld í Guatemala að virða alþjóðaskuldbindingar á sviði mannréttinda. Hann bendir á að með fúllgildingu alþjóðasamningsins um réttindi bama hafi stjómvöld þar í landi skuldbundið sig til þess að leggja sérstaka áherslu á um- hyggju og virðingu fyrir réttindum bama.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.