Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 13. maí 1993 YFIRLYSING SAMTAKA EVRÓPSKRA JAFNAÐARMANNA - vegna hörmulegs fráfalls jafnaðarmannsins Pierre Bérégovoy, fyrrum forsætisráðherra Frakklands. „Á þessari sorgarstundu er hver einasti evrópskur jafnaðarmaður harmi sleginn vegna hins sviplega fráfalls Pierre Bérégovoy. Hann mun eiga sérstakan stað í minningu okkar sem afbragð annarra manna vegna einstakrar þrautseigju sinn- ar og hugrekkis í baráttunni fyrir sameiginlegri hugsjón okkar jafn- aðarmanna. Megi þessi harmleikur, sem varð þegar Pierre Bérégovoy stóð frammi fyrir skipulegri ófrægingarherferð sem varðaði heiður hans og opinberar athafnir, verða til þess að fólk fari að virða list umræðna og lífs í heimi stjómmálanna. Þessi harmleikur hvetur okkur öll til að flykkja okkur um hugsjón jafn- aðarstefnunnar, hugsjón Pierre Bérégovoy sem evrópsks jafnaðar- manns, um þjóðfélag sem byggist á samstöðu um raunsæi og réttlæti öll- um til handa.“ Frakkland syrgir jafnaðarmanninn Pierre Bérégovoy er framdi sjálfsmorð í síðustu viku vegna pólitískra ofsókna sem byggðust á engum rókum. Bérégovoy var fyrrum forsætisráðherra Frakklands og tók við því embætti af Edith Cresson fyrir ári síðan. Hann var sjálfmenntaður maður af alþýðu- fóiki kominn, sem komst til æðstu metorða vegna greindar sinnar, heilinda og heiðar- leika. Þetta var harmleikur sem varð til þess að upp hófst mikil gagnrýni á aðgangs- hörku fjölmiðla við stjórnmálamenn. MATAR- & VÍNKLÚBBUR AB, ýlega afhenti umsjónarmaður Matar- og vín- klúbbs Almenna bókafélagsins, Sigurður L. Hall, vegleg ferðaverðlaun sem í boði voru í áskriftasöfnun klúbbsins. Dregið var úr nöfn- um rúmlega fjögur þúsund félaga sem skráðu sig í klúhbinn á meðan inngöngutilboð var í gildi. Úrdrátturinn fór fram í beinni útsend- ingu á Bylgjunni föstudaginn 30. apríl. Klúbb- félaginn heppni reyndist vcra Hrefna B. ,Ió- hannsdóttir og fær hún ókeypis ferð fyrir tvo til Mexíkó. Flogið verður í beinu lciguilugi með Heimsferðum hf. og er verðmæti vinn- ingsins um 160 þúsund krónur. Á myndinni sem hér fylgir er Sigurður að afhenda Hrefnu flugmiðann. LEIÐRÉTTING Þau bagalegu mistök urðu við vinnslu miðvikudagsblaðs Alþýðublaðsins (12. maí) að út féil hluti af undirfyrirsögn grein- ar á blaðsíðu 4. Greinin bar fyrirsögnina „Afleiðingar atvinnuleysis" og mistökin sjást í fyrstu setningu undirfyrirsagnarinnar. Þar stendur: „5% fyrirvinna hafa gengið á eignir sínar“, en það er að sjálfsögðu helber vitleysa. Hið rétta er að 55% fyrirvinna hafa gengið á eignir sínar vegna atvinnu- leysis. Leiðréttist þetta hér með og em les- endur beðnir velvirðingar. Stéttarfélag verkf'rœðinga og Félag ráðgjafarverkf-œðinga ÚTVÍKKUN ATVINNUMARK- AÐAR 0G ÚTFLUTNINGUR TÆKNIÞEKKINGAR - eru megin umfjöllunarefni ráð- stefnu sem ofangreind félög standa fyrir ogfjalla mun um atvinnumál verkfrœðinga Atvinnumálin em mál málanna í dag. Á morgun föstudag munu Stéttarfélag verk- fræðinga og Félag ráðgjafarverkfræðinga standa fyrir ráðstefnu í Ársal Hótel Sögu um atvinnumálin og hefst hún klukkan 13:30. Áherslan verður lögð á tvennt: útvíkkun á núverandi vinnumarkaði verkffæðinga og útflutning á tækniþekkingu. Átta erindi verða flutt og að þeim loknum verða pall- borðsumræður. Samkvæmt upplýsingum frá Þórhalli Hjartarsyni, formanns Stéttarfélags verk- fræðinga, telja félögin tvö að útflutningur á tækniþekkingu sé einn af athyglisverðustu vaxtarbroddum íslensks atvinnulífs. Þessi útflutningur er að sögn verkfræðinganna af- ar merkt framlag í leit að auknum útflutn- ingstekjum þjóðarinnar. Víst er að flestir munu vera því sammála. RAÐAUGLÝSINGAR Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA ÞORSMERKURFERÐ 9.-11. JÚLÍ Fundur í bæjarmálaráöi Alþýðuflokksins í Hafnar- firöi veröur haldinn mánudaginn 17. maí í Alþýðu- húsinu viö Strandgötu og hefst klukkan 20:30 aö vanda. Fundarefni: Framkvæmdir og verkefni sumarsins VERÐ MEÐ ÖLLU: CA. 3.000 KRÓNUR SKRÁNING Á SKRIFSTOFU SUJ HVERFISGÖTU8-10, REYKJAVÍK SÍMAR: 29244/625566 FAX: 629244 FJÖLMENNUM! Framsögumaöur: Guömundur Árni Stefánsson bæjarstjóri Allt Alþýöuflokksfólk í Hafnarfirði er hvatt til aö mæta vel og stundvíslega á þennan síöasta fund fyr- ir sumarfrí. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Auglýsing um styrkveitingu úr Þróunarsjóði leikskóla Bæjarmálaráð SUMARFERÐ Munið sumarferð A/þýðuflokksfélags Reykjavíkur 3. júlí 1993 Tilgangur sjóösins er að stuðla að þróunarverkefnum í leik- skólum / skóladagheimilum. Með þróunarverkefni er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í uppeldisstarfi. Um styrk geta sótt sveitarstjórnir / leikskólar / fóstruhópar / einstakar fóstrur. Sækja má um styrk til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru hafin. Umsókn fóstru skal fylgja umsögn við- komandi rekstraraðila. Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu fyrir 30. maí næstkomandi á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 4,150 Reykjavík. Á AKUREYRI Myndlistaskólinn á Akureyri er sjálfstæð stofnun styrkt af ríki og Akureyrarbæ. Markmið skólans er að veita nemendum þekkingu og þjálfun í hvers konar myndlistagreinum. FORNÁMSDEILD Eins árs nám Tilgangur fornámsdeildar er að veita nemendum alhliða undirbúningsmenntun í myndlistum. í deildinni fer fram list- rænn og tæknilegur undirbúningur fyrir nám í sérnámsdeild- um Myndlistaskólans á Akureyri og Myndlista- og handíða- skóla Islands. Gengið er út frá þeirri forsendu að hinar mis- munandi greinar sjónlista eigi sér sameiginlegan grunn. Eft- irtaldar greinar eru kenndar: hlutateiknun, anatómía, módel- teiknun, fjarvídd, myndbygging, litfræði, formfræði, þrívíð formfræði, umhverfisteiknun og listfræði. Markmiðið með náminu er að nemendur öðlist sem fjölbreyttasta listræna reynslu, bæði hvað varðar handbragð, tækni ýmis konar og listsögulega þekkingu. Til að hefja nám í fornámsdeild þurfa umsækjendur að senda til inntökunefndar tilskilinn fjölda eigin myndverka og hljóta staðfestingu hennar. MÁLUNARDEILD Priggja ára nám Nám í málunardeild reynir á hæfileika nemenda til skynjun- ar og myndrænnar túlkunar. Nemendur fá alhliða þjálfun í hefðbundnum greinum þar sem áhersla er lögð á tæknilega og listræna ögun. Helstu kennslugreinar eru: efnisfræði, skissugerð, olíumálun, akrílmálun, myndgreining, grafík, mótun, módelteiknun, veggmyndagerð, myndskreyting og listfræði. Til að hefja nám í málunardeild þarf umsækjandi að hafa lokið viðurkenndu fornámi og þar sannað hæfni sína í undirstöðugreinum. GRAFÍSK HÖNNUN Þriggja ára nám [ hinni nýju deild er lögð áhersla á nýja tækni, tölvuteiknun, án þess þó að missa sjónar á þeim grunni sem góð hönnun grundvallast á. Strax í upphafi takast nemendur á við grunn- hugmyndir fagsins, tengsl þess við atvinnulífið og rætur þess í fagurlistum. Helstu kennslugreinar eru: leturfræði, prentferill, Ijósmyndun, myndbygging, myndsifjafræði, myndlæsi, merkjafræði, umbúðahönnun, myndbandagerð, módelteiknun, skrift, markaðsfræði, stílsaga og listfræði. Til að hefja nám f grafískri hönnun þarf umsækjandi að hafa lokið viðurkenndu fornámi og standast þær kröfur sem inn- tökunefnd gerir til hæfni í undirstöðugreinum. Stjórnin

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.