Alþýðublaðið - 18.05.1993, Qupperneq 2
2
Þriðjudagur 18. maí 1993
HMIIBLUn)
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Jómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóöur Sigurösson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuöí. Verð í lausasölu kr. 90
Grunnskólinn til
sveitarféiaganna
/
Ymis sveitarfélög hafa farið í auknum mæli inn á það verksvið ríkisins að
auka þá þjónustu sem boðið er upp á innan grunnskólans og auka kennsl-
una í heimabyggð. Það er lengi búið að vera á stefnuskrá allra flokka að
lengja skóladag grunnskólabama og koma á samfelldum skóladegi og ein-
setnum skóla. Hins vegar hefur lítið miðað í þá átt enda ljóst að því fylgir
umtalsverður viðbótarkostnaður miðað við það sem nú er. Ríkið hefur ekki
treyst sér að leggja út í þann kostnað enda yrði það talsvert stór biti að
kyngja fyrir ríkið.
Margir hafa því horft til þess, að þá fyrst færu þessi mál að hreyfast þegar
þau væru komin í hendur sveitarfélaga. Á margan hátt er það líka auðveld-
ara fyrir sveitarfélög að fikra sig áfram með aukna þjónustu en það er fyrir
ríkið. Sveitarstjómarmenn eru í miklu meiri nálægð við gmnnskólann og
þarfir fólks í hinum einstöku byggðarlögum og einstök sveitarfélög geta
leyft sér að reyna nýja hluti í skólamálum sem ríkinu reynist erfítt. Það er
eðli þeimr þjónustu sem ríkið veitir að allt þarf að vera staðlað og nákvæm-
lega boðið upp á það sama á hverjum stað. Hófleg samkeppni milli sveitar-
félaga í skólamálum og öðrum málum ætti hins vegar að vera af því góða
og leiða til þess að hvert sveitarfélag fyrir sig kappkosti að bjóða upp á sem
besta þjónustu fyrir sem minnstan kostnað.
Talsverð umræða hefur verið um það hvort rétt sé að færa grunnskólann al-
farið yfir til sveitarfélaganna. Alþýðuflokkurinn hefur markað þá stefnu að
færa verkefni í auknum mæli yfir til sveitarfélaganna. Það hefur verið til-
hneiging hjá sveitarstjómarmönnum og almenningi að reyna að kría út sem
flestar krónur frá ríkinu, en hvatinn til hagræðingar heimafyrir er lítt eða
ekki til staðar meðan peningamir em sóttir í sameiginlegan sjóð allra lands-
manna.
Þegar menn hafa hins vegar ákveðna fjármuni til ráðstöfunar heima í hér-
aði er hægt að nýta hverja krónu sem sparast á einu sviði til að auka þjón-
ustu á öðm, lækka skatta eða verja fénu til annarra þarfa. Með því að færa
fleiri verkefni til sveitarfélaganna er verið að færa ákvarðanatöku, stjóm og
ábyrgð einstakra mála nær fólkinu í landinu. Að sama skapi munu að sjálf-
sögðu völd ráðuneyta og ríkisstofnana í höfuðborginni rýma.
HEYRT, SÉÐ & HLERAÐ
Ingibjörg Stefánsdóttir
Hin óviujafnanicga og
séríslenska bjartsýni...
„“Nei, ég er ekkert farin að stressa mig
yfir því ennþá. Ég ætla ekkert að kvíða fyr-
ir - bara mala þetta,“ sagði stúlkan blá-
köld,“
- er haft eftir Ingibjörgu Stefánsdóttur í opnuviðtali
í DV (15.05.1993.) Hin fagra söngkona Ingibjörg
hélt uppi íslenskri hefö í Eurovision-keppninni.
Var bjartsýn um ákaflega gott gengi og hafnaði
svo auðvitað í þrettánda sæti...
Davíð Oddsson
Jón Baldvin, fyrstur
með fréttirnar...
„Hann slær úr og í og hefur. aldrei um
málið heyrt, eða kannski og allt geti skeð.
Þó er greinílegt að hann hefur aldrei rætt
þessi mál við þá flokksmenn sína, sem sitja
á þingi og í ríkisstjóm. Þeir fá fréttimar frá
formanni Alþýðuflokksins,"
Vigdís Finnbogadóttir
- skrifaði einn af hinum óborganlegu „ekki- leið-
arahöfundum" Tímans síðastliðinn laugardag
(15.05.1993.) um „ekki-vitneskju“ Davíðs Odds-
sonar um ráðherramálin. Ergó: Leiðarahöfundar
Tímans segja meira en þeir vita, en Davíð hins
vegar segir minna en hann veit...
tölur um árangur),“
- segir Hreinn Hreinsson sálfræðinemi meðal ann-
ars í ritdómi sínum um Sálfræðibókina sem birtist
í Alþýðublaðinu síðastliðinn föstudag
(14.05.1993.). Það er hætt víð því að Þórarinn
Tyrfings verði að styðja mál sitt í framtíðinni með
haldbetri rökum en hingað til og sýna þá tölur um
árangur...
Heilagt stríð
á Seltjarnarnesi...
„Með þessari samþykkt er blautri tusku
slegið í andlit meirihluta fbúanna. Oham-
ingju Sjálfstæðisflokksins í bæjarmálum á
Seltjamamesi verður allt að vopni þessa
dagana. Þetta kallar á stríð. Það stefnir allt í
það að flokkurinn verði búinn að vera eftir
næstu kosningar,“
- sagði Magnús Erlendsson sjálfstæðismaður og
fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness í
DV (14.05.1993.) um að það skuli byggt á vestan-
verðu nesinu hvað sem tautar og raular. Hvernig
geta Kanarnir yfirgefið þjóð sem háir strið út af
húsum, ekki getur ríkið séð um að vernda oss fyrir
oss...
Whife, Sigurdór, Vigdís
og ein leiðindabók...
„Ég hlýt að hafa verið drukkinn þegar ég
keypti eintak af bókinni, „Vigdís forseti,
kjör hennar og fyrsta ár í embætti". Síðan
segir hann að bókin innihaldi frásögn af
metnaði frönskukennara til að komast til
æðstu metorða.“ „Síðan segir hann: „Þetta
er án nokkurs vafa heimsins leiðinlegasta
bók." Það dugði ekkert minna!“
- hefur Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður á DV
(14.05.1993.) eftir ritdómi Roland White í The
Sunday Times, 9. maí. Þorir einhver í veðmál um
að bók um kjör og fyrsta ár Guðlaugs Þorvalds-
sonar (eða Alberts Guðmunds) í embætti hefði
orðið jafn leiðinleg til lestrar og bókin um Vigdísi...
Hreinn Hreinsson
Heilagar SAÁ-kýr
gagnrýndar...
„Þar kemur til dæmis fram að ulgert
bindindi sé ekki lausn fyrir alla sem eiga við
áfengisvandamál að glíma. Það viðhorf hef-
ur sjaldan heyrst hér á landi hingað til.
(SÁÁ-menn hafa einokað umræðuna um
þessi mál, án þess þó að styðja mál sitt hald-
góðum rökum - svo sem með því að vísa á
Til þess að raunhæft sé að færa þjónustu í auknum mæli yfir til sveitarfé-
laganna þarf að fækka þeim og gera þau stærri. í haust mun reyna á það
hversu landsmenn eru fúsir til að sameinast í stærri sveitarfélög og þar með
hagkvæmari. Enda hefur það sýnt sig að margir hreppar standa hreinlega
ekki undir því að reka grunnskóla einir og sér, heldur hafa nokkrir þeirra oft
á tíðum sameinast um rekstur grunnskóla. Það sama á við ýmsa málaflokka
sem vert væri að færa yfír til sveitarfélaganna, þau eru mörg of fámenn nú
til að geta tekið þá að sér. Mörg fámenn sveitarfélög standa engan veginn
undir þeirri þjónustu sem krafa er gerð um til hinna stærri sveitarfélaga,
hvað þá að þau séu fær um að taka að sér enn frekari verkefni.
Ymsir málaflokkar hafa verið sameiginlega í forsjá ríkis og sveitarfélaga
og hefur það iðulega leitt til togstreitu á milli þessara opinberu aðila. Dæmi
-um það eru öldrunarmálin. Eftir því sem sveitarfélögin verja meiru í þjón-
ustu við aldraða má leiða líkur að því að aldraðir dvelji almennt lengur í
heimahúsum í stað þess að fara á dýrar stofnanir. Með því mætti spara sam-
félaginu stórfelld útgjöld. En hins vegar er Ijóst að sveitarstjómarmenn
mundu vilja sjá eitthvað af þeim spamaði, sem aukin heimilisþjónusta
myndi hafa í för með sér, renna til sveitarfélaganna. Þannig má færa rök
fyrir því að samkrull ríkis og sveitarfélaga í öldrunarmálum hafi komið í
veg fyrir eðlilega þróun í þessum málaflokki.
s
Aform og umræða um að færa grunnskólann alfarið yfir til sveitarfélag-
anna hefur eflaust ýtt undir það hjá ýmsum þeirra, að efla þjónustuna og
auka kennslumagn. Með því em þau að vísu að fara inn á verksvið ríkisins
en það var alþekkt að meðan skólabyggingar vom samstarfsverkefni ríkis
og sveitarfélaga, að þá byggðu sveitarfélög heilu skólana án þess að ríkið
legði fram sinn hluta fyrr en löngu seinna. Aðalatriðið er hins vegar það, að
nú fyrst eru menn famir eygja von um samfelldan heilsdagsskóla fyrir æsku
landsins.
faiðiudfajuk 16, mcti '9?
Atburðir dagsins
1803 Bretar falla frá Amiens-sáttmálanum frá árinu á undan, og
lýsa yfir stríði gegn Frökkum
1832 Franska skáldkonan George Sand gefur út fyrstu skáldsögu
sína, Indiana, þar sem hún krefst sjálfstæðis til handa konum. Sand
var fræg m.a. fyrir samband sitt við tónskáldið Chopin.
1909 Látinn er spánska tónskáldið og píanóleikarinn Isaac Albéniz,
sem þekktastur varð fyrir verk sitt Iberia. safh 12 píanóverka.
1954 Evrópusamþyktin um mannréttindi gengur í gildi.
1955 Fyrsti Wimpy hamborgarastaðurinn er opnaður í London.
1981 Ameríska skáldið William Saroyan er látinn.
1987 Iraskar Exocet eklflaugar lenda á bandarísku freigátunni
Stark. 26 skipverjar láta lífið, í Bagdad er því haldið fram að um
slys hafi verið að ræða.
1990 Þrátt fyrir sterka andstöðu
Sovétríkjanna ganga íjármálaráð-
herrar Austur- og Vestur-Þýska-
lands til samninga í Bonn og
ákveða eina sameigínlega mynt í
landinu.
1991 Muriel Box, bresk skáld-
kona, útgefandi og kvikmynda-
leikstjóri fjölmargra mynda, deyr,
85 ára að aldri.
KOMIN Á TOPPINN, - óstöðvandi
japönsk fjallgöngukona komst
þennan dag fyrir 18 árum á efsta tind Mount Everest, sem er í 8.863
metra hæð. Hún varð fyrst kvenna til að vinna þetta afrek. Heimild
okkar getur ekki um Nepalmanninn sem vann þó sama afrek og e.t.v.
meira, enda klvfjar hans miklar svo sem sjá má á myndinni.
Afmœlisdagar
Nikulás II, 1868 Rússneski keisarinn sem þvingaður var lil afsagn-
ar í byrjun byltingarinnar 1917 og var skömmu síðar tekinn af lífi
ásamt fjölskyldu sinni.
Bertrand Russel, 1872 Breskur heimspekingur, stærðfræðingur
og friðarsinni. Hann vann til Nóbelsverðlauna í bókmenntum árið
1950. „Ástarþráin, þekkingarleitin og óbærileg samúð með mann-
kyninu" voru að hans sögn ríkjandi þættir í lífi hans.
Frank Capra, 1897 Ítalsk-amerískur kvikmyndaleikstjóri, sem
tvivegis vann Oskarsverðlaun.
Dame Margot Fonteyn, 1919 Bresk ballerína, en i'rægustu sýning-
ar hennar voru í samvinnu við Rudolph Nureyev.
Rick Wakeham, 1949 Breskur tónlistarmaður í dægurmúsik.
Spakmœli dagsins
Það er hvorki við hœfí né öruggt að allir lyklarnir séu í höndum
einnar konu, sagði Thomas Brinton, biskup í Rochester á þess-
um degi 1376 um áhrif og völd liinnar samviskulausu Alice
Perrers yfir hinum aldna elskhuga, Játvarði konungi III.